Morgunblaðið - 20.08.2006, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 43
UMRÆÐAN
Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr.,
lögg. fast.- og skipasali
Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali
STÓRAR EIGNARLÓÐIR FYRIR FRÍSTUNDABYGGÐ
Í LANDI KÍLHRAUNS Í SKEIÐA- OG GNÚPVERJAHREPPI
FRÁBÆR STAÐSETNING
Kílhraun er einungis um 65 km frá Reykjavík (Rauðavatni). Frí-
stundabyggðin er skammt frá Selfossi og í næsta nágrenni við
margar af helstu náttúruperlum landsins, s.s. Þingvelli, Laugar-
vatn, Kerið, Gullfoss og Geysi. Fjölbreytt afþreying er í boði í
nágrenni svæðisins og má þar nefna golfvelli, sundlaugar og
veiðisvæði en alla þjónustu má nálgast á Selfossi sem er að-
eins í 13 mín. fjarlægð frá svæðinu.
LEIÐIN
Ekið er í gegnum Selfoss í um 10 mín. og þá beygt til vinstri inn
á þjóðveg nr. 30. Þaðan er ekið í 3 mín. og þá blasir auglýs-
ingaskilti við á vinstri hönd.
EINSTÖK NÁTTÚRUFEGURÐ
Landið er allt gróið og er það um 50 metra yfir sjávarmáli.
Landið er nokkuð flatlent með hrauni og er því frábært útsýni. Í
miðju landsins er skógrækt Árnesingafélagsins, með minnis-
varða um Áshildarmýrarsamþykkt frá 1496. Lítill lækur liðast í
gegnum landið og kemur hann úr uppsprettum undan hraun-
inu. Á honum er hlaðin steinbrú frá 19 öld. Landið hentar ein-
staklega vel til trjáræktar og er rétt að benda á 13 ára gamla
skógrækt á landamörkunum í landi Merkurlautar, með 3 metra
háum trjám.
ÖLL AÐSTAÐA Í BOÐI
Á svæðinu í heild hafa verið skipulagðar 88 frístundalóðir frá
5.500 fm til 11.600 fm að stærð og eru þær allar eignarlóðir.
Vegir verða komnir að lóðamörkum og landið allt afgirt. Á
svæðinu verður aðgangur að rafmagni, köldu vatni og háhraða
internettengingu.
Suðurlandsbraut 20 • Bæjarhraun 22
sími
565 8000
533 6050
ÆGIFAGUR FJALLAHRINGUR BLASIR VIÐ AF LANDINU SEM ER
ALLT GRÓIÐ OG KJÖRIÐ TIL ÁFRAMHALDANDI RÆKTUNAR.
BYGGJA MÁ ALLT AÐ 200 FM HÚS Á HVERRI LÓÐ AUK 25 FM
GEYMSLU EÐA GESTAHÚSS.
SÖLUSÝNING
SUNNUDAG KL. 12-17
www.hofdi . is
VERÐ OG GREIÐSLUKJÖR
Lögð var sérstök áhersla á að bjóða lóðirnar til sölu á góðu verði og er það með því
allra besta sem gerist á þessu svæði. Möguleiki er á 50% láni frá seljanda til 10 ára með
6,5 % vöxtum. Verð frá 1,2 millj. - 3,2 millj.
SÖLUAÐILI
Sölumenn hjá Fasteignasölunni Höfða veita allar nánari upplýsingar um lóðirnar í síma
565 8000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á hofdi@hofdi.is.
Höfum fengið í sölu á þessum frábæra stað
glæsilegt fullbúið einbýlishús, samtals 430
fm. Hér er allt fyrsta flokks, vandaðar inn-
réttingar, gegnheilt parket og flísar á gólfi.
Líkamsrækt, gufubað og góð tómstunda-
aðstaða. Eign í algjörum sérflokki.
Verð 83 millj. Sjá myndir á mbl.is.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Marargrund - Glæsilegt
Leigulóð 0,5 hektari. Bústaðurinn er
byggður 1989. Stærð 52 fm. Svefnloft ca
20 fm. Bíslag ca 6-8 fm. 2 svefnherb.,
gangur, bað, borðstofa, eldhús og stofa
og inni-arinn. Ísskápur, eldavél og
uppþv.vél. Heitt og kalt vatn, rafmagn.
Pallur með heitum potti og útisturtu.
5-6 fm herb. með þvottavél og þurrkara.
Glæsilegt útsýni til allra átta. Verð 18,2
millj.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Sumarhús - Efstadalsskógi
Í MORGUNBLAÐINU laug-
ardaginn 10. júní sl. skrifar Finn-
ur Árnason, forstjóri Haga hf. og
stjórnarmaður í SVÞ – Samtökum
verslunar og þjónustu, þarfa
áminningu til
menntamálayfirvalda,
en ekki síður til koll-
ega sinna í hópi
stjórnenda verslunar-
og þjónustufyr-
irtækja. Þar spyr
hann hvers vegna
ekki hefur þótt
ástæða til að gera
menntun fyrir versl-
unarfólk jafn hátt
undir höfði í formlega
skólakerfinu og t.d.
iðn- eða landbún-
aðarnámi.
Talið er að um 40% fólks á ís-
lenskum vinnumarkaði hafi ekki
lokið formlegu framhaldsnámi.
Finnur bendir á að í smá-
söluverslun starfi a.m.k. 12.000
manns og af þeim séu minnst 60%
eða 7.200 manns sem ekki hafi
lokið formlegu framhaldsnámi.
Starf í verslun er mjög fjölbreytt
og gerir miklar kröfur til þeirra
sem þar starfa. Má í því sambandi
benda á að starfsmaðurinn þarf að
búa yfir þekkingu á þeim vörum
sem seldar eru í versluninni,
þekkja til veltuhraða, geymsluþols
vörunnar þar sem það á við, hafa
tök á upplýsingatækni og öryggis-
málum. En ekki síður þarf starfs-
maðurinn að búa yfir mikilli hæfni
í mannlegum samskiptum, geta
veitt gæðaþjónustu og brugðist við
af fagmennsku þrátt fyrir mikið
álag. Bara svo örfá atriði séu
nefnd af þeim færniþáttum sem
góður verslunarmaður þarf að búa
yfir.
Það er fyrst fyrir tilstuðlan
SVÞ, VR og LÍV (Landssambands
íslenskra verslunarmanna) og
starfsmenntasjóða á þeirra vegum
sem komið er á lagg-
irnar námi fyrir
starfsfólk verslunar-
og þjónustufyrirækja.
Fyrir tilverknað þess-
ara aðila eru nú í boði
tvær sérstakar náms-
brautir fyrir versl-
unarmenn. Við-
skiptaháskólinn á
Bifröst býður upp á
tveggja ára starfs-
tengt nám fyrir versl-
unarstjóra sem fer að
mestu fram í fjar-
námi. Að námi loknu
útskrifast nemendur með diplóma-
próf í verslunarstjórnun.
Þá hefur Fræðslumiðstöð at-
vinnulífsins þróað þriggja anna
(eins og hálfs árs) fagnám fyrir al-
menna verslunarmenn. Við hönn-
un námsins var gengið út frá þörf-
um starfsgreinarinnar og
aðstæðum starfsfólks. Lögð er
áhersla á framsæknar kennsluað-
ferðir og að námið undirbúi starfs-
fólk sem best fyrir störf í verslun
framtíðarinnar. Í maí sl. útskrif-
aðist fyrsti hópurinn úr versl-
unarfagnáminu frá Verslunarskóla
Íslands og verið er að innrita fyrir
haustið.
Báðar þessar námsbrautir hafa
verið metnar til eininga í formlega
skólakerfinu og geta nýst nem-
endum til styttingar á námi.
Í haust mun síðan hefjast á Bif-
röst kennsla á háskólastigi með
áherslu á verslun og þjónustu. Er
það í fyrsta sinn sem slíkt nám er
í boði hér á landi. Um er að ræða
tveggja ára nám sem fer að mestu
fram í fjarnámi. Þeir sem ljúka
námi geta síðan haldið áfram og
útskrifast með BS-gráðu.
Hér hafa því atvinnurekendur
og launþegasamtökin sjálf tekið af
skarið þar sem formlega skóla-
kerfinu sleppir og stutt við gerð
námsbrauta sem henta fyrir
starfsmenn þeirra.
Það er löngu vitað að ein verð-
mætasta eign hvers fyrirtækis er
starfsfólkið sem þar vinnur, því án
þess gæti fyrirtækið ekki þrifist.
Öflug menntun til handa starfs-
fólki í verslunum eykur sam-
keppnishæfni hvorra tveggja, þ.e.
fyrirtækjanna og starfsmannanna,
þjónusta við viðskiptavini batnar,
vinnubrögð verða markvissari sem
leiðir til færri mistaka og starfs-
ánægja eykst. Það er nefnilega
ekkert „bara“ við það að vinna í
verslun í dag. Því er mjög mik-
ilvægt fyrir alla sem vinna við
verslunarstörf að þangað veljist
hæft og vel menntað fólk sem get-
ur tekist af fagmennsku á við fjöl-
breytt verkefni í hröðu, kröfu-
hörðu og síbreytilegu umhverfi.
Starfsnám í takt við
þarfir atvinnulífsins
Björn Garðarsson fjallar
um grein Finns Árnasonar,
forstjóra Haga
’Það er fyrst fyrir til-stuðlan SVÞ, VR og LÍV
(Landssambands ís-
lenskra verslunarmanna)
og starfsmenntasjóða á
þeirra vegum sem komið
er á laggirnar námi fyrir
starfsfólk verslunar- og
þjónustufyrirækja.‘
Björn Garðarsson
Höfundur starfar hjá Fagráði
verslunar- og þjónustugreina