Morgunblaðið - 12.09.2006, Side 21
heilsa
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 21
BARNAMATUR búinn til úr lífrænt
ræktuðum matvælum nýtur mikilla
og vaxandi vinsælda, og hefur fram-
leiðsla og sala á tilbúnum barnamat
framleiddum úr lífrænt ræktuðum
hráefnum aukist um 60% á heims-
vísu á undanförnum fimm árum. Síð-
ustu misseri hefur framleiðsla og
sala á ýmsum öðrum barnavörum
sem framleiddar eru úr lífrænum
hráefnum, svo sem fötum og hreinsi-
efnum, einnig aukist mikið. Til að
mynda jókst framleiðsla og sala á líf-
rænum bómullartrefjum sem notuð
eru í föt og bleiur um 40% milli ár-
anna 2004 og 2005 og var svipuð
aukning í sölu á kremum og hreinsi-
efnum, ætluð börnum, sem búin eru
til úr náttúrulegum efnum.
Úrvalið að aukast
Í umfjöllun AP fréttastofunnar
um síaukinn áhuga foreldra á vörum
úr lífrænum hráefnum handa ungum
börnum sínum eru leiddar líkur að
því að eftirspurn eftir slíkum vörum
haldi áfram að vaxa mikið enda verði
gæðin á þeim sífellt meiri og úrvalið
fjölbreyttara. Þá er einnig bent á að
lífrænar vörur verði smám saman
ódýrari eftir því sem fjöldafram-
leiðsla á þeim verður algengari og
farið verður að selja þær í stórmörk-
uðum á borð við bandarísku risa-
verslunarkeðjuna Walmart, sem
hefur áform um að herja á lífræna
markaðinn í stórum stíl.
Morgunblaðið/Golli
Lífrænt fyrir
ungbörnin
HREINAR hendur eru sterklega tengdar
hreinu hjarta. Þetta sýna rannsóknir vísinda-
mannanna Chen-Bo-Zhong og Katie Lilj-
enquist. Zhong starfar við Háskólann í To-
ronto í Kanada en Liljenquist við
Northwestern University í Bandaríkjunum.
Í grein á vefritinu Forskning.no er sagt frá
mismunandi tilraunum sem þau Zhong og Lilj-
enquist gerðu í því skyni að kortleggja sam-
hengið milli handþvotta og hreinnar samvisku.
Meðal annars báðu þau hóp sjálfboðaliða um
að rifja upp siðlegan eða ósiðlegan gjörning. Í
framhaldinu benti val þeirra, sem rifjuðu upp
eitthvað ósiðlegt, til þess að þeim fyndist þeir
vera líkamlega óhreinir. Þessir einstaklingar
túlkuðu til dæmis enska orðabrotið „w_ _h“
oftar sem „wash“ (þvottur) en aðrir. Sömuleið-
is tóku þeir hreinsiservíettu fram yfir penna
þegar þeir gátu valið á milli tveggja ókeypis
hluta, sem þó höfðu verið metnir sem sam-
bærilegir á undan.
Í annarri tilraun voru sjálfboðaliðarnir
kynntir fyrir hugmyndum um að hjálpa starfs-
félaga sínum eða að eyðileggja fyrir honum í
vinnunni. Á eftir fengu sumir sjálfboðaliðanna
að þvo sér um hendurnar. Í framhaldinu voru
allir beðnir um að taka þátt í annarri rannsókn
án þess að fá borgun í því skyni að aðstoða út-
skriftarnema. 74% þeirra sem ekki þvoðu sér
um hendur buðust til að aðstoða nemandann
en aðeins 41% þeirra sem voru hreinir um
hendurnar. Þörf fólks til að hjálpa náunganum
dróst sumsé verulega saman við það eitt að fá
vatn og sápu á hendurnar.
Sálarþvottur Tengsl virðist mega finna á milli hreinn-
ar samvisku og handaþvotts.
Sápan virkar á sálartetrið
FYRIR þá sem af einhverjum
ástæðum hafa skerta heyrn koma
venjulegar vekjaraklukkur sem
vekja með hljóði að litlu gagni. En
nú er kominn á markað vekjari með
innbyggðum titrara sem gagnast
þessum hópi fólks. Þegar hristivekj-
arinn hefur verið stilltur á þann tíma
sem honum er ætlað að vekja, er
honum komið fyrir undir koddanum
og festur við koddaverið eða lakið
með lítilli klemmu. Á þar til gerðum
tíma vekur svo þessi græja með svo
öflugum titringi að uppljúkast augu.
Þessi hristivekjari gæti líka
gagnast vel þeim sem eiga alveg ein-
staklega erfitt með að vakna á
morgnana og jafnvel ótrúlegasti há-
vaði nær ekki í gegnum sofandi eyru
þeirra. Þetta getur verið mjög
þreytandi fyrir aðra á heimilinu svo
ekki sé talað um þá sem búa einir og
geta ekki treyst á að einhver annar
veki þá.
Hristivekjari
Hristivekjarinn fæst hjá Heyrn-
artækni í Glæsibæ.
www.heyrnartaekni.is