Morgunblaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Bjóðum nú síðustu sætin í ágúst til nýjasta áfangastaðar Heimsferða, Fuerteventura, sem svo sannarlega hefur slegið í gegn hjá Íslendingum. Þú bókar sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Njóttu lífsins á þessum vinsæla sumarleyfisstað. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Fuerteventura 29. ágúst í 2 vikur frá kr. 39.990 Síðustu sætin Verð kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð í 2 vikur. Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 49.990 Netverð á mann , m.v. 2 fullorðna saman í íbúð m/1svefnherbergi í 2 vikur. Eftir Jóhann Magnús Jóhannsson johaj@mbl.is HLUTFALL vottaðs nytjalands í lífrænni ræktun á Íslandi árið 2004 var hið lægsta í Evr- ópu, en hlutfallið er gjarnan notað sem mæli- kvarði á umfang lífrænnar framleiðslu. Hlut- fallið á Íslandi var 0,3% en til samanburðar var það 3,9% í Noregi á sama tíma. Jafnframt var hlutfallið um 4% í löndum innan Evrópusam- bandsins og á bilinu sex til fimmtán prósent í þeim löndum sem lengst voru komin í þessum efnum. Kemur þetta fram í skýrslu starfshóps um stöðu og möguleika lífrænnar framleiðslu á Ís- landi sem ber heitið Lífræn framleiðsla – Ónot- að tækifæri í atvinnulífi landsbyggðarinnar. Starfshópinn skipuðu Ólafur Gunnarsson Vott- unarstofunni Túni, sem gegndi formennsku, Stefán Gíslason verkefnisstjóri Staðardagskrár 21 og Þórarinn Sólmundarson, Byggðastofnun. Gunnar Á. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Túns, var starfsmaður starfshópsins. Niðurstöður skýrslunnar eru í tuttugu liðum og má meðal þeirra nefna að hagnýta þurfi möguleika lífrænna aðferða sem þróunarkost í landbúnaði og byggðamálum, að hafin verði gerð áætlunar um opinberan stuðning til líf- rænnar framleiðslu og jafnframt verði komið á fót tilraunaverkefnum með lífræna framleiðslu. „Ísland stendur öðrum þjóðum langt að baki og ástæðan fyrir því að Íslands á jafnlangt í land er fyrir það fyrsta að framleiðendur sitja ekki við sama borð og kollegar þeirra í grannlönd- unum. Hér er ekki neinn stuðningur sem heitið getur við að taka upp svokallaða lífræna aðlög- un,“ segir Gunnar Á. Gunnarsson, aðspurður hverju það sæti að Ísland sé með jafnlágt hlut- fall nytjalands og raun ber vitni. „Í öðru lagi hafa stjórnvöld og hags- munaaðilar ekki gert framkvæmdaáætlun með ákveðnum markmiðum um hvernig beri að vinna að slíkri lífrænni þróun, líkt og flest Evr- ópuríki hafa gert eða eru að gera og ESB hefur sömuleiðis gert fyrir sitt leyti.“ Viðhorf neikvæð hér á landi Fram kemur í skýrslunni að Noregur hefur fyrir sitt leyti sett sér markmið um að hlutfall nytjalands í lífrænni ræktun verði 15% árið 2015, en samanburður landanna tveggja er hæg- ur meðal annars vegna þess að þau njóta hvor- ugt styrkjakerfis ESB í landbúnaði og þeim er báðum í sjálfsvald sett hvernig þær styðja líf- ræna framleiðslu. „Í þriðja lagi hafa viðhorf verið neikvæð gagn- vart þessu hér á landi og menn hafa jafnvel talið að erfitt væri að framleiða með lífrænum aðferð- um við íslenskar aðstæður, sem við teljum að hafi verið afsannað af þeim sem hafa þó stundað þessa lífrænu framleiðslu,“ segir Gunnar. Lega og loftslag eru ekki rök gegn lífrænni framleiðslu Á Íslandi hafa 25 býli þar sem stunduð er líf- ræn ræktun hlotið vottun með skráningu. Í fjór- um nyrstu fylkjum Noregs, sem liggja að mestu norðar en Ísland og þekja um þriðjungi stærra svæði – 128 þúsund ferkílómetra – voru í árs- byrjun 2004 tæplega 390 býli með lífræna fram- leiðslu. „Það er fyllilega þess virði að benda á það að lífræn framleiðsla á sér alls staðar tilverugrund- völl, hundruð bænda og framleiðenda í ýmsum greinum hafa verið að framleiða með lífrænum aðferðum norðar á hnettinum en íslenskir bændur og fyrirtæki. Lega landsins og loftslag eru ekki rök gegn lífrænni framleiðslu. Hér eru á margan hátt góðar aðstæður, möguleikar eru fyrir hendi og sóknarfæri væn- leg. Við leggjum sérstaka áherslu í skýrslunni á þær fjölþættu framfarir sem lífræn þróun felur í sér og varða mjög margar at- vinnugreinar,“ segir Gunnar Á. Gunnarsson, sem starfaði fyrir starfshópinn sem vann skýrsl- una. Morgunblaðið/ÞÖK Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, ásamt Þórarni Sólmundarsyni, Byggðastofnun, og Stefáni Gíslasyni, verkefnisstjóra Staðardagskrár 21, sem sæti áttu í starfshópi þeim sem skipaður var til að gera úttekt á lífrænni framleiðslu og gera tillögur um framtíð hennar. Starfshópur um stöðu og möguleika lífrænnar framleiðslu leggur til opinberan stuðning „Ísland stendur öðrum þjóðum langt að baki“ TVEIR bátar skullu saman á fullri ferð á Húnaflóa, ekki langt frá Skaga- strönd, klukkan rúmlega eitt í fyrri- nótt. Einn maður slasaðist nokkuð og var fluttur með sjúkrabíl til Akureyr- ar strax og hann kom í land. Hann mun vera óbrotinn en mikið marinn og bólginn. Björgunarskipið Húnabjörg á Skagaströnd var að koma í land úr leit að trillu sem hafði gleymt að tilkynna sig. Trillan fannst fljótlega og því var Húnabjörginni snúið heim á leið. Guð- bjartur SH 45 lagði af stað í róður frá Skagaströnd um svipað leyti og eftir um það bil 20 mínútna stím skullu bátarnir saman, báðir á fullri ferð. Skýrslutökur að hefjast Húnabjörgin lenti með stefnið framarlega á stjórnborðssíðu Guð- bjarts og gekk stefnið langt inn í bát- inn. Skipstjóri Guðbjarts, sem sat í stól við stýrið, klemmdist og átti í erf- iðleikum með að losa sig því stefnið á Húnabjörginni lenti aftan á sætisbak- inu og lagði það saman. Er talin mikil mildi að maðurinn slasaðist ekki meira en raun varð á við áreksturinn. Gat kom á stefni Húnabjargar ofan sjólínu en nokkur leki kom að Guð- bjarti við áreksturinn og ekki var hægt að sigla honum fyrir eigin vél- arafli til hafnar. Aldan frá Skaga- strönd fór strax af stað með öfluga dælu til móts við bátana og var dælt úr Guðbjarti og tvö stór kör sett út í bakborðssíðuna, full af sjó. Við það lyftist skemmdin á skrokki bátsins upp fyrir sjólínu og lekinn minnkaði til muna. Húnabjörgin hélt aftur á móti strax til lands með sjómanninn sem slasaðist og beið sjúkrabílinn, sem flutti manninn til Akureyrar, á bryggjunni. Lögregla á Blönduósi segir að mál- ið sé enn í rannsókn og skýrslutökur af þeim sem voru um borð í bátunum tveimur rétt að hefjast. Í gærkvöldi var Guðbjartur SH tekinn á þurrt og telur lögregla að báturinn sé nánast ónýtur. Menn sem voru um borð í bát- unum vildu ekki ræða orsakir óhapps- ins fyrr en að loknum sjóprófum. Slasaðist í árekstri tveggja báta Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Bátarnir skullu saman á fullri ferð. Húnabjörgin lenti með stefnið fram- arlega á stjórnborðssíðu Guðbjarts og gekk stefnið langt inn í bátinn. ÍSLENDINGUR sem handtekinn var á flugvellinum í Sao Paulo í Brasilíu í fyrradag, sakaður um að hafa reynt að smygla rúmum 12 kílóum af hassi og fjórum e-töflum til landsins, er 29 ára karlmaður, og á að baki brotaferil hér á landi. Hann hefur verið ákærður fyrir innflutning á ávana- og fíkniefnum. Maðurinn var einn á ferð, og engir meintir vitorðsmenn hafa verið handteknir, segir José Williams Machado de Souza, upplýsingafulltrúi Brasil- ísku ríkislögreglunnar. Hann segir að manninum verði haldið í varðhaldi þar til dómur verði kveðinn upp. Fíkniefnin fundust í hátalaraboxi sem maðurinn var með í farangri sínum, en við gegnumlýsingu á boxinu fundust margar pakkningar sem innihéldu samtals 12,2 kíló af hassi. Við nákvæmari leit fundust svo fjórar e- töflur í handfarangri mannsins. Á vef eins stærsta dagblaðs Sao Paulo kom í gær fram að þetta sé ekki fyrsta heimsókn Íslendingsins til Bras- ilíu, en þetta sé hins vegar í fyrsta skipti sem hann komi við sögu lögreglu þar í landi. Pétur Ásgeirsson, skrifstofustjóri almennrar skrif- stofu utanríkisráðuneytisins, staðfesti í gærkvöldi að lög- regluyfirvöld í Sao Paulo hefðu handtekið íslenskan karl- mann og gefið honum að sök að hafa reynt að smygla rúmum 12 kílóum af hassi til Brasilíu. Pétur segir að ræð- ismaður Íslands í Sao Paulo hafi að undanförnu verið í sambandi við lögregluyfirvöld þar í borg vegna málsins. Aðspurður hvort maðurinn verði framseldur til Íslands, hljóti hann refsingu í Brasilíu, segir Pétur alltof snemmt að ræða það, menn hafi vissulega verið framseldir til Ís- lands, en ráðuneytið sé ekki farið að velta þeirri hlið málsins fyrir sér. 29 ára Íslendingur í haldi í Brasilíu vegna fíkniefnasmygls Hassið fannst við gegnum- lýsingu Um12 kílóum af hassi var komið fyrir í hátalaraboxi. FORRÁÐAMENN Atlantsolíu ákváðu í gærmorgun að lækka verð á bensíni og dísilolíu um eina krónu lítrann. Kostar bensínlítrinn þá 126,40 krónur og dísilolían 121,7 krónur. Önnur olíufélög fetuðu í fótspor Atlantsolíu síðar um daginn og lækkuðu verð á bensíni og dísil- olíu um eina krónu á lítrann. Fyrir viku lækkaði bensínverð um tvær kr. á lítrann og verð á dísilolíu um eina krónu. Er því um aðra lækkun á stuttum tíma að ræða. Bensínverð lækkar enn HUNDUR af boxer tegund gekk lausagangi í Ásahverfi í Hafnarfirði í gær og glefsaði og klóraði í tvö börn þannig að á þeim sá. Talsverð- ur vandi reyndist að fanga hunds- pottið sem að lokum þurfti að lúta í lægra haldi fyrir hundaeftirlits- manni. Í kjölfarið var haft samband við eiganda hundsins og tók hann þá ákvörðun að dýrinu skyldi lógað. Hundur glefsar í börn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.