Morgunblaðið - 23.08.2006, Side 44

Morgunblaðið - 23.08.2006, Side 44
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. endurskoðun reikningsskil skattar / ráðgjöf www.ey.is NEFND sérfræðinga á vegum Landsvirkjunar segir að stíflan við Kárahnjúkavirkjun sé örugg og eng- in ástæða sé til að óttast að hún bresti. Þetta kom fram á blaða- mannafundi sem Landsvirkjun hélt í gær á Hótel Nordica en auk nefnd- armannanna þriggja var á fundinum hópur jarð- og verkfræðinga sem hef- ur unnið að gerð stíflunnar og fram- kvæmt rannsóknir á svæðinu. Voru þeir allir á einu máli um að stíflan væri örugg. „Þetta lítur allt saman vel út á Kárahnjúkum,“ sagði Nelson S. Pinto, einn sérfræðinganna í nefnd Landsvirkjunnar, sem hefur séð um eftirlit með framkvæmdunum við stífluna. Fram kom á fundinum að við hönn- un stíflunnar hafi verið gert ráð fyrir því að jarðskjálfti upp á allt að 6,5 á Richter gæti orðið og stíflan myndi þola slíkan skjálfta. Aðgerðir vegna misgengis Hins vegar hafi árið 2004 komið fram nýjar upplýsingar varðandi misgengi á svæðinu og brugðist hafi verið við þeim upplýsingum með því að gera ýmsar breytingar á steypu- kápu stíflunnar. Settur var teygjan- legur dúkur á távegg stíflunnar og stálplata yfir liðamót. Pálmi Jóhann- esson, verkfræðingur og einn hönn- uða stíflunnar, segir að í raun hafi verið bætt við teygjanlegum dúk ofan á steypukápuna en dúkurinn haldi vatninu ef steypan myndi bresta. Þá hafi einnig verið farið í allar sprungur og sprautað inn í þær eins og hægt var og mælitækjum komið fyrir í göngum sem fari eftir endilangri stíflunni. Pálmi segir að tækin mæli hvort einhver hreyfing verði í sprungunum út frá vatnsþrýstingi og færslu. Á fundinum kom einnig fram að við hönnun stíflunnar hafi verið gert ráð fyrir að sprungur gætu komið í steypukápu stíflunnar en vatnsþung- inn í lóninu hvílir á kápunni. Stór sprunga kom í Campos Novos-stífl- una í Brasilíu, sem er sambærileg stíflunni á Kárahnjúkum en að sögn Nelsons Pintos stöndum við betur að vígi. Grjótfyllingin í Kárahnjúkastíflu sé þéttari og steypukápan þakin fyll- ingarefni sem geri það að verkum að komi sprungur í kápuna fylli efnið í sprungurnar. Pinto tók fram að mik- ilvægt væri að hafa í huga varðandi frásagnir af stíflunni í Brasilíu að sprungan í klæðningunni væri ekki ástæða þess að lónið hefði tæmst, heldur bilun í hjáveitugöngum. Í samantekt Landsvirkjunar kom fram að viðbúið væri að Hálslón muni leka, eins og öll uppistöðulón. Búist er við að lekinn nemi um 5 rúmmetr- um á sekúndu miðað við hæstu stöðu lónsins en að smám saman dragi úr lekanum samhliða því að stíflan þétt- ist. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, gat þess á fundinum að nýtt áhættumat verði kynnt á stjórnarfundi Landsvirkjunar á mánudag þar sem lögð verði sérstök áhersla á jarðskjálfta og jarðskorpu- hreyfingar. Í kjölfarið yrði svo gefin út viðbragðsáætlun byggð á áhættu- mati og útreikningum á stærð flóða vegna stíflurofs. „Þetta lítur allt saman vel út á Kárahnjúkum“ Eftir Árna Helgason og Sunnu Ósk Logadóttur Landsvirkjun undirbýr viðbragðsáætlun Morgunblaðið/RAX Henrique Perez og Pálmi Jóhannesson, hönnuðir Kárahnjúkastíflu, sem er í baksýn.  Öryggi stíflunnar | Miðopna EKKI verður gefin út endurákæra á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannes- syni, forstjóra Baugs Group, vegna ákæruliðar sem varðar kaup á 10– 11-verslununum og vísað var frá dómi fyrr í sumar í annað sinn. Settur ríkissaksóknari segist í bréfi til fjölmiðla meta það svo að ekki sé nægilega líklegt að sakfelling náist. Þar segir ennfremur að Jóni Ás- geiri hafi verið tilkynnt um þessa afstöðu ákæruvaldsins, en þar komi fram að þessi ákvörðun lúti ein- göngu að þeim ætluðu brotum sem honum voru gefin að sök í þessum ákærulið, en hafi ekki áhrif á rann- sókn vegna annarra brota er kunni að vera til rannsóknar hjá efna- hagsbrotadeild ríkislögreglustjóra, enda falli þau utan umboðsskrár Sigurðar sem setts ríkissaksókn- ara. „Þessi niðurstaða kemur mér ekki á óvart. Ég tel reyndar að dómstólar hafi verið búnir að lýsa þeirri efnislegu niðurstöðu að í fyrsta ákæruliðnum hafi verið fjallað um viðskipti en ekki auðg- unarbrot, og þá fannst mér sjálf- gefið að það gæti ekki komið til frekari ákæru,“ segir Gestur Jóns- son, verjandi Jóns Ásgeirs. „Mér finnst hins vegar frétta- tilkynning sem kom frá settum rík- issaksóknara ekki vera stórmann- leg. Þar er í raun fyrst og fremst verið að reyna að setja málið í þann búning að gera lítið úr þeirri nið- urstöðu að stærsti hluti málsins skuli vera endanlega úr sögunni,“ segir Gestur. „Ég hef frá upphafi sagt að þessi ákæruliður, sem oft hefur verið kenndur við 10–11-verslanirnar, snúist um viðskipti og ekkert ann- að. Þetta hafa dómstólar staðfest bæði héraðsdómur og Hæstiréttur. Það var því einkennilegt að þurfa að sitja undir því svo vikum skipti að Sigurður Tómas Magnússon segðist vera að velta því fyrir sér að ákæra í þriðja sinn af þessu til- efni. Því verður vart trúað að slíkt hafi hann hugleitt í alvöru eftir þá dóma sem gengið höfðu,“ segir í yf- irlýsingu frá Jóni Ásgeiri. Eftir standa 18 ákæruliðir sem bíða efnislegrar meðferðar í Hér- aðsdómi Reykjavíkur. Lúta þessir ákæruliðir m.a. að fjárdrætti, ólög- legum lánveitingum, meiriháttar bókhaldsbrotum og röngum til- kynningum um afkomu Baugs hf. til Verðbréfaþings Íslands, eins og fram kemur í bréfi ríkissaksóknara. Settur ríkissaksóknari í Baugsmálinu hefur ákveðið að gefa ekki út endurákæru vegna kaupanna á verslunum 10–11 Ekki nægilega líklegt að sakfelling náist Þessi niðurstaða kemur ekki á óvart segir verjandi forstjóra Baugs  Ekki ákært | 6 FYRRVERANDI borgarstjóri New York borg- ar, Rudolph Giuliani, kemur til Íslands 29. september. Heimsóknin er í boði Símans og mun Giuliani halda fyrirlestur á ráðstefnunni Leiðtogar til fram- tíðar, sem efnt verður til vegna 100 ára afmælis Símans. Giuliani, sem oft hefur verið nefndur borgarstjóri Bandaríkj- anna, var borgarstjóri New York borgar frá árinu 1994 til ársloka 2001. Hann öðlaðist heimsfrægð fyrir framgöngu sína í kjölfar hryðjuverkaárásanna sem gerðar voru á World Trade Center 11. september 2001. Nafn hans hefur oft borið á góma í umræðu um hugsanlega frambjóðendur repúblíkana til embættis banda- ríkjaforseta árið 2008. Giuliani sækir Ísland heim Rudolph Giuliani ÍSLENSKA landsliðið í opna flokknum á Evrópumótinu í brids er komið í 4. sæti eftir spila- mennsku gærdagsins og eygir nú möguleika á að berjast um verð- launasæti, gangi allt að óskum í lokaumferðunum. Ísland vann Hvíta-Rússland, 25:3, í 23. umferð í gærmorgun, tapaði fyrir Ungverjum, 14:16, í 24. um- ferð og fékk 18 stig fyrir yfirsetu í 25. umferð. Þegar 8 umferðir eru eftir af mótinu hafa Ítalir 500 stig, Norð- menn 460, Írar 459, Íslendingar 441 og Hollendingar og Svíar 434 stig. Ísland spilar við Eistland og San Marínó í dag. Í kvennaflokki vann Ísland Ítalíu í gærkvöldi, 20:10, en er enn í 22. og neðsta sæti. | 9 Ísland komið í 4. sæti á EM í brids ALMANNAVARNADEILD rík- islögreglustjóra hyggst í dag prófa svokallaðar hljóðbombur í ná- grenni við Hrafntinnusker, en kom- ið hefur til skoðunar að nota þær til að vara fólk við Kötlugosi ef til þess kæmi. Um er að ræða eins konar flugeld sem þó gefur ekki frá sér neinn bjarma heldur einungis há- vært hljóð. „Hugmyndin er sú að hafa hljóðbomburnar í læstum hirslum í skálunum en um leið og viðvörun kæmi um að Kötlugos væri í vændum yrði þeim skotið upp til þess að vara þá við sem eru á gönguleiðinni,“ segir Svanur Sæv- ar Lárusson, formaður Flugbjörg- unarsveitarinnar á Hellu. „Við vitum hins vegar ekki hvernig þetta virkar og hvort göngumenn heyra nokkuð. Sam- hliða þessu ætlum við að skjóta upp stórri tívolíbombu og sjá hvort ein- hver munur er þarna á.“ Í sömu ferð verður viðvörunar- skilti um hrun úr íshellum sett upp í Hrafntinnuskeri. Fulltrúar björg- unarsveita, lögreglu og sýslu- mannsembættisins í Rangárvalla- sýslu munu koma skiltinu fyrir. Prófa hljóðbombur til að að vara við Kötlugosi ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.