Morgunblaðið - 20.08.2006, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 31
Úrval af eignum hjá borginni Burgas við Svartahafið
Nálægt Sunny Beach sem er stærsti sólarbær við Svartahafið.
Mikil sala og miklar hækkanir framundan. Búlgaría er á leið í ESB í janúar 2007 og er spáð
mikilli verðhækkun á eignum. Samkvæmt spám er talið að Búlgaría verðið árið 2015
orðinn mest sótti ferðamannastaður Evrópu.
Verðlag í Búlgaríu er ótrúlega lágt en gæðin samt frábær í mat og þjónustu.
Tvær ferðskrifstofur eru með beint flug í sumar til Búlgaríu:
www.terranova.is og www.apollo.is
Þeir sem kaupa eignir af Proxima fá ferðina og hótelið endurgreitt.
Hægt er að fara hvenær sem er og skoða eignir.
Proxima finance ltd. er rekið af traustum íslenskum aðilum sem starfrækja skrifstofu í
Burgas og hafa mikla þekkingu á búlgörskum fasteignamarkaði.
Þetta er frábært tækifæri til að kaupa eignir á réttum tíma þar sem stór fjárfestingarfélög
frá t.d. Spáni, Bretlandi og öðrum Evrópulöndum eru að undirbúa fjárfestingar í Búlgaríu.
Aðstoðum fjárfesta við að finna réttu tækifærin!
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
S: 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali
MIKIÐ ÚRVAL EIGNA
Skoðunarferð 29. ágúst - 5. sept.
Starfsmenn Proxima á staðnum og sýna eignir
BUDJAKA
INSARAKE
SAROFO
BUDJAKA
IN
SA
RA
KE
8
ÍB
ÚÐ
IR
TI
L
SÖ
LU
BUDJAKA - 10 RAÐHÚS
SE
LT
!
SEL
T!
SEL
T!
SEL
T!
SE
LT
!
TIL
SÖL
U
TIL
SÖL
U
TIL
SÖL
U
TIL
SÖL
U
SE
LT
!
11
ÍBÚ
ÐIR
14
ÍBÚ
ÐIR
TIL
SÖ
LU
SE
LT
!
13
ÍBÚ
ÐIR
2,
16
7 F
M.
ÍBÚ
ÐIR
TIL
SÖ
LU
BÚLGARÍA
FJÁRFESTINGARTÆKIFÆRI
Upplýsingar gefur Ingvar Ragnarsson, sölufulltrúi Akkurat ehf.,
í símum 595-5000 og 822-7300 • ingvar@akkurat.is
finnski skærabærinn Fiskars sem
varð eftirsóttur sköpunarstaður
hönnuða og arkitekta eftir að hafa
legið í dái frá því að verksmiðj-
urnar fluttu starfsemi sína þaðan.
Skólakerfið stokkað upp
Fyrsta skrefið til að gera Hälle-
fors að menningarbæ var að
stokka upp í skólakerfinu. Auk
hefðbundinnar námskrár var
dansi, tónlist, leiklist og myndlist
bætt inn í stundaskrána. Í þessu
nýja námsskipulagi fengu nemend-
ur meira sjálfstraust og urðu sjálf-
stæðari og tilbúnari til að fara sín-
ar eigin leiðir. Þar með eru orðnir
til íbúar sem vilja í framtíðinni búa
í menningarlegum bæ þar sem
möguleikar til sköpunar eru til
staðar.
Síðan var farið í að skreyta bæ-
inn og gera við þau niðurníddu hús
sem í bænum voru. Ljungberg tók
sér bæinn Holstebro til fyrirmynd-
ar í þessum efnum og ánafnaði
vænni summu af fjárlögum bæj-
arins til listaverkakaupa, sem var
umdeild hugmynd á sínum tíma en
leiddi til þess að skemmdarverkum
hríðfækkaði, auk þess sem bæj-
arbúar urðu aftur stoltir af bænum
sínum.
Dregur að ferðamenn, nemendur
og hönnuði
Eftir að hafa farið í gegnum
þessar breytingar var ákveðið að
framtíð Hällefors skyldi vera
byggð upp með hönnun að vopni,
þar sem menntun var drifkraft-
urinn.
Og þar sem syngjandi skólabörn
og dugmikil áhugaleikhús fylla
kannski ekki peningakassann, og
þó, var hafist handa við stofnun
Hönnunarseturs.
Hönnunarsetrið sem nú er risið
og ber nafnið Formens hus er allt
í senn hönnunarsafn, rannsóknar-
og kennslustofnun auk þess sem
þar eru starfræktar vinnustofur
fyrir bæði börn og fullorðna og
unnið er að safni yfir náttúruvæn
efni og efnivið. Formens hus hefur
unnið verkefni í samstarfi við
ýmsa hönnunarskóla og er einnig í
samstarfi við matreiðsluháskóla í
nágrannabæ.
Hönnunarsetrið dregur að
ferðamenn og nemendur en einnig
hönnuði og handverksfólk, sem
auðveldlega er gert kleift að setja
á fót lítil fyrirtæki eða stúdíó í
bænum.
Umbreyting á bænum Hällefors
hefur tekið langan tíma og tekið á
stáltaugar bæjarbúa á köflum en
hún er sannarlega til góðs. Að
breyta bænum úr deyjandi frum-
framleiðslubæ í skapandi og
áhugaverðan bæ til að búa í er
mikill sigur fyrir bæjarbúa og í
dag flytja fleiri til Hällefors en á
brott.
Litla húsið á svörtu ánni
Hönnunarsetrið, Formens Hus, í
Hällefors styrkti og hafði umsjón
með samstarfsverkefni þriggja
hönnunarskóla sem bar nafnið:
Litla húsið á svörtu ánni. Nemend-
urnir komu úr Konsfack í Stokk-
hólmi, St. Etienne í París og Par-
sons í New York og verkefnið var
að hanna bústað fyrir listamenn og
hönnuði sem koma til vinnudvalar
í Hällefors. Verkefnið var ár í
vinnslu og hlaut fyrstu verðlaun á
ICFF (International Contempor-
ary Furniture Fair) 2006 þar sem
prótótýpa í raunstærð af húsinu
var sýnd.
Nemendurnir hittust í Hällefors
í júní nú í sumar til að byggja hús-
ið sem þeir höfðu hannað á gamalli
brú sem liggur yfir Svörtu ána. Á
brúnni eru gamlir járnbrautartein-
ar sem eitt sinn voru notaðir til að
flytja stál. Ikea gaf efnivið í hús-
bygginguna og nemendurnir end-
urunnu einnig ýmis Ikea húsgögn
sem þeir notuðu síðan til að inn-
rétta.
Hönnuðirnir vildu að dvöl í hús-
inu væri upplifun út af fyrir sig.
Umhverfið og falleg náttúran sem
umlykur húsið fá að njóta sín og
húsið er þar af leiðandi opið og
bjart.
Einnig vildu þeir að upplifunin
minnti að einhverju leyti á útilegu,
þannig að öll tæki eins og vaskur,
sturta og eldunartæki minna á ein-
faldan útilegubúnað. Þau voru
hönnuð og framleidd í samvinnu
við sænskt fyrirtæki, Primus, sem
sérhæfir sig í framleiðslu á úti-
legubúnaði. Ljósin í húsinu eru
einnig sérhönnuð með virkni úti-
leguljósa en hafa útlit erkitýpu
stofulampa.
Á brúnni eru þrjú hús sem þjóna
mismunandi tilgangi en pallur, eða
brúin sjálf tengir þau og nýtist
einnig sem útivinnusvæði. Nú þeg-
ar húsið er risið verður það notað
sem bústaður fyrir listamenn og
hönnuði sem koma til Hällefors á
vegum Hönnunarsetursins. Gestir
fá að dvelja í húsinu í tvær vikur í
senn og vinna þar að hugarefnum
sínum og list. Dvöl í húsi sem
þessu ætti að gefa góðan innblást-
ur.
Vinnuherbergi með útsýni.
Höfundur er vöruhönnuður
hannar@mbl.is
Dvölin í húsunum á að vera upplifun út af fyrir sig og húsin því opin og björt.
Upplifunin á líka að minna á útilegu og öll tæki því einföld.
einnig í Akureyrarkirkju). For-
maður sóknarnefndar er Birgir
Arnar.
Margrét Svavarsdóttir er djákni
og Hafþór Jónsson kirkjuvörður
en organisti kirkjunnar heitir Kári
Þormar. Hljómburður hefur reynst
ágætur í byggingunni og er kirkj-
an alloft notuð sem tónleikasalur.
Kirkjunni tekið tak
Áskirkja er með nokkuð sér-
stæðu yfirborði að utanverðu.
Steinsalli í múr, svokölluð steining,
telst vel þekkt og nánast sérís-
lensk utanhúsklæðning sem reynst
hefur vel. Ysta múrhúð Áskirkju
er áhugavert afbrigði steiningar,
eins konar ljós hraunhúð. Þar hef-
ur hvítum marmarasalla verið
hrært í þunna, ljósa steypublöndu
og hún borin á útveggi og svo ýfð,
t.d. með kústi, þannig að yfirborð
veggjanna líkist fíngerðu yfirborði
helluhrauns.
Íslensk veðrátta er rysjótt og ör,
sífelld skipti frosts og þíðu stóran
hluta árs eru erfið öllum mann-
virkjum. Margar kirkjur og aðrar
opinberar byggingar þarfnast
verulegs viðhalds, eins þótt reynt
hafi verið að halda í horfinu. Næg-
ir að nefna Þjóðleikhúsið og Hall-
grímskirkju af reykvískum stór-
byggingum. Áskirkja hefur fengið
sinn skerf af viðhaldi en orðið að
lúta náttúrunni og eru nú risnir
verkpallar við Áskirkju. Verulegar
þak- og múrviðgerðir munu fara
þar fram, ásamt ýmsum öðrum
endurbótum og loks verður kirkjan
endurhraunuð. Stjórnendur kirkj-
unnar vilja hafa viðgerðirnar sem
vandaðastar og stendur sóknar-
nefndin undir háum viðgerðar-
kostnaði kirkjunnar með sóknar-
gjöldum og styrkjum úr sjóðum á
vegum Biskupsstofu og Reykjavík-
urborgar, auk lánveitinga fjár-
málastofnana. Á tímafrekum við-
gerðunum að vera lokið fyrir 25
ára vígsluafmæli kirkjunnar í des-
ember 2008. Ráðgjafi er Línuhönn-
un hf. í samráði við arkitekta en
verktaki er Magnús og Steingrím-
ur ehf.
Nýir steindir gluggar
Afmælisins á reyndar að minn-
ast með öðrum veglegum hætti;
með nýjum, steindum kirkjuglugg-
um fremst í kór kirkjunnar, þ.e. í
„stefninu“. Auglýst var eftir um-
sóknum listamanna sem taka vildu
þátt í forvali. Þeir skyldu ekki
senda inn tillögur heldur staðfesta
áhuga sinn með vísun til fyrri
listaverka. Rúmlega tuttugu um-
sóknir bárust.
Gluggarnir nýju verða 10 talsins
og mynda heild en hver þeirra
verður 284x90 cm að stærð. Þema
verksins á að vera Pétur postuli og
starf hans sem sjómaður og síðar
lærisveinn Jesú. Gluggarnir eiga
að njóta sín vel í kirkjunni hvort
sem í dagsljósi eða þegar kirkjan
er raflýst. Forvalsnefnd ákvað að
velja listamennina Benedikt Gunn-
arsson, Hörpu Árnadóttur og Val-
gerði Bergsdóttur úr umsóknar-
hópnum til að leggja fram
verktillögur um útlit glugganna en
fimm manna dómnefnd velur loks
eina þeirra til útfærslu fyrir lok
janúar 2007. Kostnaður við gerð og
smíði glugganna verður greiddur
með frjálsum framlögum sóknar-
barna, af velunnurum kirkjunnar,
meðtekjum af styrktartónleikum
og með minningargjöfum til kirkj-
unnar. Enn skortir töluvert upp á
fjármuni svo ljúka megi þessu
verki, að sögn Birgis Arnar.
’Gluggarnir nýjuverða 10 talsins og
mynda heild en hver
þeirra verður
284x90cm að stærð.
Þema verksins á að
vera Pétur postuli og
starf hans sem sjó-
maður og síðar læri-
sveinn Jesú. ‘
Höfundar eru Sverrir Jóhannesson
byggingartæknifræðingur og
Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlis-
fræðingur, sem báðir eru áhugamenn
um varðveislu bygginga og íslenska
byggingarlist.