Morgunblaðið - 12.09.2006, Side 23

Morgunblaðið - 12.09.2006, Side 23
úr bæjarlífinu MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 23 Ferðamannastraumurinn er að minnka með haustinu að venju. Heldur virðist ferðamönnum þó fjölga hér ár frá ári og láta helstu ferðaþjónustuaðilar á svæðinu nokk- uð vel af aðsókninni. Erlendir túr- istar ferðast orðið mikið á eigin veg- um, einkum á bílaleigubílum, oftast á litlum fólksbílum og lenda síðan í vanda þegar þeir ætla að skoða helstu staðina á hálendinu hér fyrir ofan, Landmannalaugar, Þórsmörk, Heklu, Hrafntinnusker og Fjalla- baksleiðir, syðri og nyrðri. Útlend- ingarnir nota mest gistingu á hót- elum eða svefnpokapláss auk tjaldstæða. Íslendingar eru aftur mest í tjaldvögnum, fellihýsum eða hjólhýsum. En ekki eru íslenskir ferðamenn komnir í vetrarhíðið því að um síðustu helgi voru hátt í 100 hjól- og bílhýsi á tjaldstæðinu hjá Árhúsum á Hellu.    Félag eldri borgara í Rangárvalla- sýslu heldur uppi öflugu starfi, jafnt vetur sem sumar. Að vetrinum eru námskeið, spilakvöld og ýmiss konar afþreying í gangi hjá félaginu, en að sumrinu er frekar farið í ferðalög o.fl. Núna í sumar var farið í 3ja daga ferð í Húnavatnssýslurnar, eins dags ferð í Borgarfjörðinn og einnig var boðið upp á golfkennslu hjá Golfklúbbi Hellu að Strönd á Rangárvöllum.    Réttir fara í hönd hér í sveit eins og um allt land. Reyðarvatnsréttir á Rangárvöllum verða laugardaginn 16. september og Landréttir í Áfangagili fimmtudaginn 21. sept- ember. Eins og víðast hvar, þá fækk- ar heldur fé sem rekið er á fjall ár frá ári, en mannfjöldi í réttum stend- ur nokkurn veginn í stað eða eykst, enda um kærkominn mannfagnað að ræða sem bæði börn og fullorðnir njóta til fulls.    Leikskólinn Heklukot á Hellu stækkar og eflist á næstunni, en ver- ið er að taka viðbótarhúsnæði í notk- un handan við götuna þar sem nú- verandi starfsemi fer fram. Mikil umframeftirspurn hefur verið eftir leikskólavist og mun verða hægt að bæta við u.þ.b. 23 börnum þegar stækkunin kemur til framkvæmda. Jafnframt er hugsanlegt að hægt verði að lækka lágmarksaldur, en hann miðast nú við 18 mánaða aldur. Húsnæðið sem verið er að taka í notkun hýsti áður Tónlistarskóla Rangæinga, en sú starfsemi flytur í húsnæði sem hýsti hreppsskrif- stofur Rangárvallahrepps og Rang- árþings ytra síðustu 32 árin. Skrif- stofur sveitarfélagsins eru nú komnar að Suðurlandsvegi 1, þar sem nýlega var keypt skrifstofu- og verslunarhús af KB banka, en Kaup- félagið Þór byggði það á sínum tíma undir stjórn Ingólfs Jónssonar. Morgunblaðið/Óli Már HELLA EFTIR ÓLA MÁ ARONSSON FRÉTTARITARA Davíð Hjálmar Haraldsson ortieftir að hafa lesið í Morgun- blaðinu um smið sem sagðist fædd- ur með hamarinn í hendinni: Ég fæddist með hamar í hendinni. Húsin ég laga víða, múra þau, mála, smíða, en mamma er enn slæm í lendinni. Rúnar Kristjánsson var að leita að Vísnahorninu í Morgunblaðinu og orti á meðan: Andann gleður íþrótt forn er menn færin nýta, hér á valið vísnahorn verð ég því að líta. Pétur sinnir verkum vel, vinur Bragaslóðar. Lætur margan syndasel senda stökur góðar! Fyrir nokkru kom vísa í þætt- inum eftir Guttorm vesturheimska, um að kvæðin stæðu stundum í mönnum. Rúnar yrkir: Spillir vandi og spæling slík spuna grandar sönnum. Kyrkir andann kvölin rík ef kvæðin standa í mönnum. Fæddur með hamar pebl@mbl.is VÍSNAHORN + Staðgreiðsluverð + Lægri vextir + Lægri kostnaður + Til allt að 36 mánaða + Framlengdur ábyrgðartími + Flutningstrygging + Vildarpunktar Spurðu um VISA Lán – HAGSTÆÐAR AFBORGANIR Dreifðu staðgreiðslunni VISA Lán er hagstæð leið til greiðsludreifingar við kaup á vörum eða þjónustu. Nánari upplýsingar á www.visa.is/visalan eða í síma 525 2000 Waring blandarinn er hin upprunalega mulningsvél frá Ameríku. Tveggja hraða mótorinn er kannski öflugri en eldhúsið þarf, en fer líka létt með erfiðustu verk. Bara massíft stál og gler! Verð frá kr. 16.900,- Auk þessa seljum við hágæða capuccinovélar. Útsölustaðir: Artform Skólavörðustíg 20 Búsáhöld Kringlunni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.