Morgunblaðið - 23.08.2006, Page 10

Morgunblaðið - 23.08.2006, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR en messan sjálf hefst svo kl. 20.30 á Vígsluflöt. Þar mun séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédika og Kór Kvennakirkjunnar leiða söng undir stjórn Aðalheiðar Þorsteins- dóttur. KVENNAKIRKJAN heldur messu í Heiðmörk í samvinnu við Skóg- ræktarfélag Reykjavíkur í dag. Gert er ráð fyrir að safnast verði saman kl. 19 og grillað þar sem hver og einn kemur með sitt nesti Messa og grill í Heiðmörk GEIR H. Haarde forsætisráðherra afhjúpaði í gær, að viðstöddum for- sætisráðherra og utanríkisráðherra Eistlands, minningarskjöld um að 15 ár eru liðin frá því að Ísland varð fyrst ríkja til að viðurkenna end- urheimt sjálfstæðis Eistlands. Skjöldurinn hangir utan á húsnæði utanríkisráðuneytis Eistlands í Tallinn sem er við Íslandstorg núm- er eitt. „Þetta var mjög hátíðleg og ánægjuleg athöfn en Eistar leggja mikla áherslu á að minnast atbeina Íslands að sínu sjálfstæði á þessum tíma fyrir fimmtán árum,“ sagði Geir í samtali við blaðamann Morg- unblaðsins í gær en opinberri heim- sókn hans og eiginkonu hans, frú Ingu Jónu Þórðardóttur, til Eist- lands lýkur í dag. Tilefni heimsókn- arinnar er að 15 ár eru liðin frá því Eistland endurheimti sjálfstæði sitt en Ísland varð fyrst ríkja til þess að viðurkenna stjórnmálasamband við landið. „Ísland er þeim ofarlega í huga og það er mikill áhugi á landi og þjóð hér í Eistlandi. Það sást á fundi sem ég átti með eistneskum blaða- mönnum en margir þeirra voru ágætlega vel að sér bæði um stöð- una í efnahagsmálum á Íslandi og stöðuna í varnarmálum.“ Ræddu efnahags- og viðskiptamál Dagskrá heimsóknarinnar var þétt skipuð en auk fundar með for- sætisráðherra Eistlands, Andrus Ansip, átti forsætisráðherra fundi með Arnold Rüütel, forseta Eist- lands, Thomas Varek, forseta þings- ins, og Urmas Paet utanrík- isráðherra. Að sögn Geirs ræddu hann og æðstu ráðamenn Eistlands mikið um þá atburði sem áttu sér stað fyrir fimmtán árum auk sam- skipta ríkjanna í dag og hvað fram- tíðin kynni að bera í skauti sér í þeim efnum. „Við höfum rætt bæði um efna- hagsmál og viðskipti en einnig um samstarfið innan Atlantshafs- bandalagsins (NATO).“ Miklar umræður hafa undanfarið átt sér stað í Eystrasaltsríkjunum um eftirlit með lofthelginni og sagði Geir að þau mál hefði borið á góma. Aðspurður sagði hann það ekki vera á dagskrá á næstu árum að Eistar myndu sjálfir annast eftirlit með lofthelginni enda væri ákveðið sam- starf í gangi innan NATO þar um. Greinilegur uppgangur og bætt lífskjör fólksins í landinu Lofthelgieftirlitinu svonefnda er haldið uppi af NATO og skiptast að- ildarríkin á að sinna því þar eð Eystrasaltsríkin þrjú, Eistland, Lettland og Litháen, ráða ekki yfir flugherjum. „Þeir eru hins vegar með her- menn bæði í Afganistan og Írak og vilja vera virkir í samstarfinu innan NATO meðal annars á þeim for- sendum.“ Geir heimsótti Eistland fyrst árið 1992 en hann segir greinilegt að mjög hraður uppgangur hafi verið í Eistlandi á þeim fimmtán árum sem liðin eru frá því landið endurheimti sjálfstæði sitt. „Því var spáð að þegar Eistland yrði frjálst og lýðræðislegt land að miklir kraftar myndu leysast úr læðingi sem myndu á endanum bæta lífskjör fólksins í landinu til muna en þeir spádómar hafa nú greinilega ræst.“ Geir segir að eftir fall komm- únismans og endurheimt sjálfstæðis landsins hafi Eistland í raun byrjað á byrjunarreit. Þannig hafi gefist tækifæri til þess að byggja upp bæði stjórnkerfi og skattkerfi landsins frá grunni án þess að þurfa að taka tillit til þess sem fyrir var en Eistar tóku upp flatan tekjuskatt árið 1994, fyrstir allra í Austur- Evrópu. „Eistar hafa tekið upp mjög nú- tímalegt skattkerfi og það fyr- irkomulag sem þeir tóku upp í gjaldeyris- og gengismálum á þess- um tímamótum er enn við lýði en það var nýlunda þá. Þá innleiddu þeir mjög fljótlega rafræna stjórn- sýslu en ríkisstjórnarfundir þeirra eru nánast allir í rafrænu formi og hver ráðherra hefur sína tölvu.“ Geir segir að Íslendingar geti án efa tekið Eista til fyrirmyndar í ýmsum efnum en bendir á að hér á landi sé rafræn stjórnsýsla einnig langt á veg komin. Forsætisráðherra heimsótti í gær nokkur fyrirtæki sem tengjast við- skiptum við Ísland en þeirra á með- al voru Rúmfatalagerinn og eist- nesk ferðaskrifstofa sem selur töluvert af ferðum til Íslands. Þá heimsótti hann einnig Norrænu upplýsingaskrifstofuna sem starfar í Eistlandi fyrir Norðurlandaráð. Opinberri heimsókn Geirs H. Haarde forsætisráðherra til Eistlands lýkur í dag „Mjög hátíðleg og ánægjuleg athöfn“ Geir H. Haarde, forsætisráðherra, og Andrus Ansip, forsætisráðherra Eistlands, afhjúpa skjöld til minningar um að Ísland varð fyrst ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Eistlands. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, og Andrus Ansip, forsætisráðherra Eistlands, í stjórnarráði Eistlands. Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is ÞAÐ er raunhæft markmið að arn- arstofninn á Íslandi verði 100 pör á næstu tíu til fimmtán árum gangi allt að óskum að sögn Kristins Hauks Skarphéðinssonar, fuglafræðings hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Eins og greint var frá í Morgunblaðinu var arnarvarp í ár eitt það lakasta í tutt- ugu ár en Kristinn Haukur segir að hlutfallslega sé þetta eitt lakasta varp síðan farið var að fylgjast með arn- arvarpi fyrir um fimmtíu árum. „Það urðu umskipti árið 1998 en þá fór varpið að ganga mjög vel og hefur gengið hlutfallslega vel þar til nú,“ segir Kristinn. „Tíðarfarið var afleitt í vor en það er sterk fylgni á milli vor- veðráttu og varpárangurs hjá örnun- um. Þetta þyrfti þó að vera með þess- um hætti í fleiri ár til þess að hafa áhrif enda er örninn langlífur fugl.“ Örninn komist úr hættu Að sögn Kristins er stefnt að því að stofninn stækki smám saman og fari að ílengjast í öðrum landshlutum en Vesturlandi. Menn vonist til þess að stofninn verði 100 pör innan tíðar, en arnarstofninn hefur rúmlega þrefald- ast á síðastliðnum fjörutíu árum. „Til þess að það gerist verður varp- árangurinn að vera góður ár eftir ár. Ef það koma fleiri svona ár er hins vegar ljóst að stofninn kemur til með að standa í stað og síðan hnigna. Langtímamarkmiðið er að örninn komist úr hættu þannig að stofninn verði ekki bundinn við Vesturland og stækki. […] Við vitum um líklega 180 hefðbundin arnarsetur á landinu og nú er ekki nema þriðjungur þeirra í ábúð. Þannig virðist mikið svigrúm til vaxtar í stofninum miðað við hvað hann var algengur hér áður fyrr.“ Hugsanlega fóðraðir í vetur Kristinn segir að fyrir tíu árum hafi menn íhugað að fara út í sértækar að- gerðir til aðstoðar erninum með því að reyna að ala upp unga og flytja þá á ákjósanlega staði. Slíkar fram- kvæmdir séu þó kostnaðarsamar og erfiðar og ekki verið farið út í þær því stofninn hafi tekið við sér um það leyti sem menn voru komnir á fremsta hlunn með að gera eitthvað róttækt. „Það besta sem hægt er að gera fyrir svona stofn er að stuðla að sem bestum varpárangri þannig að hann sjái um þetta sjálfur,“ segir Kristinn og bendir á að almennar verndarað- gerðir hafi skipt mjög miklu. „Síðan eru ýmsar aðrar aðferðir til sem hafa hjálpað örnunum líkt og að fóðra þá á veturna en það hjálpar fyrst og fremst ungfuglunum yfir erf- iðasta hjallann fyrsta veturinn.“ Að sögn Kristins stóð Fuglavernd- arfélag Íslands fyrir því að borga bændum fyrir að bera út hræ áður fyrr þegar örninn var mjög fáliðaður en sú iðja lagðist af fyrir löngu. Fuglaverndarfélagið hafi hreyft því að nýju að fóðra erni og það verði von- andi gert á einum stað í vetur. „Það mun um leið auðvelda eftirlit að fá ernina inn á fóðurstöðvar en sl. þrjú ár hafa ernir verið litmerktir. Með þessum hætti væri hægt að fylgjast með þeim og sjá hvar þeir væru staðsettir. Það var rætt um þetta í vetur en vonandi kemst þetta á framkvæmdastig í haust.“ Arnarstofninn kann að verða 100 pör á næstu 10 til 15 árum „Mikið svigrúm til vaxtar í stofninum“ Ljósmynd/Guðlaugur Albertsson Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is ÞÖRF er á fjármögnun til íslenskra háskóla umfram það sem hið opin- bera hefur tök á að leggja til þar sem líklegt er að hægi á vexti þjóðarfram- leiðslu næstu misserin. Líklegt má telja að aukning fjármagns til há- skólastigsins hérlendis og nýjar fjár- mögnunarleiðir verði meginviðfangs- efni stefnumótunar fyrir háskólamenntun á Íslandi. Það sé hins vegar verulega viðkvæmt póli- tískt viðfangsefni þar sem það feli að öllum líkindum í sér nauðsyn þess að víkja frá hinu rótgróna viðhorfi að há- skólamenntun sé réttur allra sem þess óska og skilgreina hana þess í stað sem sérstakan ávinning þeirra sem hennar njóta. Þetta er meðal þess sem fram kem- ur í skýrslu Efnahags- og framfara- stofnunarinnar (OECD) um æðri menntun á Íslandi sem birt var í gær. Skýrslan er hluti af úttekt OECD á háskólastiginu í 24 löndum og er markmið hennar að kanna áhrif op- inberrar stefnumörkunar í málefnum háskóla í löndunum og vísa veginn um úrbætur og nýjungar. Hún er samin af sex erlendum sérfræðingum sem dvöldu hér á landi í vikutíma, heim- sóttu alla háskóla og hittu að máli fjöl- marga hagsmunaaðila. Boða til málþings um skýrsluna Að mati skýrsluhöfunda er, eftir hraða uppbyggingu íslenska háskóla- stigsins undanfarin ár, nauðsynlegt að samhæfa stefnumótun og endur- skoða tiltekna þætti starfseminnar. Þetta eigi sérstaklega við um fjár- mögnun kennslu og rannsókna í há- skólum og gæðamál. Bent er á að ís- lenska háskólakerfið hafi sýnt mikinn sveigjanleika og samkeppni milli há- skóla hafi leitt til þess að komið hafi verið til móts við vaxandi eftirspurn, en Ísland er nú í fjórða sæti innan OECD hvað varðar sókn í háskóla- menntun. Skýrsluhöfundar velta upp þeirri spurningu hvort aðferðir við viður- kenningar nýrra prófgráða séu nægi- lega vandaðar til að tryggja gæði námskeiðanna til lengri tíma, sérstak- lega með tilliti til þess fjölda nýrra námsleiða sem stofnað hafi verið til síðustu árin. Í ljósi þessa er lagt til að komið verði á formlegu kerfi til að skilgreina nýjar námsleiðir, meta gæði þeirra og eftirspurn eftir þeim. Mikið er talið skorta á afkastagetu stjórnkerfisins þegar kemur að því að samþykkja nýjar námsleiðir. Þess má að lokum geta að mennta- málaráðneytið efnir til málþings um skýrsluna 8. september nk. þar sem sérfræðingur OECD mun skýra nið- urstöður hennar og fulltrúar mennta- málaráðuneytis, háskóla, atvinnulífs og nemenda fjalla um þýðingu hennar fyrir stefnu stjórnvalda og starf há- skóla. Skýrsluna má í heild sinni nálg- ast á slóðinni: www.oecd.org/edu/ter- tiary/review. Aukning fjármagns til háskólastigsins brýn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.