Morgunblaðið - 23.08.2006, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 17
MINNSTAÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
LANDIÐ
Skagafjörður | Á meðan Landbún-
aðarsýningin í Skagafirði stóð yfir
voru afhentar umhverfisviðurkenn-
ingar sem sveitarfélagið Skagafjörð-
ur veitir. Þessi viðurkenning var nú
veitt í annað skiptið. Hún skiptist í
sex hluta og kom viðurkenning fyrir
snyrtilegustu bújörð þar sem stund-
aður er hefðbundin búskapur.
í hlut bænda á Syðri-Hofdölum í
Viðvíkursveit.
Þar er tvíbýli, yngri hjónin Atli
Traustason og Klara Helgadóttir
búa með um 600 kindur en foreldrar
Atla, Trausti Kristjánsson og Ingi-
björg Aadnegard, búa með um 40
kýr og nokkuð af hrossum. Einnig á
Jóna, móðir Trausta, heima á Syðri-
Hofdölum. Ættmenni Trausta hafa
búið á jörðinni síðan árið 1936 og er
Atli fjórði ættliðurinn sem þar býr.
„Við erum að sjálfsögðu öll ákaf-
lega ánægð með að fá þessa við-
urkenningu. Foreldrar mínir lögðu
áherslu á að hafa snyrtilegt í kring-
um sig og við Ingibjörg héldum
þeirri stefnu áfram eftir að við tók-
um við búskapnum fyrir um þrjátíu
árum. Við og ungu hjónin höfum
verið samhent í þessu. Þau eru búin
að byggja íbúðarhús og stór fjárhús
og þeirra byggingar blasa við af
þjóðveginum sem liggur í gegnum
land jarðarinnar en eldri bygging-
arnar sem allar eru steinsteyptar
standa heldur lengra frá,“ sagði
Trausti Kristjánsson bóndi af þessu
tilefni.
Trausti sagði að líklega hefði það
síast inn í sig sem barn að ganga
þokkalega um. Faðir hans hefði þótt
ganga sérlega vel um í útihúsum.
,,Það er miklu skemmtilegra að hafa
þokkalega snyrtilegt í kringum sig.
Ég held að fólki líði betur þannig og
verði miklu ánægðara með lífið og
tilveruna,“ sagði Trausti Krist-
jánsson.
Miklu skemmti-
legra að hafa snyrti-
legt í kringum sig
Með viðurkenningarskjöl Þau veittu Umhverfisverðlaunum Skagafjarðar árið 2006 viðtöku. Frá vinstri Sig-
urbjörg Guðjónsdóttir og Rósa Óskarsdóttir fyrir götuna Brennihlíð á Sauðárkróki. Guðrún Þorvaldsdóttir og
Valgeir Þorvaldsson fyrir Vesturfarasetrið á Hofsósi. Guðmundur Árnason og Sigurjón Gestsson fyrir Golfklúbb
Sauðárkróks. Erna Hauksdóttir og Skúli Halldórsson fyrir fallegustu lóðina sem er að Hólatúni 7 á Sauðárkróki.
Margrét Stefánsdóttir og Álfur Ketilsson fyrir jörðina Brennigerði og Klara Helgadóttir, Ingibjörg Aadnegard,
Trausti Kristjánsson og Atli Traustason fyrir jörðina Syðri-Hofdali.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
SAMNINGAR við dagforeldra, endurskoðun
svonefndra au-pair greiðslna og opnun sér-
stakra smábarnadeilda á leikskólum borg-
arinnar eru meðal verkefna sem fram undan
eru hjá nýstofnuðu leikskólaráði, að sögn Þor-
bjargar Helgu Vigfúsdóttur, verðandi for-
manns ráðsins. Borgarráð samþykkti stofnun
ráðsins á fundi sínum í síðustu viku, en það
tekur formlega til starfa 15. september næst-
komandi.
Þorbjörg Helga segir að í kosningabarátt-
unni í vor hafi mikil áhersla verið lögð á þjón-
ustu við yngstu börnin. Leikskólagjöld muni
lækka um 25% hjá öllum börnum 1. september
og þá gangi í gildi svokallað fjölskyldugjald, en
það hefur í för með sér að ekkert gjald er
greitt fyrir systkini leikskólabarna.
Þorbjörg Helga segir að í samkomulagi
Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks frá í
vor, þegar þeir tóku við stjórnartaumunum í
borginni, hafi verið kveðið á um að leitað yrði
leiða til að brúa bilið frá þeim tíma sem fæð-
ingarorlofi lýkur og þar til leikskólaganga
hefst. „Það verður fyrsta verkefnið mitt að
ganga til samninga til dagforeldra og skoða
au-pair greiðslur,“ segir hún.
Tryggja þurfi að framboð dagforeldra auk-
ist en einnig sé í bígerð að opna sérstakar smá-
barnadeildir við einn leikskóla í hverju hverfi.
Stefnt sé að því að opna að minnsta kosti tvær
slíkar deildir á næsta ári. „Ég tel að val um
þjónustu, ýmist hjá leikskólum, dagmæðrum
eða au-pair, geti slegið strax á þá þörf sem er
fyrir hendi. Um leið og við getum greitt meira
með hverri dagmóður batni staðan,“ segir Þor-
björg Helga.
Niðurstöður úr nýrri skoðanakönnun for-
eldra um dagforeldra sýni að mikill meirihluti
þeirra, eða yfir 90%, séu mjög ánægðir eða
ánægðir með þjónustu dagforeldra. „Það sýnir
að við megum aldrei láta þessa þjónustu verða
hornreka,“ segir hún.
Þorbjörg Helga segir mörg önnur verkefni
fram undan hjá leikskólaráði. Til að mynda
þurfi að huga að sérkennslumálum hjá leik-
skólununum. „Ég tel sérkennsluna í leikskól-
unum vera betur hannaða og skilgreinda held-
ur en í grunnskólanum og ég held að við ættum
að efla hana enn frekar og vera leiðandi í henni
og aðstoða grunnskólann í þessum málum,
segir hún.
Þá vilji hún láta skoða starfsumhverfi leik-
skólakennara. Ekki sé nóg að fá kennara til
starfa í skólunum, heldur þurfi að hlúa vel að
þeim þar.
Ennfremur hafi hún hug á að skoða gæslu-
vallalóðir í borginni. Þeim megi hugsanlega
breyta í smábarnaleikvelli sem yrðu settir upp
sem slíkir.
„Í Evrópu er mjög algengt að það séu öðru-
vísi leikvellir fyrir yngri börn. Þeir eru girtir
af, með rólum sem börnin detta ekki úr og leik-
tækin eru minni,“ segir Þorbjörg Helga.
Margt af því sem nú bjóðist í þessum efnum í
Reykjavík henti ekki yngstu börnunum. Fleira
sé fram undan en sumt eigi eftir að móta frek-
ar í samráði við leikskólakennara í borginni.
Þorbjörg Helga segist vonast til þess að sam-
starfið við leikskólakennara verði gott. Leik-
skólakennarar lýstu á dögunum óánægju með
þá ákvörðun að stofna sérstakt leikskólaráð
sem er aðskilið menntaráði. Þorbjörg Helga
segist búast við því að sú óánægja „snúi að
stjórnsýslubreytingunum en síðan, þegar þær
eru um garð gengnar, hljóta allir að vilja hag
skólanna sem mestan.“
Verðandi formaður nýstofnaðs leikskólaráðs í Reykjavík segir mörg verkefni fram undan
Tvær smábarna-
deildir opnaðar á leik-
skólum á næsta ári
Morgunblaðið/Eyþór
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
Langholt | Harpa Rut var að vonum
spennt þegar hún mætti ásamt for-
eldrum sínum og litlu systur í viðtal
hjá kennaranum sínum Önnu Guð-
rúnu Harðardóttur í gær en dag-
urinn markaði upphafi skólagöngu
Hörpu í 1. bekk Langholtsskóla.
Grunnskólar landsins voru al-
mennt settir í gær en gera má ráð
fyrir að um 45 þúsund börn og ung-
lingar leggi stund á nám í skólunum
sem eru rúmlega 180 talsins.
Morgunblaðið/Ásdís
Fyrsti skóladagurinn
Reykjavík | Um eitt þúsund börn á
eru á biðlistum eftir plássi á frí-
stundaheimilum grunnskólabarna í
Reykjavík en eftirspurn hefur aukist
um 300 til 400 pláss frá því í fyrra.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu hefur Reykjavíkurborg að
undanförnu auglýst eftir fólki til
hlutastarfa á frístundaheimilunum
vegna þessa en nú er búið að manna
um 150 stöður. Reykjavíkurborg
þarf hins vegar að manna um 70
stöður til viðbótar ef reka á öll frí-
stundaheimili borgarinnar með góðu
móti að sögn Björns Inga Hrafns-
sonar, formanns borgarráðs.
„Staðan virðist vera að lagast en
það hefur gengið ágætlega að ráða í
stöðurnar síðustu daga,“ segir Björn
Ingi en hann vonast til þess að stöð-
urnar verði fullmannaðar á næstu
vikum.
Manna
þarf 70
stöður til
viðbótar
Um 1.000 börn á
biðlista eftir plássi á
frístundaheimilum