Morgunblaðið - 20.08.2006, Side 42
42 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Nýkomið í einkasölu sérlega
fallegt raðhús, 60 fm 2ja herb.
á einni hæð. Sérinngangur,
rúmgott svefnherbergi, björt
rúmgóð stofa, baðherbergi,
nýlegt eldhús, þvottaherbergi
o.fl. Parket á gólfum.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Boðahlein - Gbæ - Raðhús
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í
einkasölu sumarbústað á einstökum stað,
örskammt frá höfuðborginni (ca 5-10 mín.
akstur). Bústaðurinn er 49 fm auk 12 fm
bátaskýlis og skiptist í inngang, eldhús,
stofu, herb. og snyrtingu. Bátaskýli og bátur
fylgir. Einstök náttúrufegurð við læk og
vatn. Stór lóð ca 8000 fm (leigulóð). Þó
nokkur trjágróður. Alveg prívat.
Uppl. veita Guðmundur og Magnea
í síma 865-8552.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Sumarhús - Elliðavatnsbletti
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
OPIÐ HÚS Í DAG
Sérhæð ásamt bílskúr
ÁLFHÓLSVEGI 85 - KÓPAVOGI
Um er að ræða einstaklega
bjarta og glæsilega 111,5 fm
neðri sérhæð í þessu húsi
ásamt 36 fm bílskúr. Húsið er í
mjög góðu standi og bílskúrinn
líka. Íbúðin er öll nýlega stand-
sett á mjög smekklegan hátt,
þ.e. öll gólfefni, öll tæki, inn-
réttingar, nýtt baðherbergi, nýtt
eldhús o.fl. 3 herbergi, stofa og
borðstofa, rúmgott eldhús. Ótrúlega góð nýting og virkar íbúðin mun
stærri en hún er skráð.
Eign sem vert er að skoða. Verð: 29.900.000.-
Agga Hrönn tekur á móti þér og þínum
í dag milli kl. 14:00 - 16:00.
Kristnibraut 69 - Opið hús
564 6464
Síðumúla 24 • 108 Reykjavík
hof@hofid.is • www.hofid.is
Guðm. Björn Steinþórsson
lögg. fasteignasali
Jón Guðmundsson sölustjórifasteignasala
Glæsileg 120 fm 3ja herbergja íbúð á 1. hæð ásamt stæði í bílageymslu. Fallegt eldhús
opið við rúmgóða stofu og borðstofu, tvö svefnherbergi, flísalagt baðherbergi, þvotth. og
geymsla innan íb. Vandaðar eikarinnréttingar og eikarparket. Suðurverönd og vestursval-
ir út af borðstofu. Áhv. 14 millj. með 4,15% vöxtum. Verð 27,9 millj.
Þóra og Reynir taka á móti áhugasömum milli kl. 17 - 19.
Úthlíð- Stórglæsileg 5 herbergja sérhæð
Glæsileg 166 fm. sérhæð auk stórs bílskúrs í húsi sem hefur verið algjörl. tekið í gegn að utan og
endursteinað. Eignin skiptist m.a. í forst., forstofuhb., geymslu, sjónv. hol, eldhús, baðhb., tvö herb.,
borðst. og stofu. Rúmg. bílsk. Tvennar sv. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð s.l. ár m.a. þak fyrir 10-15
árum, dren, rafm. og nýjar útitr. með hita í. Stæði fyrir tvo bíla fyrirframan bílsk. Glæsil. garður. Frábær
staðst. miðsv. en stutt er í Ísaksskóla, Æfingaskólann, miðbæinn, Klambratún og Kringluna. V. 45,0 m.
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Ég sagði óvart: Þessi mál báru á góma.
RÉTT HEFÐI VERIÐ: Þessi mál bar á góma.
Gætum tungunnar
ÞAÐ hefur verið hlutskipti ís-
lenskra kúa að þurfa að hírast inn-
andyra yfir vetrarmánuðina, lengst-
af í þröngum og gluggalausum
fjósum. Það er því yf-
irleitt mikill völlur á
þeim þegar þeim er
hleypt úr fjósi á vorin
út í guðsgræna náttúr-
una. Á vissan hátt má
líkja gleðilátum þeirra
við þá stemningu sem
ríkir hjá ungu fólki
sem sækir útihátíðir á
sumrin. Í ljóði frá
árinu 1961 er þjóðhá-
tíð Vestmannaeyinga
lýst á dramatískan
hátt sem hátíð fengi-
tímans, en þar segir
svo í fyrsta erindinu: „Hátíð fengi-
tímans hófst í dag/með því að
nokkrir prúðbúnir fótboltamenn/
drógu þúsund fána til himins.“
Þessar kaldhæðnislegu ljóðlínur
komu upp í hugann þegar ég las í
dagblöðunum og fylgdist með frétt-
um í útvarpi og sjónvarpi þar sem
greint var frá því að stúlku hafði
verið nauðgað í tjaldi á þjóðhátíð og
greint frá tveim nauðgunum sem
höfðu verið kærðar á útihátíðinni
Ein með öllu á Akureyri. Þessum
fréttum fylgdu frásagnir af áfalla-
hjálp og annarri þjónustu fyrir
stúlkur sem töldu sig hafa orðið fyr-
ir nauðgun.
Nauðgun er ekkert gamanmál
sem við tölum um í hálfkæringi.
Nauðgun er flókið fyrirbæri sem
ber að ræða af varfærni og ábyrgð-
artilfinningu. Inngangsorð þessa
greinarkorns eru heldur ekki hugs-
uð sem spaug. Þau eru sett fram í
þeim tilgangi að vekja athygli á
raunveruleika sem allir skynja ein-
hversstaðar í undirvitundinni en
hleypa sjaldnast upp á
yfirborðið. Kynhvötin
er nefnilega ein af
sterkustu frumhvötum
mannsins, sérstaklega
meðan hann er ungur
og horfir jákvæðum
augum til framtíðar.
Þetta á bæði við um
karla og konur.
Staðreyndin er sú að
frjálslegt og óþvingað
kynlíf er orðið áber-
andi á stórum útihátíð-
um. Þar þarf ekki vitn-
anna við. Hvers vegna
skyldu pabbar og mömmur og afar
og ömmur sjá ástæðu til þess að
brýna fyrir unglingunum, ekki að-
eins að aka varlega um versl-
unarmannahelgina, og alls ekki
undir áhrifum áfengis, heldur líka
að gleyma nú ekki að taka með sér
smokk. Kirkjunnar menn hafa
gengið fram fyrir skjöldu og beitt
sér fyrir því að smokkar séu hafðir
til sölu í sjoppum og á bens-
ínstöðvum og helst dreift ókeypis
fyrir stórar útihátíðir. Sú hugsun að
kynlíf sé syndsamlegt athæfi heyrir
að mestu leyti sögunni til. Á þessu
sviði hafa orðið grundvallarbreyt-
ingar.
Yfirgnæfandi meirihluti þeirra
sem sækja útihátíðir um versl-
unarmannahelgina er ungir piltar
og ungar stúlkur – strákar og stelp-
ur. Er það eitthvað launungarmál
að ungt fólk laðast hvert að öðru?
Nútímamaðurinn, hin unga kynslóð,
lítur jákvæðum augum á kynlíf.
Kynlíf er ekki lengur það þrúgandi
tabú sem áður var, heldur sýnilegur
hluti þeirrar tilveru sem maðurinn
lifir og hrærist í. En mannlífið í dag
hefur sínar skuggahliðar rétt eins
og áður fyrr. Ofbeldismenn geta
leynst á útihátíðum eins og hvar
annars staðar. Ég tel hins vegar
ástæðulaust að líta á útihátíðir sem
einhvern sérstakan vettvang fyrir
nauðgara og kynferðislega ofbeld-
ismenn.
Hverjir eru það sem nauðga?
Þetta er spurning sem fræðimenn
hafa lengi velt fyrir sér. Rannsóknir
sem gerðar hafa verið á þessum
sviðum benda til þess að hinn
dæmigerði kynferðisbrotamaður
fremji afbrot sitt að yfirlögðu ráði.
Það er ekki tilviljun sem ræður því
að hann nauðgar heldur markviss
ásetningur um að fremja kynferð-
islegt afbrot. Þetta eru hinir eig-
inlegu nauðgarar.
Sá sem þessar línur ritar vann,
haustið og vorið 1979–80, að und-
irbúningi að rannsókn, við Virginia
Tech háskólann í Bandaríkjunum, á
lögformlegri skilgreiningu á nauðg-
unum á Vesturlöndum, „Toward a
Socio-Legal Defination of Forcible
Rape in Western Societies“, en
stjórnandi rannsóknarinnar var
próf. Donald J. Shoemaker, banda-
rískur afbrotafræðingur. Það var
lærdómsrík reynsla.
Í öllum samfélögum eru ofbeld-
ismenn sem beita líkamsafli til þess
að misþyrma og nauðga fórn-
arlömbum sínum, ekki af eðlilegum
kynferðislegum ástæðum heldur af
óheftri árásarkennd. Þetta eru hinir
eiginlegu nauðgarar; afbrotamenn
sem misþyrma saklausu fólki af
sjúklegri áráttu og yfirlögðu ráði.
Þessir einstaklingar ganga ekki
heilir til skógar og af þeim stafar
ógn sem samfélaginu ber skylda til
að bregðast við með skýrum laga-
ákvæðum. Þar er aðkallandi verk að
vinna fyrir löggjafarvaldið.
Hverjir eru hinir
eiginlegu nauðgarar?
Bragi Jósepsson fjallar
um meintar nauðganir
á útihátíðum ’Nauðgun er flókið fyr-irbæri sem ber að ræða
af varfærni og ábyrgð-
artilfinningu.‘
Bragi Jósepsson
Höfundur er rithöfundur og fv.
prófessor. bragijos@hotmail.com
SANDUR MÖL
FYLLINGAREFNI
WWW.BJORGUN.IS
Sævarhöfða 33,
112 Reykjavík,
sími 577 2000