Morgunblaðið - 20.08.2006, Page 26

Morgunblaðið - 20.08.2006, Page 26
26 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hjálpið mér, hjálpið mér.Segið mér frá ein-hverju, sem yður langartil að vita eitthvað um,“sagði hann og tók í handlegg mér. – Ég sat heimsk eins og þorskur. Loksins var listinn tilbúinn – þrír dálkar. Það væri bezt að ég læsi sögu- leg heimildarit. Ég væri það þroskuð, að ég gæti vel dregið ályktanir af þeim án þess að þurfa að fara neinar krókaleiðir. Hvernig gæti ég haldið, að hann liti niður á mig vegna þess að mig skorti bóklega þekkingu! Ég mætti ekki hugsa um sjálfsmorð eða því um líkt.“ Þetta las ég 19. júní sl. í bókinni Victoría Benediktsson og Georg Brandes eftir Fredrik Böök. Reyndar er þessi bók að mestu byggð á dag- bókum Victoríu, sem var sænsk skáldkona sem varð yfir sig ástfangin af Brandes. Tilvitnað samtal átti sér stað 16. desember 1886 og hafði Brandes verið í heimsókn á Hótel Leopold þar sem Victoría dvaldi. Hún hafði boðið Brandes upp á kvöldmat og kampavín og að því loknu vildi hinn frægi fyrirlesari Georg Brandes lesa fyrir Victoríu ritgerð sína um Heine og Rembrandt – eina af perlum hans, en áður spurði hann hana hvort hún kannaðist við Heine. Hið óljósa svar hennar gat ekki dulið fákunnáttu hennar. Henni fannst hún dauðadæmd. „Nei, ég mætti ekki deyja. Hann skyldi skrifa upp bókalista fyrir mig,“ segir Victoria í minnisblöðum sínum. Þegar ég las um þessi samskipti fannst mér eins og kvennabaráttu hefði miðað eitthvað áfram, fáar kon- ur, þess þá heldur skáldkonur, myndu láta tala til sín á þann hátt sem Brandes gerði við Victoríu Bene- diktsson. Reyndar náði hún fram síðbúnum hefndum, þótt það hafi kannski ekki verið ætlun hennar. Hún skrifaði um samskipti sín og Brandesar annars vegar í Stóru bók- ina og svo hins vegar á laus blöð, þessar upplýsingar eru uppistaðan í bókinni um þessi skáldhjú sem áttu í sérkennilegu ástarsambandi um tíma fyrir nærri 120 árum. Þessi skrif Victoríu gefa talsvert athyglisverða mynd af manninum Brandes og svo hlutskipti kvenna sem þráðu að leggja fyrir sig skriftir á þeim for- dómafullu tímum sem hún lifði á. Victoría var þegar þarna var komið búin að gefa út ljóð og sögu sem birt- ist í Syd-svenska Dagbladet, sem og var hún góður teiknari, málari og kunni að klippa skuggamyndir. Hún giftist 22. september 1871 21 árs gömul póstmeistaranum í Hörby, Christían Benediktsson, sem var 48 ára ekkjumaður með fimm börn. Það leið ekki á löngu þar til Victoría gerði sér ljóst að hún hafði gert mikil mis- tök en hún tókst hetjulega á við stjúp- móðurhlutverkið og eignaðist tvær dætur á þremur árum, sú yngri dó rétt eftir fæðinguna. Ólíkur eðlisþættir Victoríu Foreldrar Victoríu voru mjög ólík- ir, faðirinn léttlyndur óðalsbóndi í stöðugum fjárhagserfiðleikum en móðirin alvörugefin og heittrúuð. Vic- toría virðist hafa átt báða þessa þætti í fari sínu og þessi ólíka samsetning gerði hana að mjög sérstakri persónu sem Brandes gekk erfiðlega að átta sig á. Enn síður gerði hann sér grein fyr- ir að hún hraðritaði niður samtöl þeirra og satt að segja er sú frásögn nokkuð á skjön við þá mynd sem dregin hefur verið upp af George Brandes fyrir íslenskt skólafólk. Hann var á sínum tíma mikið átrún- aðargoð íslenskra skálda – að ekki sé meira sagt. Þegar fundum þeirra Victoríu og Brandesar bar saman var hún 36 ára en hann 44 ára. Bæði voru þau gift og hvorugt hamingjusamlega. Victoría var trúmennskan uppmáluð en átti í vináttusamböndum við unga, sænska rithöfunda, einkum Axel Lundgaard. Verk sín gaf hún út undir dulnefninu Ernst Ahlgren. Hún hafði mikinn áhuga á að kynnast Brandes sem var umsetinn, ekki síst af hinum skrifandi konum. Hann átti tvö ung börn með konu sinni og voru tryggð 4.000 króna árslaun en bækur hans seldust í litlum upplögum. Hann var hins veg- ar áhrifamikill í dönsku bókmennta- lífi, sem og bróðir hans Edward. Fyrsta bók Victoríu, Frá Skáni, kom út 1884, nokkru síðar skrifaði hún leikritið Í síma. Síðar skrifaði hún skáldsöguna Frú Marianne og leik- ritið Hin bergnumda. Hún var með réttu talin til „Hinnar ungu Svíþjóð- ar“ en svo nefndust veruleikaskáldin á níunda tug 19. aldar. Kynnin við George Brandes urðu henni örlagarík, en þau komust á gegnum Lundgaard, hann og Victoría borðuðu saman miðdegisverð 27. september 1886. Fjárhagur beggja var lélegur svo í stað þess að kaupa eftirrétt ákváðu þau að Lundgaard skyldi fara og kaup vínber og koma með þau upp á hótelherbergi hennar. Með vínberin í poka hitti hann Bran- des sem átti bágt með að trúa því að Victoría væri ekki kærasta Lundg- ards heldur væri samband þeirra „saklaust“. Kannski þess vegna ákvað Brandes að líta í heimsókn til Victoríu þarnæsta dag. Hann var haldinn mikilli forvitni og nánast mannhungri. Leyfið mér að kyssa þessi augu Þau Victoría og Brandes voru greinilega gagnólíkt fólk. Hún var hlédræg og alvörugefin í viðmóti, grönn og hávaxin kona sem gekk við staf eftir að hafa fengið beinhimnu- bólgu í hné, hann var fremur lágvax- inn, smáfelldur og umræður um ásta- mál voru honum afar hugleikin. Hann kom og sagði Victoríu frá ástkonum sínum, hjónabandserfið- leikum í bland við eitt og annað sem laut að bókmenntum. „Það virtist svo geinilegt, að honum líkaði ekki svo illa við mig. „Leyfið mér að kyssa þessi augu, með stóru augasteinunum!“ Og svo kyssti hann þau aftur og aftur. Við vorum kát eins og tvö börn. Hin mikla, heilbrigða - ég myndi vilja segja fróma - hamingja án allrar undirhyggju.“ Um þetta leyti desember 1887, gaf Brandes óbeðinn Victoríu mynd af sér. Smám saman þróuðust á milli þeirra sérkennileg samskipti sem fram fóru að mestu á Hótel Leopold, þar sem Victoría hélt til þegar hún dvaldi af og til í Kaupmannahöfn. Victoría fór strax að skrá niður samtöl þeirra og ýmsar gagnrýnar hugleiðingar um Brandes, sem hún varð smám saman mjög ástfangin af og sem að vissu leyti endurgalt til- finningar hennar en hafði þó mörg járn í eldinum. Brandes komst í þessi skrif hennar einn daginn: „Svo sneri hann sér við, hann hafði lesið til enda. Hvílíkur svipur á andliti hans! - Kuldi, vonbrigði, reiði. Iðrunin greip um háls mér köldum fingrum. Nú sá ég fyrst hvað ég hafði gert, hvað ég myndi missa.“ Brandes tók Victoríu heldur betur í gegn. „Við og við komu nokkur orð, skullu á mér eins og svipuólar og skildu eftir blóðugar rendur og brennandi sviða.“ En þessi uppákoma jafnaðist þó og hið, að mestu, andlega ástarsamband blómgaðist næstu mánuði. Victoría klippti meira að segja á sig topp að áeggjan Brandesar og reyndi að geðj- ast honum í hvívetna – nema hvað hún tregðaðist við að gefa sig honum fullkomlega á vald og fannst honum það mjög einkennilegt og vildi vita „af hverju ekki?“ Hvernig reiðir þessu af? Victoría hafði mikinn áhuga á að vita „hvernig þessu myndi reiða af“. Í Stóru bókina skráði hún athuganir sínar á samskiptum þeirra sem voru ekki eins berorðar og þær á minn- isblöðunum sem hún lét eftir sig. „Hann hefur ákaflega skemmtileg- an máta á því að flytja sig til, þegar einhver ber að dyrum. Þetta litla at- riði sýnir svo mikla æfingu, og hann er orðinn svo fimur í þessum varúðar- ráðstofunum, að ég get nærri kafnað af niðurbældum hlátri. Ég hef tekið eftir þessu fyrr – um kvöldið, þegar við sátum í sófanum – en því oftar, sem ég sé það, þeim mun spaugilegar lítur það út. Ég hlýt að hafa sérstaka kímnigáfu, þegar ég lít þannig á þetta … Hann stendur ekki upp, hreyfir sig varla, flýtir sér ekki held- ur, en áður en köttur hefur náð að depla augum, situr hann á öðrum stól, og situr þar með óviðjafnanlegum ró- lyndissvip. Ég held að hann hafi enga hugmynd um það, hversu brosleg þessi leiksviðsbreyting er, séð frá mínu áhorfendasæti.“ En Victoría sat ekki róleg í sínu áhorfendasæti, hún kvaldist meira og meira af óvissu og þungsinni eftir því sem ást hennar á Brandes dýpkaði. Þótt hún undraðist hégómleika hans og furðaði sig á að þessi mikli andi ætti slíkt til, óx ást hennar stöðugt og varð nánast að þráhyggju. Brandes hélt áfram að heimsækja Victoríu á Leopolds hótel. „Hann var í sama skapi allt kvöldið, ýmist blíðuatlot eða skammir, og þess á milli talaði hann og sagði frá sjálfum sér. Þér eruð svo ung og yndisleg í kvöld, og svo kyssti han mig frá kinn og upp að enni, fylgdi lokknum með smáum, þéttum kossum, eins og hann þræddi perluband kringum andlit mitt, girti það af og eignaði sér það.“ Í lok kvöldsins sagði Brandes: „Og svo skalt þú gera þitt fallega nafn, Ernst Ahlgren, þekkt og dáð, það skalt þú gera, því það er engin skömm að því. Eða hvað segir þú sjálf?“ Hann kyssti burt svar mitt, sem var játandi. - Skrifaðu nú reglulega góða bók.“ Hann þrýsti hönd mína, og dyrnar lokuðust á eftir honum. Ég var ein. Í dagatalið skrifaði hún: „Skyldi ég nokkurn tíma lifa slíkan dag aftur?“ Mikil umskipti urðu í sambandi Victoríu og Brandesar þegar bók hennar Frú Maríanne kom út, bókin sem átti að fylla Brandes aðdáun. Þessi bók varð reyndar mjög vinsæl meðal kvenna en fékk óvægna dóma í Politiken, það var Edward, bróðir Georges Brandes, sem skrifaði þenn- an ritdóm, sem síðari tíma menn telja raunar að hafi verið skot, langt yfir markið, hann kallaði bókina m.a. kvennasögu, yfirborðslega og brodd- borgaralega. Ástæða þess að Brandesbræður vanmátu þessa bók svo mjög var að í henni gerðist Victoría talsmaður hjónabandsins, en Georg Brandes var mikill talsmaður frjálsra ásta, - sem að vísu urðu honum til mikilla vand- ræða í framkvæmd. Victoría hafði lagt mikið í þessa bók og tók ritdóminn í Politiken nærri sér. Vinur hennar Matti af Geijerstam lýsti líðan hennar. „Það var hræðilegt að sjá angist hennar og örvæntingu, hún leitaði at- hvarfs í trjágarðinum, fór til fjarlæg- asta skógarstígsins, þar sem enginn gæti séð hana og þar gekk hún fram og aftur viðþolslaus.“ Dómurinn hafíð áhrif á fjárhag hennar og dró úr trú hennar á eigin hæfileika. Svo mjög Morgunblaðið/Ómar Frederiksborg slot er glæsilegasta höll í Danmörku, kastalinn var endurbyggður eftir stórbruna árið 185 og var því verki lokið árið 1884, þremur árum áður en leiðir þeirra Victoríu og Brandesar lágu saman Morgunblaðið/Ómar Strikið í Kaupmannahöfn, þar hefur Victoría á sínum tíma farið í innkaupaferðir áður en Brandes heimsótti hana á Leopolds hótel. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Berlingske Tidene sem er en með höfuðstöðvar sínar við Ráðhústorgið í Kaup- mannahöfn. Á þessum slóðum er vettvangur ástarsögu þeirra Victoríu Bene- diktsson og Georgs Brandes. Harmagyðjan Victoría Georg Brandes var áhrifamikill í norrænum bókmenntum á sinni tíð. Hann átti í ástarsambandi við sænsku skáld- konuna Victoríu Benediktsson. Guðrúnu Guðlaugsdóttur gluggar hér í dagbækur hennar um þetta samband sem endaði hörmulega árið 1888. ’Victoría fór strax aðskrá niður samtöl þeirra og ýmsar gagnrýnar hugleið- ingar um Brandes.‘ F.v. Victoría og Mattí stjúpdóttir henn- ar, sem síðar lagði liljur utan um skor- inn háls Victoríu sem hinstu kveðju. Georg Brandes, þessa mynd gaf hann sjálfur Victoríu Benediktsson í upp- hafi kynna þeirra. Victoría á́samt dóttur sinni Hilmu. Myndin af mæðgunum var tekin árið 1878.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.