Morgunblaðið - 12.09.2006, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 12.09.2006, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 27 Þótt deila megi um nákvæmasætaskipan á listanum yfirbestu háskóla heims ernokkuð góð sátt um hverjir tilheyri hinum 100 bestu. Nánast allir skólar sem lenda á slíkum listum eiga það sameiginlegt að leggja mikla áherslu á rannsóknir. Þessi fylgni milli framúrskarandi rannsókna og þess hversu eftirsóknarverðir skólar eru er ekki tilviljun. Ástæðan er að eðli (góðra) rann- sókna er að þær snúast um frum- kvöðlastarf, hugmyndaauðgi og út- sjónarsemi, auk umfangsmikillar þekk- ingar og þrotlausrar vinnu. Það er ekki sjálf- gefið að góðir vís- indamenn séu góðir kennarar, en það er þó augljóst að virkur vís- indamaður er líklegri til að miðla nemendum sín- um nýlegri og ferskri þekkingu en sá sem ekki stundar eigin rann- sóknir. Mikilvægast er þó að virkur vísindamaður getur þjálfað nemendur sína í þeim vinnubrögðum sem einkenna góð vís- indi, og búið þá þannig undir skapandi starf, sama á hvaða vettvangi það er. Rannsóknir og atvinnulíf Einn helsti ávinningurinn sem Ís- land gæti haft af öflugum háskóla er efnahagslegur. Fjöldinn allur af stór- fyrirtækjum hefur beinlínis sprottið upp úr rannsóknaumhverfi háskóla. Eitt þekktasta dæmið um slík fyr- irtæki er Google, en það er þó aðeins toppurinn á ísjaka. Sú hátækni sem er drifkrafturinn í efnahag þróaðra samfélaga hvílir á grunni vísindarannsókna. Bilið milli háskólarannsókna og rannsókna sem stundaðar eru í hátæknifyrirtækjum hefur minnkað gríðarlega síðustu fáa áratugi, sem veldur því að samstarf háskóla og fyrirtækja er víða að taka á sig breytta mynd. Það er þó alltaf eðl- ismunur á rannsóknum í þessum tveimur heimum, þegar til lengri tíma er litið, því fyrirtæki leitast við að tak- marka rannsóknir sínar við það sem hagnýtt getur orðið á skömmum tíma, á meðan háskólarannsóknir eru yf- irleitt lausar við slíkar hömlur. Það þýðir að háskólarannsóknir reynast oft gagnslausar í efnahagslegum skilningi, en sá hluti þeirra sem gagnast skapar á hinn bóginn auð sem er margfalt meiri en kostnaðurinn við allt háskóla- starf heimsins. Að sjálfsögðu er mikilvægt að efla rannsóknasamstarf háskóla og fyr- irtækja. En besta leiðin til að hámarka efnahagslegan ávinning af háskóla- rannsóknum er eftir sem áður að hlaða undir afburðavísindamenn og gefa þeim lausan tauminn. Það er grund- vallarregla í flestum háskólum (ekki síst þeim sem mest hafa lagt af mörk- um til efnahagslegra framfara) að vís- indamenn þeirra hafa frjálsar hendur í rannsóknum sínum og vali á viðfangs- efnum, því reynslan sýnir að stýring ofan frá á starfi slíks fólks er dæmd til að mistakast. Hvernig væri þetta hægt? Að byggja upp framúrskarandi há- skóla er ekki létt verk, en það er hins- vegar tiltölulega einfalt. Til þess þarf ekki annað en að safna saman úrvals vísindamönnum, og búa þeim umhverfi sem þeir þrífast í. Þetta gætum við gert á Íslandi ef viljinn væri fyrir hendi, og við þyrðum að horfast í augu við að þurfa að leggja til hliðar alla frændsemi og klíkuskap, og ráða í staðinn alltaf þá bestu sem völ er á, hvort sem þeir heita Guðrún eða Jón eða Ibrahim. Við gætum ef til vill ekki ráðið mikið af þegar heimsfrægum vís- indamönnum, en það er til aragrúi af mjög efnilegu fólki um allan heim sem ekkert vill frekar en tækifæri til að verða leiðtogar í vísindastarfi. Slík uppbygging myndi kosta mikla peninga. Það er nokkuð ljóst að ís- lenska ríkið verður að reiða fram stór- an hluta af þeim, a.m.k. til að byrja með, en einnig að háskólar með metn- að verða líka að sækja sér fjármagn annað. Það væri hins vegar glapræði að byrja á því að ausa fé yfir íslensku háskólana, einn eða fleiri, án þess að þeir hefðu sýnt það með sannfærandi hætti að þeir væru lagðir af stað í þetta ferðalag. Það væri líka glapræði að dreifa því fé sem tiltækt er hugsunarlaust yfir allt háskólanám á Íslandi eða á öll svið tiltekins háskóla. Þó væri enn verra að láta stjórnmálamenn eða stjórnendur innan háskólanna ákveða þessa dreif- ingu. Öruggasta leiðin til að fá sem mest fyrir peningana er að notast við þá mæli- kvarða sem vísinda- samfélagið er löngu búið að koma sér upp, og sem hafa gífurlega fylgni við árangur í rannsókna- starfi. Mat sem byggt er á þessum mælikvörðum fer stöðugt fram í öllu vísindasamfélaginu, bæði innan háskóla og hjá ut- anaðkomandi stofnunum sem veita fé til rann- sókna. Þótt þær aðferðir sem notaðar hafa verið við slíkt mat séu ekki fullkomnar hefur engum tekist að finna aðrar betri. Þetta þýðir að umtalsverðu fé til rannsókna á fyrst og fremst að veita til einstaklinga og rannsóknahópa sem hafa þegar sýnt árangur og eru þess vegna líklegir til afreka í framtíðinni. Þótt samstarf vísindamanna, oft í stórum hópum, verði æ algengara og árangursríkara, er það þó ein- staklingsframtak sem er drifkraft- urinn í öllu vísindastarfi. Þess vegna er háskalegt að ákveða fyrirfram í hvers konar rannsóknaverkefni eigi að veita styrki, áður en vitað er að þar starfi burðugra fólk en í öðrum greinum. Stærstu styrkir sem að öllu jöfnu eru veittir af opinberu fé til rannsókna á Íslandi eru um 10 milljónir á ári (Öndvegisstyrkir Rannsóknasjóðs). Það samsvarar litlu meira en heild- arkostnaði fyrir einn starfsmann í há- skóla. Við ættum ekki að skera niður þá (smáu) styrki til einstaklinga sem nú eru allsráðandi, en hins vegar að stórauka það fé sem lagt er í rann- sóknir og nota allt nýja féð til að veita myndarlega styrki einstaklingum og hópum sem skara fram úr á al- þjóðavettvangi, ekki síst með það að markmiði að fá margt slíkt fólk til að setjast að hér á landi. Útrás íslenskra háskóla? Góðir háskólar eiga það sammerkt að laða til sín góða nemendur, sem eru nauðsynlegir því frjóa umhverfi sem háskóli verður að vera. Ekki síst er það lífsnauðsynlegt að hafa afburða- nemendur í doktorsnámi, sem er einn helsti drifkraftur rannsóknastarfs. Augljós afleiðing af þessu er að við verðum að fá til landsins fjölda er- lendra nemenda, og reikna með að á flestum sviðum doktorsnáms verði þeir í miklum meirihluta. Þessir er- lendu nemendur eru ekki bara nauð- synlegir rannsóknaumhverfinu, heldur líka einn besti mælikvarðinn á hversu góða skóla við eigum. Ef okkur tekst að laða hingað góða nemendur erlendis frá munu þeir skapa landinu miklu meiri auð en sem nemur kostnaðinum sem af hlýst. Hins vegar ættum við ekki að letja Íslendinga til að sækja sér menntun erlendis, því þannig eflum við best tengslin við alþjóðasamfélag vís- indanna, að því tilskildu að við getum boðið bestu vísindamönnunum aðlað- andi rannsóknaumhverfi að flytja heim í aftur. Vísindastarf er í eðli sínu alþjóðlegt, hvort sem um er að ræða rannsóknir í eðlisfræði eða á íslenskum fornbók- menntum. Að halda því fram að við eigum að hafa önnur viðmið en í al- þjóðasamfélagi vísindanna á hverju sviði er að segja að íslensk vísindi eigi ekki að vera fyrsta flokks. Þess vegna þurfum við líka, vegna smæðar ís- lenska samfélagsins, að nota erlenda sérfræðinga í miklu meira mæli en gert er þegar íslenskt vísindastarf er metið og styrkjum úthlutað. Ekki síst ætti að fara fram reglulegt mat á rann- sókna- og kennslustarfi íslenskra há- skóla, sem til væru fengnir óháðir er- lendir aðilar. Það verða aldrei til gæðastaðlar um háskólastarf, en það kemur ekki í veg fyrir að hægt sé að fá glögg gests augu til að meta það. Er HÍ eina vonin? Því er stundum haldið fram að Há- skóli Íslands sé eini raunverulegi há- skóli landsins, og óskynsamlegt sé að byggja upp vísindastarf annars staðar. Þótt ríkisrekstur háskóla sé ef til vill skynsamlegur er rétt að benda á að HÍ er að því leyti frábrugðinn rík- isháskólum í nágrannalöndum okkar að hann var lengi ríkiseinokunarfyr- irtæki, og slík einokun er ekki endilega holl. Reyndar má færa fyrir því ýmis rök að einokunaraðstaða HÍ yrði ekki líkleg til framdráttar vísindarann- sóknum á Íslandi, af því að skólinn sýni ýmis merki skrifræðis og skorts á sveigjanleika og áræði, sem komi í veg fyrir að hann geti verið í fararbroddi. HÍ á talsvert af ágætum vís- indamönnum, og þar af nokkra sem augljóslega standa framarlega á al- þjóðvettvangi (þótt það sé reyndar slá- andi hversu fáir erlendir vísindamenn starfa við skólann). Skólinn hefur þó ekki þorað að gera þessu fólki hátt undir höfði, en í staðinn komið sér upp stigakerfi við mat á vísindastörfum. Þetta er dæmigert skriffinnskukerfi, þar sem yfirvöld þora ekki að meta verðleika einstaklinga og verka þeirra, heldur einskorða sig við hugs- unarlausa talningu á þessum verkum. Kerfið umbunar ekki aðeins fyrir alls kyns undirmálsvinnu, heldur hvetur beinlínis til slíkra vinnubragða. Að breyta þessu verður sársaukafullt, en er engu að síður óhjákvæmilegt ætli HÍ sér eitthvað með þeim metn- aðarfullu yfirlýsingum sem gefnar hafa verið út síðustu mánuðina. Það er engin ástæða til að ætla ann- að en að HÍ muni taka virkan þátt í samkeppninni um að koma upp fram- úrskarandi háskólastarfi í landinu. Hins vegar er óráðlegt að víkja öðrum keppendum af velli áður en HÍ er einu sinni kominn í hlaupaskóna. Er þetta hægt? Þeir sem halda því fram að ekki sé hægt að byggja upp afburða háskóla á Íslandi hefðu trúlega kallað það of- metnað fyrir tuttugu árum að Ísland gæti eignast nokkur hátæknifyrirtæki í fremstu röð á sínum sviðum í heim- inum. Þeir sem segja að óskynsamlegt sé að veðja á fleiri en einn skóla í þeim efnum ættu að svara spurningunni hvort betra væri ef á Íslandi væri að- eins einn banki með umtalsverð umsvif á alþjóðavettvangi. Það má vel vera að skynsamlegt verði að sameina einhverja (hluta) þeirra háskóla sem nú starfa hér, og hugsanlega einnig að skipta þeim upp á nýtt, ef ætlunin er að búa til háskóla á heimsmælikvarða. Enn um sinn er þó vænlegra til árangurs að þeir skólar sem einhvern metnað hafa keppi sín á milli um að laða til sín bestu vís- indamennina, og bestu nemendurna, og þá ekki síst erlendis frá. Það tekur ef til vill lengri tíma að byggja upp afburða háskóla en há- tæknifyrirtækin sem hér starfa. Áhætt- an við slíka fjárfestingu er hins vegar mun minni, og góð ávöxtun er nánast tryggð ef rétt er staðið að málum. Getur Ísland eignast háskóla í fremstu röð? Eftir Einar Steingrímsson » Að byggja upp fram-úrskarandi háskóla er ekki létt verk, en það er hinsvegar tiltölulega einfalt. Til þess þarf ekki annað en að safna saman úrvals vísindamönnum, og búa þeim umhverfi sem þeir þrífast í. Höfundur er prófessor í stærðfræði við Háskólann í Reykjavík og við Chalm- ers-tækniháskólann í Gautaborg. Einar Steingrímsson breyta r upp- ds að sjón- ru 1–2 nd og askóla ð víða nnslu í ntuðu lag og a m átta til að hlutun sjón- indra- ofnun- ar á sviði útgáfu námsgagna fyrri blinda, sjónskerta og nemendur með dyslexíu og komið á íslenskri blindraletursnefnd sem hefði það hlutverk að vinna að stöðlun og þróun blindraleturs. Einnig lagði samráðshópurinn til að komið yrði á föstu samstarfi við þekkingarmið- stöðvar á öðrum Norðurlöndum og að þeim tilmælum yrði beint til kennaramennntunarstofnana að þær fjölluðu um kennslu blindra og sjónskertra í almennu grunnnámi kennara. Þá var lagt til að tilmæl- um yrði beint til framhaldsskóla og háskóla um að skólarnir settu sér reglur um sértæk úrræði í námi, líkt og gert hefði verið í Háskóla Ís- lands. Ennfremur að kannaðir yrðu kostir þess að með breytingu á lög- um og reglugerðum yrðu framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna hvers fatlaðs nemanda tengd við- komandi einstaklingi og skylt að nýta framlagið til þjónustu við hann og í samráði við aðstandendur hans. Að lokum lagði hópurinn til að þeim tilmælum yrði beint til stofnana á vegum ríkis og sveitar- félaga að við hönnun og framsetn- ingu efnis á netinu yrði tekið mið af þörfum blindra og sjónskertra. Staðan versnað utan höfuðborgarsvæðisins Því var haldið fram í samráðs- hópnum að þjónusta utan höfuð- borgarsvæðisins væri verri núna en áður. Þótt búið væri að greina nemendur væri ekki kallað eftir þjónustu, hvorki Sjónstöðvar né blindradeildar, m.a. vegna þekk- ingarleysis og kostnaðar við þjón- ustuna fyrir sveitarfélögin. töð vegna uðsynleg Morgunblaðið/Þorkell öðu hvað varðar rekstrargrundvöll og yfirstjórn málefna blindra nemenda. anemendur. Blindrabókasafnið námsgögnum fyrir blinda og amhaldsskólastigi og fyrir full- áðuneytið fer með málefni fatl- g hefur yfirumsjón með Jöfn- arfélaga en þaðan fá sveitar- fjármunum vegna kennslu veðnum reglum, þar með talið jónskerta. Greiningar- og ráð- gjafarstöð ríkisins heyrir einnig undir félags- málaráðuneytið, en sú stöð kemur að málefn- um blindra og sjónskertra með ýmsum hætti. Heilbrigðisráðuneytið tengist málefnum blindra og sjónskertra einkum gegnum Sjón- stöð Íslands, sem heyrir undir ráðuneytið. Stöðin veitir sjónskertum m.a. þjónustu á borð við sjúkdómsgreiningu, sjónmælingu og út- hlutun sérhæfðra hjálpartækja, þjálfun í notk- un hjálpartækja og hvers konar endurhæfingu. neyta NGRÍMUR Sigurgeirsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, sagði alveg að samkvæmt grunnskólalögum væri ábyrgðin á rekstri grunnskóla á sveitarfélaganna. Það ætti jafnt við um almenna kennslu, sérkennslu og æðiþjónustu. Hann benti á að á sínum tíma hefði verið gerður samningur sveitarfélögin tækju við sérdeildunum sem þá voru reknar af ríkinu. purður sagði Steingrímur að ráðuneytið hefði ákveðið eftirlitshlutverk með i grunnskóla en tók aftur fram að ábyrgðin væri hjá sveitarfélögunum. n tók einnig fram að fjárskortur ætti ekki að standa í vegi fyrir að þjón- væri veitt, heldur væri vandamálið frekar að erfitt hefði reynst að finna eð rétta sérþekkingu. Rætt hefði verið um að ráða blindrakennsluráðgjafa veita ráðgjöf á bæði grunnskóla- og framhaldsskólastigi. Ef það yrði raun- ði um að ræða sameiginlegt verkefni ráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og narsjóðs sveitarfélaga. „Viðræður standa yfir. Lausn verður að nást sem enda óviðunandi að engin kennsluráðgjöf standi blindum og sjónskertum til toðarmaður menntamálaráðherra eitarfélögin bera ábyrgð á kstri grunnskólanna í landinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.