Morgunblaðið - 23.08.2006, Síða 25
Sagt var: Hann hneigist til kenningu katóla.
RÉTT VÆRI: … til kenningar katóla.
Gætum tungunnar
Páll Jóhann Einarsson skrifar
um trú og vísindi.
Gunnar Jóhannesson skrifar
um trú, vísindi.
Guðjón Sveinsson: Rík þjóð
en fátæk í anda.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
HÁTTVIRTIR fulltrúar Sigl-
ingastofnunar eiga grein í Morg-
unblaðinu 14. júní sl. sem svar nr.
tvö við áður sendum greinum und-
irritaðs.
Aumt er til þess að
vita að þekkingu
mannanna virðist vera
jafn ábótavant og fram
kemur í umræddri
grein. Reyna þre-
menningarnir að rétt-
læta orðið „skips-
klukka“ með tilvísun í
áðurnefndar siglinga-
reglur (tilskipun nr. 47.
frá 7. júlí 1953) jafn-
framt því að væna und-
irritaðan um að hafa
ekki lært nógu vel á
sínum tíma. Í tilvitnun
þeirra þremenninganna í áðurnefnd-
ar reglur er getið um klukku en
aldrei um „skipsklukku“ þar sem
það samsetta orð er ekki til í um-
ræddum reglum. Eins og reglu-
gerðameistararnir viðurkenna í
skrifum sínum þá er aðeins getið um
að slá greinileg högg á klukkuna
sem er bjalla eða klukka framarlega
á skipi. Nýyrði meistaranna er því
úr takti við hina hefðbundnu nafn-
gift á áhaldinu. Eftir stendur að
skipsklukkan, öðru nafni með
dönskuslettuívafi „bestikks-
klukkan“, hefur verið tímamælir en
ekki hljóðgjafi og staðsett oftast
nær í kortaklefa skips eða á stjórn-
palli. Tilvitnun meistaranna virkar
því eins og ástralska tólið sem kallað
er boomerang, það hittir þá sjálfa.
Eftir sem áður er samkvæmt regl-
unum glamrað á skipsklukkuna
(tímamælinn). Ath. skipsklukka er
ekki sama og sjóúr þótt hvoru-
tveggja séu tímamælar.
Þremenningarnir hafa ekki lesið
greinar undirritaðs nema á hunda-
vaði í taugaáfalli að því er virðist.
Þeir eru ósáttir við að minnst var á
orðið „útvörður“ og tala um að ég
hafi verið á móti því orði. Höfðingj-
arnir hafa orðið sárir út af spurn-
ingum í greininni um nánari skýr-
greiningar á fyrir hvað orðið
stendur sem nýyrði í íslenskum
reglum. Þremenningunum til hug-
arhægðar þá stendur í áður sendri
grein „Ekki er verið að amast við
orðinu sem slíku en skýra þarf fyrir
hvað það stendur. Spurt er:“ og
koma þar nokkrar spurningar.
Þremenningarnir hafa ekki treyst
sér til að svara spurningunum og því
orðið sárir og reyna að
snúa út úr.
Fljótaskrift þrí-
menninganna á svar-
grein sinni kemur
skýrt fram í útúrsnún-
ingi þeirra þegar kem-
ur að 28. reglu: Skip
böguð vegna djúpristu.
Þar stendur:
„Skip sem er bagað
vegna djúpristu má,
auk ljósanna sem mælt
er fyrir um í 23. reglu
fyrir vélskip, hafa uppi,
þar sem þau sjást best,
þrjú rauð hringljós, lóðrétt hvert
upp af öðru eða sívalning.“ Er
hvergi í þessari grein minnst á dag-
merki heldur aðeins ljós eins og 23.
gr. fjallar um þ.e. hin svonefndu
siglingaljós.
Þar af leiðandi skaut fyrrverandi
kennari í siglingareglum við Stýri-
mannaskólann í Reykjavík og skóla-
meistari sjálfan sig illilega í fótinn
þegar hann ýjar að því að undirrit-
aður hefði átt að læra betur til-
skipun nr. 47 frá 7. júlí 1953.
Í seinni grein þremenninganna er
bent á að um sé að ræða þýðingu úr
erlendu tungumáli. Ef texti á hinu
erlenda tungumáli er eins illa orð-
aður og umrætt ritverk, að ekki er
hægt að fara eftir reglunum þar sem
hann er ekki skiljanlegur, verður að
vitna í orð Jóns Sigurðssonar for-
seta: að menn eigi ekki að hlýðnast
lögum sem þeir ekki skilja.
Hinir háttvirtu reglugerðarmeist-
arar vitna til þess að undirritaður
eigi að snúa mér til IMO eða ann-
arra erlendra aðila ef hann er ósátt-
ur. Hinum háu herrum, skjald-
sveinum samgönguráðherra, skal á
það bent að á Íslandi gilda lög sem
skrifuð eru á íslensku. Enginn Ís-
lendingur er skyldugur að fara að
lögum sem ekki eru skráð á ís-
lensku. Léleg þýðing eða ófullnægj-
andi og óskiljanlegur texti á erlendu
tungumáli er ekki vandamál Íslend-
inga.
Háttvirtu reglugerðarmeistarar.
Varðandi yfirklór ykkar í sambandi
við stjórnskipanir við gangskiptingu
vélar eða véla skal á það bent að ef
aðeins hefði verið hugleitt að koma
þessum skipunum yfir á skiljanlegt
íslenskt mál þá var hægt að nota
orðið „afl“ í stað snúningshraða sem
er rangt. Orðin „fullt afl aðalvélar“
eða „hálft afl aðalvélar“ nær yfir
bæði snúningshraða og stigningu
skrúfu. Hægt er að gefa skipun um
hvaða orkustig sem óskað er með
þessum hætti.
Ekki hafa þremenningarnir treyst
sér til að svara öðrum athugasemd-
um sem fram koma í greinum und-
irritaðs vegna klúðurslegrar fram-
setningar í umræddu fræðsluriti.
Haft er eftir Jóni Sigurðssyni,
sem nefndur var forseti, að menn
eigi ekki að hlýðnast lögum sem þeir
skilja ekki. Því var hér á árum áður
reynt að vanda til verka við setningu
laga og reglna hvað orðalag varðar
og forðast að nota slanguryrði eins
og „keyrslu katla“.
Tríó Siglingastofnunar ætti að
taka upp sem leiðarljós í framtíð-
arverkefnum orð Jóns Sigurðssonar
„að menn eiga ekki að hlýðnast nein-
um lögum sem þeir skilja ekki“ og
vanda sig aðeins betur í orðavali og
framsetningu í þeim verkefnum sem
þeim verða falin svo ekki valdi mis-
skilningi og tjóni. Lög og reglur eru
sett þegnunum til eftirbreytni og því
þurfa þau að vera orðuð þannig að
aðrir en semjendur skilji svo að
hægt sé að fara eftir þeim.
Verður þetta látið nægja að sinni.
Glamrað á skipsklukku
Kristján Guðmundsson
skrifar um grein fulltrúa
Siglingastofnunar 14. júní sl. ’Enginn Íslendingur erskyldugur að fara að lög-
um sem ekki eru skráð á
íslensku.‘
Kristján Guðmundsson
Höfundur er fyrrverandi skipstjóri.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 25
UMRÆÐAN
SÍÐAN stríðið í Líbanon hófst hefur
varla komið ein einasta frétt um hvað
er að gerast í Palestínu. Ástandið þar
er engu betra en í Líbanon þó að
mannfallið hafi verið jafn mikið. Sam-
kvæmt upplýsingum frá heilbrigð-
isráðuneyti Palestínu hafa 203 Palest-
ínumenn, þar á meðal 58 börn og 25
konur, verið drepin af Ísraelsher frá
26. júní. 738 hafa verið særðir, þar á
meðal 281 barn og 86 konur. Af þeim
særðu hefur þurft að fjarlægja útlimi
á 72. Það er vatnsskortur og raf-
magnsleysi á Gaza, en Ísraelsher hef-
ur ráðist á orkuver þeirra. Hung-
ursneyð er víða, árásir halda áfram.
Fólk þreyir þarna þorrann og deyr og
ekkert er talað um það í fjölmiðlum.
Palestínumenn hafa verið rændir
skattfé sínu og þessi bláfátæka þjóð,
sem er algjörlega undir fjárstyrkjum
erlendra ríkja komin, er nú fjársvelt
af ESB, Bandaríkjunum, Ísrael og
Kanada. Árásir halda áfram, hernám-
ið er ennþá, uppbygging múrsins
einnig, allt í trássi við alþjóðalög.
Auðvitað er illmögulegt að fylgja
öllum átökum eftir en þetta er hluti af
sömu myndinni. Átökin við Hizbollah
eru nátengd átökunum á Gaza og her-
náminu.
Frá því að stríðið í Líbanon hófst
hef ég varla orðið var við múkk um
þetta í íslenskum fréttum. Fjölmiðlar
bera mikla ábyrgð og hér hafa þeir
brugðist upplýsingahlutverki sínu.
Mér er því spurn: Er það og ásetn-
ingur íslenskra fjölmiðla að þegja um
ástandið í Palestínu?
Virðingarfyllst,
EINAR STEINN VALGARÐSSON
háskólanemi,
Hólatorgi 4, Reykjavík.
Opið bréf til íslenskra fjöl-
miðla um ástandið í Palestínu
Frá Einari Steini Valgarðssyni:
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
NÚ ER flokksþingi framsókn-
armanna lokið. Þetta var óvenjulegt
þing, haldið á óvenjulegum tíma af
ástæðum sem öllum eru kunnar.
Þetta er heitt sumar í sögu flokks-
ins.
Á þinginu var það meginmálið að
kjósa nýja forustu en framhaldsþing
þar sem stefnan fyrir næstu kosn-
ingar verður mörkuð verður haldið á
komandi vetri.
Ný forusta
Eftir kosningu nýrrar forustu
mega allir vel við una. Nýr formaður
flokksins Jón Sigurðsson fær ótví-
rætt fylgi og nýr ritari, Sæunn Stef-
ánsdóttir, kemur mjög sterk inn í
forustu flokksins. Ég veit að þarna
er afar gott fólk á ferðinni og vænta
má mikils af því. Það byggi ég á
löngum kynnum af Jóni og frábæru
samstarfi við Sæunni sem var að-
stoðarmaður minn í heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytinu og félags-
málaráðuneytinu í erfiðum verk-
efnum.
Guðni Ágústsson
fékk endurnýjað um-
boð til varaformennsku
með traustu fylgi, og
Siv fékk góða kosningu
þótt það nægði ekki til
formennsku, og Jónína
fékk verulegt fylgi sem
varaformaður á móti
sitjandi varaformanni.
Allir geta því staðið
uppréttir eftir þessar
kosningar.
Viðbrögðin
Viðbrögð stjórn-
arandstöðunnar voru eins og venja
er til, nöldursöm, svo sem að „fram-
sóknarmaddaman hefði púðrað sig“,
og að „konurnar rekið sig upp undir
glerþakið í flokknum“, svo vitnað sé
í Steingrím og Ingibjörgu Sólrúnu.
Ennfremur að engin breyting yrði á
stefnu flokksins með þessum úrslit-
um o.s.frv. Það er engin ástæða til
þess að hafa sérstakar áhyggjur af
þessu nöldri. Þessir ágætu foringjar
álíta sig hafa gert skyldu sína með
þessum viðbrögðum.
Ég vil um þetta að-
eins segja það eitt að í
Framsóknarflokknum
hafa konur verið kall-
aðar til mikillar
ábyrgðar og nægir að
nefna að þrjár konur
gegna nú ráðherra-
embætti fyrir flokkinn
og þar af ein embætti
utanríkisráðherra
fyrst kvenna hér á
landi.
Stefnubreyting?
Það verða ávallt breytingar með
nýrri forustu. Hins vegar er ég
þeirrar skoðunar að sú forusta sem
var kosinn í Framsóknarflokknum
um helgina muni ekki kúvenda í
stefnu flokksins. Hún er skýr.
Framsóknarflokkurinn hefur ávallt
verið frjálslyndur flokkur á miðju
stjórnmálanna og verður það áfram.
Stefna Framsóknarflokksins bygg-
ist ekki á sósíalisma eða nýfrjáls-
hyggju. Hún byggist á því að saman
fari öflugt atvinnulíf og traust og
gott velferðar- og félagskerfi. Stefna
flokksins byggist meðal annars á því
að viðhalda norræna módelinu, sem
er kallað svo í velferðarmálum.
Bæði sósíalistum og frjáls-
hyggjumönnum hættir til að aðskilja
þetta tvennt atvinnulífið og velferð-
ina, beina þessum þáttum gegn hvor
öðrum. Við framsóknarmenn teljum
þá hins vegar óaðskiljanlega. Það
hafa nágrannar okkar á Norð-
urlöndunum einnig gert með þeim
árangri að litið er til þessara þjóða
sem fyrirmyndar um gott fé-
lagskerfi og traustan efnahag.
Gildi velferðarinnar
Ég rakst nýlega á ágætis bók
„The end of povertry“ sem er eftir
hinn virta hagfræðing Jeffrey
Sachs, sem veitir forstöðu rann-
sóknarstofnun við Columbia-háskóla
og er sérstakur ráðgjafi fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.
Bókin er efnismikil umfjöllun um
efnahags- og þjóðfélagsmál heims-
ins og möguleika hinna fátæku ríkja
til þess að binda enda á hina sáru fá-
tækt og örbirgð sem allt of víða rík-
ir. Niðurstaða hans er skýr. Þjóð-
félag sem hefur ekki undirstöður í
velferð, góðu heilbrigðis-, mennta-
og félagskerfi á sér ekki viðreisnar
von. Heilbrigði og menntun eru und-
irstaðan, órjúfanlegur þáttur af
efnahagslegum framförum. Í bók-
inni getur Jeffrey Sachs þess að
ýmsir sérfræðingar í efnahags-
málum, þar á meðal innan alþjóða-
bankans, eigi í erfiðleikum með að
skilja þetta. Mér er þetta hugstætt
vegna þess að ég sá það haft eftir
hérlendum sérfræðingum að við
nytum „þess vafasama heiðurs“ að
vera í efstu sætunum af OECD
-ríkjunum í útgjöldum til heilbrigð-
ismála.
Vinstri eða hægri
Eftir flokksþingið heyrði ég að
stjórnmálafræðingar voru að ýja að
því að Jón Sigurðsson mundi færa
Framsóknarflokkinn til hægri ef
eitthvað væri. Ekki veit ég á hverju
þessir ágætu menn byggja þetta.
Ekkert í framgöngu Jóns í stjórn-
málum er sérstakt leiðarmerki til
hægri. Jón hefur sjálfur sagt að
framsóknarstefnan hangi ekki á
snúru milli hægri og vinstri. Hún sé
frjálslynd og þjóðleg félagshyggju-
stefna á miðju stjórnmálanna. Ég er
sammála þessu. Við framsókn-
armenn höfum átt farsælt samstarf
við Sjálfstæðisflokkinn í ellefu ár, á
mesta framfaraskeiði í sögu þjóð-
arinnar. Á meðal þess sem gert hef-
ur verið er að auka framlög að raun-
gildi til mikilla muna til félags,
heilbrigðis og menntamála, með öðr-
um orðum til velferðarkerfisins.
Þetta hefur verið gert með sam-
komulagi. Hins vegar eru flokkarnir
ólíkir og standa hvor fyrir sína
stefnu í þjóðmálum rétt eins og
stjórnarandstaðan.
Stjórnmál á sumri
Jón Kristjánsson skrifar
um stöðu Framsóknarflokksins
að loknu flokksþingi
’Ég veit að þarna er afargott fólk á ferðinni og
vænta má mikils af því. ‘
Jón Kristjánsson
Höfundur er þingmaður.
ÞAÐ var blendin tilfinning sem
fylgdi því fyrir nokkru að rífa sig
frá fjölskyldunni til að vinna sem
forstöðumaður í sumarbúðunum í
Vatnaskógi. Það er nefnilega erfitt
að byrja að vinna á ný eftir að hafa
haft tækifæri til að vera heima með
nýfæddum syni sínum í rúma sex
mánuði. Um leið var spennandi að
mæta í Vatnaskóg eftir nokkurra
ára hlé. Á staðnum beið nýtt sam-
starfsfólk, nýir strákar, sömu sum-
arbúðir.
Reglulega heyrast hugleiðingar
og birtast greinar um að heimur
versnandi fari, spennan í þjóðfélag-
inu, þenslan og lífsgæðakapp-
hlaupið sé að fara með fjölskyldulíf
í gröfina. Börn séu óalandi og óferj-
andi, beri ekki virðingu fyrir neinu
og erfiðleikarnir aukist sífellt í
skólakerfinu. Í 6. flokki í Vatna-
skógi 2006 hugsaði ég oft með mér
að heimsendaspámennirnir færu
villtir vegar. Klárir athugulir, hjálp-
samir strákar sem gleymdu sér í
leik og áttu auðvelt með að hlusta
var það sem mætti mér í skóginum.
Önnur orð sem lýsa drengjunum
sem ég dvaldist með eru hug-
myndasamir, fyndnir, kurteisir og
vingjarnlegir. Á knattspyrnuvell-
inum í Svínadal spiluðu drengir
með meiri hópþroska en sjá mátti
hjá þekktustu knattspyrnumönnum
heims í júní. Óeigingirni einkenndi
leikmenn í kappleiknum við for-
ingja staðarins og ljóst að orð sr.
Friðriks um að kappið mætti ekki
bera fegurðina ofurliði voru í heiðri
höfð.
Auðvitað gekk ekki allt hnökra-
laust fyrir sig, fyrr má nú vera í
100 manna hópi, en drengirnir áttu
auðvelt með að fyrirgefa og sættast
ef upp komu árekstrar. Hegðun
sem mörg okkar sem eldri eru
mættu læra af.
Ég veit vel að ég er hvorki töl-
fræðingur né virtur fræðimaður á
sviði félagsvísinda, en þessi kynni
af 96 drengjum á aldrinum 10–12
ára sannfærðu mig um að víða eru
foreldrar að vinna frábært starf við
uppeldi barna sinna. Starf sem allt
of sjaldan er ausið því lofi sem það
á skilið, en þeim mun oftar kaffært
í neikvæðum samanburði við fortíð
sem líklegast aldrei var.
Ég vil nota þetta tækifæri til að
þakka þann heiður sem mér og
starfsfólki Vatnaskógar var sýndur
með því að leyfa okkur að njóta frá-
bærra samskipta við einstaka
drengi um miðjan júlí.
HALLDÓR E.
GUÐMUNDSSON,
starfsmaður í sumarbúðunum
Vatnaskógi og meistaranemi við
Trinity Lutheran Seminary í Ohio,
BNA.
Þökk fyrir samveruna,
takk fyrir traustið
Frá Halldóri E. Guðmundssyni: