Morgunblaðið - 12.09.2006, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 41
menning
ÞAÐ ER fátt skemmtilegra en að
setjast niður í rólegheitum og hlusta
á góðar sögur, ekki síst ef sögu-
stundin endar á því að maður veltist
um af hlátri. Þannig var það á haust-
tónleikum Harðar Torfasonar í
Borgarleikhúsinu á föstudags-
kvöldið, enda sögumaðurinn í essinu
sínu og sló hvergi af. Styrkur Harð-
ar Torfasonar liggur nefnilega fyrst
og fremst í því hversu öruggur flytj-
andi hann er, eða það sem kallað er
á fagmálinu „performer“, en þar
fyrir utan hefur hann ýmislegt til
málanna að leggja, sem vekur mann
til umhugsunar.
Í upphafi tónleikanna kvaðst
Hörður ætla að taka áheyrendur
með sér í fjöruferð og tína upp
sprek á víð og dreif frá ferli sínum,
ekki síst af fyrstu plötunum, enda
hefur hann hvílt þær á tónleikum
sínum síðustu árin. Þetta féll greini-
lega í góðan jarðveg hjá áheyr-
endum, sem voru vel með á nót-
unum, einkum í lögunum af fyrstu
plötu Harðar, sem út kom árið 1972.
Sú plata vakti mikla athygli á sínum
tíma, en á henni söng Hörður eigin
tónsmíðar við ljóð ýmissa val-
inkunnra höfunda. Lög Harðar
þóttu lipurlega samin, í anda trúba-
dora hippatímans, og með þessari
plötu átti Hörður eflaust stóran þátt
í því að gera sum af þessum ljóðum
ódauðleg. Má þar nefna ljóð Hall-
dórs Laxness, Kveðið eftir vin minn
og ljóð Steins Steinars Lát huggast
barn og Gamalt sæti, að ógleymdu
Þú ert sjálfur Guðjón, eftir Þórarin
Eldjárn. Líklega er þó lag Harðar
við ljóð Tómasar Guðmundssonar,
Ég leitaði blárra blóma, sú tónsmíð
sem mun halda nafni hans lengst á
lofti, enda endar Hörður jafnan tón-
leika sína á þessu lagi. Hörður flutti
öll þessi lög á hausttónleikunum að
þessu sinni og auk þeirra var eft-
irminnilegur flutningur hans á lag-
inu Dagurinn kemur, við ljóð Rún-
ars Hafdal Halldórssonar, sem var
eitt efnilegasta ungskáld þjóð-
arinnar á þessum tíma, en lést langt
um aldur fram í umferðarslysi.
Reyndar átti Hörður sjálfur
nokkur ljóð á þessari fyrstu plötu,
en það var þó ekki fyrr en síðar að
hann fór að láta verulega að sér
kveða í ljóða- og textagerð. Og
áheyrendur fengu einnig sinn
skammt af frumsömdum hugleið-
ingum Harðar um lífið og tilveruna
og tíndi hann þar upp sprek frá
ýmsum tímum. Má þar nefna lög og
ljóð af plötunni Gull, sem mér hefur
alltaf þótt vera í hópi hinna bestu
sem Hörður hefur sent frá sér. Eitt
þeirra laga er Karl R. Emba (Gefðu
þeim blóm), sem er í algjörum sér-
flokki að mínu mati. Við flutninginn
á því lagi nýtur Hörður leiklist-
arhæfileika sinna í ríkum mæli, sem
og reyndar í allri framgöngu sinni á
sviðinu. Og talandi um leikarann
Hörð Torfason er skylt að geta upp-
klappslaganna tveggja þar sem
söngvaskáldið fór á slíkum kostum
að salurinn lá í hlátri.
Þetta voru 30. hausttónleikar
Harðar Torfasonar, en á hverju
hausti, frá árinu 1976, hefur hann
stigið á svið og leikið söngva sína, og
með hverju ári fjölgar í áheyr-
endahópnum. Í viðtali, sem birtist í
Morgunblaðinu fyrir tónleikana,
segir Hörður að honum finnist hann
bráðum vera búinn að segja allt sem
honum býr í brjósti. Vonandi hefur
hann þó ekki sagt sitt síðasta orð og
jafnvel þótt hann hætti að semja er í
góðu lagi að rifja upp hugleiðingar
hans og ábendingar af og til, að
minnsta kosti einu sinni á ári. Á
hausttónleikunum á föstudags-
kvöldið sannaði Hörður Torfason að
góð vísa er aldrei of oft kveðin.
Hörður kemur til dyranna eins og
hann er klæddur og í smekklegu
umhverfi á sviðinu í Borgarleikhús-
inu, og með dyggri aðstoð Vilhjálms
Guðjónssonar gítarleikara, tókst
honum í þægilegu andrúmslofti að
koma því vel til skila sem honum
liggur á hjarta.
Sveinn Guðjónsson
Söngvaskáld í fjöruferð
Hörður Torfason Kemur jafnan til dyranna eins og hann er klæddur.
TÓNLIST
Borgarleikhúsið
Hörður Torfason með 30. hausttónleika
sína, þar sem hann flytur frumsamin lög
við eigin ljóð og annarra og leikur undir
á gítar. Meðspilari:
Vilhjálmur Guðjónsson á gítar.
Hausttónleikar Harðar Torfasonar
!
"#$ %&'
( ) *&'+
, -.'-! / & / 0'1 %" ' .!
,2, 23 3
!
"#$ %&' ( ) *&'+
, -.'-! / & / 0'1 %" ' .!
,4566
7
89
!
"#$ %&' ( ) *&'+
, -.'-! / & / 0'1 %" ' .!
:
!
"#$ %&'
( ) *&'+
, -.'-! / & / 0'1 %" ' .!
4)9 08;
8
</&' 8 %&'
( !
"#$ 2!-=.->$! $
2? ' .!
" ' .! %2!' ' .! 9!"$ '' @A > $A
@A . '1 2'..+'! . +A.!
,4566
78
8
</&' 8 %&'
( !
"#$ 2!-=.->$! $
2? ' .!
" ' .! %2!' ' .! 9!"$ '' @A > $A
: 87 8
</&' 8 %&'
( !
"#$ 2!-=.->$! $ ;
@? ' .!
2?? B;
7C 0*' .! " ' .! %2!' ' .!
9!"$ '' 4 4 .! ' )/=D $A .D-!
4)9 0;
</&' 8 %&' (
!
"#$ 2!-=.->$! $
2? ' .! " ' .!
%2!' ' .! 9!"$ '' @A > $A 2'..+'! . +A.!
4)9 0;
;/&' $ %&' (
! ( ;
@? ' .! 7 ! . . " ' .! %2!' ! . .
: 8 8
</&' 8 %&' ( !
"#$
2!-=.->$! $ ;
@? ' .! B;
7C
2?? B;
7C 0*' .! " ' .!
%2!' ' .! 9!"$ '' 4 4 .! ' )/=D $A .D-!
: 7
</&' $ %&' (
! "#$ ;
@? ' .! B;
7C
2?? B;
7C 0*' .! " ' .!
%2!' ' .! 9!"$ '' 4 4 .! ' )/=D $A .D-!
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
Smiðjuvegi 74
Sími 515 8700
BLIKKÁS –