Morgunblaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FJÁRRÉTTIR HAUSTIÐ 2006
Réttir Dagsetning
Auðkúlurétt við Svínavatn, A.-Hún. lau. 9. sept.
Áfangagilsrétt á Landmannaafrétti, Rang. fim. 21. sept.
Baldursheimsrétt í Mývatnssveit, S.-Þing. sun. 27. ágúst
Brekkurétt í Norðurárdal, Mýr. sun. 17. sept.
Fellsendarétt í Miðdölum, Dal. sun. 17. sept.
Flekkudalsrétt á Fellsströnd, Dal. laug. 16. sept.
Fljótshlíðarrétt í Fljótshlíð, Rang. þri. 12. og sun. 17. sept.
Fljótstungurétt í Hvítársíðu, Mýr. lau. 9. sept.
Fossrétt á Síðu, V.-Skaft. fös. 8. sept.
Fossvallarétt v/Lækjarbotna, (Rvík/Kóp) sun. 17. sept.
Gillastaðarétt í Laxárdal, Dal. sun. 17. sept.
Grímsstaðarétt á Mýrum, Mýr. þri. 19. sept.
Hamarsrétt á Vatnsnesi, V.-Hún. lau. 16. sept.
Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit, Árn. lau. 16. sept.
Hítardalsrétt í Hítardal, Mýr. mán. 18. sept.
Hlíðarrétt í Bólstaðarhl.hr. A.-Hún. sun. 17. sept.
Hlíðarrétt í Mývatnssveit, S.-Þing sun. 27. ágúst
Hólmarétt í Hörðudal, Dal. sun. 1. okt.
Hraðastaðarétt í Mosfellsdal sun. 17. sept.
Hraunsrétt í Aðaldal, S.-Þing. sun. 10. sept.
Hrunaréttir í Hrunamannahr., Árn. fös. 15. sept.
Hrútatungurétt í Hrútafirði, V.-Hún. lau. 9. sept.
Húsmúlarétt v/Kolviðarhól, Árn. lau. 16. sept.
Illugastaðarétt í Fnjóskadal S.-Þing. sun. 3. sept.
Kjósarrétt í Hækingsdal, Kjós. sun. 17. sept.
Kirkjufellsrétt í Haukadal, Dal. lau. 16. sept.
Klausturhólarétt í Grímsnesi, Árn. mið. 13. sept.
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skagafirði lau. 9. sept.
Ljárskógarétt í Laxárdal, Dal. lau. 2. sept.
Lokastaðarétt í Fnjóskadal, S.-Þing. sun. 17. sept.
Melarétt í Fljótsdal, N.-Múl. sun. 24. sept.
Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V.-Hún. lau. 9. sept.
Múlarétt í Saurbæ, Dalasýslu sun. 17. sept.
Mælifellsrétt í Skagafirði sun. 17. sept.
Möðruvallarétt í Eyjafjarðarsveit sun. 10. sept.
Núparétt á Melasveit, Borgarfirði sun. 10. sept.
Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal, Borg. mið. 13. sept.
Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borg. sun. 17. sept.
Reynisrétt undir Akrafjalli, Borg. lau. 16. sept.
Reyðarvatnsréttir á Rangárvöllum lau. 16. sept.
Reykjaréttir á Skeiðum, Árnessýslu lau. 16. sept.
Selflatarrétt í Grafningi, Árnessýslu mán. 18. sept.
Selvogsrétt í Selvogi, Árnessýslu sun. 17. sept.
Silfrastaðarétt í Blönduhlíð, Skag. mán. 18. sept.
Skaftárrétt í Skaftárhr., V.-Skaft. lau. 9. sept.
Skaftártungurétt í Skaftártungu, V.-Skaft. lau. 16. sept.
Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi, Árn. fös. 15. sept.
Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag. lau. 9. sept.
Skarðsrétt á Skarðsströnd, Dalasýslu lau. 16. sept.
Skarðsrétt í Bjarnarfirði, Strandasýslu lau. 16. sept.
Svignaskarðsrétt, Svignaskarði, Mýr. mán. 18. sept.
Skerðingsstaðarétt í Hvammsveit, Dal. sun. 17. sept.
Skrapatungurétt í Vindhælishr., A.-Hún. sun. 10. sept.
Staðarrétt í Skagafirði sun. 10. sept.
Staðarbakkarétt í Öxnadal, Eyjafirði fös. 15. sept.
Stafnsrétt í Svartárdal, A.-Hún. lau. 9. sept.
Svarthamarsrétt á Hvalfjarðarströnd, Borg. sun. 10. sept.
Tungurétt í Svarfaðardal, Eyjafirði. sun. 3. sept.
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún. fös. 8. sept.
Valdarásrétt í Víðidal, V.-Hún. fös. 8. sept.
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. lau. 9. sept.
Þorvaldsdalsrétt í Eyjafirði lau. 9. sept.
Þórkötlustaðarétt í Grindavík sun. 17. sept.
Þverárrétt í Eyjafjarðarsveit sun. 10. sept.
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. lau. 16. sept.
Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýr. mán. 18. sept.
Þverárrétt í Öxnadal, Eyjafirði mán. 18. sept.
Ölfusréttir í Ölfusi, Árnessýslu mán. 18. sept.
STÓÐRÉTTIR HAUSTIÐ 2006
Réttir Dagsetning
Skarðarétt í Gönguskörðum, Skagafirði lau. 16. sept.
Staðarrétt í Skagafirði lau. 16. sept.
Silfrastaðarétt í Blönduhlíð, Skag. sun. 17. sept.
Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð, A.-Hún. sun. 24. sept.
Skrapatungurétt í A.-Hún. sun. 17. sept.
Unadalsrétt, Skagafirði lau. 7. okt.
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skagafirði lau. 30. sept.
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. lau. 30. sept.
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. lau. 7. okt.
Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveit lau. 7. okt.
Þverárrétt í Eyjafjarðarsveit sun. 8. okt.
HELSTU RÉTTIR Í LANDNÁMI INGÓLFS ARNARSONAR
Réttir Dagsetning
Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit lau. 16. sept.
Húsmúlarétt við Kolviðarhól lau. 16. sept.
Fossvallarétt við Lækjarbotna sun. 17. sept.
Hraðastaðarétt í Mosfellsdal sun. 17. sept.
Þórkötlustaðarétt í Grindavík sun. 17. sept.
Kjósarrétt í Hækingsdal, Kjós sun. 17. sept.
Selvogsrétt í Selvogi, Árnessýslu sun. 17. sept.
Selflatarrétt í Grafningi mán. 18. sept.
Ölfusréttir í Ölfusi mán. 18. sept
Seinni réttir verða þrem vikum síðar á sömu vikudögum, þ.e. dagana 7.–9.
október. Til að auðvelda hreinsun afrétta og draga úr hættu á ákeyrslum á þjóð-
vegum í haustmyrkrinu er lögð áhersla á að fé verði haft í haldi eftir réttir. Sam-
kvæmt 5. gr. fjallskilasamþykktar fyrir Landnám Ingólfs Arnarsonar nr. 401/1996
er óheimilt að sleppa aftur fé úr haustréttum á afrétti.
Réttir haustið 2006
SÆLUTÍMA kindanna þegar þær geta verið
frjálsar á fjalli er að ljúka þetta sumarið. Kom-
ið er að göngum og réttum og raunar eru
fyrstu réttir afstaðnar í einstaka sveitum.
Um næstu helgi verður réttað á nokkrum
stöðum, að því er fram kemur í réttalistanum
sem Ólafur R. Dýrmundsson, ráðunautur hjá
Bændasamtökum Íslands, hefur tekið saman.
Þannig verður réttað í Ljárskógarétt í Lax-
árdal í Dalabyggð á laugardag og í Ill-
ugastaðarétt í Fnjóskadal í Suður-Þingeyj-
arsýslu og Tungurétt í Svarfaðardal í Eyjafirði
á sunnudag.
Fyrsta stóra réttahelgin verður síðan 8. til
10. september. Þá verður meðal annars réttað
víða í Húnavatnssýslum, Skagafirði og Eyja-
firði. Einnig í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu
og Skaftárhreppi í Vestur-Skaftafellssýslu.
Helstu réttir á Suðurlandi verða síðan um
miðjan mánuðinn. Þá helgi verður jafnframt
réttað víða í nágrenni höfuðborgarinnar.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Runnið í réttina Mývetningar réttuðu í Reykjahlíð um síðustu helgi. Þangað komu gangnamenn úr öllum áttum og sameinuðu fjárhópana í réttinni.
Réttað á nokkrum stöðum um helgina
MANNRÉTTINDASÁTTMÁLI
Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um rétt-
indi öryrkja mun styrkja réttar-
stöðu öryrkja hér á landi þó að Ís-
land þurfi ekki að breyta lögum
eða reglum
vegna gildis-
töku hans.
Þetta segir
Helgi Hjörvar
alþingismaður
en hann var í
sendinefnd Ís-
lands sem tók
þátt í samninga-
viðræðum um
sáttmálann.
Um er að
ræða fyrsta mannréttindasáttmála
21. aldarinnar og tekur hann til
650 milljóna öryrkja um allan
heim.
Í samtali við Morgunblaðið benti
Helgi á að í hagsmunabaráttu fatl-
aðra hér á landi, m.a. í einstaka
málaferlum, hefðu þeir haft stuðn-
ing af alþjóðlegum skuldbindingum
Íslands.
Lagalega skuldbindandi
„Fram að þessu höfum við getað
vísað í meginreglur Sameinuðu
þjóðanna í málefnum fatlaðra sem
hafa verið leiðbeinandi en ekki
skuldbindandi. Að tveimur eða
þremur árum liðnum mun þessi
sáttmáli hafa lagalega skuldbind-
ingu fyrir aðildarríki Sameinuðu
þjóðanna og þar með eru vísanir í
reglurnar sterkari en áður hefur
verið. En langmesta réttarbótin er
auðvitað fyrir íbúa þróunarland-
anna því við Íslendingar erum að
sjálfsögðu lánsamir að því leyti að
við erum í hópi fremstu þjóða,
hvað stöðu fatlaðra varðar,“ sagði
hann.
Þá væru í sáttmálanum ákvæði
um skýrslugjöf um stöðu mála í
hverju landi og sérfræðingar færu
yfir málin, gerðu athugasemdir og
bentu á það sem betur mætti fara.
„Við getum auðvitað fengið bæði
gott aðhald og gagnlegar ábend-
ingar í gegnum slíkt eftirlit eins og
við höfum fengið í öðrum mála-
flokkum, svo sem varðandi stöðu
barna og stöðu fangelsismála,“
bætti Helgi við.
Langur aðdragandi
Samþykkt sáttmálans hefur átt
sér langan aðdraganda en að sögn
Helga var það Bengt Lindqvist
sem hafði frumkvæði að honum.
Lindqvist var forystumaður í
Sænska blindrafélaginu, þingmað-
ur, um tíma félagsmálaráðherra
Svía og umboðsmaður fatlaðra hjá
SÞ. Árið 1994 hóf hann baráttu
fyrir því að SÞ setti leiðbeinandi
reglur um málefni fatlaðra með
það takmark að þær yrðu að skuld-
bindandi sáttmála.
„Nú hillir undir að það takist.
Það hefur verið mikið starf og flók-
ið viðfangsefni að samræma skiln-
ing ólíkra þjóða og menningar-
heima á því hver staða fatlaðra á
að vera,“ sagði Helgi. Hann telur
sáttmálann ótrúlega framsækinn í
því að tryggja fötluðum jafnrétti á
við aðra og gangi í raun og veru
lengra en hann hafði búist við. Það
hafi líka komið honum á óvart að
sáttmálinn var samþykktur sam-
hljóða í nefndinni sem fjallaði um
hann.
Sáttmálinn fer fyrir allsherjar-
þing Sameinuðu þjóðanna í októ-
ber og hann öðlast gildi þegar 2⁄3
hlutar aðildarþjóða hafa staðfest
hann.
Mannréttindasáttmáli
Sameinuðu þjóðanna um
réttindi öryrkja
Helgi Hjörvar
Sáttmál-
inn styrk-
ir stöðu
fatlaðra