Morgunblaðið - 23.08.2006, Page 1

Morgunblaðið - 23.08.2006, Page 1
STOFNAÐ 1913 227. TBL. 94. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Leikhús fyrir alla Þormóður Dagsson veltir fyrir sér leikhúsmenningunni | Af listum Táknrænasti skartgripurinn Hringar eru persónulegir en hlíta þó duttlungum tískunnar | Daglegt líf Eigum fyrir salti í grautinn  Marel til Molde  Gatlin í átta ára bann  Stórsigur Barcelona LANDSBANKINN (LÍ) hefur með útgáfu skuldabréfa í Bandaríkjunum fyrir 2.250 millj- ónir dala, jafngildi um 158 milljarða króna, gengið frá stærstu einstöku lántöku íslensks banka á fjármálamörkuðum til þessa. Með skuldabréfaútgáfunni og lántökum í síðasta mánuði hefur bankinn nú fjármagnað 85% af meðallöngum og löngum lántökum sem koma til gjalddaga á næsta ári. Landsbankinn bauð út tvenns konar skulda- bréf í Bandaríkjunum, skuldabréf til fimm ára með föstum vöxtum að andvirði 1.500 milljónir dala og skuldabréf fyrir 750 milljónir dala til þriggja ára með breytilegum vöxtum. Heildareftirspurn eftir báðum flokkunum nam 3.600 milljónum dala og sökum mikillar eftirspurnar var ákveðið hækka lántökufjár- hæðina úr þúsund milljónum dala í 2.250 millj- ónir dala. Mikil traustsyfirlýsing Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Lands- bankans, segir mikla eftirspurn vera mikla traustsyfirlýsingu við bæði starfsemi og stefnu bankans. Lántakan beri vott um gott aðgengi Landsbankans að fjármálamörkuðum þrátt fyr- ir umrót í kringum íslenska banka að und- anförnu. Halldór segir það jafnframt vera afar mikinn áfanga fyrir bankann að hafa fjármagn- að mestallar langtímaafborganir ársins 2007 þegar það ár gangi í garð. Með þessari útgáfu sé bankinn kominn afar langt með að ná því markmiði og verið sé að skoða ýmsa aðra fjár- mögnunarkosti í framhaldinu. Þriggja ára skuldabréf Landsbankans voru verðlögð 0,7% yfir millibankavöxtum (LIBOR) og fimm ára bréfin sem samsvarar 0,85% yfir sömu vöxtum. Spurður um vaxtakjörin segir Halldór þau vera í takt við þær væntingar sem bankinn hafi haft um fyrsta skuldabréfaútboð í Bandaríkj- unum og af þeirri stærðargráðu sem um ræði. Hann segir tilganginn með að færa sig um set á Bandaríkjamarkað vera að geta sótt jöfn- um höndum fjármagn bæði á Evrópu- og Bandaríkjamarkað. Mikilvægt sé, eftir því sem bankinn stækki, að ná til stærri hóps fjárfesta með skuldabréfaútgáfur bankans. Endurfjármögnun LÍ fyrir næsta ár að mestu lokið Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is Landsbankinn gefur út skuldabréf í Bandaríkj- unum fyrir 158 milljarða ENGINN komst lífs af þegar rúss- nesk farþegaflugvél af gerðinni Tupolev 154 fórst í austurhluta Úkraínu í gær. 160 farþegar, þar af um 40 börn, og tíu manna áhöfn voru um borð. Ekki er ljóst hvað olli slys- inu en stjórnvöld útiloka hryðjuverk. Talið er að eldur hafi komið upp í vél- inni og hún ef til vill orðið fyrir eld- ingu en hún er sögð hafa lent í þrumuveðri. Vélin var á leið frá sumarleyfis- staðnum Anapa við Svartahaf til Sankti Pétursborgar en hún var í eigu Pulkovo, sem er eitt stærsta flugfélag Rússlands. Neyðarmerki barst frá vélinni um klukkan hálf- fjögur að staðartíma og tveimur mín- útum síðar hvarf hún af ratsjám. Flugmaðurinn hafði þá óskað eftir að fá að nauðlenda. Björgunarfólk var að störfum í brennandi flakinu í gærkvöldi en rússneskur embættismaður sagði að fundist hefðu um 30 lík. Bolur vél- arinnar mun hafa gereyðilagst. Íbú- ar þorpsins Sukha Balka, sem er um 640 km austur af Kænugarði, fundu brak úr vélinni á mýrarsvæði. „Hún flaug stefnulaust, fór í hringi og svo hrapaði hún og það varð strax sprenging,“ sagði kona sem sá slysið. Úkraínsk yfirvöld sögðu að eldur hefði komið upp í vélinni og áhöfnin því ákveðið að reyna neyðarlend- ingu. Lendingarbúnaðurinn hefði ekki virkað sem skyldi og flugvélin því lent „á maganum“. Rússneskir embættismenn sögðu að líklega hefði vélin orðið fyrir eldingu. Yfir- völd hafa fyrirskipað rannsókn á slysinu en vélin var smíðuð árið 1992. Reuters Harmi lostið fólk sem varð vitni að slysinu. Vélin er sögð hafa flogið stefnulaust um hríð og síðan hrapað. 170 manns fórust í flugslysi í Úkraínu Vélin talin hafa lent í ókyrrð og þrumuveðri Eftir Bryndísi Sveinsdóttur bryndis@mbl.is SAN Francisco-ballettinn, sem Helgi Tómasson veitir listræna for- stöðu, er væntanlegur á Listahátíð í Reykjavík næsta vor. Mun hóp- urinn, sem samanstendur af 60 dönsurum, sýna fimm verk eftir Helga sjálfan í dagskrá sem hann hefur sett sérstaklega saman fyrir Íslandsferðina og mun bera yf- irskriftina HELGI. Alls verða sjö sýningar á þeirri viku sem hópurinn dvelur hér- lendis, sú fyrsta að líkindum 16. maí. | 36 Ljósmynd/Chris Hardy Úr verki Helga Tómassonar „7 For Eight“, en úr því verki verður m.a. dansað í Borgarleikhúsinu í vor. San Franc- isco-ballettinn á Listahátíð GEIR H. Haarde forsætisráðherra segir í samtali við Morgunblaðið að það hafi komið sér nokkuð á óvart hversu ofarlega Ísland virtist vera í huga Eista en í gær afhjúpaði hann minningarskjöld um að 15 ár eru liðin frá því að Ísland varð fyrst ríkja til að viðurkenna endurheimt sjálfstæðis Eistlands. „Þetta var mjög hátíðleg og ánægjuleg athöfn en Eistar leggja mikla áherslu á að minnast atbeina Íslands að sínu sjálfstæði á þessum tíma fyrir fimmtán árum. Ísland er þeim ofarlega í huga og það er mik- ill áhugi á landi og þjóð hér í Eist- landi.“ Opinberri heimsókn Geirs og eig- inkonu hans, Ingu Jónu Þórð- ardóttur, til Eistlands lýkur í dag en í gær átti Geir fundi með æðstu ráðamönnum landsins. | 10 „Ísland er þeim ofar- lega í huga“ Geir H. Haarde og Andrus Ansip, forsætisráðherra Eistlands. Peking. AFP. | Soltin kinda- hjörð át allan sveitarsjóð þorpsins Linji- awan í norður- hluta Kína, bóndanum, sem einnig var féhirðir þorps- ins, til mikillar armæðu. Bóndinn, Zhang, hafði grafið sjóðinn, sem voru seðlar upp á 880 þúsund krónur, á beiti- landi sínu. Hann hafði komið pen- ingunum þarna fyrir til að koma í veg fyrir að þjófar næðu í þá. Zhang og aðrir þorpsbúar slátruðu undir eins kindunum tíu sem grun- aðar voru um að hafa japlað á sjóðnum en fundu eingöngu hálf- melt seðlasnifsi í maga þeirra. Þeir límdu bútana saman en tókst að- eins að endurheimta nokkra af seðlunum. Banki sá aumur á þorpsbúunum og ákvað að bæta þeim tjónið að einhverju leyti með því að skipta fyrir þá nokkrum hálfmeltum seðl- um. Fégráðugar kindur FUGLAVERNDARFÉLAG Ís- lands hefur hreyft því að ernir verði fóðraðir hér á landi en að sögn Krist- ins Hauks Skarphéðinssonar, fugla- fræðings hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, hefur þessi hugmynd verið rædd og mun vonandi koma til fram- kvæmda á einum stað nú í haust. „Það mun um leið auðvelda eftirlit að fá ernina inn á fóðurstöðvar en síð- astliðin þrjú ár hafa ernir verið lit- merktir. Með þessum hætti væri hægt að fylgjast með þeim og sjá hvar þeir væru staðsettir,“ segir Kristinn Haukur. Rætt um að fóðra örninn  Mikið svigrúm | 10 ♦♦♦ Íþróttir í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.