Morgunblaðið - 23.08.2006, Side 16
Háþrýstidælur
Þegar gerðar eru hámarkskröfur
K 6.80 M Plus
■ Vinnuþrýstingur: 20-135 bör
■ Vatnsmagn: 530 ltr/klst
■ Túrbóstútur + 50%
■ Lengd slöngu: 9 m
■ Sápuskammtari
■ Stillanlegur úði
K 7.80 M Plus
■ Vinnuþrýstingur
20-150 bör
■ Stillanlegur úði
■ Sápuskammtari
K 7.85 M Plus
■ Vinnuþrýstingur:
20-150 bör
■ Vatnsmagn:
550 ltr/klst
■ Stillanlegur úði
■ Sápuskammtari
■ Túrbóstútur + 50%
■ 12 m slönguhjól
■ Vatnsmagn: 550 ltr/klst
■ Túrbóstútur + 50%
■ Lengd slöngu: 9 m
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS
K 5.80 M Plus
■ Vinnuþrýstingur:
20-125 bör
■ Vatnsmagn:
450 ltr/klst
■ Lengd slöngu: 7,5 m
■ Stillanlegur úði
■ Túrbóstútur + 50%
■ Sápuskammtari
Ýmsir aukahlutir
Snúningsdiskur
Húsavík | Það virðist ætla að
verða gott berjaár í Keldu-
hverfi í ár ef svo heldur fram
sem horfir með berjasprettuna.
Kristel Eva Gunnarsdóttir er
ung Húsavíkurdama sem þykir
berin góð og er hún sótti ömmu
sína og afa heim í sumarhús
þeirra í Sultum um helgina
fékk hún nóg af þeim í gogg-
inn. Í Sultum er allgott berja-
land og mikið af berjum í ár að
sögn þeirra Sultarsystra sem
þar dvöldu við berjatínslu um
helgina.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Kristel Evu þykir berin góð
Sveitin
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
FERMINGARÁRGANGAR frá Eski-
fjarðarkirkju, árin 1951, 1952 og 1953
héldu sameiginlegt fermingarbarnamót
á Eskifirði í júlí sl. Af því tilefni gáfu þau
Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Huldu-
hlíð peningaupphæð sem nota á til
kaupa á afþreyingarefni fyrir íbúa heim-
ilisins.
Myndin er af fulltrúum gefendanna og
Hulduhlíðar við afhendingu gjafarinnar.
Færðu Hulduhlíð gjöf
Rúnar Kristjánssoná Skagaströndheyrði um upp-
gröftinn í Hringsdal og
landnámsmanninn sem
fluttur var suður á safn.
Það að brjóta grafargrið
getur skapað úfa.
Þúsund ára þagnarfrið
þurfti í engu að rjúfa.
Og Rúnar bætir við:
Upp þeir grafið hafa Hring,
hyllt þar ranga siði.
Ævagamlan Íslending
á að láta í friði!
Og loks:
Í Arnarfirði út með sjó
að sér stefna meinum,
menn sem granda grafarró
og gramsa í fornum beinum.
Davíð Hjálmars Har-
aldsson las í Morgun-
blaðinu ummæli Guðna
Ágústssonar sem féllu á
flokksþinginu: „Förum
inn í skólana …“:
Á fjórðu síðu er Framsókn enn
að faðmast, klappa og dóla.
Greinilega gleðjast menn
en Guðni vill í skóla.
Uppgröftur
í Hringsdal
pebl@mbl.is
♦♦♦
ÁRSFUNDUR Vestnorræna ráðsins var í
Færeyjum 21. ágúst sl. og samkvæmt
ályktun sem samþykkt var eiga ríkisstjórn-
ir Íslands, Færeyja og Grænlands að kanna
möguleikann á aðild Grænlands að nýjum
fríverslunarsamningi Íslands og Færeyja,
svokölluðum Hoyvíkur-samningi.
Vestnorræna ráðið er samstarfsvett-
vangur þjóðþinga Íslands, Færeyja og
Grænlands. Hoyvíkur-samningurinn er
einn víðtækasti fríverslunarsamningur sem
gerður hefur verið og mun í raun leiða til ís-
lensks-færeysks efnahagssvæðis þegar
hann tekur gildi síðar á árinu.
Heimamarkaður Íslands mun þá stækka
um 50.000 manns. Í samningnum er sér-
staklega gert ráð fyrir útvíkkun hans til
fleiri hluta konungsveldisins Danmerkur og
vill Vestnorræna ráðið að möguleikar á
þátttöku Grænlands verði nú kannaðir.
Með þátttöku Grænlands yrði í raun til
vestnorrænt fríverslunarsvæði. Ráðið sam-
þykkti einnig að löndin þrjú skuli skiptast á
launuðum konsúlum með diplómatíska
stöðu sem styrkja mundi samstarf þeirra
enn frekar.
Á ársfundinum var Jonathan Motzfeld,
formaður grænlenska þingsins, kjörinn for-
maður og Halldór Blöndal, formaður utan-
ríkismálanefndar og Íslandsdeildar Vest-
norræna ráðsins, kjörinn varaformaður.
Forseti Norðurlandaráðs, Ole Stavad,
sagði frá því að forsætisnefndir Vestnor-
ræna ráðsins og Norðurlandaráðs hefðu
ákveðið að gera uppkast að formlegum
samstarfssamningi milli ráðanna tveggja.
Fundurinn samþykkti einnig tillögur
þess efnis styrkja skuli samstarf þjóðanna í
ferðamálum og í baráttu gegn reykingum.
Vestnorrænt
fríverslunar-
svæði
EIGENDUR lands á Langanesi hafa sent
sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi bréf
þar sem ítrekuð er krafa þeirra um að
bandarísk stjórnvöld fjarlægi úrgang
þann og spilliefni sem þau eru með í
geymslu á Heiðarfjalli.
Segir í bréfinu að um sé að ræða úr-
gang og spilliefni sem séu í geymslu á há-
bungu Heiðarfjalls, án nokkurra örygg-
isráðstafana, fyrir ofan grunnvatn og
vatnsból. Geymslan sé ólögleg auk þess
sem landeigendur hafi ekki gefið leyfi fyr-
ir henni.
Úrgangur verði
fjarlægður
Vita- og strandmenning | Í tilefni af al-
þjóðavitadeginum sem var 20. ágúst sl., hef-
ur stjórn Íslenska vitafélagsins sent rík-
isstjórn Íslands eftirfarandi ályktun sem
gerð var á ráðstefnu um vita- og strand-
menningu á Norðurlöndum í Stykkishólmi í
vor. Þar er lagt
til við rík-
isstjórn Ís-
lands að hún
setji í gang
vinnu til að
koma á fót
verkefni með
það að mark-
miði að auka
verðmæta-
sköpun í
tengslum við
íslenska vita-
og strand-
menningu. „Þetta verkefni getur orðið verk-
færi þjóðarinnar til að þróa og efla vita- og
strandmenningu á Íslandi og samtímis
byggja upp ferðaþjónustu á þessum grunni.
Verkefnið þarf að innihalda lýsingu á starfs-
aðstöðu, fjárveitingum og því sjálfboðastarfi
sem hægt er að nýta sér,“ segir í ályktuninni.
Þátttakendur á ráðstefnunni mæla með
því að skipulögð verði innanlandsráðstefna
með samtökum, stofnunum og fulltrúum
hins opinbera og einkafyrirtækja, sér-
staklega í ferðaþjónustunni, til að ræða bet-
ur möguleika á samstarfi og skipulagningu á
þróunarverkefnum og framtíðarhorfum fyr-
ir íslenska vita- og strandmenningu.
Nýir skólastjórar | Nýr skólastjóri, Börkur
Vígþórsson, tekur til starfa í Grandaskóla,
á þessu skólaári.
Á vorönn hófu tveir nýir skólastjórar
störf í grunnskólum Reykjavíkur, þær
Dagný Annasdóttir í Öskjuhlíðarskóla og
Jóhanna Vilbergsdóttir í Engjaskóla.
Nýr hellir í Undirhlíðum | Tilfærsla efnis í
malarnámu í Undirhlíðum leiddi í ljós op
sem við nánari athugun reyndist vera
munni hraunhellis sem er um það bil 30
metra langur. Hellirinn er norðarlega í
námunni sem er við Bláfjallaveg.
Segir á heimasíðu Ferlis, þar sem til-
kynnt er um hellisfundinn, að um sé að
ræða nokkuð sjaldgæft fyrirbæri hér á
landi. Helli eða rás, í bólstrabergi, sem virð-
ist hafa orðið til er hraun rann í holrúmi á
töluverðu dýpi.