Morgunblaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 26
ferðalög 26 FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ Orlando Vacation Homes If you are planning a trip to Orlando, Florida and you are interested in learning more about vacation home ownership, please contact us or visit our website. www.LIVINFL.com Contact: Meredith Mahn 001-321-438-5566 Domus Pro Realty - Vacation Home Sales Division góð útsýnissæti. Sími: 0044 207 877 7703. Kráarölt Í Lundúnum eru hverfiskrárnar á öðru hverju horni, svona næstum því. Það er næstum því ófyrirgef- anlegt að fara ekki á krána á laug- ardagseftirmiðdegi sé ekki skundað á sjálfan völlinn. Stemmningin er stórskemmtileg og enski framburð- urinn ósvikinn í hrópum og köllum, bölvi og ragni stuðningsmanna lið- anna. Bjórunnendur verða líka að bragða á dökka Guinness-bjórnum, sem reyndar er upprunninn hjá ná- grönnunum Írum en er rennur jafn- ljúflega niður á enskum krám. Á kvöldin er stemmningin bæði lífleg og samt heimilisleg, jafnt á virkum dögum sem helgum. Þá fá sér margir einn gráan, spjalla og spek- úlura, jafnt ungir sem aldnir en minna dansað, það hefur jafnvel sést til eldri fastagesta taka í spil! GOÐSAGNIR geta verið skemmtilegar en eru stundum ekk- ert annað en lífseigt bull. Hver hefur ekki heyrt um Bretann sem komst ekki lengra en í egg, beik- on og bakaðar baunir í eldhúsþroskanum? Finnst ykkur samt ekki líklegt að í millj- ónaborg eins og Lundúnum þar sem fjölmenningin blómstrar séu ekki nokkrir tugir þús- unda sem hafi komist á gourmet-stigið? Það er nú annaðhvort og hér er aðeins rými til þess að nefna þrjá mjög ólíka en góða og eina frábæra heimasíðu með öðrum hundruðum! Asia de Cuba er eftirminnilegur, nútímalegur staður inni í St. Mart- ins-Lane hótelinu en hönnunin er sérstök. Þar er hægt að gæða sér á blöndu af suður-amerískri og kín- verskri matseld. Asia de Cuba er mjög vinsæll veitingastaður og nauðsynlegt að panta borð með góðum fyrirvara. Sími: 0044 207 300 5588 Maggioeres á King’s Street hjá Leicester Square er talinn vera einn af rómantískustu veitingastöð- unum í London. Hann er klassískur og rómantískur staður þar sem hægt er að sitja við snarkandi arin- eld. Það verður enginn svikinn af eldamennskunni sem er undir áhrif- um frá Miðjarðarhafinu og bragð- góðum vínum. Panta verður borð á Maggiores. Sími: 0044 207 379 9696. Fyrir áræðna og þá sem vilja komast í hæstu hæðir er Rhodes Twenty Four skemmtilegur kostur en hann er í hæstu byggingunni í viðskiptahverfinu City. Veitinga- staðurinn er rómaður fyrir nútíma- legan, evrópskan mat og útsýnið. Best er að panta borð og biðja um Matur og drykkur Frábær heimasíða yfir alls kyns veitingastaði í Lundúnum, jafnt þá sem hlotið hafa Michelin stjörnu og stjörnur, sem og aðra. www.londoneats.com URMULL er af hótelum í London og ómögulegt að mæla með einhverjum sérstökum. Best er að fara inn á netið á leitarsíðu eins og www.google.com og slá einfaldlega inn „Hotel in Lond- on“. Líklegt er að þá komi upp síður á borð við: www.book- ing.com www.0800lond- on-hotels.com, www.london- discount- hotel.com og www.hotels-lond- on.co.uk/ Þær eru allar aðgengilegar og bjóða upp á gistimöguleika af öllu tagi, frá tveggja stjörnu til fimm. Það er best að velja staðsetninguna með hliðsjón af því hvert í borginni ferð- inni er helst heitið því það sparar tíma og ferðakostnað með neðanjarð- arlestinni, sem er annars lítið mál að ferðast með. Heimasíðurnar eru neytendavænar því aldrei áður hefur verið eins auðvelt að bera saman gistimöguleika og verð þótt myndir geti vissulega verið blekkjandi. Það gildir sama reglan hér og með flug- félögin – leit á netinu margborgar sig. Gisting london Leiðindaseggir ættu að forðast Lundúnir því hætt er við að fýlan myndi leka af þeim við nánari kynni af borginni. Borgin er gnægtabrunnur hinn mesti af sögu, listum og fjölþjóðlegri menningu og já, jafnvel þótt orðspor matargerðar í breskum eldhúsum sé almennt ekki magnað, af dýrindis mat og drykk. Unnur H. Jóhannsdóttir segir að borgin lumi þar að auki á nokkr- um heimsþekktum verslunarstrætum, sem konur telja yfirleitt ekki eftir sér að ganga þver og endilöng. LEIGUBÍLAR eru á sanngjörnu verði í London og ef verið er að fara stuttar vegalengdir í miðborg- inni getur borgað sig að taka leigu- bíla. Ef margir eru saman getur það sama átt við um leigubíla frá flugvellinum en á heimasíðunni www. checkcars.com má finna símnúmer og senda fyrirspurnir í netpósti um verð á leigubíl frá flug- stöðvunum til ákvörðunarstaða í London. Oft hafa hótelin líka bíla til umráða en yfirleitt kostar ein- hver pund að láta sækja sig. Ef einn slíkur er pantaður þá bíður bílstjóri með nöfn farþeganna á spjaldi um leið og þeir koma úr tollskoðun. Þægilegra verður það ekki. Leigubílar LAUGAVEGUR Lundúnaborgar er Oxford Street og Hverfisgatan er Regents Street sem þó er að mörgu leyti frábrugðin okkar ástkæru. Í fyrsta lagi er hún falleg og í öðru lagi eru þar fjölmargar verslanir sem selja ágæta vöru á lágu eða meðalhófsverði eins og Zara, MNG og Oasis. Þar er líka Mass- imo Dutti, merki fyrir konur og karla sem hafa einfaldan og sígild- an smekk en vilja jafnframt fylgja tískunni. Það nýtur mikilla vin- sælda í Evrópu enda gæðavara á góðu verði sem endilega þyrfti að gera strandhögg á Íslandi. Ekki má síðan gleyma aðalleik- fangaversluninni Hamleys sem er ævintýraveröld út af fyrir sig. Oxford Street er mjög nyt- samleg gata enda sennilega sú mest sótta í Evrópu en verður seint talin til þeirra fallegustu. Þar eru hins vegar margar bresk- ar stórverslanir eins og C&A, Marks&Spencer, Selfridges, John Lewis og House of Fraser. Önnur vörumerki sem eru Íslendingum vel kunn eins og Top Shop, Next, H&M og Dorothy Perkins eru líka við strætið auk fjölda skóbúða. Gefið gaum að verslunum New Look og River Island sem eru skemmtilegar fataverslanir sem enn hafa ekki numið land hér á landi en fylgjast vel með stefnum og straumum tískunnar með verð- ið í lægri kantinum. Markaðir Á Portobello Road í Notting Hill eru skemmtilegar litlar búð- arskonsur þar sem ungir hönnuðir selja hönnun sína, nokkrar sem eru með notuð föt og eins eru þar margar antíkverslanir. Í Camden er mjög líflegur og litríkur list- og Morgunblaðið/Ómar Covent Garden Skemmtileg blanda af markaði og litlum hand- verks- og merkjaverslunum. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hamleys Margir Íslendingar hafa gleymt sér í leikfangaversluninni sem er á fimm hæðum. Morgunblaðið/Ómar Fjölbreytileiki Það er örtröð alla daga á verslunargötunni Oxford Street. fatamarkaður, sérstaklega um helgar. Töluvert er lagt upp úr handverki og skapandi götutísku. Á Brick Lane er að finna nýj- asta, og sumir segja svalasta kola- portið í Lundúnum. Í skemmunum þar er víst brjáluð blanda af not- uðu drasli og dýrgripum. Finna má föt og fylgihlutir allt frá sjötta, sjöunda og áttunda áratugnum og merkjavörur sem eru þá á góðu verði. Götumarkaðurinn á Brick Lane er aðeins opin á sunnudög- um. Verslun og markaðir )  * +& ,-$  *./ $ ,-$   0 #* *   * #*1  **%! 2 0 # 3 # " "  " * 4**5$6* 4 #$ " " "        ! "#  $%&'( & (  )   *%&'(%+"  ,), #" ,-.%!#% $   &' 774789* 4 :;4979* 4 <=497>* 4 0 # * ()*  +,) 5  $* **% #  '& - $ - . /* - '  $- 0' 1.0 - '  $-  0' 2 3 - 4 $- 5 0' $#% **6 % #  6$ - .  4 $-  4 0' 4 $-  4 0'  4 $- 4 0' /0%1 ,# ) (,) 2  3  ##4 #5&  6"  , )) %7",)) 8 # ",,%926  ,    )) ) : , #8 8 ,%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.