Morgunblaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 255. TBL. 94. ÁRG. FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
SÚPA VIÐ KVEFINU
HÚN ÓLÖF ÓSK KAUPIR GRÆNMETI, GRÓFT
BRAUÐ OG FISK EN EKKI KJÖT EÐA SYKUR >> 25
VISTASKIPTI
ÚR SJÁVARSTÚSSI
Í FJÁRMÁLIN
ARNE VAGN >> VIÐSKIPTI
Opið til 21
Haust- og
vetrartískan Sameinuðu þjóðunum. AFP. | Vinstrimaðurinn Hugo Cha-vez, forseti Venesúela, úthúðaði George W. Bush
Bandaríkjaforseta í ræðu sinni á allsherjarþingi Sam-
einuðu þjóðanna í gær og kallaði hann „lygara“, „djöf-
ul“, og „harðstjóra“.
„Djöfullinn kom hér í gær og þessi staður angar enn
af brennisteini,“ sagði Chavez og vísaði þar með til
ræðu Bandaríkjaforseta á þinginu í fyrradag. „Hann
kom hingað og talaði líkt og hann ætti heiminn,“ sagði
forsetinn, sem hvatti til að dregið yrði úr áhrifum
Bandaríkjastjórnar hjá Sameinuðu þjóðunum.
Rökstuddi hann þetta með því, að „heimsvalda-
stefna“ Bandaríkjamanna væri „ógn“ við framtíð
mannkynsins og að forseti landsins boðaði „sýndarlýð-
ræði elítunnar“. Sagði hann hug-
myndir Bush um lýðræði slíkar, að
þær væru verðugt viðfangsefni kvik-
myndar eftir leikstjórann víðfræga
Alfred Hitchcock, sem bæri heitið
„Uppskrift djöfulsins“.
Chavez lagði jafnframt til, að höf-
uðstöðvar SÞ yrðu fluttar frá New
York, Venesúeala væri hentugri
staður fyrir þær.
Frederick Jones, talsmaður
Bandaríkjastjórnar í öryggismálum,
neitaði að bregðast við ummælunum, „þau væru ekki
svaraverð“.
Chavez úthúðaði Bush
Uppnefndi forseta Bandaríkjanna „djöful“ og „harðstjóra“
Chavez ávarpar
allsherjarþingið.
UMFERÐARÖRYGGI er stórlega
ábótavant við Háaleitisbraut að
mati foreldra barna í hverfinu en
þar var ekið á unga stúlku á gang-
braut í gærmorgun. Foreldraráð
Álftamýrarskóla og leikskólanna
Álfta- og Múlaborgar telja nauð-
syn á grundvallarbreytingu á um-
ferðarhraða og frágangi göt-
unnar. Foreldraráðin hafa lagt
fram tillögur til úrbóta fyrir borg-
aryfirvöld en ekki hefur enn orðið
af framkvæmdum.
Við götuna búa mörg börn sem
eiga leið yfir hana, í skóla, í tóm-
stundir og fleira. 13 þúsund bílar
fara um þennan vegarkafla á sól-
arhring samkvæmt tölum frá
Reykjavíkurborg. Gangbraut-
arljós voru sett upp á staðnum
fyrir áratug. | 4Morgunblaðið/ÞÖK
Íbúar
krefjast úr-
bóta strax
SONTHI Boonyaratglin, herforingi og tals-
maður valdaránsmanna á Taílandi, sagðist í
gær mundu gegna embætti forsætisráð-
herra í tvær vikur, eða þangað til nýr maður
yrði fundinn í embættið. Jafnframt sagði
Sonthi valdaránsmenn njóta stuðnings
Bhumibol Adulyadej, konungs Taílands, en
ný skoðanakönnun bendir til, að mikill
meirihluti almennings styðji valdaránið.
„Næstu almennu kosningar munu von-
andi fara fram í október á næsta ári,“ sagði
Sonthi, sem bætti því við að um sama leyti
væri reiknað með að ný stjórnarskrá yrði
tilbúin. Á næstu tveimur vikum verður hins
vegar unnið að ritun bráðabirgðastjórnar-
skrár, sem mun gilda þar til að ári.
Á sama tíma flaug Thaksin Shinawatra,
forsætisráðherra Taílands, frá New York
til London. Thaksin hafði áður frestað fyr-
irhugaðri ræðu sinni á allsherjarþingi Sam-
einuðu þjóðanna vegna ólgunnar heima fyr-
ir en óvissa hafði ríkt um hvort hann myndi
snúa aftur til Taílands.
Þeirri óvissu var ekki eytt í gær eftir að
Surapong Suebwonglee, talsmaður stjórn-
arinnar, sem var í för með Thaksin, sagði þá
„verða að sætta sig við það sem hefði
gerst“. „Við erum ekki á leiðinni heim á
næstunni,“ sagði Surapong alvarlegur í
bragði.
Hervörður Hermenn fylgjast með umferð
fyrir utan þinghúsið í Bangkok í gær.
Kosningar
í Taílandi
að ári liðnu
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Heita kosningum | Miðopna
AP
Eftir Hjört Gíslason og
Hjálmar Jónsson
SAMKOMULAG um skiptingu
landgrunns utan 200 sjómílna milli
Íslands, Færeyja, meginlands
Noregs og Jan Mayen í suðurhluta
Síldarsmugunnar var undirritað í
New York í gær.
Samkomulagið var undirritað af
þeim Valgerði Sverrisdóttur, utan-
ríkisráðherra Íslands, Per Stig
Møller, utanríkisráðherra Dan-
merkur, Jóannes Eidesgaard, lög-
manni Færeyja, og Jonas Gahr
Støre, utanríkisráðherra Noregs
Valgerður Sverrisdóttir utanrík-
isráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið frá New York í gær
að öll mál sem vörðuðu viðurkenn-
vitað til þess að einhverjar stór-
kostlegar náttúruauðlindir væru í
Síldarsmugunni, svo sem olía, væri
niðurstaðan engu að síður mikil-
væg og ekki væri ólíklegt að þarna
gætu verið um ýmsar aðrar auð-
lindir að ræða.
Samningsvilji
Hún bætti því við að komið hefði
fram glögglega í þessum viðræðum
gagnkvæmur samningsvilji Ís-
lands og Noregs og hún teldi að
það gæti þýtt auknar líkur á að
þjóðunum tækist að leysa önnur
deilumál sem þær hefðu átt í, til að
mynda varðandi fiskistofna eins og
norsk-íslensku síldina.
mjög mikilvægt við þetta sam-
komulag að það væri fordæmisgef-
andi fyrir Hatton-Rockall svæðið,
sem væri mjög mikilvægt svæði
fyrir Ísland.
Valgerður sagði að þó ekki væri
ingu á landgrunnsréttindum Ís-
lands skiptu máli. Þarna væri um
að ræða svæði sem væri yfir 29
þúsund ferkílómetrar að stærð.
„Við höfum tekið virkan þátt og
höfðum í raun frumkvæði að því að
út í þessa vinnu var farið vegna
þess að við teljum að það skipti
máli að þjóðirnar séu búnar að ná
niðurstöðu sín á milli áður en mál
sem þessi eru send fyrir land-
grunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna.
Hún fjallar um þetta mál og þar
þurfa þjóðirnar að sýna fram á til-
kall til viðkomandi svæðis. Við telj-
um að við Íslendingar munum ekki
eiga í neinum erfiðleikum með að
sanna okkar rétt á þessu svæði,“
sagði Valgerður ennfremur.
Hún sagði að það væri einnig
Samið um skiptingu land-
grunns í Síldarsmugunni
Í HNOTSKURN
»„Samkomulagið markartímamót í landgrunns-
málum á Norðaustur-
Atlantshafi enda er það hið
fyrsta sinnar tegundar þar.“
» Íslensk stjórnvöld hafaeinnig sett fram kröfur
um landgrunnsréttindi á
Hatton Rockall-svæðinu.
Mikilvægt | 12