Morgunblaðið - 21.09.2006, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2006 17
Bagdad. AFP. | Mo-
hammed al-Oreibi
al-Khalifah, nýr
dómari í málaferl-
unum gegn Sadd-
am Husseins,
fyrrverandi
Íraksforseta, og
sex samverka-
mönnum hans tók
við í gær. Hann er
sjía-múslími. For-
vera hans, Abdullah al-Ameri, var
vikið frá í fyrradag og var hann sak-
aður um að hafa ekki gengið nógu
hart fram gegn Saddam og látið hann
komast upp með að vanvirða réttinn.
Einnig varð mörgum nóg um þegar
hann sagði að Saddam hefði ekki ver-
ið einræðisherra, það væru sam-
verkamenn hans sem hefðu gert hann
að einráðan.
Verjendur Saddams andmæltu
ákaft mannabreytingunum og gengu
út úr réttarsalnum í Bagdad í gær eft-
ir mikið rifrildi. „Við viljum benda á
að ríkisstjórnin er að blanda sér í
gang réttarhaldanna. Við getum ekki
stundað störf okkar með réttum og
sanngjörnum hætti,“ sagði talsmaður
verjendanna, Wudud Fawsi.
Khalifah kallaði þá í salinn verjend-
ur sem ríkisvaldið hefur skipað að
hlaupa í skarðið þegar lögfræðingar
Saddams ganga út. Forsetinn fyrr-
verandi stóð upp og mótmælti og rak
Khalifah hann þá úr salnum þegar
Saddam neitaði að setjast.
Saddam og félagar hans eru meðal
annars ákærðir fyrir þjóðarmorð á
Kúrdum á níunda áratungum en þá
munu rúmlega 180.000 manns hafa
týnt lífi í ofsóknum stjórnvalda.
Rak
Saddam
úr salnum
Nýr dómari í Bagdad
lætur til sín taka
Mohammed al-
Oreibi al-Khalifah
Addis Ababa. AFP. | Tveimur starfs-
mönnum Rauða krossins hefur verið
rænt í suðausturhluta Eþíópíu. Sam-
kvæmt upplýsingum frá deild Rauða
krossins í landinu vilja mannræn-
ingjarnir að samtökin dragi úr starf-
semi sinni á svæðinu en engin krafa
hefur komið fram um greiðslu lausn-
argjalds. Um er að ræða Íra og Eþí-
ópíumann og var þeim rænt á mánu-
dag í bænum Godi.
Mennirnir voru í bílalest á vegum
Rauða krossins, sex öðrum starfs-
mönnum samtakanna tókst að flýja
af vettvangi. Rauði krossinn hefur
nú ákveðið að hætta starfsemi í hér-
aðinu en flestir íbúar þar eru Sómal-
ar. Fulltrúar samtakanna hafa verið
að störfum í héraðinu í ellefu ár.
Rauðakross-
mönnum rænt
Búdapest. AFP. | Ferenc Gyurcsany,
forsætisráðherra Ungverjalands,
hét því í gær að binda enda á óeirðir
á götum Búdapest eftir að átök
blossuðu þar upp milli mótmælenda
og lögreglumanna í fyrrakvöld, ann-
að kvöldið í röð. Gyurcsany varaði
einnig stjórnarandstöðuna við því að
efna til fjöldamótmæla í höfuðborg-
inni um helgina.
„Við ætlum ekki að sýna þeim þol-
inmæði,“ sagði forsætisráðherrann
um hundruð mótmælenda sem börð-
ust við lögreglumenn í miðborg
Búdapest. Eru þetta mestu götu-
óeirðir í Ungverjalandi frá falli
kommúnista-
stjórnarinnar ár-
ið 1989.
„Stjórnin ætlar
að halda ótrauð
áfram á einu
brautinni sem
möguleg er:
koma á umbótum
til að tryggja
framþróun og
efnahagslegan
stöðugleika,“ sagði Gyurcsany á rík-
isstjórnarfundi sem fjölmiðlunum
var leyft að fylgjast með.
Stjórnarandstöðuflokkurinn Fi-
desz tók í gær undir þá kröfu mót-
mælendanna að forsætisráðherrann
segði af sér eftir að hann játaði að
hafa logið að kjósendum um efna-
hagsástandið í landinu í aðdraganda
þingkosninga í vor.
„Forsætisráðherrann og rík-
isstjórn hans verða að víkja hver
sem niðurstaða sveitarstjórnakosn-
inganna [1. október] verður,“ sagði
einn af forystumönnum Fidesz í
sjónvarpsviðtali.
Leiðtogar Fidesz vonast til þess
að hundruð þúsunda manna mæti á
útifund sem flokkurinn hefur boðað í
Búdapest á laugardag. Fundurinn
átti í fyrstu að snúast um sveit-
arstjórnakosningarnar.
Skoðanakannanir benda til þess
að Fidesz hafi aukið fylgi sitt að und-
anförnu og hafi náð verulegu for-
skoti á stjórnarflokkinn.
Varað við fjöldamótmælum
Gyurcsany og Laszlo Solyom, for-
seti Ungverjalands, gáfu út sameig-
inlega yfirlýsingu þar sem þeir vör-
uðu við fjöldamótmælum í ljósi
óeirðanna síðustu daga og hvöttu
skipuleggjendur útifunda til að sýna
fyllstu aðgát vegna hættu á að átök
blossi upp að nýju.
Lofar að binda enda á óeirðirnar
Ferenc
Gyurcsany
Peking. AP. | Góðglaður kínverskur
ferðamaður beit pöndu í dýragarði
í Peking eftir að hún hafði ráðist á
hann þegar hann stökk til hennar
og reyndi að faðma hana.
Kínverjinn hafði drukkið fjórar
bjórkollur á veitingastað þegar
hann sá pönduna Gu Gu og fann hjá
sér hvöt til að taka utan um hana.
Hann stökk yfir girðingu til að
komast að dýrinu.
Pandan varð hrædd og beit
manninn í hægri fótinn. Maðurinn
reiddist og sparkaði í pönduna sem
beit hann í hinn fótinn.
Maðurinn beit þá pönduna í bak-
ið. Aðrir ferðamenn hrópuðu á vörð
og honum tókst að hemja dýrið með
því að úða vatni á það. Maðurinn
var fluttur á sjúkrahús.
Maður beit
pöndu
Við leitum ekki þæginda, við sköpum þau.
Við bjuggum til fyrstu gormadýnuna í Skandinavíu ásamt því að finna
upp rammadýnuna, yfirdýnuna og fyrstu svæðaskiftu gormadýnurnar.
Eins og þú sérð leitum við ekki þæginda, við sköpum þau.
Komið og upplifið nýjustu uppfinningu okkar – DUX 88:88. Á dýnunni
er handfang sem (hægt að taka af) gerir stiglausa stillingu á stífleika
dýnunnar mögulega og hefur þann tilgang að skapa bestu mögulegu
svefnstellingu fyrir þig .
Frá 20 – 23 sept fylgir með í kaupum á DUX 88:88 Flex stillanlegur
höfuðgafl ásamt Xleep koddum.
Komið og fáið frekari upplýsingar hjá okkur.
Sérfræðingur frá DUX í Svíþjóð í versluninni 20-23 sept.
Bjóðum 15 % afsl af öllum öðrum dýnum og yfirdýnum
á meðan kynningu stendur
♦♦♦
♦♦♦