Morgunblaðið - 20.08.2006, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 53
FRÉTTIR
Tölvufræði í fjarnámi:
Gagnasafnsfræðinnar og SQL fyrirspurnamálið. Forritun í hlut-
bundnu forritunarmáli. CCNA (Cisco Certified Networking Associate).
Nánari upplýsingar á www.ir.is / fjarnam
Chevrolet Corvetta árg. 80,
ekinn 70 þ. mílur. Góður bíll.
Upplýsingar í síma 892 5767.
Til sölu Sprinter 316. Silfurgrár,
árgerð 2004. Ekinn 33 þ. km.
Sjálfsk., cr. control. Olíumiðstöð.
Litað gler. 33 tommu dekk. Sídrif,
læstur aftan. Átta manna. Topp-
lúga. Útv/cd/dvd.
Til sýnis hjá ENTA ehf., Bakka-
braut 5A, Kópavogi. Sími
821 1170.
Til sölu glæsibifreið, SRT-8
árg. 2006, ekinn 4.200 km. 0-100
á undir 5 sek.
Upplýsingar í síma 893 2480.
Suzuki Bouleward 800cc árgerð
2005. Hjólið er aðeins ekið um eitt
þúsund km og er með öllum fáan-
legum aukabúnaði. Verð 950 þús.
Upplýsingar í síma 895 3040.
Suzuki Baleno árg. '97, ek. 112
þús. km. Sjálfskiptur Suzuki Bal-
eno station 1997. Nýskoðaður,
álfelgur, í góðu ástandi. Símar
587 8775/896 6055.
Sprinter 316 árg. 2003. Ekinn um
53 þús. km og breyttur fyrir 35
tommur, beinskiptur, skráður fyrir
6. Ríkulega útbúinn, driflæsingar
að framan og aftan, loftkæling,
olíumiðstöð, með aukarafgeymi,
fjarst. saml., upphitaðri framrúðu,
upphituðum speglum og afturrúð-
um, dráttarbeisli, litað gler, útv/
cd. Til sýnis á Bakkabraut 5A,
200 Kóp., s. 821 1170. Enta.is
Porsche 911 Carrera 3.0 - 200
hestöfl. Glæsilegur bíll árg. 1976.
Ekinn aðeins 60 þús km. Litur:
Brons. Ljós leðurinnrétting. Verð
2.490 þús. Uppl. í síma 863 8333
og www.porsche.is/notadir
Nissan Terrano Lux 2.7 TD,
sjálfsk., ekinn 96 þús., skráður 11/
99, sóllúga, krókur, 7 manna, 2
eig. Verð 1.490 þús. Einnig
Skoda Octavia Combi 2.0,
sjálfs., ek. 30.000 þús., grár,
nýskr. 07/03. Verð 1.390 þús. Sími
899 7770.
Mercedes Bens ML-500
Árg. 2003, ek. 48 þús. mílur. ABS
hemlar, ASR spólvörn, álfelgur,
ESP stöðugleikakerfi, geisla-
diskamagasín, glertopplúga, hiti
í sætum, hraðastillir, innspýting,
leðurákl., litað gler, loftkæling,
DVD, dráttarbeisli. Reykl. öku-
tæki. Gullfallegur bíll með öllum
hugsanlegum aukabúnaði. Verð
4.980.000. Uppl. í síma 664 8363.
Jeppar
Toyota Land Cruiser 120 VX
dísel. Toyota Land Cruiser 120 VX
árgerð 2003, ekinn 65 þús. Leður,
8 manna, krókur, lúga, filmur,
húddmerki, húddhlíf og glugga-
vindhlífar. Verð 4.490 þús. Sími
866 0019.
Bílaleiga
Sími 864 4589 - Lægra verð
www.aftann.org Við erum lág-
gjalda bílaleiga. Við veitum pers-
ónulega þjónustu. Hjá okkur ert
þú nr. 1. Steinhella 5, Hafnarf., -
miðsvæðis á R-svæðinu, sími
864 4589. www.aftann.org
Bílar
Mazda 323 ´92 árg. 1600 vél, ek.
196 þús., dekurbíll í toppstandi,
búið að gera við nánast allt, til-
valinn skólabíll, selst ódýrt.
Uppl í síma 697 9915.
Jeppadagar - 30% afsláttur!
Nýir 2006 bílar allt að 30% undir
listaverði. Honda Pilot er nýr lúx-
usjeppi rakar inn verðlaunum fyr-
ir sparneytni og búnað og gefur
Landcruiser VX diesel harða
samkeppni. Einnig frábær afslátt-
artilboð frá öðrum framleiðend-
um. Íslensk Ábyrgð. Bílalán. Sími
552 2000 og netspjall á
www.islandus.com
Ford Explorer Sport Track árg.
2003. Ek. ca 61.500 km, leður-
áklæði, topplúga, 6 diska cd spil-
ari, ný dekk o.fl. Heildarverð 1.920
þús., útborgun 250 þús. og yfir-
taka á láni. Afborgun ca 29 þús.
á mán. Upplýsingar í s. 894 3944
eða 869 5582.
Þjónustuauglýsingar 5691100
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Smáauglýsingar
sími 569 1100
HARKALEGA var tekist á um upp-
sagnir fjögurra embættismanna
Reykjavíkurborgar á borgaráðsfundi
á fimmtudag og gengu bókanir á víxl
milli fulltrúa Samfylkingarinnar ann-
ars vegar og sjálfstæðismanna og
framsóknarmanna hins vegar.
Upphafið að þessum deilum var
bókun sem Samfylkingin lagði fram
um að meirihlutanum hefði á tæpum
fjórum mánuðum „tekist að hrekja á
brott fjóra af æðstu embættismönn-
um borgarinnar“. Sagði í bókuninni
að svo virtist sem meirihlutanum
myndi ekki takast að halda í þetta
góða fagfólk og ástæða væri til að
hafa áhyggjur af fagmennsku og
festu í stjórnsýslu borgarinnar ef svo
héldi áfram sem horfði.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks svöruðu
um hæl með því að segja að bókun
Samfylkingarinnar væri dæmalaus,
slík væru ósannindin og rangfærsl-
urnar í henni. „Bókunin einkennist af
aðdróttunum og ómerkilegheitum,“
bókuðu þeir og bentu á að þeir þrír
sviðsstjórar sem hefðu sagt upp störf-
um hefðu gert það á eigin forsendum
og samkvæmt eigin óskum. „Sá hug-
ur sem að baki bókun Samfylkingar-
innar býr hlýtur með einhverjum
hætti að lýsa starfsháttum fyrrver-
andi borgarstjóra og samskiptum
hans við embættismenn borgarinn-
ar,“ sagði ennfremur í bókun meiri-
hlutans, en Steinunn Valdís Óskars-
dóttir stóð að fyrrnefndri bókun
Samfylkingarinnar.
Nú var komið að fulltrúum Sam-
fylkingarinnar að svara fyrir sig og
bókuðu þeir að svo virtist sem meiri-
hlutinn gæti ekki tekið gagnrýni á
störf sín með málefnalegum hætti og
ætti ennfremur að láta af þeim ósið að
saka aðra um ósannindi. Staðreyndin
væri sú að á síðustu tveimur mánuð-
um hefðu margir æðstu embættis-
menn borgarinnar sagt upp störfum
en það vekti spurningar um starfs-
skilyrði og hæfni núverandi meiri-
hluta til að halda í hæft starfsfólk. Í
sumar hefðu verið lagðar fram upp-
sagnir þriggja sviðsstjóra, skrifstofu-
stjóri borgarstjóra væri í námsleyfi
og í hennar stað hefði verið ráðinn
starfsmaður borgarstjórnarflokks
Sjálfstæðisflokksins til nokkurra ára.
Eðlilegt væri að velta því fyrir sér
hvað ylli. „Ef menn þola ekki vanga-
veltur og spurningar um þetta er
kannski rétt að menn séu áfram í
minnihluta,“ segir að lokum í bókun
Samfylkingarinnar.
Sjálfstæðismenn og framsóknar-
menn lögðu þá fram aðra bókun og
bentu á að Samfylkingin hefði í upp-
hafi haldið því fram að meirihlutanum
„hefði tekist að hrekja“ fyrrnefnda
starfsmenn úr starfi. Sjálfsagt væri
að ræða mannaráðningar og skipan
starfsmannamála á málefnalegan og
upplýstan hátt en dylgjur Samfylk-
ingarinnar í upphaflegri bókun ættu
ekkert skylt við slíka umræðu.
Bókanir gengu á víxl milli borgarráðs-
manna Samfylkingar og meirihlutans
Hörð orðasenna
vegna uppsagna
embættismanna
Morgunblaðið/Sverrir
þessum ungu vinum ástæða til að leiðast um mörkina
innan um bláklukkur, einkennisblóm Austurlands.
Neskaupstaður | Vináttan er mikils virði og æskuvináttan
oftast langlíf. Á leið heim úr vel lukkuðum berjamó þótti
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Vináttan gulls ígildi
Námskeið
um ræktun
og notkun
kryddjurta
NÁMSKEIÐ um ræktun og notkun
mat- og kryddjurta verður haldið í
Grasagarði Reykjavíkur þriðjudag-
inn 22. ágúst og fimmtudaginn 24.
ágúst kl. 19–22. Farið verður í helstu
þætti matjurtagarðsins s.s. upp-
byggingu, lífræna ræktun, ræktun
einstakra tegunda mat- og krydd-
jurta, skiptiræktun, sjúkdóma og
meindýr og notkun afurðanna.
Leiðbeinendur eru Auður Jóns-
dóttir garðyrkjufræðingur og Eva G.
Þorvaldsdóttir grasafræðingur.
Þátttökugjald er 4.000 kr. Skráning í
síma 411 8650, hámark 20 þátttak-
endur.
GÖTUBOLTAMÓTIÐ 305 verður
haldið á Miklatúni, laugardaginn 26.
ágúst næstkomandi.
Aðeins er keppt á löglega stærð
af körfu sem er í 305 cm hæð frá
jörðu.
Aldursflokkar eru tveir fyrir kon-
ur og karla. Flokkur 1 er 15–17 ára
og flokkur 2 er 18 ára og eldri. Búið
er að standsetja völlinn á Miklatúni
og komnar sex nýjar körfur, allar í
hæðinni 305 cm, segir í fréttatil-
kynningu.
Ívar Örn Sverrisson og Sverrir
Bergmann standa að mótinu en Úti-
líf er aðalstyrktaraðili mótsins. Nike
veitir verðlaun til sigurliðsins og
Egils sér um drykki og snakk fyrir
gesti og gangandi. Frekari upplýs-
ingar á 305@hive.is
Götuboltamót á Miklatúni