Morgunblaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 4
EÐ A LD A G A R Laugavegur VW Passat Highline 2,0 Turbo skráður 11/05 ek. 7.000 verð 3.650.000 kr. *M.v. SP-bílasamninga Viðræðum um sameiningu netanna haldið áfram Morgunblaðið/Sverrir Nýir tímar Björn Ingi Hrafnsson, Guðmundur Þóroddsson, forstjóri OR, Haukur Leósson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Gunnar Sigurðsson í baksýn, Ólafur F. Magnússon og Stefán Jón Hafstein njóta útsýnisins yfir Reykjavíkurborg frá svölum Orkuveituhússins í gær er ný stjórn kom saman í fyrsta sinn. 4 FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ORKUVEITAN tapaði 6,2 milljörðum króna fyrstu sex mánuði ársins 2006, að því er fram kemur í fréttatilkynningu sem fyrirtækið sendi Kauphöllinni í gær. Guðlaugur Þór Þórðarson, stjórnarformaður OR, segir að tapið skýrist fyrst og fremst af geng- issveiflum en OR hefur fjármagnað sig í erlendum lánum og segir hann að þegar krónan sé sterk hafi hagnaðurinn tekið mið af því og öfugt. „Ástæðan fyrir því að menn gera þetta er að fyrirtækið er fjárhagslega sterkt og getur leyft sér þetta,“ segir hann og bætir við að fyrirtækið bíði einfaldlega af sér slíkar sveiflur. „Hefðbundinn rekstur Orkuveitunnar gengur mjög vel og hefur EBITDA hækkað um milljarð milli ára,“ segir Guðlaugur Þór og bendir á að fjár- mögnun í erlendum lánum þýði lægri fjármagns- kostnað. „Einnig er rétt að geta þess að fyrirtækið hefur gert langtímasamninga um orkusölu í er- lendri mynt sem nemur 160 milljörðum króna,“ seg- ir hann. Í tilkynningunni kemur einnig fram að fjármagns- liðir hafi verið neikvæðir upp á um 11,6 milljarða fyrstu sex mánuðina og skýrist það af gengisþróun- inni. Skuldir Orkuveitunnar voru á sama tíma í fyrra 37 milljarðar og hafa aukist upp í um 67 millj- arða núna. Guðlaugur segir að auk gengisþróunar- innar skýrist þetta af yfirtöku OR á Fráveitunni, fé- lagi um holræsakerfi Reykjavíkurborgar, Akraness og Borgarbyggðar, í fyrra. 6,2 milljarða tap fyrstu sex mánuðinaEftir Árna Helgasonarnihelgason@mbl.is STJÓRN Orkuveitu Reykjavíkur mun ekki kaupa grunnnet Símans, að sögn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, stjórnarformanns OR, en ný stjórn fyrirtækisins kom saman til fundar í fyrsta sinn í gær. Guðlaugur Þór segir OR hafa áhuga á að skoða samvinnu við Sím- ann um sameiningu netanna. „En við höfum ekki áhuga á því að kaupa það. Það er hæpið að þjóðnýta það sem nýbúið er að einkavæða.“ Í tíð fyrrverandi meirihluta í borg- arstjórn Reykjavíkur hófust viðræð- ur við Símann um að fyrirtækið myndi kaupa grunnnetið og var verðhugmyndin um 20 milljarðar króna. Grunnnetið fylgdi Símanum þegar hann var seldur í fyrra. Guðlaugur Þór segir að viðræð- urnar haldi áfram um hugsanlega sameiningu fjarskiptaneta fyrir- tækjanna og vonandi að niðurstaða náist fyrr en seinna. „Mér sýnist almennt að viljinn og andinn hjá löggjafanum sé í þá áttina að í stað þess að byggja upp tvöfalt hraðbrautarkerfi, ef þannig má að orði komast, keppi menn frekar um efni sem er flutt á þessum netum,“ segir Guðlaugur Þór og bendir með- al annars á að 365 miðlum og Síman- um hafi verið gert að dreifa efni á hvort annars kerfi. Það hafi augljósa galla að byggja upp tvöfalt kerfi til framtíðar og að sameinað kerfi anni þörfinni. Stofnaður hefur verið sérstakur stofnfjárefnahagur fyrir gagnaveitu- starfsemi Orkuveitunnar og verður starfsemin því bókhaldslega aðskilin frá fyrirtækinu. Guðlaugur Þór segir að þar sé tekið fyrsta skrefið í því að aðskilja þessa starfsemi frá almenn- um rekstri fyrirtækisins en þegar hann er inntur eftir því hvort stofnað verði sérstakt hlutafélag um starf- semina, segir Guðlaugur Þór að of snemmt sé að tjá sig um það núna. Metið á viðskiptagrunni Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, sagði í samtali við Morgun- blaðið ljóst að ekki yrði af kaupum á grunnnetinu en býst við að viðræð- um um sameiningu fjarskiptaneta fyrirtækjanna verði haldið áfram. Hann segir að kaupviðræður hafi verið nokkuð langt komnar á sínum tíma og meðal annars hafi verið búið að finna tæknilega lausn á málinu. Hann segir að nýr meirihluti í borg- inni hafi eðlilega viljað skoða málið upp á nýtt og að fyrirtækið hafi haft fullan skilning á því. Þá yrði að hafa í huga að kaup Orkuveitunnar á net- inu hafi ekki verið það eina sem kom til greina, heldur hefði allt eins verið hugsanlegt að Síminn keypti net Orkuveitunnar eða að farið yrði út í sameiningu á netunum tveimur, eins og enn komi til greina. „Við munum meta þetta mál á viðskiptalegum grunni,“ segir Brynjólfur. Hann bendir á að Síminn hafi árið 2003 lagt fram kæru á hendur Orkuveitunni til Póst- og fjarskiptastofnunar þar sem farið var fram á að fjarskipta- starfsemi fyrirtækisins yrði aðskilin frá annarri starfsemi. Niðurstaða úr þeirri kæru liggur ekki enn fyrir en Brynjólfur segist líta svo á að ný stjórn Orkuveitunnar sé að taka undir sjónarmið Símans með því að taka skref í þá átt að aðskilja fjar- skiptastarfsemi sína frá annarri starfsemi sinni. 60 bústaðir í stað 600 Á stjórnarfundi Orkuveitunnar var meðal annars ákveðið að falla frá áformum um að reisa 600 sumarhús við Úlfljótsvatn. Í stað þess verða 60 bústaðir reistir og svæðið byggt upp sem útivistarsvæði fyrir almenning. „Við munum reyna að styrkja enn frekar starf skátanna á svæðinu og ná niðurstöðu við Starfsmannafélag Reykjavíkur sem sómi er að,“ segir Guðlaugur Þór. Þá samþykkti stjórnin að fela for- stjóra að fara yfir stefnu fyrirtæk- isins með umhverfismál í huga. Guð- laugur Þór segir að fyrirtækið vilji þannig gera enn betur en gert hafi verið og viðhalda forystu Orkuveit- unnar í umhverfismálum. Hann segir að haldið verði áfram samstarfi við Columbia-háskólann í New York um að koma koltvísýringi í jörð auk þess sem þróunarverkefni um djúpborun haldi áfram. Þá verði sú breyting að aukin áhersla verður lögð á rannsóknir og þróun á sviði umhverfis- og orku- mála. „Ekki aðeins innanhúss heldur einnig í samstarfi við háskólasamfé- lagið á þjónustusvæði Orkuveitunn- ar,“ segir Guðlaugur Þór. Ný stjórn Orkuveitu Reykjavíkur kaupir ekki grunnnet Símans eins og hugmyndir voru um LÖGREGLUBÍLL skemmdist í fyrrinótt eftir viðureign við bílþjóf sem reyndi að flýja lögregluna á ofsahraða á stolnum bíl. Svipað at- vik kom síðan upp um miðjan dag í gær þar sem vegfarandi meiddist þegar flóttabíllinn kastaði bíl hans inn í nálægan garð. Í fyrra atvik- inu gafst ökumaðurinn upp í Laug- ardalnum þar sem lögreglan kró- aði hann af með því að keyra utan í bíl hans. Tveir menn voru með honum og voru allir handteknir. Þeir eru um tvítugt og hefur einn komið við sögu lögreglu áður. Málið hófst um þrjúleytið í fyrri- nótt þegar lögreglumenn í Kópa- vogi sáu Subaru á ferð og töldu ástæðu til að stöðva hann. Öku- maðurinn hlýddi ekki og reyndi að stinga af á ofsahraða. Var bílnum m.a. ekið eftir göngustígum í Foss- vogsdal. Fengin var aðstoð lög- reglunnar í Reykjavík og barst eft- irförin víða uns tókst að króa bílinn af í Laugardalnum. Við þær aðgerðir skemmdist lögreglubíll- inn. Segir varðstjóri lögreglunnar í Kópavogi að skapast hafi mikil hætta en ökumaðurinn er grun- aður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Búast má við að ákæra verði gefin út vegna málsins. Trygginga- félag geiðir skemmdir lögreglubíls- ins en ökumaðurinn á stolna bíln- um má búast við endurkröfu frá félaginu. Lögreglumenn í Kópavogi lentu síðan í svipuðu atviki eftir hádegið í gær, þar sem tveir piltar voru á bíl sem lögreglan hugðist stöðva við hefðbundið eftirlit. Ökumaður hlýddi ekki og stakk af. Hófst þá eftirför um Digranesbraut, Hlíða- veg og Brattatungu. Þaðan ók maðurinn inn á göngustíg og aftur út á Digranesveg og Hlíðarhjalla. Þegar komið var á Hlíðaveg lenti hann í árekstri við bíl sem kast- aðist 15–20 metra inn í nálægan garð og hlaut ökumaður þess bíls minniháttar meiðsl. Ekki var för- inni enn lokið því áfram hélt öku- maðurinn og klessti loks á strætó- skýli. Í bílnum voru 17 ára piltur án ökuleyfis og 19 ára piltur sem sviptur var ökuleyfi. Ekki er hins vegar komið á hreint hvor þeirra var við stýrið en málið er í rann- sókn. Tvö alvarleg tilvik þar sem menn reyna að stinga af Flúðu lögreglu á ofsahraða Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is                                            !""#" $ % #  & ' () *+" »Saklaus vegfarandi varð fyrirbarðinu á ökuníðingi á flótta undan lögreglunni. »Lögreglubíll skemmdist þegarverið var að króa af flóttabíl í Laugardalnum. » Í báðum tilvikum voru ökumennað líkindum undir áhrifum fíkniefna og voru sviptir ökurétt- indum. Í HNOTSKURN HÉÐINN Steingrímsson og Hannes Hlífar Stefánsson gerðu jafntefli í annarri skák sinni um titilinn Skák- meistari Íslands sem fram fór í gær. Hannes náði að jafna taflið nokkuð örugglega og Héðinn lagði ekki í að tefla á tvær hættur í jafnri stöðu heldur sættist á skiptan hlut. Þriðja einvígisskák þeirra verður tefld í dag kl. 17. Ef Hannes nær að vinna á morgun með hvítu hreppir hann titilinn, en ef ekki munu úrslit ráðast í fjórðu og síðustu skákinni sem fram fer á föstudag. Hörð keppni fer fram samhliða einvíginu í áskorendaflokki Skákþings Íslands. Jafntefli í meistaraslag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.