Morgunblaðið - 07.09.2006, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2006 41
RÚSSNESKI kvikmynda-
leikstjórinn Aleksandr So-
ukurov verður heið-
ursgestur Alþjóðlegrar
kvikmyndahátíðar í Reykja-
vík (RIFF) sem fram fer
dagana 28. september til 8.
október næstkomandi.
Verða honum á hátíðinni
veitt sérstök heiðurs-
verðlaun fyrir framlag sitt til
kvikmyndalistarinnar.
Soukurov er einn fremsti
kvikmyndaleikstjóri sam-
tímans og hefur sópað að sér
verðlaunum á helstu kvik-
myndahátíðum heims, meðal
annars í Cannes, Berlín,
Toronto auk evrópsku kvikmynda-
verðlaunanna.
Soukurov nam kvikmyndalist við
VGIK kvikmyndaskólann í Moskvu
frá árinu 1945. Fyrsta mynd hans,
The Lonely Human Voice (Odinokiy
golos cheloveka) frá árinu
1987 var ekki sýnd op-
inberlega í heimalandi hans
fyrr en árið 1990 þar sem hún
þótti of andsovésk.
Eftir Soukurovs liggja yfir
30 bíómyndir og verða tvær
þeirra sýndar meðan á hátíð-
inni stendur, Russian Ark
(Russikiy kovcheg) frá árinu
2002 og The Sun (Solntse) frá
2005.
Auk þess stendur Souk-
urov að mastersklassa í há-
tíðarsal Háskóla Íslands
laugardaginn 7. nóvember
næstkomandi. Hann hefur
verið í fararbroddi á sviði
stafrænnar kvikmyndagerðar og
mun meðal annars fjalla um kvik-
myndir frá stafrænu sjónarhorni.
Kvikmyndir | Hinn rússneski Aleksandr Soukurov heiðurs-
gestur á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík
Mikilhæfur Sokurov hefur leikstýrt yfir þrjátíu kvik-
myndum og verða tvær þeirra sýndar á hátíðinni.
Einn virtasti leikstjóri samtímans
Heimili, hönnun og lífsstíll
Glæsilegt sérblað um heimili, hönnun og lífsstíl
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 15. september.
Meðal efnis eru ráðleggingar innanhússarkitekts
um litaval á veggjum, ýmsar nýjungar fyrir
baðherbergi, nýjungar í rúmum, heimsóknir á
hugguleg heimili, hönnun á útipöllum, umfjöllun
um lausar eldhúsinnréttingar, LCD sjónvörp og
hljómtæki og margt fleira.
Auglýsendur! Pantið fyrir kl. 17.00
þriðjudaginn 12. september.
Allar nánari upplýsingar
veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 eða kata@mbl.is
www.valholl.is
www.nybyggingar.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
Sími 588 4477
Háalind
Parhús í sérflokki
Til sölu stórglæsilegt 210 fm parhús
á tveimur hæðum (suðurendi) á frá-
bærum stað í barnvænu hverfi. Úr
húsinu er glæsilegt útsýni í suður,
vestur á jökul og norður á Esjuna.
Glæsilegar sérsmíðaðar innréttingar. Massíft parket. Glæsilegt eldhús og baðherbergi,
fjögur góð svefnherbergi. Fallegur garður, timburverandir. Sérstaklega vel skipulagt
hús. Innangengt í bílskúr. Verð 49,9 m.kr.
FRAMSETNING breska leikstjór-
ans Pauls Greengrass á aðdraganda
þess að flug United flugfélagsins
númer 93, brotlent á akri í Pensilv-
aníu þann 11. september 2001, eftir
að hafa verið rænt og stefnt til Wash-
ington, er einkar vel gerð og sláandi
kvikmynd um sannsögulega atburði.
Leikstjórinn gerir hvort tveggja í
senn, býr til magnþrungna drama-
tíska kvikmynd um leið og hann tekst
á við þann örlagaríka dag sem mynd-
in fjallar um, þ.e. 11. september á
nærgætinn hátt. Í kvikmyndinni
United 93 verður umfjöllun um líkleg
örlög þeirra tilteknu einstaklinga
sem voru um borð í United 93 vélinni
að miðpunkti víðtækari hugleiðingar
um þá vantrúuðu skelfingu sem greip
um sig nær og fjær þegar atburðarás
hryðjuverkanna 11. september varð
smám saman ljós.
Í myndinni má sjá áþekk efnistök
og einkenna aðra sannsögulega kvik-
mynd sem Greengrass er þekktur
fyrir, Bloody Sunday en sú kvikmynd
fjallar um morð breskra hersveita á
friðsamlegum mótmælendum á
Norður-Írlandi árið 1972. Greeng-
rass hefur þróað með sér áhrifamik-
inn raunsæisstíl, þar sem hreyf-
anlegri tökuvélinni er beitt á kvikan
hátt í anda fréttamynda. Þá er öll
umgjörð eins jarðbundinn og frekast
getur verið, óþekktir eða lítt þekktir
leikarar fara með öll hlutverkin í
myndinni og engin fínpússuð stjarna
er í miðju atburðarásarinnar til þess
að taka stjórnina á atburðarásinni,
heldur leikarar sem túlka venjulegt
fólk sem þarf að bregðast við mar-
traðarkenndum aðstæðum. Greeng-
rass byggir upp ákaflega áhrifaríka
stígandi, sem hefst að morgni dags er
hryðjuverkamennirnir fjórir sem
rændu United 93 flugvélinni vakna á
hótelherbergi og búa sig undir
grimmdarverkið, á meðan flug-
farþegar og áhöfn fara að tygja sig
um borð. Við fylgjumst einnig með
starfsmönnum flugumferðarstjórn-
stöðva og herstöðva mæta til vinnu,
með öllu grandalaus um þann ör-
lagaríka dag sem þau eiga í vændum.
Kvikmyndin fjallar um örvænt-
ingu og hugdirfsku fórnarlamba
hryðjuverkanna á áhrifamikinn hátt
um leið og hún forðast að falla í
gryfju þeirrar hugmyndafræðilegu
einföldunar og þjóðernisrembu sem
einkennt hefur pólitíska orðræðu um
öryggismál í Bandaríkjunum eftir 11.
september. Hryðjuverkamennirnir
birtast okkur sem einstaklingar en
ekki vélar eða ófreskjur, en að sama
skapi menn sem litaðir eru af innræt-
ingu og blindri hlýðni við málstað
sem réttlættur er í nafni trúarinnar.
Þannig beinist gagnrýni mynd-
arinnar fremur að sljóum og kaót-
ískum viðbrögðum yfirvalda við at-
burðunum en tilteknum gerendum í
árásunum, en þar er m.a. dregið
fram á skýran hátt hversu granda-
lausir Bandaríkjamenn voru á um að
svona lagað gæti gerst. Því má e.t.v.
segja að United 93 fjalli um viðbrögð
fólks sem fylgdist allt að því vantrúað
með því er áhyggjulaus vestræn
heimsmynd þeirra fór skyndilega á
hvolf.
Áhrifamikið „Kvikmyndin fjallar um örvæntingu og hugdirfsku fórn-
arlamba hryðjuverkanna á áhrifamikinn hátt um leið og hún forðast að
falla í gryfju þeirrar hugmyndafræðilegu einföldunar og þjóðernisrembu
sem einkennt hefur pólitíska orðræðu um öryggismál í Bandaríkjunum.“
Jarðbundin frásögn
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó og Sambíóin
Leikstjórn: Paul Greengrass. Aðal-
hlutverk: David Alan Basche, Richard
Bekins, Susan Blommaert, Christian
Clemenson, Khalid Abdalla, Lewis Al-
samari, Ben Sliney. Bandaríkin, 111 mín.
United 93 Heiða Jóhannsdóttir