Morgunblaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 19
Djúpivogur | Þó að strompum á híbýlum manna hafi
farið ört fækkandi í áranna rás eru þeir menn þó
ennþá til sem vilja halda þeim við. Þessi virðulegi
strompur á einbýlishúsinu Dölum á Djúpavogi á
auðsjáanlega að fá að halda reisn sinni áfram og er
húseigandanum Pálma Fannari Smárasyni greinilega
mjög annt um strompinn sinn, þar sem hann klappar
honum að utan með viðgerðarefni. Ólafur Björnsson,
einlægur strompaaðdáandi, fylgist grannt með verk-
inu.
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Steypt í strompinn
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 19
SUÐURNES
Símahús afhent | Síminn afhenti Minjavernd gamalt
símahús á Smjörvatnsheiði sl. helgi. Símahúsið hefur
verið endurbyggt og er eitt þriggja sem byggð voru
þegar símalína var lögð yfir heiðina árið 1906. Með í
för voru m.a. Brynjólfur Bjarnason forstjóri Símans,
og Rannveig Rist stjórnarformaður fyrirtækisins og
var farið á einum sjö jeppum í ferðina.
Björgunarsveitin Vopni mun hafa eftirlit með hús-
inu, sem tekur nú við hlutverki neyðarskýlis í stað ann-
ars skammt frá sem orðið er lélegt. Nýtist húsið að
auki göngufólki og öðrum sem um heiðina fara.
Úrskurður um verð | Gerðardómur hefur úrskurðað að
sveitarfélaginu Fljótsdalshéraði beri að greiða Kaup-
félagi Héraðsbúa yfir 261,4 milljónir króna fyrir 60,5
hektara lands, svonefnt suðursvæði, sem er í eigu kaup-
félagsins. Skipulögð hefur verið ný íbúðarbyggð á svæð-
inu og er landspildan innan þéttbýlismarka Egilsstaða.
Þar sem aðilar komust ekki að samkomulagi um verð
fyrir landið fór málið fyrir gerðardóm.
Egilsstaðir | „Þetta lítur bara vel út,“
segir Sigurjón Bjarnason hjá Aust-
urlambi, en nú er netsala á austfirsku
lambakjöti í fullum gangi á vefnum
austurlamb.is. Fyrirtækið ætlar að
kynna sig á 3L Expo sýningunni sem
haldin verður í Reykjavík 7.-11. sept-
ember n.k. og er tengd heilsu í víðasta
skilningi.
Sigurjón segir gott fyrir bændur að
fá inn pantanir snemma, því af þeim
geti þeir ráðið hversu mörgum lömb-
um þeir eigi að ráðstafa til hinnar sér-
stöku meðferðar, sem Austurlambs-
verkefnið krefst. Þess vegna bjóði
þeir 10% afslátt af verðinu, ef pantað
er í síðasta lagi 12. september n.k.
Annað merkt nýmæli segir Sigur-
jón vera að nú gangi netpantanir
milliliðalaust til viðkomandi bónda,
sem ætti að treysta samband hans við
kaupandann.
„Okkar helsta verkefni er að afla
kaupenda, en Íslendingar eru ekki
mjög vanir því að kaupa matvæli
gegnum netið. Sú er þó þróunin í æ
ríkara mæli og möguleikar Austur-
lambs þar ótvíræðir.“
Sláturfélag Austurlands sem
hleypti Austurlambi af stokkunum,
er framleiðendasamvinnufélag
bænda á Austurlandi og nær fé-
lagssvæðið yfir Múlasýslur að und-
anskildum Vopnafjarðarhreppi og
Skeggjastaðahreppi. Skráðir félagar
eru 123.
Netsala á lambakjöti
mælist vel fyrir
Lóðaslagur | Alls
bárust 1.639 um-
sóknir frá 135 um-
sækjendum um 63
lóðir á suðursvæði
Egilsstaða, en um-
sóknirnar voru
teknar fyrir á
fundi byggingar-
og skipulags-
nefndar Fljótsdals-
héraðs í vikunni.
Lóðirnar eru
fyrir 50 einbýlishús
og 13 parhús.
Margir sóttu um hverja lóð en dregið var um úthlutun.
Lóðirnar eru við götur sem fengið hafa nöfnin Hamrar
og Bláargerði.
Lóðirnar koma til afhendingar eftir 1. nóvember n.k.
Á milli 1 og 80 umsækjendur voru um hverja lóð.
Eftirsótt Fyrirhuguð íbúðar-
byggð á suðursvæði Egilsstaða.
AUSTURLAND
Mýrdalur | „Við fáum góða upp-
skeru og sjáum nú fram úr þessari
vinnu hér á sandinum,“ segir Reynir
Þorsteinsson, stöðvarstjóri hjá
Landgræðslu ríkisins. Starfsmenn
Landgræðslunnar voru í gær að
ljúka við þreskingu beringspunts á
Mýrdalssandi og annars staðar á
sandinum var verktaki að safna
melfræi fyrir stofnunina.
Landgræðslumenn unnu að upp-
skerustörfum á um 50 hektara svæði
á Mýrdalssandi. Þar var berings-
punti sáð í svartan sand og fyrstu ár-
in er grasfræið þreskt. Grasfræið er
síðan þurrkað og hreinsað í fræverk-
unarstöðinni í Gunnarsholti og sáð í
ný svæði næsta vor. Við upp-
skerustörfin eru notaðar hefð-
bundnar kornþreskivélar.
Reynir segir að ágætt veður hafi
verið til uppskerustarfa á Mýrdals-
sandi og því hafi störfin gengið vel.
Þá sé útlit fyrir góða fræuppskeru.
Haldið áfram í Gunnarsholti
Nú verður farið með tækin í
Gunnarsholt þar sem þresking á
fræökrum Landgræðslunnar tekur
við. „Það skiptir miklu máli að næsti
hálfi mánuðurinn nýtist vel því við
erum í kapphlaupi við haustlægð-
irnar,“ segir Reynir.
Verktakinn í melskurðinum á
mikið verk fyrir höndum því melfræi
er safnað með allri ströndinni, alveg
frá Þorlákshöfn og austur í Mýrdal.
Birgðir Grasfræi sem safnað er á Mýrdalssandi verður
sáð á landgræðslusvæði og hringrásin heldur áfram.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Í kapphlaupi við
haustlægðirnar
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
LANDIÐ
Reykjanesbær | „Það er möguleiki - en ég
held þó varla,“ sagði Björn Stefánsson, fyrrv-
arandi innkaupastjóri Hitaveitu Suðurnesja,
þegar hann er spurður að því hvort einhverjir
meðborgarar hans muni móðgast þegar þeir
sjá bókina Suðurnesjaskop sem nú er komin
út. Hann segist vanur að gera hæfilegt grín að
sjálfum sér og þá þoli aðrir betur að verða fyrir
barðinu á honum.
Björn hefur á undanförnum áratugum skrá-
sett gamansögur, skrýtlur og smellin tilsvör og
hnyttnar vísur úr Keflavík og víðar af Suð-
urnesjum. Í byrjun árins var sagt frá þessu í
viðtali við Björn á Suðurnesjasíðu Morg-
unblaðsins og birt dæmi. Fljótlega eftir það
hafði starfsmaður bókaútgáfunnar Hóla sam-
band og óskaði eftir að heyra meira af þessu.
Björn sendi honum útprentun af safninu og út-
gefandinn ákvað að gefa efnið út í bók sem
bæri nafnið Suðurnesjaskop. „Ég hef virkilega
gaman af því að fá þetta útgefið. Efninu var
ekki safnað með það í huga en ég greip tæki-
færið þegar það gafst,“ segir Björn.
Frá upphafi var stefnt að því að bókin kæmi
út á Ljósanótt og hún verður seld á tilboðs-
verði af því tilefni.
Greip tæki-
færið þegar
það gafst
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Spaug Björn Stefánsson segir gamansögur.
Suðurnesjaskop Björns Stefánssonar á bók
Reykjanesbær | Ljósanótt, menningar- og
fjölskylduhátíðin í Reykjanesbæ, hefst í dag
og stendur fram á sunnudag. Ljósanótt er
meðal viðamestu og fjölsóttustu bæj-
arhátíða landsins.
Ljósanótt verður sett formlega klukkan
11 í dag, við Myllubakkaskóla. Grunn-
skólabörn bæjarins koma til athafnarinnar í
skrúðgöngum og sleppt verður 2500 blöðr-
um til marks um fjölbreytileika mannlífsins.
Síðdegis verður formlega tekinn í notkun
nýr salur í Duus-húsum, svonefndur Bíósal-
ur. Mun hann vera einn elsti kvikmyndasal-
ur landsins. Bíósalurinn er fjórði salurinn
sem endurgerður er í Duus-húsum og tekinn
í notkun. Athöfnin fer fram klukkan 17 og
þá verður jafnframt opnuð sýning frá Hand-
verki og hönnun á Íslandi og afhent um-
hverfisverðlaun Reykjanesbæjar 2006.
Fjöldi sýninga verður opnaður í dag og
tónleikar haldnir. Um kvöldið verða ung-
lingatónleikar við 88 húsið þar sem fram
koma sex hljómsveitir.
Ljósanótt heldur áfram á morgun en aðal-
hátíðisdagurinn á laugardag. Hátíðinni lýk-
ur á sunnudag.
2.500 blöðrum sleppt
á Grenivík.
Verður að hafa
bíl til umráða
Upplýsingar gefur
Ólöf Engilberts-
dóttir í síma
569 1376.
Blaðber vant r
á Akurey i
víðs vegar um
bæinn
frá 1. september
Upplýsingar í síma
461 6011 og
840 6011