Morgunblaðið - 05.09.2006, Blaðsíða 18
18|Morgunblaðið
Dans, lifandi tónlist og frábærir kennarar. Hvað er betra?
Frábær hreyfing fyrir síunga og yngri.
Án gríns – Afró er fyrir alla – líka þig!
8 vikna námskeið hefjast miðvikudaginn 6. september.
Innritun í síma 561 5100.
Trommunámskeiðin hefjast mánudaginn 11. september.
Kennslustaðir: Baðhúsið (afródans), Betrunarhúsið (trommur)
Nánari upplýsingar: www.isf.is –
Netfang: missgrendal@hotmail.com
Sími: 849 6554 (Sigrún)
Kennararnir Sigrún og Cheick hafa stundað langt og strangt nám í afródönsum og trommuslætti í Gíneu.
Þau hafa kennt saman um árabil og staðið fyrir námskeiðum og ýmsum uppákomum víða um lönd.
Námskeið hefjast 6. september
Mjúkt jóga með Rut Rebekku
Liðkandi og styrkjandi leikfimi fyrir konur og karla
Þyngdarstjórnun - heilsuefling
Fagfólk með sérmenntun og langa reynslu sér um alla þjálfun.
Þægilegt og rólegt umhverfi.
Upplýsingar og skráning á skrifstofu GÍ,
Ármúla 5, sími 530 3600, www.gigt.is
GIGTARFÉLAG
ÍSLANDS
Jóga
Leikfimi
Þyngdarstjórnun
L
ífræn ræktun hefur
alltaf verið stunduð.
Áður fyrr þekktu
bændur ekki
annað því
tilbúin hjálparefni voru
ekki til. Þeir kölluðu
ræktunina hins vegar
ekki lífræna, því hún
var eina ræktunar-
aðferðin sem alltaf
hafði verið til og var
því náttúruleg. Tilbúin
hjálparefni komu síðar
til sögunnar og þegar
þau höfðu verið í notkun
í einhverja áratugi fóru
menn að gera sér grein fyrir
óæskilegum áhrifum þeirra og minnkandi
frjósemi jarðvegsins í kjölfarið. Þá var
markvisst farið að byggja upp betri aðferð-
ir.“
Hjördís segir lífræna ræktun byggja á
fullkomnu jafnvægi í náttúrunni. Bóndinn
beri virðingu fyrir jörðinni og noti ekki
tilbúinn áburð, ekkert skordýraeitur, engin
eitruð jurtalyf eða verksmiðjuframleidd
hormónalyf. „Í staðinn notar hann lífrænan
safnhaugaáburð og náttúruleg jurtalyf sem
gefa jarðveginum meiri næringu. Jurtin
brenninetla er mikið notuð í þessum til-
gangi, en hún er sérstaklega næringarrík.
Einnig eru notuð sáðskipti, en það þýðir að
sama tegundin er ekki ræktuð ár eftir ár í
sama jarðvegi. Lífræn ræktun þjónar bæði
heilsu mannsins og heilbrigði jarðarinnar.“
Hverjir eru kostir
lífrænnar ræktunar?
„Til þess að geta svarað þessari spurn-
ingu þurfum við að skoða hina hefðbundnu
ræktun eins og hún er stunduð í dag. Í
hefðbundinni ræktun er notaður tilbúinn
áburður, jurtalyf gegn ýmsum sjúkdómum,
skordýraeitur og hormónalyf til að eyða ill-
gresi,“ útskýrir Hjördís. Hún kveður þetta
allt miða að því að ræktunin verði auðveld
og að hámarksuppskera og hagnaður náist.
„Til þess að það sé unnt eru einnig notuð
ýmis kemísk efni til þess að uppskeran
skemmist ekki, t.d. sveppaeyðandi lyf. Auk
þess má nefna brennisteinsmeðferð á
þurrkuðum ávöxtum, geisla- og gasmeðferð
á grænmeti og ávöxtum. Einnig eru notuð
rotvarnarefni, þráavarnarefni, tilbúin
bragðefni og litarefni í tilbúin matvæli.
Jafnvel þó að alltaf sé verið að reyna að
sannfæra okkur um að eftirlit með mat-
vælaframleiðslu sé gott og að tryggt sé að
óæskilegu efnin, sem notuð eru, séu ekki yf-
ir leyfilegum mörkum, þá vitum við ekki
hvar mörkin liggja, að sögn Hjördísar.
„Hver getur sagt til um hvort við þolum
hættuleg eiturefni til langs tíma þótt við
neytum þeirra í smáum skömmtum? Við
hljótum frekar að vilja sleppa þeim ef það
er hægt. Og það er hægt,“ segir hún með
áherslu. „Í lífrænni ræktun eru þau ekki
notuð.“
Af hverju er tilbúinn áburður
verri en annar áburður?
„Í hefðbundinni ræktun er mikið notað af
tilbúnum áburði. Þar sem einungis er not-
aður tilbúinn áburður verður jarðvegurinn
mjög rýr og háður hinum tilbúna áburði,
sem inniheldur aðeins brot af því sem frjó-
samur jarðvegur þarf að hafa til að næring-
arríkar og heilbrigðar afurðir geti vaxið í
honum. Við getum t.d. spurt okkur að því
hvers vegna járni og vítamínum er bætt í
flestallar tilbúnar kornvörur, eins og morg-
unkorn og barnamat. Það er vegna þess að
náttúrulegt járn og B-vítamín, sem kornið á
að innihalda, er horfið úr því vegna notk-
unar á tilbúnum áburði. Lífrænt ræktað
korn inniheldur bæði járn og B-vítamín í
náttúrulegu formi sem líkaminn á auðvelt
með að nýta. Það inniheldur einnig öll hin
mikilvægu snefilefni sem eru í heilbrigðum
og frjósömum jarðvegi, en það er einmitt
eitt af því mikilvægasta í lífrænni ræktun,
að halda jarðveginum heilbrigðum og frjó-
sömum með náttúrulegum aðferðum.“
Er munur á bragði
lífrænna afurða og hefðbundinna?
„Allir þeir sem bera bragðgæði lífrænna
afurða saman við bragðgæði annarra vara
finna muninn. Lífrænar vörur eru bragð-
meiri og bragðgæðin hreinni. Neytendur
hafa í vaxandi mæli áttað sig á þessu og því
eru margir sem velja lífrænar vörur ein-
göngu vegna bragðgæðanna, án þess
jafnvel að þekkja til hollustuþáttanna.
Hver hefur ekki fundið muninn á t.d.
lífrænt ræktuðum eplum, gulrótum,
döðlum, ab-mjólk, kaffi og ávaxta-
djús? Svona mætti lengi telja.
Þannig hafa lífrænar vörur líka
náð að komast inn á markað
fyrir sælkeravörur og færustu
matargerðarmenn kjósa þær
til að slá í gegn hjá sínum við-
skiptavinum.“
Hvernig eru gæði tryggð?
„Það er mjög mikilvægt að
lífrænar vörur séu vottaðar
sem lífrænt ræktaðar af við-
urkenndum vottunaraðilum. Það
hefur borið á því hérlendis und-
anfarið að vörur sem sagðar eru
lífrænar séu boðnar en þær hafi
ekki þessa vottun. Slíkt myndi aldrei geta
gerst í öðrum löndum, þar væru þær um-
svifalaust teknar úr umferð. Vottunin verð-
ur að vera til staðar til að tryggja hag neyt-
enda og staðfesta að varan uppfylli allar
þær kröfur sem gerðar eru í lífrænni rækt-
un.Við verðum að standa vörð um gæðin og
krefjast þess að þau séu ávallt eins og þau
gerast best.“
Hverjar eru framtíðar-
horfur lífrænnar ræktunar?
„Lífræn ræktun fer fram svo að segja í
öllum heimshornum og fer þeim bændum sí-
fellt fjölgandi sem hana stunda og sömuleið-
is neytendum sem hana kjósa. Þessi þróun
mun án efa halda áfram og vonandi leiða til
þess að það hægi á eiturefnanotkun í al-
mennum landbúnaði. Í Evrópu eru Sviss,
Austurríki, Þýskaland, Frakkland, Holland
og Bretland stærstu markaðssvæðin fyrir
lífrænar vörur en það er einnig mikill vöxt-
ur á Norðurlöndunum og í Austur-Evrópu.
Í Bandaríkjunum er sömuleiðis gríðarleg
eftirspurn eftir lífrænum vörum sem kallar
á verulega aukna lífræna ræktun þar í
landi. Ég tel því að framtíðarhorfur líf-
rænnar ræktunar séu mjög bjartar.“
Er mikill áhugi á
lífrænni ræktun á Íslandi?
,,Já og hann fer sífellt vaxandi. Nútíma-
fólk vill viðhalda góðri heilsu og vera með-
vitað um það sem það lætur ofan í sig. Við
hjá Maður lifandi stöndum fyrir öflugu
námskeiðahaldi til þess að mæta þessari
eftirspurn og í vetur ætlum við einnig að
vera með matreiðslunámskeið. Ég má til
með að nefna að einn fyrirlesara hjá okkur í
vetur verður dr. Jane Plant en hún hefur
skrifað fjölmargar bækur um áhrif mat-
aræðis á krabbameini. Plant hefur sér-
staklega kannað hvaða áhrif mjólkurvörur
hafa á heilsuna,“ segir Hjördís sem að lok-
um ítrekar fróðleiksfýsni Íslendinga og seg-
ir þó nokkuð fljóta að tileinka sér lífræna
lífsstílinn.
Lífrænt ræktuð matvæli verða vinsælli með hverju árinu enda
telja margir fræðimenn og neytendur þau hafa ýmislegt um-
fram matvæli sem ræktuð eru með tilbúnum hjálparefnum.
Hjördís Ásberg, framkvæmdastjóri verslunarinnar Maður lif-
andi, er fróðleiksbrunnur um lífræna ræktun.
»Neytendur geta fullvissað
sig um gæði lífrænt rækt-
aðra matvæla með því að
kanna hvort þær séu við-
urkenndar af þar til bærum
vottunaraðilum.
Morgunblaðið/Ásdís
Brautryðjandi Hjördís Ásberg hefur
mikinn áhuga á lífrænni ræktun.
Lífræn ræktun nýtur vinsælda