Morgunblaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Atvinnuauglýsingar Afgreiðslustarf í Laugarnesapóteki Í boði eru góð kjör og vinalegt starfsumhverfi. Þjónustulund, lipurð í samskiptum og bílpróf skilyrði. Nánari upplýsingar gefur Hanna María í síma 893 3141/hanna@apotek.is Laugarnesapótek ehf., Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík. Raðauglýsingar 569 1100 Atvinnuhúsnæði Tangarhöfði – hagstæð leiga Glæsilegt 200 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð til leigu. Skiptist í rúmgott anddyri, 7 herbergi með parketgólfi, fundar- og eldhúsaðstöðu, geymslu og snyrtingu. Uppl. í síma 693 4161. Félagsstarf Aðalfundir sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði Stjórnir sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði boða til aðalfunda félaganna í Sjálfstæðishúsinu, Strandgötu 29, fimmtudaginn 28. september nk. og hefjast þeir allir kl. 20.00. Sjálfstæðisfélögin í Hafnarfirði eru: Fram, landsmálafélag Stefnir, félag ungra sjálfstæðismanna Vorboði, félag sjálfstæðiskvenna Þór, félag sjálfstæðismanna í launþegastétt Á dagskrá fundanna eru hefðbundin aðalfund- arstörf. Nánari upplýsingar eru á vefsíðu sjálfstæðis- félaganna, www.xdhafnarfjordur.is . Að loknum aðalfundum verða boðnar veitingar í sal Sjálfstæðishússins. Félagar sjálfstæðisfélaganna eru hvattir til að mæta vel og nýir félagar eru sérstaklega boðnir velkomnir. Stjórnir sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði. Tilkynningar Próf í verðbréfaviðskiptum veturinn 2006-2007 Prófnefnd verðbréfaviðskipta stendur fyrir prófum í verðbréfaviðskiptum veturinn 2006- 2007 sem hér segir: Próf vegna I hluta verða haldin 8., 9. og 13. nóvember 2006, próf í II hluta verða dagana 22., 26. og 29. janúar 2007, próf í III hluta verða haldin 17., 20., 23. og 26. apríl 2007. Lengd hvers prófs er allt að 4 klukkustundir. Í prófsefnislýsingu prófnefndar kemur fram hvaða hjálpargögn eru leyfileg. Hana er hægt að nálgast á heimasíðu viðskiptaráðuneytisins www.vidskiptaraduneyti.is. Um prófin fer samkvæmt reglugerð nr. 633/ 2003 um próf í verðbréfaviðskiptum. Prófin verða haldin í húsakynnum Háskólans í Reykjavík, sem sjá mun um framkvæmd próf- anna. Einkunnir í einstökum prófum eru gefnar í heil- um og hálfum tölum frá 0 til 10. Til þess að standast verðbréfaviðskiptapróf þarf próftaki að hljóta a.m.k. 7,0 í meðaleinkunn úr þeim prófum sem hann hefur þreytt. Próftaki telst ekki hafa staðist einstök próf hljóti hann lægri einkunn en 5,0. Skráning í prófin fer fram hjá Háskólanum í Reykjavík í síðasta lagi viku fyrir hvern próf- hluta í síma 599 6258 eða netfang lilja@ru.is. Prófgjald er kr. 9.500 fyrir hvert einstakt próf. Vakin er athygli á að haustpróf (upptökupróf) verða ekki haldin nema að uppfylltum lág- marks þátttökufjölda (10 manns). Reykjavík, 18. september 2006, Prófnefnd verðbréfaviðskipta. Uppboð Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Skógarhlíð 6, Reykjavík - 5, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Álfheimar 31, 202-1860, Reykjavík, þingl. eig. Gunnar Örn Hjartarson og Helga Soffía Gunnarsdóttir, gerðarbeiðendur Glitnir banki hf. og Tryggingamiðstöðin hf., mánudaginn 25. september 2006 kl. 10:00. Álftamýri 36, 201-4280, Reykjavík, þingl. eig. Ólafur Þorgeirsson, gerðarbeiðandi Álftamýri 36, húsfélag, mánudaginn 25. september 2006 kl. 10:00. Bakkastígur 5, 0201, Reykjavík, þingl. eig. Árni Jóhannesson, gerðar- beiðandi Tollstjóraembættið, mánudaginn 25. september 2006 kl. 10:00. Búðagerði 10, 222-7461, Reykjavík, þingl. eig. Grjótherji ehf., gerðar- beiðandi Tollstjóraembættið, mánudaginn 25. september 2006 kl. 10:00. Faxafen 11, 202-3436, Reykjavík, þingl. eig. GS fasteignir ehf., gerðar- beiðandi Tollstjóraembættið, mánudaginn 25. september 2006 kl. 10:00. Hlíð 8, 208-6331, Kjósarhreppi, þingl. eig. Bergur Geirsson, gerðar- beiðandi Sýslumaðurinn í Kópavogi, mánudaginn 25. september 2006 kl. 10:00. Hraunteigur 28, 201-8977, Reykjavík, þingl. eig. Katrín S. Sigurðsson, gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins B-deild, mánudaginn 25. september 2006 kl. 10:00. Kárastígur 13, 200-6467, Reykjavík, þingl. eig. Guðný Björk Hauksdótt- ir, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, mánudaginn 25. september 2006 kl. 10:00. Langagerði 68, 203-5987, Reykjavík, þingl. eig. Halldóra Kristjánsdótt- ir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 25. september 2006 kl. 10:00. Lækjarbraut 2, 226-8851, Kjósarhreppi, þingl. eig. Guðríður Helen Helgadóttir, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, mánudaginn 25. sept- ember 2006 kl. 10:00. Miklabraut 88, 203-0614, 50% ehl. Reykjavík, þingl. eig. Þorlákur Hermannsson, gerðarbeiðendur Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda og Vátryggingafélag Íslands hf., mánudaginn 25. september 2006 kl. 10:00. Neshamrar 7, 203-8520, Reykjavík, þingl. eig. Gréta Ingþórsdóttir, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, mánudaginn 25. september 2006 kl. 10:00. Reyrengi 4, 221-3740, Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Hafdís Benedikts- dóttir og Halldór Jónsson, gerðarbeiðandi Reyrengi 4, húsfélag, mánudaginn 25. september 2006 kl. 10:00. Síðumúli 31, 225-3673, Reykjavík, þingl. eig. Kvaranshús ehf., gerðar- beiðandi Tollstjóraembættið, mánudaginn 25. september 2006 kl. 10:00. Stórhöfði 17, 204-3271, 21,95% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Skvassfélag Reykjavíkur, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, mánudaginn 25. september 2006 kl. 10:00. Suðurlandsbraut 4A, 221-8032, Reykjavík, þingl. eig. Óm snyrtivörur ehf., gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, mánudaginn 25. september 2006 kl. 10:00. Vesturgata 2, 010101, Reykjavík, þingl. eig. Bryn ehf., gerðarbeiðend- ur Lúmex ehf., Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Tollstjóraembættið, mánudaginn 25. september 2006 kl. 10:00. Völvufell 13, 205-2212, Reykjavík, þingl. eig. Breiðholtsbakarí ehf., gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, mánudaginn 25. september 2006 kl. 10:00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 20. september 2006. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Smiðshöfði 8, 204-3069, Reykjavík, þingl. eig. TF Hús ehf., gerðar- beiðendur Karl K. Karlsson ehf. og Tollstjóraembættið, mánudaginn 25. september 2006 kl. 11:00. Vallarás 4, 205-3405, Reykjavík, þingl. eig. Hallur G. Hilmarsson og Hildur Rún Björnsdóttir, gerðarbeiðendur Fasteignasalan Miðborg ehf., Íslandsbanki hf., útibú 527, Sparisjóður Reykjavíkur og nágr., Tollstjóraembættið og Viðskiptaháskólinn á Bifröst se, mánudaginn 25. september 2006 kl. 14:00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 20. september 2006. Ýmislegt Stofnfjárbréf í Sparisjóði Keflavíkur, SPK ef., óskast til kaups Upplýsingar í síma 445 0130 eða 844 8262. Félagslíf I.O.O.F. 11  1872198½  Landsst. 6006092119 VIII GÞ. I.O.O.F. 5  1869218  Fimmtudagur 21. sept. 2006 Samkoma kl. 20.00 í félagsmið- stöð Samhjálpar í Stangarhyl 3. Vitnisburður og söngur. Predikun Theodór Birgisson. Allir hjartanlega velkomnir. www.samhjalp.is Raðauglýsingar sími 569 1100 Ef ég lít 40 ár aftur í tímann þá birtist mér sú mynd að við Ingunn vorum að draga okkur saman, kaupa íbúð og huga að framtíðinni. Ég var líka að átta mig á frændgarði hennar og stórfjölskyldu. Egill í Skaftahlíð- inni fannst mér vera eins og klettur í hafinu, traustur og sterkur, mjög Egill Hjartarson ✝ Egill Hjartarsonfæddist á Víg- hólsstöðum, Lax- árdal í Dalasýslu 18. mars 1918. Hann andaðist á Drop- laugarstöðum 9. september síðastlið- inn og var jarðsung- inn frá Fossvogs- kirkju 18. september. ákveðinn og með sér- lega ríka réttlætis- kennd. Egill var alltaf mjög fljótur til taks þar sem hjálpar var þörf og fengu þar margir að njóta. Að vera hrein- skiptinn og vinnusam- ur, það voru þeir eðlis- kostir sem hann mat mest. Glettni og glað- værð var honum líka eðlislæg, svo var einnig um hans ágætu konu, Guðrúnu Ólafsdóttur, sem féll frá langtum aldur fram. Hún hafði einstaklega þægilegt viðmót, var alltaf glöð og ekkert með mæðu og áhyggjur. Hennar ljúfa rödd verður mér alltaf í minni þegar hugurinn leitar til baka. Börnin mín urðu þess vör á unga aldri að leigubílstjórinn, Egill afa- bróðir þeirra, var talsvert þekktur maður í bænum. Og víst er um það að hann skar sig nokkuð úr hópi hvar sem hann kom. Glæsileiki og virðulegt fas fór ekki fram hjá neinum, alltaf vel klæddur, með hatt á höfði og kóngur í sínu ríki undir stýri á svörtum Benz R-1831 og mikill töffari að auki. Var þá furða þó ungmennin yrðu stolt af frænd- seminni við Egil? Ég held að öll börn- in mín hafi leitað ráða hjá Agli þegar þau keyptu sér bíla í fyrsta sinn og reyndist það þeim ágætur skóli á þeim frumskógarstígum sem heimur bílaviðskipta hefur oft verið. Ég læt hér fljóta með reynslusögu Egils sonar míns þegar hann fór með nafna sínum og afabróður að kaupa sinn fyrsta bíl. Bílasalinn fann að strákurinn hafði þó nokkurt gull í vösunum en þekkti lítið til bíla og bílakaupa. Hann fór því að halda ýmsu fram sem ekki fékkst staðist í viðskiptum. Þá greip frændi gamli inn í og það ekki á lágu nótunum og gaf sölu- manni slík orð í eyru að ekki gleymist þeim er fyrir verða. Að sjálfsögðu varð ekkert úr bíla- kaupum á þessum stað, en ekki er óvarlegt að ætla að bílasalinn hafi á næstunni hugsað sig tvisvar um áður en hann færi að ljúga að reynslulitlu fólki. Elliárin urðu Agli erfið. Það að geta lítið sem ekkert tjáð sig, en skynja að fullu sitt umhverfi er mikil þraut fyrir svo félagslyndan mann sem Egill Hjartarson var. Hann fæddist frostaveturinn mikla 1918 en lést 9. september s.l., glaður en þreyttur. Bestu kveðjur til fjölskyldu Egils. Erlingur Kristjánsson. MINNINGAR             !      "# $
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.