Morgunblaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 15 ERLENT HAMAGANGUR Þátttakendur árlegs tómataslags, „Tomatina“, í spænska bænum Bunol köstuðu í gær tómötum í gríð og erg á nærstadda. Á hverju ári safnast tugir þúsunda manna saman til að grýta bíl- förmum af tómötum hver í annan. Heimamenn í Bun- ol segja að fyrsti tómataslagurinn hafi farið fram á miðjum fimmta áratug síðustu aldar, í „orrustu“ á milli ungmenna nærri grænmetissölu á markaðstorgi bæjarins, sem er um 300 km suðaustur af höfuðborg- inni Madrid. Árið eftir hittust ungmennin aftur sama dag og grýttu þá nærstadda sem áttu sér einskis ills von. Reuters Hart tekist á með tómötum NORRÆNU eftirlitssveitirnar á Sri Lanka, SLMM, sökuðu í gær örygg- issveitir stjórnarhersins um að hafa borið ábyrgð á dauða 17 hjálpar- starfsmanna fyrr í mánuðinum. Tals- menn SLMM fullyrtu einnig að her- inn hefði komið í veg fyrir aðgang þeirra að bænum Muttur í norðvest- urhluta landsins, í því skyni að hindra rannsókn. „Morðið á hjálparstarfsmönnunum 17 í Muttur þann 4. ágúst 2006 er álit- ið gróft brot á vopnahléssamkomu- laginu af hálfu öryggissveita Sri Lanka,“ sagði í tilkynningu SLMM. Þar sagði einnig að yfirmaður SLMM, Ulf Henricsson, hefði átt í persónulegum samtölum við „hátt setta og örugga heimildarmenn“ um þá sem báru ábyrgð á morðunum, sem teljast til stríðsglæpa. „Þegar haft er í huga að öryggissveitirnar voru í Muttur þegar atvikið átti sér stað virðist afar ósennilegt að kenna öðrum um morðin.“ Vísa ásökunum á bug Talsmenn stjórnarinnar hafa vísað niðurstöðunni á bug og sagt ásakan- irnar „hneykslanlegar“. Þá sagði Mangala Samaraweera, utanríkisráð- herra Sri Lanka, í samtali við breska ríkisútvarpið, BBC, í gær að yfirlýs- ingin væri óábyrg. „Ég er ekki að kalla hann [Henrics- SLMM saka her Sri Lanka um stríðsglæpi Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is »Norrænu eftirlitssveitirnará Sri Lanka, SLMM, saka öryggissveitir hersins um morð á 17 hjálparstarfsmönnum frönsku samtakanna Action Contre la Faim, ACF. »Stjórnvöld neita ásökunumog segja þær „óábyrgar“. Í HNOTSKURN son] lygara en ég kalla þetta mjög, mjög óábyrga yfirlýsingu. Við teljum að SLMM hafi mjög mikilvægu hlut- verki að gegna á Sri Lanka, sérstak- lega þegar árásir Tígranna fara stig- vaxandi. Á þessum tíma ættu sveitirnar að gegna sjálfstæðara og hlutlausara hlutverki.“ Raddir um að borgarastyrjöld hafi brotist út á ný í landinu hafa gerst há- værari að undanförnu en í gær neitaði Samaraweera því að átökin hefðu þróast í þá átt. Hjálparstarfsmennirnir 17 störf- uðu fyrir frönsku hjálparsamtökin Action Contre la Faim, ACF, eða „Aðgerðir gegn hungri“, en fulltrúar þeirra tilkynntu eftir morðin að starfi þeirra á Sri Lanka yrði hætt. Til frekari tíðinda dró í gær þegar fulltrúar SLMM lýstu því yfir að Frelsishreyfing tamíla (LTTE) hefði borið ábyrgð á dauða 68 manna í árás á farþegarútu skammt frá bænum Kabithigollewa, um 200 km norður af höfuðborginni Colombo, í júní.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.