Morgunblaðið - 20.08.2006, Side 54

Morgunblaðið - 20.08.2006, Side 54
Svínið mitt © DARGAUD FLJÓTUR! ÞÚ MÁTT EKKI BREGÐAST OKKUR NÚNA GÓÐAN DAGINN. ÉG ER AÐ KOMA VEGNA PÖSS... JÁ, JÁ! VIÐ VITUM ÞAÐ VIÐ VITUM ÞAÐ GROIN! KOMDU INN FYRIR GROIN! GROIN! AFSAKIÐ HVAÐ ÉG PRUMPA MIKIÐ. ÉG ER ALLTAF SVO FULL AF GASI ÞETTA ER FJÖLSYLDUVANDAMÁL GRRRRRRR!!! HVAÐ ER NÚ ÞETTA?! ÞÚ SKALT EKKI FARA NÆR EN ÞETTA. HÚN ER SAMT MJÖG ÞÆG... ÞEGAR HÚN SEFUR HEYRÐU... ÉG SKAL ATHUGA MÁLIÐ... HVAR ER STELPAN SEM ÉG BAÐ ÞIG AÐ TAKA Á MÓTI? SÚ SEM ÁTTI AÐ PASSA YKKUR ÞAÐ KOM ENGINN ENGINN! GROIN! Kalvin & Hobbes SAFARÍ ALLI HEGGUR LEIÐ SÍNA Í GEGNUM ÞYKKAN FRUMSKÓGINN ALLT Í EINU BRÝST RISAGÓRILLA Í GEGNUM TRÉN! TAKTU TIL Í HERBERGINU ÞINU HVAÐ? TAKTU TIL. ÞAÐ ER EINS OG FRUMSKÓGUR HÉRNA INNI Kalvin & Hobbes ERTU BÚINN AÐ SJÁ GEIMVERU? NEI HORFÐU Á TUNGLIÐ. ÞÆR FELA SIG OFT FYRIR AFTAN ÞAÐ OG LÆÐAST SÍÐAN AFTAN AÐ MANNI HVAÐ ERTU AÐ GERA HÉRNA ÚTI Á NÁTTFÖTUNUM?!? VILTU GJÖRA SVO VEL AÐ KOMA ÞÉR INN AÐ SOFA!! STRAX!!! MÖMMUR FELA SIG AFTUR Á MÓTI FYRIR AFTAN RUNNA ÁÐUR EN ÞÆR GERA ÁRÁS ÚR LEYNUM Kalvin & Hobbes ÉG HELD AÐ ÉG FARI EKKI Í SKÓLANN Í DAG ÉG HELD AÐ ÞÚ FARIR ÉG HELD AÐ ÉG FARI EKKI NEITT! ANSANS!! Dagbók Í dag er sunnudagur 20. ágúst, 232. dagur ársins 2006 Víkverji er svo þakk-látur fyrir að búa á Íslandi. Þótt eyj- arskeggjar kvarti endalaust yfir veðrinu er Víkverji þakklátur fyrir að búa í landi þar sem sumarið er svalt þótt sól skíni, þar sem rignir reglulega, snjó- ar og blæs. Íslend- ingar eru þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að upplifa öll veðra- brigði, jafnvel nokkr- um sinnum á dag, og eiga að vera þakklátir fyrir það. Hitabylgjur og skógarelda er ekki vænlegt að búa við og það er stríð ekki heldur. Íslendingar hafa enn sem komið er ekki þurft að upplifa stríð í landinu og eiga að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að stoppa stríðsátök annars staðar í heiminum til að fleiri heimsbúar fái notið friðar og óttaleysis eins og þeir. Langt er síðan hungur og kuldi hrjáði þjóðina og er Víkverji glaður yfir því að hafa nóg að bíta og brenna. Fátækt er sem betur fer fá- gæt hér á landi og flestir Íslend- ingar hafa það gott en græðgi virðist vera nýjasta þjóðarvandamálið. Nægjusemi er dyggð sem virðist vera gleymd og grafin með- al landans. Enginn er sáttur fyrr en hann á meira en hann hefur þörf fyrir; ofurlaun eru borguð, afgöngum er hent, yfirdráttum safnað og sófasettum skipt út eins og enginn sé morgundagurinn og orðið skortur hafi dottið út úr málinu. Meðan þúsundir jarð- arbúa eru á flótta frá hungri og stríðs- átökum eru Íslend- ingar á flótta frá tilgangi lífsins. Líf- ið snýst ekki um að hamstra og henda heldur um að vera hamingju- og nægjusamur með sitt og sinna þeim sem standa manni næst. Það þarf ekki að eiga mikið til að geta átt góðar stundir með öðrum. Víkverja finnst að Íslendingar eigi aðeins að stoppa við, kíkja í kringum sig og átta sig á því hvort þeir séu að lifa lífinu sem þeir vilja og hvort þeir séu manneskjurnar sem þeir vilja vera og ætluðu að vera. Ísland er hamingjulenda og íbúar landsins hafa ekki ástæðu til annars en að ganga um með bros á vör alla daga. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is  Mývatnssveit | Þessir ferðamenn komu við á Mývatni og var veðrið það gott að hægt var að vaða vatnið. Hvað er þá betra en að sitja á steini með lapp- irnar í Mývatni og lesa góða bók eins og einn tók uppá. Morgunblaðið/BFH Lestrarhestur í fótabaði MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: En hann frelsar hinn bágstadda með bágindum hans og opnar eyru þeirra með þrengingunni. (Jobsbók 36, 15.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.