Morgunblaðið - 12.09.2006, Page 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
GEGGJUÐ GRÍNMYND
eee
LIB - TOPP5.IS
eee
HJ - MBL
eee
TV - kvikmyndir.is
Tvöfalt fyndnari tvöfalt betri
GRETTIR ER MÆTTUR AFTUR Í BÍÓ!
eeee
VJV - TOPP5.is
THANK YOU
FOR SMOKING
TAKK FYRIR
AÐ REYKJA
Ein fyndnasta
mynd ársins
My super ex-girlfriend kl. 8 og 10
Þetta er ekkert mál kl. 8
Little Man kl. 6 B.i. 12 ára
You, Me & Dupree kl. 10
Grettir 2 m. ísl. tali kl. 6
kvikmyndir.is
Stórir hlutir koma í litlum umbúðum
Þetta er ekkert mál kl. 5.45, 8 og 10.15
Þetta er ekkert mál LÚXUS kl. 5.45, 8 og 10.15
My Super-Ex Girlfriend kl. 5.50, 8 og 10.10
Little Man B.i. 12 ára kl. 4, 6, 8 og 10
Takk fyrir að reykja kl. 8
Grettir 2 kl. 4 og 6 m.ísl.tali
Miami Vice kl. 10.10 B.i. 12 ára
Ástríkur og Víkingarnir kl. 4
eeee
Heiðarleg, fróðleg og
bráðskemmtileg mynd
- S.V. Mbl.
Mögnuð heimildarmynd um ævi Jóns Páls Sigmarssonar.
Mynd sem lætur engan ósnortinn
Meistarar koma
og fara en
goðsögnin mun
aldrei deyja!
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569
1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Enda þótt Víkverjisé af og til að slá
ryki í augu lesenda
Morgunblaðsins með
því að binda trúss sitt
við hin og þessi lið í
ensku knattspyrnunni
er hann vitaskuld
gegnheill Arsenal-
maður og verður með-
an honum endist aldur.
Sumarið hefur verið
stuðningsmönnum
þessa fornfræga félags
erfitt. Lengstu og leið-
inlegustu félagsskipta-
sögu seinni tíma lauk
loksins tveimur mín-
útum áður en lokað var tímabundið
fyrir leikmannakaup í Englandi, 31.
ágúst sl. Enski landsliðsbakvöð-
urinn Ashley Cole gekk til liðs við
Chelsea.
Ekki þarf að rekja þetta lang-
dregna mál fyrir lesendum, svo ít-
arlega hefur verið um það fjallað, en
kjarni málsins er sá að einn besti
vinstri-bakvörður sem Arsenal hef-
ur haft í sínum röðum hvarf á braut.
Drengur sem ólst upp á áhorf-
endabekkjunum á Highbury og
braust af harðfylgi inn í stjörnum
prýtt lið Arsenal um síðustu alda-
mót. Margir sáu í honum framtíð-
arfyrirliða Arsenal.
En eitthvað fór
svona hryllilega úr-
skeiðis bak við tjöldin.
Ágreiningur um launa-
kjör virðist hafa leitt til
þess að samband Cole
við David Dein, hús-
bónda á Emirates
Stadium, stirðnaði. Að
því er virðist lítur Cole
svo á að hann hafi verið
svikinn. Sína hlið á
málinu mun hann þó
reifa betur í end-
urminningum sínum
sem væntanlegar eru
síðar í mánuðinum.
Þá fór Cole, sem
frægt er, að leita hófanna hjá
Chelsea fyrir hálfu öðru ári. Upp frá
því var ekki aftur snúið enda höfðu
Arsenal-menn lítinn smekk fyrir
þessu baktjaldamakki.
Það breytir því þó ekki að Ashley
Cole gaf aldrei þumlung eftir meðan
hann lék fyrir Arsenal og skarð hans
verður vandfyllt enda þótt Gaël
Clichy sé efni í afburðamann líka.
Ólíklegt er þó að stuðningsmenn
Arsenal muni eftir þessu þegar Cole
mætir með Chelsea á Emirates
Stadium næsta vor ef marka má orð-
bragðið sem þeir hafa haft um hann
á spjallrásum að undanförnu. Kapp-
inn má búa sig undir yfirhalningu.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Orð dagsins: Þá er þeir mötuðust, tók Jesús brauð,
þakkaði Guði, braut það og gaf lærisveinunum og
sagði: Takið og etið, þetta er líkami minn.
(Matt. 26, 26.)
Í dag er þriðjudagur
12. september, 255. dag-
ur ársins 2006
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Ljótasta safn í heimi er í París?
PARÍS falleg og rómantísk. En oft
er flagð undir fögru skinni. Fegurðin
er ekki bara rómantík og rómantíkin
ekki alltaf falleg.
Borgin á sér sögu. Og borgin á sér
líka mikilmennsku! Hana má í raun
sjá allt of oft.
Þar er svart – hvítt og hvítt iðandi
af mannlífi sem drekkur rautt vín.
Þar eru glæsihallir hégómans og
hreysi þeirra þiggjandi. Þar eru
flestir útigangsmenn sem ég hef séð
á einum degi hvert sem ég hef farið.
Og það segir meira en allt um
franska menningu. Það segir meira
að segja um hvernig franska rauð-
vínið er í dag. Þar eru líka lengstu
biðraðir sem ég hef séð. Og þar er
líka dýrasta kók sem ég hef drukkið.
Þar er líka hallærislegasta „lista-
mannahverfi“ í allri Evrópu og þó
víðar væri leitað. Þar er líka glæsi-
legasta nútímasafn og ljótasta óp-
eruhús sem hægt er að finna.
Hvað er í raun betra ? Þú ert sam-
mála því sem þú sérð í eina mínútu
en næst ósammála því sem þú varst
sammála!
Hvað mundir þú t.d. segja ef
þjónn á Íslandi rukkaði þig um 580
krónur fyrir kók í glasi, og gerði það
með bros á vör? Eða hvað mundir þú
segja ef hótelherbergið þitt kostaði
yfir 20.000 krónur nóttin, og þá er-
um við ekki að tala um neitt sem lík-
ist Hótel Eddu eða glæsilegu gisti-
húsi á Íslandi. Við erum bara að tala
um að geta skáskotið ferðatöskunni
sinni inn í herbergið, tannburstað
sig inni á salerni og lagst upp í
gormarúm með teppi fyrir sæng.
Sem sé Parísar lúxus fyrir tvo ef þú
vilt hafa það svo.
En hvað svo? Svo hefst hið mikla
ráp. Skoða Sigurbogann, söfnin,
Eiffelturninn, söguslóðir, hallir,
garða, Versali … og allt ber þetta að
sama brunni. Öll sagan er um eitt-
hvað sem kemur nútímanum ekkert
við. Við nútíminn erum ekki til í tím-
anum. Við erum bara látin sjá það
sem gerðist fyrir hundrað árum eða
meira. Nútíminn er ekkert. Ekkert!
Og ekki tekur betra við ef farið er í
Louvre-safnið. Þar er versta og ekki
sú allra versta, heldur sú allra allra
versta upphenging á verstu og bestu
verkum sem hægt er að sjá í öllu
Frakklandi. Það er reynt að troða
öllu sem Frakkland á í heljarinnar
mikla og langa ganga, og út um allt
og upp um allt. Og loks Mona Lisa –
Búmm. Það er í raun frábært að
komast út úr iðrum þessa skrímslis.
Út í ferskt loft.
Og við túrhestarnir – glápum úr
okkur augun – Vá!
Þvílík hörmung og þvílík aft-
urhnignun. Er þetta virkilega „líb-
ertíið“ sem Frakkar hafa upp á að
bjóða í dag? Meira að segja vínið er
orðið vont miðað við það sem hægt
er að kaupa í ríkinu á Íslandi í dag!
Hvað varð eiginlega um hina róm-
antísku Fransmenn og hina róm-
antísku og metnaðarfullu listamenn
Frakklands?
Því miður! París – nei takk.
Reykjavík – já takk.
Guðmundur R. Lúðvíksson,
myndlistarmaður.
Hjól hvarf frá Kórsölum
STÚLKNAHJÓL hvarf frá Kórsöl-
um 5 sl. sunnudag 3. september.
Hjólið heitir Author og er 24" hvítt
fjallahjól. Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 822 9943.
70ára af-mæli.
Magnús Rósin-
krans Jónsson
varð sjötugur 9.
september sl. Af
því tilefni langar
fjölskyldu hans að
bjóða til móttöku í
húsnæði Garra
ehf. að Lynghálsi
2, þriðjudaginn
12. september milli kl. 17–19.
80 ára afmæli.Í dag, 12.
september, er átt-
ræður Bolli A.
Ólafsson, hús-
gagnasmiður, nú
búsettur í Sunnu-
hlíð í Kópavogi
ásamt eiginkonu
sinni Svanhildi M.
Júlíusdóttur.
Rapparinn Puff Daddy, Puffy, PDiddy, Diddy eða Sean Combs
líkt og hann heitir réttu nafni neyð-
ist til að skipta um nafn enn eina
ferðina eftir að breskur útsetjari,
sem kallar sig Diddy, fór í mál við
Combs. Kornið sem fyllti mælinn
var ákvörðun P Diddy um að hætta
að notast við stafinn P í hinu nýja
nafni sínu. Fóru þá hinum breska
Diddy að berast undarlegir tölvu-
póstar, m.a. frá dansmeyjum og
fatahönnuðum sem vildu starfa með
rapparanum.
Combs þarf að greiða Diddy
100.000 pund í lögfræðikostnað og
10.000 pund til viðbótar í skaðabæt-
ur. Meginkostnaður Combs liggur
þó væntanlega í markaðssetningu á
nýju nafni í kjölfar dómsins.
Fólk folk@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu.
Tilkynningar þurfa að ber-
ast með tveggja daga fyrir-
vara virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir sunnu-
dags- og mánudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og símanúm-
er.
Fólk getur hringt í síma
569-1100 eða sent á netfangið
ritstjorn@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
„Rock ’N’ Roll Star“, „Some
Might Say“, „Talk Tonight“, „Lyla“,
„The Importance Of Being Idle“,
„Wonderwall“, „Slide Away“,
„Cigarettes & Alcohol“, „The Mast-
erplan“, „Live Forever“, „Ac-
quiesce“, „Supersonic“, „Half The
World Away“, „Go Let It Out“,
Fyrsta safnplata Oasis, Stop TheClocks, kemur út 20. nóvember
næstkomandi, en sveitin hefur nú
verið starfandi í 12 ár. Meðlimir
sjálfir völdu lögin á plötuna og nú
hefur lagalistinn loksins verið stað-
festur. Hann er sem hér segir, og nú
geta aðdáendur farið að rífa skegg
sitt og rökræða kosti hans og galla.
Ég meina, af hverju er „(setjið inn
eftir smekk)“ ekki á plötunni?
„Songbird“, „Morning Glory“,
„Champagne Supernova“ og „Don’t
Look Back In Anger“.
Breski sjónvarpskokkurinnJamie Oliver vandar for-
eldrum sem senda börnin sín með
ruslmat sem nesti í skólann ekki
kveðjurnar og kallar slíka foreldra
„fífl“. Oliver segist vera búinn að
fá sig fullsaddan af því að vera
kurteis. Sjö af hverjum tíu nest-
ispökkum sem bresk börn komi
með í skólann séu „til skammar“.
Frá þessu greinir Ananova og
hefur eftir The Sun.
Oliver les foreldrum skólabarna
pistilinn í nýjum sjónvarpsþætti