Morgunblaðið - 12.09.2006, Side 19

Morgunblaðið - 12.09.2006, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 19 SUÐURNES SVEITARSTJÓRNARMENN á Suðurnesjum leggja á það áherslu að í framhaldi af niðurstöðu við- ræðna Íslands og Bandaríkjanna um varnarmál á Miðnesheiði verði haft fullt samráð við heimamenn um ráðstöfun húsnæðis og þró- un atvinnumála á svæðinu. Í ályktun um brotthvarf varnarliðsins sem sam- þykkt var samhljóða á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suður- nesjum, en þingið var haldið í Vog- um um helgina, er minnt á það að fyrir aðeins fimm mánuðum stóðu 900 starfsmenn frammi fyrir til- kynningu um uppsagnir starfa hjá varnarliðinu og stærstur hluti þeirra sé fjölskyldufólk af Suðurnesjum. Tekið er fram að því verkefni að leysa atvinnumál þessa fólks sé ekki lokið þótt stærsti hluti þess hafi þeg- ar gengið til annarra starfa á svæð- inu. Aðalfundurinn lýsir yfir stuðningi við framkomnar kröfur um að leitað verði allra leiða til þess að koma til móts við þá starfsmenn varnarliðs- ins sem eru að nálgast eftirlaunaald- urinn og eiga erfitt með að komast á almennan vinnumarkað. Bent er á að næstu skref snúi að tilhögun á nýtingu mannvirkja sem eftir kunna að standa, hreinsun mengaðra svæða, ráðstöfun lands og sköpun nýrra atvinnutækifæra. „Mikilvægt er að í því breytingar- ferli sem fram undan er verði allir þættir flugvallarstarfseminnar skoð- aðir í samhengi og litið á svæðið sem eina heild. Það er grundvallaratriði að sveitarfélögin séu áhrifavaldar um þá framtíð sem hér er mótuð.“ Heima- fólk með í ráðum Sveitarstjórnarmenn líta á svæðið sem eina heild Vogar | Sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum telja mikilvægt að ráðist verði í gerð menningar- samnings og vaxtarsamnings á milli sveitarfé- laganna á Suð- urnesjum og rík- isvaldsins. Ályktun þessa efnis var sam- þykkt á aðal- fundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, SSS, sem hald- inn var í Vogum um helgina. Vakin er athygli á því að slíkir samningar hafi í auknum mæli verið gerðir við sveitarfélög í öðrum landshlutum og er reynsl- an sögð góð. Hafi samningarnir tryggt fjárhagslegan grundvöll menningarstarfs og nýsköpunar. „Fundurinn leggur áherslu á að stjórn SSS hefji þegar við- ræður við þau ráðuneyti sem að málinu koma og vonar að gerð samninga taki skamman tíma,“ segir m.a. í ályktuninni, enda hljóti jafnræðis að verða gætt milli sveitarfélaga. Vilja menningar- samning við ríkið Helguvík | Lýst er yfir stuðningi við áform um byggingu álvers í Helguvík í Reykjanesbæ í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi SSS. Ályktunin var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum gegn einu. Vakin er athygli á því að upp- bygging álvers sé einstakt tæki- færi til að auka framboð vel laun- aðra starfa sem hentað gætu sem framtíðarstörf fyrir fjölmarga sem nú hverfa úr störfum á vegum varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Þá kemur fram það álit að ef öllum skilyrðum sé fullnægt hljóti afskipti stjórnvalda fyrst og fremst að miða að því að liðka til fyrir framvindu þessa verkefnis. Jafnframt sé allra umhverfissjón- armiða gætt. Styðja áform um byggingu álvers FYRSTU niðurstöður ráðgjafa sveitarfélaganna þriggja sem liggja að Keflavíkurflugvelli benda til að möguleikar séu til uppbyggingar flugsækinnar þjónustu í tengslum við alþjóðaflugvöllinn. Talið er nær- tækast að skoða tækifæri til rekst- urs alþjóðlegrar birgðastöðvar og miðstöðvar fragtflutninga. Keflavíkurflugvöllur á umbreyt- ingatímum var aðalmál aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Suður- nesjum sem fram fór um helgina. Geir H. Haarde forsætisráðherra og Valgerður Sverrisdóttir utanríkis- ráðherra sögðu frá stöðu viðræðna við Bandaríkjamenn og Vilhjálmur Kristjánsson ráðgjafi og Árni Sig- fússon bæjarstjóri sögðu frá vinnu við undirbúning breytinga. Bíða á hliðarlínunni Árni segir að heimamenn hafi gert sér grein fyrir því að þeir væru á hliðarlínunni á meðan stjórnvöld ættu í viðræðum við Bandaríkja- stjórn um varnarsamning þjóðanna og gætu ekki gert neinar ráðstafanir um nýtingu eigna á varnarsvæðinu. Hins vegar hafi verið unnið að tiltek- inni undirbúningsvinnu, við öflun gagna og greiningu tækifæra. Reykjanesbær, Sandgerðisbær og Sveitarfélagið Garður vinna að þess- um verkefnum í samvinnu við full- trúa stjórnvalda. Væntanleg er niðurstaða ráðgjafa um greiningu á svæðinu og hug- myndir um áherslur í uppbyggingu á alþjóðaflugvellinum og frumskýrsla um aðferðir við umbreytingu her- stöðva í borgaralegt atvinnusvæði var kynnt á aðalfundi SSS um helgina. Árni Sigfússon segir að fyrstu niðurstöður um uppbyggingu á alþjóðaflugvellinum bendi til þess að nærtækast sé að skoða tækifæri alþjóðlegra birgðastöðva og aukinna fragtflutninga. Um er að ræða að fá hraðflutningafyrirtæki eða stór flug- félög sem stunda vöruflutninga til að skoða möguleika á uppbyggingu birgðastöðvar til notkunar við flutn- inga milli Evrópu og Ameríku. Árni segir ljóst að slík aðstaða myndi einnig skapa mikla möguleika fyrir önnur fyrirtæki. Reykjaneshöfn víkkuð út? Í hinni skýrslunni er aflað gagna um það hvernig staðið hefur verið að lokun herstöðva í öðrum löndum, frágangi eigna og uppbyggingu at- vinnu. Árni segir mikilvægt að við- komandi sveitarfélög verði leiðandi í þessari vinnu og að þau standi sam- an að henni. Einn aðili þurfi að hafa vald til ákvarðana. Árni telur að góð samstaða sé um þetta mál meðal heimamanna og hafi bæjarstjórar Reykjanesbæjar, Sandgerðisbæjar og Garðs unnið að því. Hann segir að rætt hafi verið um stofnun sameig- inlegs félags til að vinna að umbreyt- ingunum, nýtingu nýrra tækifæra, skipulagsmálum, hreinsun mengun- ar og yfirtöku eigna. Segir hann það nauðsynlegt því þetta sé eitt at- vinnusvæði og ákvarðanir sem tekn- ar eru um Keflavíkurflugvöll hafi áhrif á öllu svæðinu. Þá sé hætta á að sveitarfélögin fari að bítast um fasteignagjöldin. Árni telur vel koma til greina að unnt sé að nýta Reykjaneshöfn í þessum tilgangi. Þar sé ákveðinn grunnur við Helgu- víkurhöfn og iðnaðarsvæðið. Unnt sé að stækka umráðasvæði hennar út fyrir olíubirgðastöð hersins sem er í landi Garðs og inn á flughafnar- svæðið sem er í Sandgerðisbæ og varnarstöðvarinnar sem er að stærstum hluta í landi Reykjanes- bæjar. Segir Árni að bæjarstjórarn- ir hafi lagt hugmyndir sínar fyrir ríkisstjórnina og bíði niðurstaðna í varnarviðræðunum. Skoða rekstur mið- stöðvar fragtflugs Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Völlurinn Mikið er af ónýttu húsnæði á Keflavíkurflugvelli. Í HNOTSKURN »Þeir starfsmenn varn-arliðsins sem missa vinn- una hafa verið aðstoðaðir við atvinnuleit. »Tillögur um nútímavæð-ingu varna landsins bíða niðurstaðna varnarviðræðna. »Unnið hefur verið að und-irbúningi að nýtingu nýrra tækifæra. Keflavík | Þrjátíu ár voru í gær liðin frá því Fjölbrautaskóli Suðurnesja var settur í fyrsta sinn. Af því tilefni var starfsfólki og nemendum boðið upp á veitingar og dugði ekkert minna en þrjátíu metra afmælisterta. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því skólastarf hófst og Fjölbrauta- skólinn vaxið og dafnað með hverju árinu sem liðið hefur. Nú eru nem- endur liðlega tólf hundruð. Sérstök afmælisnefnd hefur nú tekið til starfa og síðar í haust verður haldið veglega upp á afmælið. Afmæli skólans ber upp á sama dag og hryðjuverkin miklu voru unnin í New York og Washington, 11. september 2001, og var þess minnst við at- höfnina á sal skólans í gærmorgun. Ljósmynd/Ellert Grétarsson Þrjátíu metra löng terta Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is NÝTT Í SÖLU ! Sérlega skemmtilega teiknaðar íbúðir, 3ja-5 herbergja ásamt stæði í bílageymslu. Tvær glæsilegar íbúðir á efstu hæð með 28 fm svalarverönd. Mjög vandaðar innréttingar frá GKS og vönduð tæki frá ORMSSON (AEG sambærileg), hreinlætis- tæki frá BYKO. Verð 20,5-34,5 millj. BAUGAKÓR 18–20 KÓPAVOGI BYGG – Byggingafélag GYLFA OG GUNNARS ásamt AKKURAT kynna glæsilegt fjölbýli á frábærum stað FASTEIGNASALA STÓRHÖFÐA 27 S. 594 5000 Halla Unnur Helgadóttir löggiltur fasteignasali Hafið samband við sölufulltrúa Akkurat og fáið teikningar og frekari upplýsingar í síma 594 5000 www.akkurat.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.