Morgunblaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 23
tíska
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 23
ELDFAST
LEIRTAU
Klapparstig 44 • sími 562 3614
Má fara í örbylgjuofn
og uppþvottavél
Kr. 450 stk. Tilboð kr. 315 stk.
French
Design
Kr. 2200
Tilboð kr. 1540
Kr. 1300
Tilboð kr. 910
Kr. 2700
Tilboð kr. 1890
Hvítt, gult, grænt og appelsínugult
30% afsláttur
í dag, föstudag og langan laugardag
Vel launuð líkamsrækt
− fyrir fólk á öllum aldri
Vegna aukinna umsvifa í blaðadreifingu
óskar Morgunblaðið eftir að ráða fólk á
öllum aldri í blaðburð víða á höfuðborgar-
svæðinu sem fyrst.
Vinsamlegast hafið samband í síma 569 1440 eða
sendið tölvupóst á netfangið bladberi@mbl.is.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Hugmyndirnar streymafram hjá Selmu Ragn-arsdóttur, kjólameistaraog klæðskera, þegar
kemur að breytingum á fatnaði. Hún
hefur mótað og þróað skemmtilegt
kerfi sem hún nefnir 12 spora með-
ferð á fatnaði. Það felur í sér 12 mis-
munandi aðferðir til að breyta og
bæta fatnað þannig að hann verði
nýtanlegur aftur. ,,Sumt er hefð-
bundnara en annað eins og að stytta
buxnaskálmar og jakkaermar. Aðrar
þarf að síkka og víkka og enn aðrar
að þrengja. Síðan eru það rennilás-
arnir sem stundum þarf að skipta
um, tölur og smellur og eins að gera
við göt, rifur og saumsprettur á fatn-
aðinum. Þetta er það sem ég kalla al-
mennar breytingar á fatnaði og
spretta yfirleitt af þörf neytandans á
að aðlaga flíkurnar vaxtarlagi sínu
eða þá eðlilegt viðhald í tímans rás.“
Tilfinningalegt gildi
Selma segir marga viðskiptavini
sína koma með flíkur sem hafi til-
finningalegt gildi fyrir þá og vilja
breyta þeim þannig að þeir falli að
persónulegum stíl viðkomandi og
tískustraumum. ,,Margar flíkurnar
hafa verið í eigu foreldra eða ömmu
og afa. Ég hef breytt brúðarkjólum,
samkvæmiskjólum, jakkafötum,
peysum, skyrtum svo einhver dæmis
séu tekin og jafnvel sett útsaumaða
bekki og púða í flíkur. Þetta eru oft
afskaplega skemmtileg og gefandi
verkefni þar sem sköpunargleðin
fær að njóta sín,“ segir hún bros-
andi. ,,Þá er notaður fatnaður mikið í
tísku, enda hefur verslunum sem
selja slíkan fatnað fjölgað nokkuð
hér á landi. Sá þarfnast oft viðgerða
en eins vilja hinir nýju eigendur oft
breyta flíkum eins og þeir sem erfa
gamlar. Að meðferð lokinni er oft
um einstaka flík að ræða og raunar
hönnun líka.“
Óvissumeðferð
Á sníðaborði Selmu liggja svört,
teinótt karlmannsjakkaföt. ,,Þessi
eru að fara í óvissumeðferð,“ segir
hún og hlær. ,,Sú meðferð tekur öllu
lengri tíma en þær hefðbundnu eða
þrjár vikur enda allsendis óvíst hver
meðferðin verður. Sum saumspor
eru óvenjulegri og frjálslegri en
önnur í 12 spora kerfinu, eins og að
skjóta á fötin með pílum, örvum og
úr haglabyssu eða keyra yfir þau á
nagladekkjum, og þau kunna að
verða notuð í óvissumeðferðinni.
Eigendur flíka í þeirri meðferð
þurfa vissulega að vera opnir,
treysta mér og þeim þarf að standa
pínulítið á sama um flíkina sína – en
útkoman verður oftast glimrandi,“
útskýrir hinn skapandi klæðskeri og
upplýsir að jakkafataeigandinn hug-
rakki sé hárgreiðslumaður á leið til
stórborgarinnar New York þar sem
hann ætlar að slá í gegn. Það verður
áreiðanlega auðveldara í saum-
sporum Selmu Ragnarsdóttur, enda
eru þau ekkert venjuleg.
12 SPORA MEÐFERÐ
1. Stytta/síkka – þrengja/víkka
2. Umskipti / skipta umRennilás,
tölur, smellur …
3. Fjarlægja / taka af vasa, tölur,
part af flíkinni
4. Bæta
Göt, rifur, saumsprettur…
5. Skreyta
6. Prenta / þrykkja
7. Lita
Heillita, úða, stensla, skvetta á…
8. Aflita / klóra
Skvetta, úða, leggja í bleyti…,
9. Sjúska
Rispa, nudda, vinda…
10. Skera
Með hníf, skærum, sprettara
11. Skjóta
Með pílum, örvum,
haglabyssu …
12. Yfirkeyrsla
Keyra yfir á nagladekkjum og
spóla.
Hún gefur
flíkum annað líf
Safngripir Selma hefur yndi af því að safna gömlum munum eins og þess-
ari sníðabók sem er með þeim fyrstu sem komu út á íslensku. Morgunblaðið/Sverrir
Skapandi Selma Ragnarsdóttir tekur sumar flíkurnar í óvissuferð.
Glæsilegt Selma notaði gamlan út-
saumaðan prjónabekk í leðurtopp.
Eftir Unni H. Jóhannsdóttur
uhj@mbl.is