Morgunblaðið - 12.09.2006, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
þriðjudagur 12. 9. 2006
íþróttir mbl.isíþróttir
Titilvörnin hefst hjá Barcelona á Nou Camp í kvöld » 4
VALUR Á ENN MÖGULEIKA
HÚSVÍKINGURINN PÁLMI RAFN PÁLMASON
VAR Á SKOTSKÓNUM Á LAUGARDALSVELLINUM
„Við hættum við að fara á mótið í Pól-
landi sem stóð til að fara á en það
gerðum við í fyrra. Í stað þess leikum
við gegn Ungverjum í tvígang í lok
október,“ sagði Einar Þorvarðarson,
framkvæmdastjóri HSÍ, við Morgun-
blaðið í gær. „Ástæðan fyrir að við
hættum við að fara til Póllands var
einfaldlega sú að það gekk illa að fá
svar frá Pólverjum hvort að mótið
færi fram eða ekki. Við gátum ekki
beðið lengur með að skipuleggja okk-
ur fyrir HM og gáfum því Pólverjana
upp á bátinn. Þess í stað náðum við
samningum við Ungverja. Leikum
tvo leiki við þá ytra síðustu helgina í
október og fáum þá síðan í heimsókn
til okkar á næsta ári,“ sagði Einar. Ís-
lenska landsliðið komi saman í æf-
ingabúðir í Ungverjalandi þriðjudag-
inn 23. október og verði þar fram á
sunnudaginn 28.
Á síðasta ári var gert hlé á keppni í
þýsku 1. deildinni, þar sem flestir ís-
lensku landsliðsmannanna leika,
vegna móts Handknattleikssam-
bands Evrópu (EHF) þar sem sigur-
lið Evrópumóta félagsliða frá síðasta
vori, svokallað Super cup-mót fé-
lagsliða. Þrátt fyrir að Þjóðverjar eigi
tvö af fjórum keppnisliðum á mótinu
nú, Gummersbach og Lemgo, verður
ekki gert hlé á þýsku deildinni. „Þar
með opnast ekki sú smuga fyrir okkur
til æfingaleikja eins og í fyrra þegar
við fengum nærri vikutíma sem meðal
annars var notaður til þriggja leikja
við Norðmenn hér heima “ segir Ein
ar. „Auðvitað eru þetta vonbrigði en
þar sem ekki er um formlega lands-
liðsviku hjá EHF að ræða fáum við
okkar leikmenn ekki lausa frá sínum
félagsliðum. Önnur landslið sitja við
sama borð.“
Ráðgert er að íslenska landsliðið
komi saman og hefji formlegan und-
irbúning fyrir heimsmeistaramótið
strax í upphafi nýs árs. Dagana 5.– 7.
janúar tekur það þátt í fjögurra landa
móti í Danmörku ásamt heimamönn-
um, Norðmönnum og Dönum. „Tékk-
ar koma hingað til lands og leika við
okkur 13. og 14. janúar. Það verða síð-
ustu leikir okkar fyrir HM en ég
reikna með að landsliðið haldi síðan út
til Þýskalands 18. janúar. Fyrsti leik-
ur okkar á HM verður tveimur dög-
um síðar við Ástrala,“ segir Einar og
bætir við að það sé orðið mjög erfitt
að fá landslið hingað heim til leikja.
„Við reyndum að fá heimsmeistara
Spánverja og eins Evrópumeistara
Frakka hingað í heimsókn í janúar en
hvorugt landsliðið sá sér fært að
verða við óskum okkar. Eins reynd-
um við að fá aðrar þjóðir en illa gekk.
Tékka rak á fjörur okkar og þá slóg-
um við til. Tékkar hafa svipað lið og
Úkraínumenn sem við mætum á HM,
Tékkar eru ágætur kostur “
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ungverjar sóttir heim
í haust í stað Pólverja
SKÝR mynd er komin á undirbún-
ing íslenska landsliðsins í hand-
knattleik karla fyrir heimsmeist-
aramótið sem fram fer í Þýskalandi
í síðari hluta janúar á næsta ári.
Það leikur tvo vináttuleiki við Ung-
verja í Ungverjalandi í lok október
og síðan eru fimm leikir á dagskrá í
janúar. Ekkert verður af því að
landsliðið komi saman í lok nóv-
ember eins og í fyrra þar sem nú
verður ekkert hlé gert á keppni í
þýsku 1. deildinni þar sem flestir
landsliðsmennirnir eru.
» Íslenska landsliðið leikursjö landsleiki frá október og
fram að HM í Þýskalandi 20.
janúar.
»Frá október á síðasta ári ogfram að EM í Sviss í janúar
á þessu ári lék íslenska lands-
liðið í handknattleik ellefu op-
inbera vináttulandsleiki.
» Í janúar á þessu ári léklandsliðið fimm leiki, tvo við
Norðmenn, tvo við Frakka og
einn gegn Katar.
» Janúar 2007 leikur lands-liðið einnig fimm leiki, tveir
þeirra verða við Tékka, einn
gegn Dönum, einn við Norð-
menn og einn á móti Póllandi.
Í HNOTSKURN
ALÞJÓÐA knatt-
spyrnu-
sambandið,
FIFA, hefur
hafnað beiðni
KSÍ um und-
anþágu fyrir fé-
lagaskipti Garð-
ars
Jóhannssonar úr
Val yfir í Fre-
drikstad í Nor-
egi. Valsmenn voru búnir að ganga
frá sölu á Garðari, auk þess sem
hann hafði samið við norska félagið
til næstu þriggja ára og var kominn
utan til að búa sig undir fyrsta
deildaleikinn þegar norska knatt-
spyrnusambandið neitaði að stað-
festa félagaskipti hans á þeim for-
sendum að hann hefði þegar leikið
með tveimur félögum, KR og Val,
eftir 1. júlí.
Samkvæmt reglum FIFA mega
knattspyrnumenn ekki leika með
fleiri en tveimur félögum á sama
keppnistímabilinu.
„Já, þetta er niðurstaðan í málinu
í bili en við eigum eftir að ræða um
það við FIFA í heild sinni og það
tekur sinn tíma. Garðar fær því
miður ekki félagaskiptin í bili,“
sagði Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, við Morg-
unblaðið í gær.
Svo kann að fara að Garðar fái
ekki að skipta um félag fyrr en 1.
júlí 2007 en formlegt keppn-
istímabil UEFA, Knattspyrnu-
sambands Evrópu, miðast við þá
dagsetningu. „Ég vil ekki mála
þetta alveg svo svart en það er þó
ljóst að þetta er það tímabil sem
UEFA miðar við, enda þótt tímabil-
ið á Norðurlöndum sé öðruvísi.
Þetta er eitt af mörgu sem við þurf-
um að ræða við FIFA og það þarf
að fá ýmsa hluti á hreint varðandi
reglur um félagaskipti,“ sagði Geir
Þorsteinsson.
Garðar fast-
ur til 1. júlí?
Garðar
Jóhannsson
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Barátta Róbert Gunnarsson, línumaður íslenska landsliðsins í handknattleik, í hörðum slag við ungverska varnarmenn í viðureign Íslands og Ungverja-
lands í á EM í Sviss í byrjun ársins. Róbert verður væntanlega í hópi íslensku landsliðsmannanna sem sækja Ungverja heim í næsta mánuði.
BORGARYFIRVÖLD í ensku borg-
inni Liverpool hafa gefið knatt-
spyrnufélaginu Liverpool grænt ljós
á byggingu á Stanley Park, nýjum
leikvangi sem taka mun 60.000
áhorfendur. Völlurinn verður stað-
settur um 300 metra frá Anfield en á
þeim fræga velli hefur Liverpool
leikið í 114 ár. Áætlað er að hefja
byggingu vallarins í byrjun næsta
árs og stefnt er að því að fram-
kvæmdum verði lokið í ágúst 2009.
Horfið hefur verið frá að byggja
einn völl fyrir heimaleiki Liverpool
og Everton
Nýr völlur í
Liverpool
Y f i r l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Menning 16, 40/44
Veður 8 Umræðan 28/31
Úr verinu 11 Forystugrein 26
Staksteinar 51 Viðhorf 28
Viðskipti 12/13 Bréf 30
Erlent 14/15 Minningar 32/37
Akureyri 18 Víkverji 46
Austurland 18 Staðurstund 46
Suðurnes 19 Velvakandi 46
Landið 19 Stjörnuspá 47
Daglegt líf 20/25 Ljósvakamiðlar 50
* * *
Innlent
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra
á Reykjanesi býður þeim starfs-
mönnum sem geta útvegað annan
starfsmann bónusgreiðslu. Ákveðið
var að fara þessa leið til að bregðast
við erfiðri stöðu, en alls eru um 40
stöðugildi ómönnuð hjá svæð-
isskrifstofunni. » 1
Tveir menn sem grunaðir eru um
hnífaárás á bensínstöð Select í
Breiðholti um helgina gáfu sig fram í
gær, skömmu eftir að lögreglan í
Reykjavík hafði sent fjölmiðlum
myndir sem teknar voru með örygg-
ismyndavélakerfi bensínstöðv-
arinnar. » 4
Aðstandendur blindra nemenda
eru ósáttir við hvernig yfirvöld
standa að þjónustu við þennan hóp.
Segja þeir að nánast engin þjónusta
sé við blind börn á Íslandi. Mála-
flokkurinn hafi lent í gryfju milli
þriggja ráðuneyta. » 26
Gríðarlega góð veiði hefur verið í
Stóur-Laxá í Hreppum síðustu daga.
Var 39 löxum landað á svæðum I og
II á laugardag. Tveggja daga veiði á
svæði III skilaði 35 löxum. »11
Erlent
Fjöldi fólks um allan heim tók í
gær þátt í minningarathöfnum
vegna þess að fimm ár voru liðin frá
árásunum á Bandaríkin. Á Manhatt-
an, þar sem Tvíburaturnarnir stóðu,
voru nöfn fórnarlambanna lesin upp-
hátt. Fjölmiðlar í Evrópu gagn-
rýndu harkalega stefnu George W.
Bush Bandaríkjaforseta í baráttunni
gegn hryðjuverkum. »1
Leiðtogar Hamas og Fatah,
tveggja helstu stjórnmálafylkinga
Palestínumanna, náðu í gær sam-
komulagi um að Fatah fengi aðild að
nýrri samsteypustjórn um þjóð-
areiningu. Vonast Palestínumenn til
þess að Vesturveldin hefji í kjölfarið
aftur fjárhagslegan stuðning við
stjórnina. »1
Viðskipti
Lyfjafyrirtækið Barr hefur
hækkað tilboð sitt í króatíska lyfja-
fyrirtækið Pliva um rúm 10%. Tilboð
Barr er því nú liðlega 3% hærra en
tilboð íslenska lyfjafyrirtækisins
Actavis sem einnig sækist eftir að
kaupa Pliva. »12
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
NÝ TÆKNI kann að leysa ratsjár af hólmi við
eftirlit með flugumferð á næstu árum. Nýja
tæknin byggist á GPS-staðsetningartækjum
um borð í flugvélunum, og staðsetur vélarnar
mun nákvæmar en ratsjá, segir Leifur Há-
konarson, flugmálastjóri hjá Flugmálastjórn.
Í dag notast flugumferðarstjórn hér á landi
og annars staðar við svokallaða svarratsjá til að
staðsetja flugvélar. Er þá sent út merki frá rat-
sjárstöð sem svokallaður ratsjársvari um borð í
flugvélum nemur. Svarið er svo notað til að
meta staðsetningu flugvélarinnar.
Nýja tæknin er kölluð Automatic Dependent
Surveillance Broadcast Programs, eða ADS-B.
Hún byggist á sams konar hugmynd og svar-
ratsjáin, nema hvað ekki þarf að senda merki
frá ratsjá á jörðu niðri. Þá er sendir um borð í
hverri flugvél tengdur við GPS-staðsetning-
artæki, sem sendir nákvæma staðsetningu á
einnar sekúndu fresti til flugumferðarstjórnar.
Helsti kosturinn við kerfið fyrir flugumferð-
arstjóra er mun nákvæmari staðsetning flug-
vélar heldur en fékkst í mörgum tilfellum með
ratsjá, enda eru þær ónákvæmari en GPS tæki,
sér í lagi þegar flugvélin er langt frá ratsjár-
stöðinni. Flugmenn eru líka hrifnir af nýja kerf-
inu því með henni geta þeir séð nákvæmlega
hvar aðrar vélar í nágrenninu eru og þurfa því
ekki að treysta jafn mikið á flugumferðarstjóra.
Leifur segir að í dag séu um 10% þeirra flug-
véla sem fljúga um íslenska lofthelgi þegar með
búnað af þessu tagi og er Flugmálastjórn nú
með tækjabúnað til að taka á móti sendingunum
frá tveimur mismunandi fyrirtækjum, til að
prófa hvor þeirra henti betur.
Ástralar fyrstir til að skipta
Spurður hvenær þessi tæki verði orðin al-
menn segir Leifur það velta mikið á því hversu
hratt þjóðir taka við sér. Sem dæmi hafi Ástr-
alar tekið þá ákvörðun að hætta að nota hefð-
bundna ratsjártækni á næstu árum og skylda
flugvélar sem fljúga til landsins til að vera með
nýju GPS-tæknina. Bendir Leifur á að ef evr-
ópsk flugmálayfirvöld leggi áherslu á nýja kerf-
ið gæti það orðið allsráðandi eftir 5-6 ár.
Einn af þeim kostum við nýju tæknina sem
rekur Ástrala áfram við þróun þessa kerfis er
að stöðvar á jörðu niðri eru mun ódýrari en rad-
arstöðvar, en hver stöð kostar um tíunda hluta
þess sem hefði kostað að koma upp ratsjám sem
þekja sama svæði. Á næstu 12–18 mánuðum
verður komið upp 28 stöðvum á jörðu niðri í
Ástralíu til að taka við boðum frá flugvélum,
samkvæmt upplýsingum frá áströlskum flug-
málayfirvöldum.
Nýja kerfið hefur nokkra af sömu göllunum
og hefðbundið ratsjárkerfi. Þar sem flugvél-
arnar senda boð til stöðva á jörðu niðri þarf eftir
sem áður að hafa stöðvar dreifðar um landið til
að taka á móti boðunum og fjöll og dalir geta
hindrað sendingarnar.
Leifur segir að það hefði mátt koma í veg fyr-
ir þetta með því að senda gögn frá flugvélum í
gervihnetti og þaðan í einstakar stjórnstöðvar,
en það hafi ekki verið mögulegt sökum þess
mikla gagnamagns sem þá þyrfti að fara í gegn-
um gervihnettina. Sem dæmi séu á góðum degi
150 þotur á íslenska flugstjórnarsvæðinu á
sama tíma, og ef hver þeirra sendi staðsetningu
sína einu sinni á sekúndu sé ljóst að gagna-
magnið sé gríðarlegt.
Á þriðja tug GPS gervihnatta sveima í dag í
kringum jörðina og nokkrir þeirra mega detta
út án þess að mikið dragi úr nákvæmni í stað-
setningum, segir Leifur. Það sé þó ljóst að GPS-
tæknin verði að vera afar stöðug til að hægt
verði að treysta á hana eingöngu.
Þessi nýja GPS-tækni hefur einnig þann galla
að eftir sem áður verður hægt að slökkva á tæk-
inu um borð í flugvélinni sem á að hafa samband
við flugumferðarstjóra. Í dag er hægt að
slökkva á ratsjársvaranum, og á nákvæmlega
sama hátt er hægt að slökkva á GPS-sendinum.
Eftir sem áður verður því að reka ratsjár-
stöðvar ef yfirvöld hafa áhuga á því að fylgjast
með óþekktum flugvélum í lofthelgi landa sinna,
t.d. til að reyna að koma í veg fyrir smygl.
Flugvélarnar senda sjálfar GPS-upplýsingar
Morgunblaðið/Jim Smart
Nákvæmni Hægt verður að staðsetja flug-
vélar nákvæmar með nýja kerfinu heldur en
með ratsjárkerfinu sem notað er í dag.
Ný tækni gæti leyst ratsjárstöðvar af hólmi
við eftirlit með flugumferð á næstu árum
Eftir Berg Ebba Benediktsson
bergur@mbl.is
ÖGMUNDUR Jónasson, þingmaður
Vinstri grænna og fulltrúi í iðnaðar-
nefnd Alþingis, gekk í gær út af
fundi nefndarinnar er fulltrúar
Landsvirkjunar kynntu nýtt arð-
semismat fyrirtækisins á Kára-
hnjúkavirkjun. Að sögn Ögmundar
gerði hann athugasemd við að fyr-
irtækið gerði kröfu um að upplýs-
ingar um arðsemismatið skyldu
skoðaðar sem trúnaðarmál og er
kröfu hans um afnám trúnaðarskyld-
unnar var hafnað gekk hann af fundi.
„Mér finnst aðstæður vera slíkar
að ekkert réttlæti að það hvíli yfir
þessu leynd,“ segir Ögmundur og
bætir við að hann telji mikilvægt að
opin og lýðræðisleg umræða fari
fram um málið. „Ég vil að sett verði á
laggirnar óháð nefnd sem kanni allar
forsendur þessa máls,“ segir hann og
bendir á nýjar upplýsingar jarð-
fræðilegs eðlis sem hafi áhrif á arð-
semismatið.
Að mati Ögmundar er tilgangur
trúnaðarskyldunnar að leyna upp-
lýsingunum fyrir þjóðinni og vill
hann ekki taka þátt í því. „Að mínu
mati er leynimakkið í tengslum við
þessar framkvæmdir beinlínis orðið
þjóðhættulegt. Það er gjörsamlega
fráleitt og fullkomlega óásættanlegt
að ekki geti farið fram opin lýðræð-
isleg umræða um alla þætti þessa
máls,“ segir hann að lokum
„Við vorum ekki bundin trúnaði
gagnvart arðsemismatinu sem slíku
heldur einungis orkusöluverðinu,“
segir Birkir Jón Jónsson, formaður
iðnaðarnefndar. Hann telur jafn-
framt ekki eðlilegt að þingnefnd
krefji fyrirtæki á samkeppnismark-
aði um upplýsingar sem fyrirtækið
skuldbindur sig gagnvart sínum við-
skiptavini að gefa ekki upp.
„Þetta er einungis enn ein flug-
eldasýning af hálfu Vinstri grænna
sem snýr að málefnum Kárahnjúka-
virkjunar þar sem þau eru að reyna
að kasta rýrð á þá vönduðu vinnu
sem hefur farið fram í sambandi við
öryggisþætti virkjunarinnar og arð-
semismat,“ segir hann og bætir við
að þingmönnum beri skylda til að
kynna sér til hlítar þau málefni sem
Alþingi Íslendinga beri ábyrgð á.
Ögmundur gekk af
fundi iðnaðarnefndar
Ögmundur
Jónasson
Birkir Jón
Jónsson
Í LAUGARDALSHÖLLINNI hefst í dag Vestnorden-
ferðakaupstefnan sem haldin er af ferðamála-
yfirvöldum Íslands, Grænlands og Færeyja. Í gær var
kaupstefnan hins vegar sett með hátíðlegri athöfn í
Listasafni Reykjavíkur þar sem söngkonan Sigrún
Hjálmtýsdóttir „Diddú“ var meðal þeirra listamanna
sem komu fram. Kaupstefnan, sem er nú haldin í 21.
sinn, stendur yfir þar til á morgun.
Munu um 400 ferðaþjónustuaðilar frá Íslandi, Græn-
landi og Færeyjum, auk ferðamálayfirvalda á Hjalt-
landseyjum kynna vöru sína og þjónustu fyrir hátt í 200
kaupendum sem koma frá 30 löndum víðs vegar um
heiminn. Meðal nýrra þátttakenda nú eru kaupendur
frá Kína, Indlandi og Suður-Kóreu.
Morgunblaðið/Kristinn
Kaupstefna sett með pomp og prakt
Í HNOTSKURN
»Tekið er að hilla undir lokframkvæmda við Kára-
hnjúka en sl. laugardag boraði
TBM1 risabor Impregilo sig í
gegnum síðasta berghaftið á
leið sinni í aðrennslisgöngum
virkjunarinnar.