Morgunblaðið - 23.08.2006, Side 2

Morgunblaðið - 23.08.2006, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fyrstu 1000 pöntunum í dag fylgja ókeypis kartöflubátar STÓR DAGUR HJÁ LÍ Landsbanki Íslands (LÍ) hefur gengið frá stærstu einstöku lántöku íslensks banka á fjármálamörkuðum til þessa, með útgáfu skuldabréfa í Bandaríkjunum fyrir jafngildi 158 ma. íslenskra króna. Bankastjóri LÍ segir hina miklu eftirspurn vera til marks um það traust sem bankinn nýtur. Lítil hætta Samkvæmt upplýsingum Lands- virkjunar er hætta á náttúrulegum jarðskorpuhreyfingum af völdum eldgosa eða jarðhræringa á Kára- hnjúkasvæðinu álitin mjög lítil. Endurákærir ekki Settur ríkissaksóknari hefur ákveðið að endurákæra ekki Jón Ás- geir Jóhannesson, vegna kaupa á 10- 11, en ákæruliðnum var í annað sinn vísað frá fyrr í sumar. Flugslys í Úkraínu Enginn komst lífs af þegar rúss- nesk farþegaflugvél af gerðinni Tupolev 154 fórst í austurhluta Úkraínu í gær. 160 farþegar og tíu manna áhöfn voru um borð. Yfirvöld hafa útilokað hryðjuverk. Talið er að eldur hafi komið upp í vélinni en hún mun hafa lent í miklu óveðri. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Forystugrein 22 Viðskipti 12 Bréf 25 Úr verinu 13 Minningar 26/30 Erlent 14/15 Myndasögur 32 Minn staður 16 Dagbók 32/35 Höfuðborgin 17 Staður og stund 34 Landið 17 Menning 36/41 Akureyri 18 Bíó 38/41 Suðurnes 18 Ljósvakamiðlar 42 Daglegt líf 20 Veður 43 Umræðan 21/25 Staksteinar 43 * * * Kynningar – Morgunblaðinu fylgir blaðið Austurland 2006. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó- hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns- dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                   ! " # $ %        &         '() * +,,,                      NORÐLINGASKÓLI í Norð- lingaholti var settur í gær og þar með hófst formlega annað starfsár skólans en hann er nýjasti grunn- skólinn í Reykjavík. Nemendum skólans hefur fjölgað umtalsvert en nú eru skráðir þar til náms 103 nemendur samanborið við 40 nem- endur undir lok síðasta starfsárs. Sif Vígþórsdóttir, skólastjóri Norðlingaskóla, segir að gert sé ráð fyrir töluverðri fjölgun nem- enda þegar líður á skólaárið enda sé hann staðsettur í nýju hverfi sem byggist hratt upp. „Það er ekki óraunhæft að nem- endur verði um 130 talsins í vor en við eigum von á því að fjöldi barna fari upp í 500 á næstu tveimur til þremur árum,“ segir Sif en fyrsta starfsár skólans voru nemendur í 1. til 6. bekk í skólanum en nú verða einnig nemendur í 7. og 8. bekk. Gert er ráð fyrir því að Norð- lingaskóli verði heildstæður grunn- skóli fyrir nemendur í 1. til 10. bekk þegar hann verður fullbúinn. Starf skólans mun líkt og síðasta skólaár fara fram í færanlegum skólastofum sem reistar hafa verið í útjaðri væntanlegrar skólalóðar en fyrirhugað er að reisa skólahús á Klapparholti við Árvað, þar sem um árabil stóðu hesthús. „Við fáum viðbótarskála eftir því sem okkur fjölgar en það húsnæði sem nú er til staðar er ætlað fyrir 80 nemendur.“ Fyrsti skóladagurinn á heimilum nemendanna Í Norðlingaskóla er lögð mikil áhersla á samstarf við foreldra nemenda en á laugardaginn var svokallaður skólaboðunardagur. „Það var í raun fyrsti skóladag- urinn en hann fór fram á heimilum nemenda og var mjög skemmti- legur,“ segir Sif en þá fóru fulltrú- ar skólans á fund foreldra á hverju heimili og boðuðu nemendur per- sónulega í skólann. „Markmiðið með þessu var að hitta foreldra og nemendur við eld- húsborðið og gera grein fyrir starf- inu í vetur. Það er mikilvægt að samstarfið við heimilin virki í báðar áttir og þetta þarf ekki alltaf að vera þannig að foreldrarnir komi til okkar.“ Nemendum fjölgar í Norðlingaskóla Morgunblaðið/Brynjar Gauti Við setningu Norðlingaskóla í Norðlingaholti í gær var nemendum, for- eldrum og starfsmönnum skólans boðið í grillveislu. Elsa Karen sem er 6 ára, og er því að setjast á skólabekk í fyrsta sinn, var ánægð með veislu- höldin og hlakkaði til að fara að læra meira. GENGIÐ hefur verið frá kaupum Skinneyjar Þinganess á Hornafirði á kaupum á útgerðarfélaginu Langa- nesi frá Húsavík. Í kaupunum fylgja tvö uppsjávarveiðiskip og veiðiheim- ildir sem svara til ígilda ríflega 1.400 tonna af þorski miðað við úthlutun á þessu fiskveiðiári. Þær heimildir eru fyrst og fremst í síld og loðnu. Kaup- verð fæst ekki gefið upp, en gera má ráð fyrir að það sé vart undir tveim- ur milljörðum króna. Langanes gerir út skipin Björgu Jónsdóttur sem er vinnsluskip búið til veiða á uppsjávarfiski og Björn Sveinsson, sem einnig er búið til slíkra veiða en er ekki með vinnslu um borð. Engar veiðiheimildir eru skráðar á síðarnefnda skipið, en á Björgu eru skráðar heimildir sem svara til ríflega 1.400 tonna af þorski á þessu fiskveiðiári. Þær heimildir byggjast fyrst og fremst upp á síld og loðnu. Hlutdeild skipsins í loðnu- kvótanum er 2%, 2,2% í íslenzku sumargotssíldinni, 2,8% í norsk-ís- lenzku síldinni og 0,2% í kolmunna. Þá er skipið með 0,9% hlutdeild í út- hafsrækju og lítilsháttar heimildir í botnfiski. Á þessu fiskveiðiári svar- aði þessi hlutdeild til 3.400 tonna af loðnu, 2.400 tonna af sumargotssíld, 4.300 tonna af norsk-íslenzku síld- inni og 600 tonna af kolmunna. Síldarvinnslan átti áður 37% í Langanesi, en félagið leysti til sín þann hlut fyrr í sumar og seldi Skinney Þinganesi, sem nú kaupir það, sem eftir stendur. Hvorki kaup- andi né seljandi vildu gefa upp kaup- verð. Erfitt er að meta það þar sem óljóst er hve mikils virði hlutdeildin í loðnu er metin. Á þessu ári skilaði hún aðeins 3.400 tonna aflamarki, en í góðu meðalári gæti hún skilað um 20.000 tonnum miðað við milljón tonna úthlutun. Skinney Þinganes mun taka við skipunum í haust, en fyrir á félagið uppsjávarveiðiskipin Jónu Eðvalds og Ásgrím Halldórsson, það síðara með Síldarvinnslunni í Neskaupstað. Ekki liggur fyrir hvaða breytingar verða gerðar á útgerð Skinneyjar Þinganess við þessi kaup, en ljóst er að hlutdeild félagsins í uppsjávar- fiski eykst verulega. Útgerðarfélagið Langanes selt til Hornafjarðar Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Björg Jónsdóttir kemur til hafnar á Húsavík, líklega úr sínum síðasta túr undir merkjum Langaness. Á Björgu eru skráð 1.400 þorskígildistonn. Tvö uppsjávarveiðiskip og 1.400 þorskígildistonn fylgja með í kaupunum Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is LÖGREGLAN á Egilsstöðum vinnur nú að rannsókn líkamsárásar á kín- verskan starfsmann Impregilo við Kárahnjúka 20. ágúst. Óskar Bjart- marz, yfirlögregluþjónn á Egilsstöð- um, segir að lögregla hafi engar ákveðnar vísbendingar og hún sjái ekki fyrir endann á rannsókninni. Tæknideild lögreglunnar í Reykjavík lauk rannsókn á vettvangi í gær og væntir lögreglan á Egilsstöðum þess að upplýsingar úr þeirri rannsókn varpi nýju ljósi á atburðinn. Óskar segir að samkvæmt framburði hins slasaða hafi árásarmennirnr verið tveir og höfðu þeir hulið andlitið þeg- ar þeir réðust á sofandi manninn. Brúnin að léttast á starfsmönnum Steingrímur Þorbjarnarson, trún- aðarmaður starfsmanna Kárahnjúka- svæðisins, segir að ástandið í vinnu- búðunum hafi róast talsvert. „Brúnin er heldur að léttast á mönnum og þeir farnir að óska þeim er vinna að rann- sókn málsins góðs gengis við að leysa úr öllu saman,“ segir Steingrímur. Hann segir að þótt starfsöryggi sé mikið á svæðinu, þá hafi öryggisgæsla í búðunum sjálfum verið nokkuð van- rækt til að byrja með. Að undanförnu hafi hins vegar verið unnið markvisst að því að uppræta illindi meðal starfs- manna og bæta samskipti þeirra. Að- spurður hvort árásin á Kínverjann hafi eitthvað með kynþáttahatur að gera, segir Steingrímur ekkert benda til þess. „Það liggur hins vegar fyrir að mikill fjöldi Kínverja sem starfaði fyrir Impregilo í Kína kom til Kára- hnjúka að loknum framkvæmdum í Kína. Sumum starfsmönnum sem fyr- ir voru á svæðinu blöskraði að sjá þennan stóra og samstæða hóp koma og mikið var um hann talað til að byrja með. Oft láta menn það flakka að hér séu margir Kínverjar, en ekki af sérstakri heift,“ segir Steingrímur. Árás á starfsmann Impregilo óupplýst Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.