Morgunblaðið - 12.09.2006, Page 24
neytendur
24 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
U
mtalsverðar verð-
hækkanir hafa orðið
á langflestum mat-
vörum í lág-
vöruverðsverslunum
frá því í upphafi þessa árs og í
mörgum tilvikum nema hækk-
anirnar vel á annan tug prósenta.
Þetta kom í ljós hjá verðlagseft-
irliti ASÍ þegar verðkönnun verð-
lagseftirlitsins frá því í janúar sl.er
borin saman við könnun í lág-
vöruverðsverslunum sem gerð var í
síðustu viku.
Á sama tíma hefur vísitala mat-
ar- og drykkjarvöru hækkað um
6,4%.
Mikil hækkun á mjólkurvörum
Borið er saman verð á algengum
neysluvörum úr ýmsum flokkum,
sem skoðaðar voru í báðum könn-
unum. Í fréttatilkynningu frá verð-
lagseftirliti ASÍ er bent á að áber-
andi sé hversu mikil hækkun hefur
orðið á mjólk og öðrum mjólkuraf-
urðum á tímabilinu. „Lítri af mjólk
hefur hækkað um 16–17 % í öllum
lágvöruverðsverslunum nema
Nettó, þar sem hann hefur hækkað
um 40% frá því í janúar. Meðalverð
á mjólkurlítra í þessum verslunum
er nú kr. 75 en var kr. 61 í upphafi
árs. Hækkun á öðrum mjólk-
urvörum er enn meiri. Stoðmjólk
fyrir ungbörn hefur hækkað um
u.þ.b. 50% í öllum verslunum, kost-
aði að meðaltali kr. 42 í lág-
vöruverðsverslunum í janúar en
kostar nú kr. 63 og lítrinn af súr-
mjólk hefur hækkað um tæp 40% í
öllum verslunum. Af öðrum vörum
má nefna að Camembertostur og
smurostur hækkuðu á bilinu 14%–
20% og meðalverð á öskju af
smjörva hefur hækkað úr kr. 134 í
kr. 154 eða um rúm 15%.“
32% hækkun á hveitibrauði
Verð á brauðmeti hefur einnig
hækkað. Til dæmis hefur ódýrasta
tegund af heilhveitibrauði hækkað
um 32% í Bónus, 16% í Krónunni,
10% í Kaskó og um 4% í Nettó frá
því í janúar. Verð á grænmeti og
ávöxtum sveiflast að jafnaði tals-
vert eftir árstíma.
Mest hækkun var á meðalverði af
hvítkáli, 100% og jöklasalati, 69%,
en mikil hækkun var á öllum teg-
undum sem skoðaðar voru, að und-
anskildum appelsínum, vínberjum
og spergilkáli.
Verð á bleium hefur einnig
hækkað mikið síðan í könnuninni í
janúar. Pakki af Pampers-bleium
nr. 5 var að meðaltali 28% dýrari
nú í september en í janúar sl.
Í fréttatilkynningunni er einnig
athygli vakin á því að verð á for-
pökkuðum brauðosti, sem verð-
merktur er hjá framleiðanda, er
eina varan þar sem verð er óbreytt
milli kannana hjá öllum verslunum.
„Eins og verðlagseftirlitið hefur áð-
ur bent á er forverðmerking mat-
vöru hjá framleiðanda bönnuð og
ætluð til þess að hafa hamlandi
áhrif á eðlilega verðsamkeppni.
Í könnunum verðlagseftirlitsins
hefur sýnt sig að verðsamkeppni á
forverðmerktum matvörum er mun
minni en á annarri matvöru og því
nauðsynlegt að samkeppnisyfirvöld
gangist í það að framfylgja þessu
banni. Eins og ofangreind dæmi
sýna, og berlega hefur komið fram í
verðbólgumælingum Hagstofunnar,
hefur matarreikningur margra
heimila hækkað umtalsvert á liðn-
um mánuðum. Þetta er mikið
áhyggjuefni og hefur áhrif á kjör
allra heimila í landinu. Það er eðli-
legt að neytendur leiti skýringa á
hækkunum upp á tugi prósenta á
almennum neysluvörum eins og
brauði og mjólk á nokkurra mánaða
tímabili, langt umfram hækkun vísi-
tölu neysluverðs“, segir í frétta-
tilkynningunni.
Kannanirnar ná til eftirtalinna
verslana: Bónuss, Krónunnar,
Nettó og Kaskó.
Hér er aðeins um beinan verð-
samanburð að ræða, en ekki er lagt
mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Miklar hækkanir á matvöru
í lágvöruverðsverslunum
, "!!! * - ./#
!
0# ) ' .112
98#.
$.!!"
* "
!' "
E "
Q"
J
=! ' & D!
C '!
0'!R
< D !
#" J( !% J'%
& ,,'! '!
* &
$"S* %
* % "I !
(%
#JS- D
H -& !D
"I !
BR S' DD
GD! (!* !
T &S(!* !
GD! !
( .
<- '
L4 -& (
B &S((
# S(( '
C ( ( S(
= S(D' "
0* %E%
&
B"SR D! %
<'AA'
6, CDJ JS !
': (% .%;
,, %
9,
9, R
0%&%
6
K% D R
E %
6, R
6,
C")
H&%!)
@*!>A D
0% )
, )
B R! %
0 !*(
%
%
%
%
%(
%(
%
%(
%
%
%
%(
%
%(
%
%(
%(
%
%
%
%
%
#
,!
,!
C J!
,!
C J!
,!
C J!
,!
C J!
,!
C J!
"# <%# " # 9% .%
P ! P & !
Morgunblaðið/Árni Torfason
Í könnunum verðlags-
eftirlitsins hefur sýnt sig
að verðsamkeppni á for-
verðmerktum matvörum
er mun minni en á
annarri matvöru.
Buddan Matarreikningur heimila hefur hækkað töluvert undanfarið.
Heimsferðir bjóða beint flug til Kraká í haust, þriðja árið í röð. Þessi
fegursta borg Póllands hefur sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum
og nú bjóða Heimsferðir beint flug til Kraká. Borgin er friðlýst af
UNESCO, enda býr hún að 1000 ára
sögu sem helsta menningarborg
Póllands og fyrrum höfuðborg.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Kraká
í haust
frá kr. 19.990
Fegursta borg Póllands
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr.19.990
Flug báðar leiðir með sköttum, m.v. 2 fyrir 1
tilboð, út 23. eða 29. okt. og heim 26. okt.
eða 2. nóv. Netverð á mann.
Verð kr.36.734
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í 3 nætur á
Hotel Eljot með morgunmat, 23. október.
Beint flug
19. okt. - UPPSELT
23. okt. - laus sæti
26. okt. - örfá sæti
29. okt. - laus sæti
2. nóv. - UPPSELT
Frábærir
flugtímar
- beint
morgunflug