Morgunblaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÚR VERINU LANDANIR færeyskra fiskiskipa í erlendum höfnum hafa dregizt mjög saman síðustu árin. Á fyrri helm- ingi þessa árs hefur aðeins um 3% af þorsk-, ýsu- og ufsaafla verið landað erlendis, en næstu fjögur ár- in á undan hefur hlutfallið verið á bilinu 13 til 18%. Það eru tvö pró- sent þorskaflans, fjögur af ýsunni og þrjú af ufsanum. Skýringin á minni siglingum skipa með aflann er hátt olíuverð. Það er of dýrt að sigla með fiskinn. Um 17% af afla þessara tegunda, sem landað er í Færeyjum eru síð- an flutt utan óunnin. Það er svipað hlutfall og á síðasta ári. 20% fara óunnin utan nú en voru 30% í fyrra Þegar þetta tvennt er lagt saman kemur í ljós að 20% af umræddum fisktegundum eru flutt óunnin utan, en 80% koma til vinnslu innan lands á árunum 2002 til 2005 hefur hlut- fallið verið þannig að 30% hafa farið óunnin utan, en 70% komið til vinnslu heima fyrir. Á síðustu árum hefur mest verið flutt utan af óunninni ýsu hvort sem miðað er við magn eða verðmæti. Fyrri helming þessa árs var landað um 9.500 tonnum af ýsu og af því fóru 5.700 tonn óunnin utan eða 60%. Á fyrri helmingi síðasta árs kom það fyrir í fyrsta sinn að meira væri flutt utan af óunnum ufsa en ýsu. Bæði á þessu ári og í fyrra fór óverulegur hluti þorsksins óunninn utan. Beint samband er á milli magns og verðs í útflutningi. Þegar mikið fer utan lækkar verðið en hækkar á ný með minnkandi út- flutningi. Þannig hefur verð á ýsu rokkað frá 180 krónum þegar það var hæst niður í ríflega 70 krónur þegar það var lægst. Um þessar mundir fá Færeyingar um 130 krónur að meðaltali fyrir ýsuna. Verð á þorskinum hefur verið mun hærra og er nú ríflega 200 krónur íslenzkar. Í frétt á heimasíðu færeysku Hagstofunnar eru vangaveltur um það hvers vegna verðið breytist með þessum hætti. Skýringin er tal- in liggja í mismunandi fiskverði heima fyrir sem aftur skýrist af sveiflum í afla. Skýringin á minnk- andi útflutningi á óunnum þorski er að miklu leyti mikill samdráttur í afla. Aukning á útflutningi á ufsa og ýsu skýrist aftur á móti af mikilli aflaaukningu. Færeyingar flytja mun minna út af óunnum fiski Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is ,--.,--/,--0,--1,--, *  . / 0   %     % 2      ,--,   ,--.   ' ' 1 1  2   Í HNOTSKURN »Minnkandi útflutningur áóunnum þorski skýrist af miklum aflasamdrætti. »Mest fer utan af óunninniýsu eða um 60% heildarafl- ans fyrri helming ársins. »Aðeins um 3% af þorsk-,ýsu- og ufsaafla hefur nú verið landað erlendis. ÁRNI Páll Árna- son, lögmaður og sérfræðingur í Evrópurétti, hef- ur ákveðið að gefa kost á sér í forystusveit Samfylkingarinn- ar í Suðvestur- kjördæmi, en prófkjör flokks- ins þar fer fram 4. nóvember næst- komandi. Árni Páll er fertugur að aldri og uppalinn í Kópavogi. Hann lauk lagaprófi frá HÍ 1991 og stundaði framhaldsnám í Evrópurétti 1991– 1992. Hann var ráðgjafi Jóns Bald- vins Hannibalssonar utanríkisráð- herra í Evrópumálum frá 1992– 1994 og embættismaður í utanrík- isþjónustunni frá 1994–1998. Hann hefur starfrækt eigin lögmanns- stofu frá þeim tíma og sinnt ráð- gjöf við ráðuneyti, opinberar stofn- anir og stærri fyrirtæki. Árni Páll stefnir á for- ystusæti Samfylkingar Árni Páll Árnason TÆP 70% landsmanna telja Ríkisút- varpið og Ríkissjónvarpið vera mik- ilvægasta fjölmiðilinn fyrir þjóðina, sem er nokkru minna en fyrir fjórum árum þegar tæp 74% voru þessarar skoðunar. Morgunblaðið kemur í næsta sæti þar á eftir en 9% töldu það mikilvægasta fjölmiðilinn fyrir þjóð- ina samanborið við 11,5% árið 2002. Þetta er meðal þess sem fram kem- ur í könnun sem Gallup hefur gert fyrir RÚV. Náði könnunin til um 1300 manns á aldrinum 16 ára til 75 ára og var um símakönnun að ræða sem framkvæmd var 23. ágúst til 5. sept- ember. Svarhlutfall var 63,5%. Þegar spurt var til hvaða fjölmiðils fólks leitaði helst eftir fréttum og fréttatengdu efni er Ríkisútvarpið efst á blaði með 20,5%, síðan kemur Ríkissjónvarpið með 17,7% og þá mbl.is með 12,5% og Morgunblaðið með 11,6%, Fréttablaðið með 8,7% og Stöð 2 með 5,7%. 70% telja RÚV mikilvægasta miðilinn KOLBRÚN Bald- ursdóttir sálfræð- ingur gefur kost á sér í sjötta sæti í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins sem haldið verður sameiginlega fyrir Reykjavíkurkjör- dæmin tvö í lok október nk. Kolbrún skipaði 9. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í síðustu alþingiskosningum. Hún hefur verið virk í Sjálfstæðisflokknum undanfar- in ár. Hún hefur m.a. átt setu í stjórn Hvatar og situr nú í stjórn Sjálfstæð- isfélags Skóga- og Seljahverfis í Breiðholti. Kolbrún er fædd 1959. Hún lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Ís- lands 1980, BA-prófi frá Háskóla Ís- lands 1986 og tveimur MA-prófum frá Rhode Island College í Rhode Island, Bandaríkjunum, það fyrra í námssál- arfræði og ráðgjöf 1989 og það síðara í félags- og persónuleikasálfræði 1991. Árið 1994 lauk Kolbrún námi í uppeldis- og kennslufræðum til kennsluréttinda frá Háskóla Íslands. Kolbrún hefur verið löggildur sál- fræðingur frá 1992 og rekið eigin sál- fræðistofu í Reykjavík frá sama ári. Kolbrún Baldursdóttir Kolbrún stefnir á 9. sætið TÓMAS Þorvaldsson GK 10 sem Þorbjörn hf. í Grindavík gerir út á línu landaði 46 tonnum á Djúpa- vogi í vikunni og var aflanum ekið til Grindavíkur í vinnslu. Báturinn var á veiðum á Tangagrunni aust- an við land og því er löng sigling til Grindavíkur. Nafn bátsins er nýtt í flota fyr- irtækisins en Tómas Þorvaldsson útgerðarmaður stofnaði Þorbjörn hf. ásamt þremur öðrum félögum sínum fyrir rúmum fimmtíu árum. Fyrirtækið hefur síðan verið í eigu fjölskyldu hans lengst af. Báturinn var nótabátur, keyptur af Samherja hf., og hét Háberg GK. Honum var síðan breytt í línuskip fyrir fimm árum í Skipa- smíðastöð Þorgeirs og Ellerts á Akranesi og hét eftir það Geirfugl GK. Upphaflega hét báturinn Héðinn ÞH, en Þorbjörninn eign- aðist skipið upp úr miðri síðustu öld og var hann skírður Hrafn GK. Var hann gerður út á net og nót í fyrstu en var síðan breytt í nótaskip og fékk nafnið Háberg GK þegar hann rann inn í Fiski- mjöl og lýsi hf. í Grindavík í eignaumsýslu á níunda áratugn- um. Báturinn hefur því verið tvisvar í eigu fyrirtækisins á löngum tíma. Báturinn hefur reynst afbragðs vel eftir að honum var breytt í línuskip en skipstjóri hans er Sæ- mundur Halldórsson. Tómas Þor- valdsson GK nýtt nafn í flotanum Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Útgerðarfélagið Aviana í Maniitsoq á vesturströnd Grænlands fékk nú í september afhentan nýjan Cleo- patra bát frá Bátasmiðjunni Trefj- um í Hafnarfirði. Að útgerðinni stendur Môrt- ánguaq Heilmann sem jafnframt er skipstjóri á bátnum. Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Aviana. Báturinn er 11 brúttótonn. Aviana er af nýrri gerð Cleopatra 33 báta sem Trefjar hafa hannað. Aðalvél bátsins er af gerðinni Volvo Penta 74A 350 hestöfl tengd ZF gír. Báturinn er útbúinn sigl- ingatækjum af gerðinni Simrad frá Friðrik A. Jónssyni. Báturinn er útbúinn til línu, handfæra og netaveiða. Veiðibún- aður kemur allur frá Færeyjum. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking. Rými er fyrir 14 380 lítra kör í lest. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Í vist- arverum er salernisrými, svefn- pláss fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofni og ís- skáp. Að sögn Môrtánguaq skipstjóra mun báturinn verða gerður út frá Maniitsoq og stefnir hann á að vera með bátinn á línu- og netaveiðum yfir vetrartímann en á línu og handfærum yfir sumarið. Ný Cleopatra seld til Grænlands TVEIR umsækjendur eru um emb- ætti prests í Vestmannaeyjapresta- kalli, Kjalarnesprófastsdæmi. Um- sóknarfrestur rann út 15. september síðastliðinn og embættið veitist frá 1. október. Umsækjendurnir eru: Arn- dís Ósk Hauksdóttir guðfræðingur og Guðmundur Örn Jónsson guð- fræðingur. Biskup Íslands skipar í emættið til fimm ára að fenginni niðurstöðu val- nefndar. Valnefnd skipa fimm fulltrúar úr prestakallinu, auk vígslubiskups í Skálholti. Tveir sækja um í Eyjum Útimálning Viðarvörn Lakkmálning Þakmálning Gólfmálning Gluggamálning Innimálning Gljástig 3, 7, 20 Verð frá kr. 298 pr.ltr. Gæða málning á frábæru verði ÍSLANDS MÁLNING Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli. Afsláttur af málningarvörum 20% Sætúni 4 Sími 517 1500 Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.