Morgunblaðið - 23.08.2006, Page 37

Morgunblaðið - 23.08.2006, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 37 MENNING SÍÐASTLIÐIÐ föstudags- kvöld opnaði hin kúbanska Mila Pelaez málverkasýn- ingu á Barnum að Lauga- vegi 22. Pelaez hefur verið á flakki milli Kúbu og Ís- lands frá árinu 2004 ásamt eiginmanni sínum, Þorbirni Emil Kjærbo. Þetta er hennar önnur einkasýning hér á landi, en sú fyrri var opnuð á Café Cultura í Al- þjóðahúsinu í fyrra. „Ég hef svo mikla ást að gefa og mér fannst því tilvalið að koma hingað þar sem er kalt og deila sól, gleði og ást til fólksins,“ segir Pela- ez. Hún vinnur olíuverk á striga og notar einnig blandaða tækni í mörgum verkunum. Þar koma t.d. við sögu sandur, skeljar og steinar frá ströndum Ís- lands og Kúbu. Pelaez er útskrifuð með meistargráðu frá E.J. Varona-háskólanum í Ha- vana og hefur lengi haft áhuga á myndlist. „Nýju verkin mín fjalla mikið um ferðalagið okkar síðustu ár. Þetta er um allt, m.a. ástina, hatrið, lífið, dauð- ann, tunglið, sólina, jörð- ina, ferðalög og erfiðleika þeirra,“ segir Pelaez sem vann öll verkin á Kúbu. Þorbjörn eiginmaður hennar fékk þá hugmynd í tengslum við opnun sýningarinnar að skipu- leggja dagskrá tengda Kúbu á Barnum, og hefst hún í kvöld. „Ís- lendingar hafa mikinn áhuga á Kúbu. Mér finnst svo gaman að hafa fullt af fólki í kringum mig og því fannst mér frábær hugmynd að skipuleggja eina allsherjar kúb- anska veislu. Í kvöld og annað kvöld [kl. 21] ætlar Heiðar Ástvaldsson að kenna eldheitt kúbanskt salsa. Á sunnudaginn kl. 15 ætlar Mila svo að vera með opinn tíma þar sem fólk getur komið og spurt hana að hverju sem er um Kúbu,“ segir Þor- björn. Hann vinnur nú að því að skipuleggja dagskrána frekar og er m.a. stefnt að því að fá ýmsa ís- lenska áhugamenn um Kúbu til að halda fjölbreytta fyrirlestra. Auk þess verða alls kyns viðburðir skipulagðir og verður ókeypis á þá alla. „Hér á Barnum gefst fólki svo kostur á að bragða á ýmsum léttum kúbönskum réttum. Ég stefni að því að Kúbudagarnir standi yfir í mán- uð og mun ég kynna dagskrána jafnt og þétt. Hér verður mikið fjör, dans, tónlist og gleði.“ Menning | Kúbudagar hefjast á Barnum Morgunblaðið/Jim Smart Þau Mila Pelaez og Þorbjörn Emil Kjærbo bjóða til menningarveislu. Málverkasýning, eld- heitt salsa og fleira ÁTTUNDA tónlistarhátíð Ólafsfirð- inga, Berjadagar, upphófst í bezta veðri, sem lék áfram við staðarbúa alla helgina. Þrídægran flaggaði að vanda fimm tónleikum; eitt stærsta litla menningarkraftaverk lands- byggðar sem væri álíka og 1.500 klassískar sumarhátíðir í Danmörku – ef allir 500–5.000 manna smábæir sýndu þar sambærilegan metnað. Rithöfundurinn og fjöllistamað- urinn Herdís Egilsdóttir flutti blað- laust en snjallt inngangsávarp á upphafstónleikum hátíðarinnar í þétt setnu félagsmiðstöðinni Tjarn- arborg. Herdís lagði m.a. áherzlu á að fagþekking væri engin forsenda fyrir að njóta sígildrar tónlistar, enda vissulega erfitt að mótmæla því. Allra sízt þar eð stórafmæl- isbarn ársins, W.A. Mozart og höf- undur allra verka kvöldsins, þykir sjálfkjörnasta dæmi í klassíkinni um listamann sem felur list sína undir blekkjandi einföldum ytri hjúp. Um þetta var Klarínettkvintettinn í lokin trúlega eitt magnaðasta dæmi allra tíma. Stækkun píanótríósins (píanó á móti fiðlu og sellói) í píanókvartett – þ.e. að viðbættri víólu – var splunkuný af nálinni þegar Mozart samdi fyrri kvartett sinn af tveim 1785 og er hann stundum jafnvel tal- inn uppfinnandi greinarinnar, þó svo að hinum 15 ára Beethoven í Bonn hafi dottið hún í hug á sama ári (WoO 36), ef ekki fleirum. Þroska- verk Mozarts hafa þó skiljanlega náð meiri vinsældum, og í leikandi meðferð Guðnýjar, Pálínu, Unnar og Gunnars naut hinn eldhressi g-moll kvartett sín með bezta móti, ekki sízt íbyggin gamansemin í lok- arondóinu. Marta Guðrún fór með hálsbrjót- andi raddflúrið í Laudate Dominum fyrir sópran, 2 fiðlur, píanó, selló og kontrabassa úr Vesperae de Dom- inica eins og að drekka vatn, og átti m.a.s. litla a cappella „kadenzu“ í lokin við innlifaðan samleik félag- anna. Eins og vænta mátti af fyrrgetinni blekkingarlist var Klarínettkvintett- inn í A-dúr hið mesta yndi á að hlýða fyrir jafnt eyru og heila sem hjarta. Lækningarmáttur úrvalstónlistar í úrvalstúlkun verður seint ofmetinn, og í mínu tilviki gufaði uppsöfnuð langaksturslýja hér upp sem dögg fyrir sólu svo nálgaðist enn eitt kraftaverkið. Prímus mótor að því var göldróttur klarínettleikur hins bæverska Alberts Ostermanns er hríslaðist um sálartetrið sem ískalt bergvatn í Sahara. Sá kunni sann- arlega sinn Mozart fram í fing- urgóma, og fordæmið eggjaði greini- lega strengjakvartettinn til að sýna sitt allra bezta. Enda var framlaginu tekið með fögnuði á fæti. Kraftaverk á færibandi TÓNLIST Tjarnarborg Mozart: Píanókvartett í g K478; Laudate Dominum úr K321; Klarínettkvintett K581. Guðný Guðmundsdóttir / Pálína Árnadóttir / Hildigunnur Halldórsdóttir fiðla, Unnur Sveinbjarnardóttir víóla, Gunnar Kvaran selló, Albert Osterham- mer klarínett, Marta Guðrún Halldórs- dóttir sópran, Sigurður Halldórsson selló, Óttar Sæmundsen kontrabassi og Örn Magnússon píanó. Föstudaginn 18. ágúst kl. 20.30. Berjadagar á Ólafsfirði Ríkarður Ö. Pálsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.