Morgunblaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Kennsla Engjategi 1 - IS - 105 Reykjavík Nemendur mæti með stundaskrár sínar á morgun, 1. september, sem hér segir: Engjateigur 1 kl. 15:30 Hraunberg 2 kl. 16:30 Ársel kl. 16:30 Nokkur pláss laus í eftirtöldum greinum: Ein- söng, blokkflautuleik og píanó Suzuki (5 ára). Skólastjóri. Nauðungarsala Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Gránugötu 4-6, Siglufirði, miðvikudaginn 6. september 2006 kl. 13:50 á eftirfarandi eignum: Fossvegur 21, 0201, fastanr. 213-0213, þingl. eig. Eva Birgitta Karls- dóttir og Baldur Jörgen Daníelsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður. Lækjargata 8, 01-0101, fastanr. 213-0751, þingl. eig. Gjafakot-Eikin ehf., gerðarbeiðandi Kaupþing banki hf. Sýslumaðurinn á Siglufirði, 30. ágúst 2006. Guðgeir Eyjólfsson. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Baugakór 26, 0202 , þingl. eig. Guðmundur St. Ragnarsson, gerðar- beiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 5. september 2006 kl. 13:00. Dimmuhvarf 29, þingl. eig. Danfríður Kristín Árnadóttir, gerðarbeið- endur Fasteignamiðlunin Múli ehf. og Húsaþjónustan ehf., þriðjudag- inn 5. september 2006 kl. 10:00. Fagrabrekka 14, 0101, þingl. eig. Sigurborg Berglind Bragadóttir og Ingvar Halldórsson, gerðarbeiðandi Kaupþing banki hf., þriðjudag- inn 5. september 2006 kl. 11:30. Fannahvarf 4, 0202, þingl. eig. Haukur Elmar Bjarnason og Sunneva Edith Fjeldsted, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sýslumaðurinn í Kópavogi, þriðjudaginn 5. september 2006 kl. 10:30. Lómasalir 12, 0106, ásamt stæði í bílageymslu, þingl. eig. Davíð Þór Bjarnason, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Kópavogsbær, þriðjudaginn 5. september 2006 kl. 13:30. Þinghólsbraut 51, jarðhæð, þingl. eig. Jóna Ingibjörg Sigurgeirsdótt- ir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Lögreglustjóraskrifstofa, Sjóvá- Almennar tryggingar hf. og Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 5. september 2006 kl. 14:30. Þverbrekka 2, 0704, þingl. eig. Guðni Már Óskarsson, gerðarbeiðend- ur Íbúðalánasjóður, Kaupþing banki hf. og Sparisjóður Rvíkur og nágr., útib., þriðjudaginn 5. september 2006 kl. 15:00. Sýslumaðurinn í Kópavogi, 30. ágúst 2006. Þuríður B. Sigurjónsdóttir, ftr. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Eskihlíð 14A, 203-0302, Reykjavík, þingl. eig. Bryndís Halldórsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Landsbanki Íslands hf., aðal- stöðv., mánudaginn 4. september 2006 kl. 14:00. Frakkastígur 16, 200-6257, Reykjavík, þingl. eig. Endurreisn verktakar ehf, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, mánudaginn 4. september 2006 kl. 13:30. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 30. ágúst 2006. Styrkir Jöfnunarstyrkur til náms Umsóknarfrestur er til 15. október 2006. Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki njóta lána hjá LÍN geta sótt um styrk til jöfnun- ar á námskostnaði. Styrkurinn ræðst af búsetu og er fyrir þá sem verða að stunda nám fjarri heimili sínu.  Dvalarstyrkur (fyrir þá sem verða að dvelja fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni vegna náms).  Styrkur vegna skólaaksturs (fyrir þá sem sækja nám frá lögheimili og fjölskyldu fjarri skóla). Nemendur og aðstandendur þeirra eru hvattir til að kynna sér reglur um styrkinn á vef LÍN (www.lin.is). Umsóknarfrestur vegna skólaársins 2006— 2007 er til 15. október nk. Sækja má um styrk- inn á heimasíðu LÍN. Móttaka umsókna hefst í september nk. Lánasjóður íslenskra námsmanna, námsstyrkjanefnd. Tilkynningar Frá Tónlistarskóla Árbæjar Getum bætt við okkur nokkrum nemendum á eftirtalin hljóðfæri: Fiðla, selló, þverflauta, bassi og í flautuforskóla. Kennsla hefst mánudaginn 11. september í Fylkishöll, Ingunnarskóla og Sæmundarseli. Innritun er dagana 6., 7. og 8. september. Allar nánari upplýsingar á heimasíðu skólans www.tonarb.net. Sími 587 1664 og tölvupóst- ur: tonarb@heimsnet.is. Skólastjóri. Félagslíf Fimmtudagur 31. ágúst 2006 Samkoma kl. 20.00 í félagsmið- stöð Samhjálpar í Stangarhyl 3. Vitnisburður og söngur. Predikun Heiðar Guðnason. Allir hjartanlega velkomnir. www.samhjalp.is Raðauglýsingar 569 1100 Raðauglýsingar augl@mbl.is Fréttir í tölvupósti Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför SIGURJÓNS ARNARS TÓMASSONAR, Brekastíg 22, Vestmannaeyjum. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd aðstandenda, María Ragnhildur Ragnarsdóttir. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför afa okkar, KRISTÓFERS VILHJÁLMSSONAR, Sniðgötu 3, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks handlækninga- og bæklunardeildar FSA fyrir einstaklega góða umönnun. Hildur Friðleifsdóttir, Kristófer Arnar Einarsson. Lokað fimmtudaginn 31. ágúst frá kl. 13.00 vegna jarðarfarar ÞORSTEINS KRISTJÁNSSONAR. Gúmmísteypa Þ. Lárusson ehf., Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs. ✝ Haraldur Ár-sælsson fæddist í Bergstaðastræti 40 í Reykjavík 11. mars 1920. Hann andaðist á Vífilsstöðum hinn 20. júlí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ársæll Brynjólfsson, f. 11. mars 1888, d. 27. júní 1960, og Arndís Helgadóttir, f. 8. janúar 1893, d. 20. júní 1986. Systk- ini Haralds voru Anna, f. 1913, d. 1997, Helgi Anton, f. 1915, d. 1996, Svava, f. 1916, Sigrún, f. 1924, Ás- dís, f. 1926, Baldvin, f. 1928, og Hreiðar, f. 1929. Haraldur kvæntist 1950 Unni Magneu Sigurðardóttur, f. 3. maí Haraldur fór 18 ára fyrst á togar- ann Þórólf og síðar Skallagrím sem útgerðarfélagið Kveldúlfur gerði út. Lýðveldisárið 1944, er Haraldur var 24 ára að aldri, fékk hann pláss á Lagarfossi. Fjórum árum síðar var hann skráður á Tröllafoss og ár- ið 1954 á Fjallfoss og þar var hann allt til 1963. Seinni hluta sjómannsferils síns var Haraldur á kaupskipum Haf- skips og má þar nefna Sandey og Selá. Í lokin var hann á dráttarbátnum Magna í Reykjavíkurhöfn. En hann hætti loks á sjónum árið 1971 eftir um það bil 33 ára farsælan sjó- mannsferil. Eftir það starfaði hann við Reykjavíkurhöfn, m.a. á þunga- vinnuvélum ásamt öðrum störfum. Haraldur vann síðan sem sundlaug- arvörður í Sundlaug Vesturbæjar. Útför Haralds var gerð frá Garðakirkju 27. júlí. 1932 í Vestmanna- eyjum. Þau slitu sam- vistum 1953. Þau eignuðust tvö börn. Þau eru: 1) Magnea Guðrún, f. 15. október árið 1950. Eiginmaður hennar er Gottskálk Björnsson læknir og þau eru búsett í Norð- ur Karólínu-ríki í Bandaríkjunum. 2) Jón Helgi, f. 3. janúar árið 1952. Hann er einhleypur og er bú- settur í Reykjavík. Haraldur sigldi öll stríðsárin. Það er hlutskipti sem við nútímafólk eig- um erfitt með að ímynda okkur. Hætturnar voru gífurlegar og margir íslenskir sjómenn fórust og náðu aldrei heimahöfn. Fallinn er nú frá afar kær vinur minn og mágur, Haraldur Ársælsson, sem er búinn að vera mér sem bróðir í um það bil 50 ár. Aldrei á þessari löngu leið hefur okkur orðið sundurorða enda Halli með eindæmum ljúfur drengur. Þegar við Hreiðar byrjuðum búskap vorum við með tvær hendur tómar eins og gengur og gerist hjá ungu fólki. Þá sá Halli minn aumur á okkur og leyfði okkur að deila með sér fínu íbúðinni sinni á Melhaganum en hann var þá í siglingum á Fossunum og var þá lang- tímum saman í burtu. Þetta lét hann sér lynda í sex ár og við komin með þrjú börn. Börnin okkar elskuðu hann og virtu og pössuðu vel að fara ekki inn í fínu stofuna hans Halla en sátu við þröskuldinn og horfðu á dýrðina því Halli átti mikið af fallegum hlutum sem hann hafði keypt á sínum siglingum. Heimili Halla einkenndist alla tíð af mikilli snyrtimennsku og glæsileika. Á þessum tíma réðumst við hjónin í íbúðarkaup og keyptum íbúð tilbúna undir tréverk og þau voru ófá hand- tökin sem Halli veitti okkur þegar hann var í fríum. Sama var að segja þegar við byggðum úti á Arnarnesi; Halli kom þá hvenær sem hann gat og aðstoðaði okkur. Halli bjó í mörg ár á Melhaga 12 og undi þar mjög vel hag sínum. Síðan keypti hann fallega íbúð á Hagamel 41og þar leið honum einnig vel. Halli var lengi vel fastagestur í sundlaug Vesturbæjar og vann þar líka um tíma. Halli vann mest af sinni ævi á far- skipum hjá Eimskip og byrjaði á Lag- arfossi, þá á Tröllafossi og síðan á Fjallfossi. Halli eignaðist þar marga góða og trygga vini sem alla tíð höfðu mikið samband við hann. Elsku Halli minn, nú ert þú farinn í þína síðustu siglingu og ég veit að fyrir handan bíða þín Unnur konan þín sem þú elskaðir svo heitt og vinir þínir. Vertu sæll, minn kæri vinur. Við Hreiðar, Ásta Sólveig, Ársæll, Jóhann Örn, Hafsteinn Haukur og Arndís kveðjum þig og þökkum þér fyrir allt sem þú hefur gefið okkur. Góða ferð, Halli minn. Guðbjörg Jóhannsdóttir (Lilla). Haraldur Ársælsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.