Morgunblaðið - 12.09.2006, Síða 20
HEILSUSAMLEGT fæði gæti þýtt diskur af sérræktuðum silkiormum ef marka má
orð líffræðinga sem halda því fram að litlu ormarnir innihaldi hátt hlutfall af ómett-
uðum fitusýrum, CLA, sem eru nauðsynlegar okkur mannfólkinu.
Fitusýrurnar veita vörn gegn krabbameini, hjálpa okkur að bægja frá vírusum og
bakteríum og hjálpa okkur jafnvel við að losna við aukakílóin.
Herlegheitin eru ekki bara í silkiormum því matvörur eins og nautakjöt, mjólk-
urvörur og kornolía innihalda þessar ómettuðu fitusýrur en aðeins
í mjög litlum mæli.
Líffræðingar við ríkisháskólann í Ohio í Bandaríkj-
unum og við Gyeongsang-háskólann í Suður-Kóreu hafa
komist að því að ef silkiormar eru fóðraðir á laufblöðum mór-
berjatrésins sem er þakið umræddum fitusýrum þá verði
mikið eftir af efninu í ormunum.
Þá er bara að sjá hversu langt er þangað til hægt verð-
ur að fá sér matarmikið salat með silkiormum í hádeginu.
Það má geta þess í lokin svona til gamans að það sem hvatti líf-
fræðingana til að hefja rannsókn á silkiormunum og upptöku þeirra
á CLA-fitusýrum var að venjulegar húsflugur eiga víst afar auðvelt
með að taka í sig CLA-fitusýrurnar. Tja, salat með húsflugum? Það
skyldi þó ekki verða einn af valmöguleikunum í framtíðinni.
heilsa
Salat með silkiormum
|þriðjudagur|12. 9. 2006| mbl.is
daglegtlíf
Verð á matvöru hefur gífurleg
áhrif á efnahag heimilanna og
því þarf að hafa fingurinn á
púlsinum í þeim efnum. » 24
neytendur
Með því að gefa hugarfluginu
lausan tauminn má auðveldlega
skapa austræna stemningu á
íslensku hausti. » 22
hönnun
M
ér bara leiddist og
fór að æfa mig í að
jójóa í fyrrasumar.
Mér fannst þetta
strax mjög
skemmtilegt og hef bara náð ágæt-
is færni á stuttum tíma, en það eru
auðvitað margir miklu betri en ég.
Þá er bara um að gera að æfa sig
meira,“ segir Reykvíkingurinn
Stefán Grímur Björnsson, sem
lenti í þriðja sæti í sínum aldurs-
flokki í árlegri jójó-heimsmeist-
arakeppni, sem fram fór í Banda-
ríkjunum dagana 10.–12. ágúst sl.
Keppnin fór fram á Rosen Plaza-
hótelinu við International Drive í
Orlando í Flórída-fylki.
„Þetta hófst allt með því að ég
fór á netið og fann þar ýmis jójó-
trix. Þar eru bæði spjallrásir og
kennslumyndbönd þar sem útlend-
ingar eru að kenna hver öðrum og
í gegnum þær er hægt að versla
jójó.“ Þetta eru t.d. heimasíðurnar
www.mastermagic.net, www.ext-
remespin.com og www.yoyo-
nation.com, en heimasíða heims-
meistaramótsins er hinsvegar
www.worldyoyocontest.com. Ís-
lensku jójó-nördarnir, eins og Stef-
án orðar það, halda svo úti heima-
síðunni www.spuni.tk.
Þetta mun vera í fyrsta skipti
sem íslenskir jójó-keppendur taka
þátt í keppninni og voru nýjar
þjóðir sérstaklega boðnar velkomn-
ar, en auk Íslendinga voru Kínverj-
ar, Tékkar og Ungverjar að taka
þátt í fyrsta skipti.
Auk Stefáns tók Páll Valdimar
Guðmundsson Kolka, 15 ára Hafn-
firðingur, þátt í keppninni, sem var
nú haldin í 76. sinn með fimm
hundruð keppendum alls staðar að
úr heiminum. Páll deildi sjöunda
sætinu með 14 ára Ameríkana í
aldursflokknum 13–16 ára.
Stefán deildi hinsvegar þriðja
sætinu með bandarískum jafnaldra
sínum í aldursflokknum 17–29 ára.
„Í keppninni þarf hver keppandi
að gera röð af „trixum“ og gengur
keppnin út á það að gera eins mörg
trix og maður getur af listanum á
ákveðnum tíma án þess að mistak-
ast,“ segir Stefán Grímur og bætir
við að velgengnin hafi komið sér
talsvert á óvart. „Ég bjóst ekki við
að lenda svona ofarlega því ég var
með smá klaufaskap í keppninni.“
Stefán Grímur er á öðru ári á
málabraut Fjölbrautaskólans við
Ármúla. Á milli þess sem hann
jójóar kýs hann að eyða frítím-
anum sínum í vinina, tónlist og net-
ið. „Ég er alltaf með jójóið í vas-
anum og fer að leika mér þegar ég
hef ekkert betra að gera.“
Stefán gerir ráð fyrir að taka
þátt í keppninni á ný á næsta ári,
en vinátta og bræðralag einkenndu
samkunduna þar sem allir vildu
miðla af þekkingu sinni og sýna
færni sína með eitt eða tvö jójó,
skopparakringlu og ýmsa griphluti
á borð við bolta, hringi og keilur
þannig að úr varð stórkostleg
skemmtun, að sögn jójó-meist-
arans.
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Meistarinn Hefur náð góðri færni á stuttum tíma.
Safnið Stefán Grímur kaupir jójóin
sín gjarnan á Netinu.
Æfingar Stef-
án Grímur
Björnsson
kann nú orð-
ið mörg jójó-
trix, ýmist
með einu eða
tveimur jójó-
um.
Leiddist og
fór að jójóa
Jójóið Alltaf í vasanum svo hægt sé
að bregða á leik hvenær sem er.
tómstundir
Körfuboltinn er aðaláhugamálið
hjá Ingu Sif Sig-
fús-
dóttur.