Morgunblaðið - 20.08.2006, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 20.08.2006, Qupperneq 44
44 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Laugavegi 170, 2. hæð. Opið virka daga kl. 8-17. Sími 552 1400 ● Fax 552 1405 www.fold.is ● fold@fold.is Þjónustusími eftir lokun er 694 1401. Um er að ræða 40 ha land með húsakost sem samanstendur af fjósi og hlöðu sem þarfnast endurbóta.Hesthús sem rúmar 19 hross er í ágætis ásigkomulagi og með nýlegri hestagirðingu. Möguleiki er á frekari upp- bygginga húsakosts, skógrækt eða jafnvel beitiland fyrir hross. Innri-Tindstaðir eru við landamæri Reykjavíkur og Kjósarhrepps. Landið er innan borgarmarka Reykjavíkur og tilheyrir Kjalarnesi. Ekið í átt að Miðdal frá Hvalfjarðaafleggjara. Óskað er eftir tilboðum. Innri-Tindstaðir FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali. Opin hús í Hveragerði sunnudaginn 20. ágúst 2006 milli kl. 13:00 og 17:00 Húsráðendur í Bjarkarheiði 12 í Hveragerði taka á móti áhuga- sömum kaupendum í dag, sunnudag, frá kl. 13-17. Fallegt og vandað 116 fm parhús auk 39,3 fm bílskúrs. Þrjú stór svefn- herbergi með skápum. Opið milli stofu og eldhúss. Upptekið loft í öllu húsinu. Gólfefni í stofu og herbergjum eru mahogny parket. Gengið er út á timburverönd úr borðstofu. Verð 27,9 millj. www.gimli.is - www.mbl.is/gimli BJARKARHEIÐI 12 - PARHÚS Húsráðendur í Laufskógum 27 í Hveragerði taka á móti áhuga- sömum kaupendum í dag, sunnudag, frá kl. 13-17. Vel staðsett og áhugavert 131 fm einbýli á einni hæð auk 45 fm bílskúrs. Fjögur svefnherbergi, L-laga stofa, nýleg eldhúsinn- rétting, baðherbergi allt nýuppgert. Stór og vönduð timburverönd með heitum potti. Verð 27,7 millj. LAUFSKÓGAR 27 - EINBÝLI Húsráðendur í Hveramörk 10 í Hveragerði taka á móti áhuga- sömum kaupendum í dag, sunnudag, frá kl. 13-17. Snoturt 86 fm einbýli með 53 fm stórum bílskúr. Tvö svefnherbergi, stofa, baðherbergi, eldhús og forstofa. Í bílskúr hefur verið innréttuð lítil íbúð með sérsvefnherbergi. Hús- ið er timburklætt að utan. Neyslu- og hitalagnir endurnýjaðar, endurnýjað járn á þaki og lóð einstaklega snyrtileg. Verð 22,3 millj. HVERAMÖRK 10 - EINBÝLI 229 fm atvinnuhúsnæði á 4. hæð í góðu lyftuhúsi. Eignin skipist í 8 góð skrif- stofurými, tvær geymslur, snyrtingu og eldhúsaðstöðu. Góð lofthæð. Næg bílastæði á malbikaðri lóð. Björt og falleg eign á góðum stað. Verð 49,0 millj. Allar frekari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur á Ás fasteignasölu. Símar 520-2600 og 862 3377. SKIPHOLT - REYKJAVÍK Stórglæsileg 5 herb. 128 fm íbúð á 8. hæð í vönduðu nýju lyftuhúsi í miðborginni þ.m.t. 13,9 fm geymsla í kjallara. Íbúðin er öll innréttuð á afar vandaðan og smekklegan máta. Vönduð tæki í eld- húsi og á baðherbergi. Arinn í stofum sem eru mjög stórar og ná í gegnum íbúðina. Hjónaherbergi með miklum skápum og tvö barnaherbergi. Hnotuparket á öllum gólfum utan baðher- bergi, sem er flísalagt og bæði með baðkari og stórum sturtuklefa. Hnotuviður í inni- hurðum. Fallegt útsýni og stórar suðursvalir með glerhandriði. Aðeins tvær íbúðir á hæð. Sérstæði í bílageymslu. Verðtilboð. FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Lindargata – „101 Skuggi“ Útsýnisíbúð með stórum suðursvölum GREINAR sem ég ritaði í Morgunblaðið dagana 29. og 30. júlí sl. hafa leitt af sér hnútukast í minn garð og valdið heilmiklu fjaðrafoki. Einkum virðist það stafa af því að ég ruglaði saman nöfnum rekstraraðila hjúkr- unarheimilisins Sóltúns og til- greindi jafnframt rangan stjórn- arformann. Skrif mín beindust að Nýsi og stjórnarformanni þess. Nýsir tengist rekstri Sóltúns ekki á nokkurn hátt. Mér er ljúft og skylt að biðjast velvirðingar á þessum mistökum mínum. Upphafleg grein mín spratt af lestri viðtals við stjórnarformann Nýs- is, Stefán Þórarinsson, í bæklingi á vegum Samtaka atvinnulífsins sem ber heitið Heil- brigður einkarekstur. Í viðtalinu fer Stefán mikinn og lætur að því liggja að starfsemi Hrafnistu sé í umsjá „einhvers ráðs sem enga ábyrgð ber“. Síð- an segir m.a. orðrétt: „Vandséð er að þar sé í raun gætt fyllsta lýð- ræðis og uppbygging starfsem- innar uppfylli skilyrði um gagn- sæjan rekstur. Að minnsta kosti virðast menn geta stýrt þessu ráði áratugum saman án þess að keppt sé við þá um starfið.“ Lýðræði í hávegum haft Þetta er fjarri öll- um sanni. Starfsemi Hrafnistuheimilanna heyrir undir Sjó- mannadagsráð. Ráðið er skipað 34 fulltrúum úr öllum stétt- arfélögum sjómanna. Á árlegum aðalfundi er kosið í fimm manna stjórn til þriggja ára. Er hægt að hafa það öllu lýðræðislegra? Því er svo við að bæta að ríkisend- urskoðun hefur aðgang að öllum rekstrargögnum. Þá er hægt að nálgast endurskoðaðan ársreikning Hrafnistuheimilanna fyrir árið 2005 hjá Pricewaterhouse Coopers. Fyrrgreind yfirsjón mín verð- skuldar þó trauðla þau tilskrif sem Jóhann Óli Guðmundsson, stjórn- arformaður Öldungs, birtir í Morg- unblaðinu þann 5. ágúst sl. Að- dróttanir að persónu minni og pólitískum skoðunum verður hann að eiga við sjálfan sig. Þær eru einfaldlega ekki svara verðar. Ómaklegar árásir á happdrætti DAS Lítið fer hins vegar fyrir efnis- legum athugasemdum við skrif mín. T.d. minnist hann ekki einu orði á þann mikla mismun sem við- gengst í daggjöldum hjúkr- unarheimila, annars vegar til Sól- túns og hins vegar sjálfseignarstofnana. Jóhann Óli sér aftur á móti ástæðu til að vega ómaklega að happdrætti DAS, sem verið hefur Hrafnistuheimilunum ómetanlegur bakhjarl um áratugaskeið. Án framlags happdrættisins væri starfsemi hjúkrunarheimila Hrafn- istu ekki söm. Við meðferð fjár- muna þess hafa skammtíma arð- semissjónarmið verið látin víkja fyrir langtímahagsmunum heildar- innar. Um 25 ára skeið greiddi happdrættið ennfremur hlutfall af hagnaði í Framkvæmdasjóð aldr- aðra, alls um 250 millj. kr. á nú- virði. Það fé rann til uppbyggingar á öldrunarþjónustu víða um land. Orðrétt segir hann í grein sinni: „En formaðurinn má vita að við hin erum ekki alla daga að bölsót- ast út í þessi atriði eða þá sem hafa þau í hendi sér. Við erum ekki yfirkomin af afbrýðissemi eða öfund yfir öllu þessu...“ Sjaldan hef ég lesið önnur eins öfugmæli. Eru það ekki einmitt þessi atriði, af- brýðissemi og öfund, sem eru hvat- inn að skrifum hans? Hugarangur stjórnarformannsins En af hverju í ósköpunum veld- ur rekstur hjúkrunarheimila Hrafnistu stjórnarformanni Öld- ungs slíku hugarangri? Varla býr þar að baki einlægur áhugi manns á meðferð opinberra fjármuna, enda er hann skráður til heimilis í erlendri skattaparadís? Eða finnst honum e.t.v. Hrafnistuheimilin standa í vegi fyrir sér á einhvern hátt? Ef meinið eru meintar skat- taívilnanir, eins og Stefán Þór- arinsson í Nýsi ýjar að í fyrr- nefndu viðtali, hygg ég að Hrafnista myndi glöð skipta á þeim og sambærilegum samn- ingum við ríkið og Sóltún nýtur. Ég tek heilshugar undir ummæli Önnu Birnu Jensdóttur, fram- kvæmdastjóra Öldungs hf., rekstr- araðila Sóltúns, í viðtali í bækl- ingnum Heilbrigður einkarekstur. Þar segir hún m.a.: „Mér finnst það ekkert lögmál að heilbrigð- isþjónusta eigi alltaf að vera rekin með halla...“ Eðlilegar kröfur hjúkrunarheim- ila í landinu um að sitja við sama borð og Sóltún þegar kemur að samningum við ríkið má á engan hátt skilja sem gagnrýni á rekstur Sóltúns, sem er til mikillar fyr- irmyndar. Ef öll hjúkrunarheimili landsins nytu sömu samninga þyrfti litlar áhyggjur að hafa af hallarekstri. Það er kjarni málsins! Guðmundur Hallvarðsson skrifar um rekstur hjúkrunarheimila ’Ef öll hjúkrunarheimililandsins nytu sömu samninga þyrfti litlar áhyggjur að hafa af halla- rekstri. ‘ Guðmundur Hallvarðsson Höfundur er stjórnarformaður Sjómannadagsráðs og Hrafnistu- heimilanna. Hjúkrunarheimilin sitji öll við sama borð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.