Morgunblaðið - 12.09.2006, Side 22

Morgunblaðið - 12.09.2006, Side 22
hönnun 22 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Eftir væturíka sumartíð kunna vel-flestir að meta blíða haustdagaog reyna eftir megni að lengjasumarið. Sumir eru duglegir við að byggja skjól og setja jafnvel gashitara út fyrir, svo lengur megi sitja utandyra. Enda lítur garðurinn einkar fallega út á haustin, skærrauð rifsber glansa í runnunum og hægt er að njóta uppskerunnar, hvort sem um er að ræða ber, rabarbara, grænmeti eða hvað annað það sem sprottið hefur í garðinum yfir sumartímann. Mynta vex til að mynda vel á Íslandi og gott að neyta hennar í ljúffengum drykkjum á stilltum haustkvöldum, hvort sem um er að ræða heita eða kalda drykki, áfenga eða óáfenga. Þannig er t.d. gott að fá sér myntute eftir kvöldmatinn, því myntan róar magann og hjálpar til við meltinguna og eins má gera hinn sívinsæla Mojito drykk úr myntunni, þegar tilefni gefst til. Þegar síðan hvorki nýtur við gashitara eða útikamínu er um að gera að skella yfir sig stóru og fallegu ullarsjali sem svo held- ur vel hita á kroppnum. Því hlý haustkvöld eru stundir sem allir ættu að njóta til hins ýtrasta til útiveru áður en vetrarveður senda okkur inn í hús á ný. Suðræna stemningu Arabíunæturinnar má líka, eins og myndirnar sýna, töfra fram í litlum garði í miðbæ Reykjavíkur eða bara hvar sem er! Austræn veisla Te og kaffi, Smáralind, teglös í tyrkneskum stíl 540 kr. Fríða frænka, Vestur- götu, ljósblá glerskál 50 kr., brún glerskál 350 kr. og teglas 100 kr. Søstrene Grenes, Smára- lind, sæblá keramikskál 110 kr., sæblá glerskál 78 kr., hvít skál 61 kr., glerskál 86 kr. og blár glerkúpull með loki 1.399 kr. Eftir Sigrúnu Söndru Ólafsdóttur Ilmandi drykkir Teglas í tyrkneskum stíl 540 kr. Te og kaffi, Smáralind. Glas á fæti 1.400 kr., rjómakanna sem hluti af kaffikönnu, rjómakönnu og sykurkari, saman á 5.000 kr., grænn gler- bolli, með undirskál 700 kr., græn skál 350 kr. og kertastjaki, 3.500 kr. Fríða frænka, Vestur- götu. Rauðar og rósóttar pullur 5.775 kr. stk. Nóra, Lynghálsi. 1001 nótt í 101 Krydduð stemning Glerlukt 1.450 kr. Blómálfurinn, Vesturgötu. Bastkarfa 1.700 kr. Kirsuberjatréð, Vesturgötu. Stór kertastjaki fyrir 6 sprittkerti 9.800 kr. og glerkertastjaki í ýmsum litum, fyrir sprittkerti 750 kr. Nóra, Lynghálsi. Blár glerkúpull með loki 1.399 kr., skraut í austrænum stíl 199 kr., hvít lukt 220 kr. og bambusmotta 219 kr. Søstrene Grenes, Smáralind. Gyllt kaffikanna með sykurkari og rjóma- könnu 5.000 kr., silfurskeið 700 kr., silfurgaffall 700 kr. og silfurhnífur 1.500 kr. Fríða frænka, Vesturgötu. Egglaga lukt fyrir sprittkerti 890 kr. Habitat, Askalind. Bakki og inniskór í einkaeign. Hlýlegt Sísalmotta fæst í mörgum stærðum verð frá 5.000–20.000 kr. Habitat Askalind. Rauð og rósótt pulla 5.775 kr. Nóra, Lynghálsi. Bakki 500 kr. og kertastjaki 3.500 kr. Fríða frænka, Vest- urgötu. Skraut í austrænum stíl 199 kr. Blóm- álfurinn, Vesturgötu, rauð lukt 950 kr. Søstrene Grenes, Smáralind. Ullarslá 5.980 kr. Hand- prjónasamband Íslands, Skólavörðustíg. Myntute Hellið sjóðandi vatni yfir gott búnt af ferskum myntulaufum og látið standa um stund. Gott er að hræra aðeins í tekatl- inum til þess að ná sem mestu úr lauf- unum. Berið fram í teglösum, með kandís eða hunangi eftir óskum. Mojito 3 lime bátar lófafylli af myntu 2-3 msk hrásykur sletta af Sprite 3 cl ljóst romm sódavatn mulinn ís Limebátarnir eru settir neðst í glasið og myntulauf og svo sykurinn þar ofaná. Sletta af Sprite er því næst sett í glasið og allt sem í glasinu er því næst mulið saman með mortéli. Glasið er þá fyllt með muldum ís og romminu hellt yfir. Síðast er sódavatni bætt út í. Þessi drykkur er líka mjög góður óáfengur og er þá gerður alveg eins, nema að romminu er sleppt. Þá má jafn- vel nota sódavatn sem er með léttu ávaxtabragði. Morgunblaðið/Sverrir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.