Morgunblaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is EKIÐ var á átta ára gamla stúlku á gangbraut við Háaleitisbraut um áttaleytið í gærmorgun, en slysið átti sér stað til móts við Háaleitisbraut 105. Að sögn lögreglunnar fór betur en á horfðist og stúlkan hlaut minni- háttar meiðsl, en hún var flutt á slysadeild til skoðunar. Foreldraráð Álftamýrarskóla og leikskólanna Álfta- og Múlaborgar, sem eru í hverfinu, hafa miklar áhyggjur af umferðaröryggismálum á svæðinu við Háaleitisbraut milli Ármúla og Fellsmúla. Birgir Björnsson, fulltrúi í foreldraráði Álftamýrarskóla, segir foreldra lengi hafa haft áhyggjur af stöðu mála. Í febrúar hafi fulltrúar foreldra rætt við þáverandi borgar- stjóra, Steinunni Valdísi Óskarsdótt- ur. Hafi þau lagt fram óskir um breytingar á umferðaröryggismálum á svæðinu. „Við þessa götu búa mörg börn sem eiga leið yfir hana, í skóla, í tóm- stundir, í Fram og annað,“ segir Birgir. Umferð um þennan hluta Háaleitisbrautar sé mjög mikil og samkvæmt tölum frá Reykjavíkur- borg, fari um 13 þúsund bílar á sólar- hring um þennan vegarkafla. „Hraðinn er oft og tíðum gífurleg- ur. Hraðahámarkið er 50 kílómetrar og við höfum verið að biðja um að þessi hraði yrði lækkaður niður í 30 km á klst.,“ segir Birgir. Hann bend- ir á að svæðið sé „skilgreint sem íbúagata og víðast hvar í borginni er búið að lækka hámarkshraða á sam- bærilegum götum. Ég gent bent á götu eins og Hjarðarhaga sem er að mörgu leyti lík gata og Háaleitis- braut,“ segir Birgir. Ekkert hafi hins vegar gengið við að ná í gegn breytingum á hámarks- hraða við Háaleitisbrautina. Þrátt fyrir samskipti við Reykjavíkurborg hafi ekki enn verið tekið á vandanum. Birgir segir að einstakir íbúar hafi áður kvartað við Reykjavíkurborg og þá hafi verið sett upp blikkljós í göt- unni. Annað þeirra sé stöðugt bilað, ef gert sé við það virki það í einn til þrjá daga en hætti svo að virka. Blikkljósin hafa ekki áhrif „Þessi blikkljós hafa ekki áhrif nema á einstaka ökumenn og það eru einmitt þeir sem keyra hratt sem þetta hefur ekki áhrif á. Það þarf að gera grundvallarbreytingu á hraðan- um þarna og frágangi götunnar upp á umferðaröryggið,“ segir Birgir og segir að foreldaráðin hafi sjálf lagt tillögur til úrbóta fyrir borgaryfir- völd. Þar komi m.a. fram óskir um hraðahindranir og fleiri gönguljós. Til standi að koma upp götuljósum, en ekki hafi enn orðið af framkvæmd- um. Þá hafi foreldrar áhyggjur af því að umferð eigi enn eftir að aukast á vegarkaflanum vegna fyrirhugaðrar nýbyggingar við Ármúla 1. Umfjöll- un um málið í borgarkerfinu hafi gengið mjög hægt og „það er eins og bílarnir hafi forganginn,“ segir Birg- ir. Þetta séu foreldrar ekki sáttir við. Slysið sem varð í gær sé annað slysið sem hann viti um á þessu ári. „Okkur finnst ekki eftir neinu að bíða með að þessi mál verði löguð. Meðan við bíð- um gerast þessi slys og við spyrjum hvað við eigum að bíða lengi. Hvað á að keyra á mörg börn?“ spyr Birgir. Gunnar H. Gunnarsson, deildar- verkfræðingur hjá framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar, segir að í gegn- um tíðina hafi verið reynt að hamla gegn slysum á svæðinu, með því að setja hlykk á götuna og þá hafi mið- eyjubútar þar verið lengdir dálítið. Þá hafi gangbrautarljós verið sett upp þarna fyrir um 10-12 árum auk tækja sem sýna á hvaða hraða fólk ekur þegar það er á leið í suðurátt. Einnig hafi verið sett upp umferð- arljós við gatnamót Fellsmúla og Háaleitisbrautar fyrir nokkrum ár- um. Áður hafi orðið þarna allmörg um- ferðarslys en þeim hafi sem betur fer eitthvað fækkað eftir að gripið var til ráðstafana. Segja marga aka ógæti- lega um Háaleitisbraut Morgunblaðið/ÞÖK Mótmæla hraðakstri Aftari röð frá vinstri: Steinunn Stefánsdóttir, Birgir Björnsson, Hlíf Ísaksdóttir, Valgerður S. Pálsdóttir og Þorbjörg Gunnarsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Anna Sigrún Gunnarsdóttir, Atli Rúnar Sigurðs- son, Bára Lyngdal Magnúsdóttir, Katla Rún Káradóttir, Bergur Páll Birgisson og Ragnhildur Kristinsdóttir. Eftir Andra Karl andri@mbl.is KJARVALSMÁLIÐ svokallaða var tekið til að- almeðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Málið er höfðað af afkomendum Jóhannesar S. Kjarval listmálara, af hálfu dánarbús hans, gegn Reykjavíkurborg og er tekist á um eignarrétt á munum málarans sem eru í vörslu borgarinnar. Skýrslutökur fóru fram yfir nokkrum vitnum en aðalmeðferðin heldur að öllum líkindum áfram 29. nóvember nk. – með fyrirvara um breyt- ingar. Samkvæmt upplýsingum frá lögmanni stefn- enda, Kristni Bjarnasyni, eru það m.a. um fimm þúsund verk sem krafist er eignarréttar og af- hendingar á. Þar eru að vísu öll verk tiltekin, bæði stór og smá, en uppistaðan er alls kyns teikningar Kjarvals sem fluttar voru af vinnu- stofu hans í Sigtúni 7 haustið 1968. Meðal þeirra sem komu fyrir dóminn voru málssækjendur, börn Sveins Kjarvals, sonar Jó- hannesar. Lögmaður þeirra spurði m.a. út í hagi þeirra haustið 1968 en málsaðila greinir á um hvort Jóhannes hafi gefið Reykjavíkurborg munina eða hvort þeir hafi verið ætlaðir til geymslu og séu í raun eign ættingja hans. Fram kom hjá afkomendum Jóhannesar að mikil reiði og vonbrigði hafi verið innan fjölskyldunnar eft- ir að kom í ljós að Reykjavíkurborg lýsti því yfir að munirnir væru í hennar eigu og gjöf frá Jó- hannesi. Kvaðst enginn hafa heyrt þess getið haustið 1968 að Jóhannes hefði ákveðið að gefa eigur sínar. Var m.a. leitað til lögfræðinga sem sögðu málið ekki vænlegt til sigurs og hvöttu frekar til að hætta við málið. Sagði borgina beita valdníðslu Jóhannes S. Kjarval, sonur Sveins, sagði m.a. afa sinn hafa gefið Reykjavíkurborg margar góðar og miklar gjafir en að munirnir úr vinnu- stofu hans væru ekki þar á meðal. Systir hans Kolbrún S. Kjarval var þá spurð út í afstöðu föð- ur síns til málsins eftir að borgin hafði lýst yfir eignarrétti sínum á mununum og sagði hún hann hafa sagt þetta vera valdníðslu og bætti við að hann hefði verið sár og reiður, líkt og fjöl- skyldan öll. Guðmundur Alfreðsson lagaprófessor var tekinn til skýrslutöku í gegnum síma þar sem hann var staddur erlendis. Lögmaður borgar- innar, Kristbjörg Stephensen hdl., bar undir hann brot úr dagbók sem hann ritaði í nóvember 1968. Þá aðstoðaði Guðmundur föður sinn Al- freð Guðmundsson, sem síðar varð forstöðu- maður Kjarvalsstaða, við að ferja kassa og ann- að úr vinnustofu Jóhannesar, sem hann hitti þar alloft. Guðmundur staðfesti það sem þar stend- ur, þ.e. að Jóhannes hefði afhent þáverandi borgarstjóra að gjöf nokkra tugi teikninga ásamt kössum ofan af háalofti hjá sér úr vinnu- stofunni. Einnig kom fyrir dóminn Þorvaldur Þor- valdsson, sem var leigubílstjóri Jóhannesar hjá BSR í mörg ár en með þeim tókst góð vinátta. Sagði hann Jóhannes oft hafa rætt um að gefa borginni myndir til að hafa á Kjarvalsstöðum. Síðar hefði hann einnig rætt um að gefa borg- inni dót og myndir úr Sigtúni. Aðspurður af Kristbjörgu hvers vegna hann teldi að „gjafir“ Jóhannesar hefðu ekki verið gerðar opinberar þegar hann gaf þær sagði Þorvaldur að Kjarval hefði aðra siði en almennt gerðist. Þorvaldur sagðist hafa séð Kjarval þiggja fjármuni fyrir myndir sínar án þess að reikningar hefðu verið gerðir, aðeins handsal. „Hann var öðruvísi í sniðum en aðrir,“ sagði Þorvaldur. Aðspurður af lögmanni sækjanda hvort hann hefði heyrt Jó- hannes tilkynna að hann ætlaði að gefa allt það sem hann átti á vinnustofu sinni sagði Þorvaldur svo ekki vera, tiltók hann tvo kassa á miðju gólfi vinnustofunnar auk einhverra hluta af efri hæð hennar. „Þessir kassar voru býsna stórir en hann sagðist aldrei ætla að gefa borginni allt sem þar var,“ sagði Þorvaldur. Tekist á um rétt á eignum Kjarvals Snýr að munum sem fluttir voru úr vinnustofu Kjarvals til vörslu hjá borginni – gjöf eða geymsla? Í HNOTSKURN »Kjarvalsmálið var höfðað af afkom-endum Jóhannesar S. Kjarvals list- málara gegn Reykjavíkurborg og snýr að eignarrétti á munum sem eru í vörslu borgarinnar og voru fluttir af vinnustofu Jóhannesar haustið 1968. »Af hálfu borgarinnar er því haldiðfram að Jóhannes hafi gefið Reykjavík munina. Því eru afkomend- urnir ósammála. UM þann möguleika að lækka umferðarhraða niður í 30 km á klst. á umræddum vegarkafla segir Gunnar H. Gunnarsson að það hefði ekki áhrif, nema því yrði fylgt eftir þannig að götunni yrði breytt svo hún yrði erfiðari til hraðaksturs. Algengast sé að upphækkanir séu sett- ar á veginn í þessu skyni. Hinn möguleikinn sé sá að koma upp sjálfvirkri ljósmyndavél á staðnum sem taki mynd af þeim sem aka yfir ákveðnum hraða. „Hún yrði að vera þannig að menn vissu að hún væri í sífelldum rekstri og að sífellt væri verið að sekta,“ segir Gunnar. Þá myndu menn hika að aka þarna of hratt. Nokkrar svona löggæsluvélar séu á höfuðborgarsvæðinu og ein sé staðsett í Hvalfjarðargöngunum. „Það er sú vél sem alltaf koma fréttir af annað slagið að sé að gefa af sér margar sektir. Það eru ekki eins miklar fréttir af því að aðrar sjálfvirkar löggæslumyndavélar hali inn sektir.“ Ekki nóg að lækka hámarkshraða Foreldrar barna sem búa í námunda við Háaleit- isbraut og þurfa að fara yfir hana á leið í skóla eða tómstundastarf eru ósátt- ir við umferðaröryggi við götuna og vilja aðgerðir til þess að bæta úr. ÚTILOKAÐ hefur verið að um hraðakstur hafi verið að ræða þegar vöruflutninga- bíll sem bar um 20 tonn af gleri valt neðarlega í Ártúnsbrekku á þriðjudags- morgun. Tildrög slyssins eru þó enn ókunn en líkur benda til að frágangi á farmi hafi verið ábótavant. Upplýs- ingafulltrúi hjá Umferðarstofu segir það vandamál sem sannarlega hafi gert vart við sig. Komið hefur í ljós að ökumaður flutningabílsins var á um 50 km hraða og staðfesti Ásbjörn Gíslason, for- stjóri Landflutninga – Samskipa, það en bifreiðin var að flytja gler fyrir þá. Hann segir það af hinu góða að engin slys hafi orðið í óhappinu en annars verði málið skoðað ofan í kjölinn inn- an fyrirtækisins. Hann segir gríðar- lega flutninga vera á þessu svæði „og sem betur fer gerist það mjög sjaldan að svona slys verða. Það hefur gerst í þrígang á síðustu fjórum árum að við höfum lent í óhappi með svona gler- flutninga,“ segir Ásbjörn og vísar þá í slys sem orðið hafa í eða í námunda við Ártúnsbrekku. Ökumaður ber alltaf ábyrgð Einar Magnús Magnússon, upp- lýsingafulltrúi Umferðarstofu, segir að ef farmur vöruflutningabíla sé ekki samkvæmt öllum reglum og lög- um eigi ökumaður að taka af skarið og segja að hann fari ekki lengra. „Það sem skiptir gríðarlega miklu máli er að ökumaður, sem ber alltaf ábyrgð á ökutækinu, og því sem í ökutækinu er, gangi úr skugga um að allt sé tryggilega fest samkvæmt þeim reglum sem um það gilda. En ég held að almennt sé vilji hjá flutn- ingafyrirtækjum að hafa þetta í lagi og þessi tilfelli sem komið hafa upp séu yfirsjónir,“ segir Einar sem hefur heimildir fyrir því að tryggingafélög hafi á árinu 2005 þurft að standa und- ir tjóni sem nam um 60 milljónum króna vegna þess að farmur fauk af vörubílspöllum, s.s. grjót eða möl. Frágangi farms ábótavant? Vöruflutningabíll- inn sem valt í Ár- túnsbrekku var á um 50 km hraða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.