Morgunblaðið - 21.09.2006, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 21.09.2006, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2006 29 ið skipaður forsætisráðherra Taí- lands til bráðabirgða og Thaksin Shinawatra er kominn til Bretlands, þar sem hann á sitt annað heimili. Þrátt fyrir að herstjórnin hafi gefið frá sér yfirlýsingu þess efnis að Shinawatra þurfi ekkert að óttast ákveði hann að snúa aftur til Taí- lands er búið að handtaka varafor- mann flokks hans. Nú þegar eru líka farnar að heyrast háværar kröfur um fullt eignarnám hjá hinni vell- auðugu Shinawatra-fjölskyldu. Þetta gerist allt á versta tíma fyr- ir Thaksin Shinawatra sem nýlega hafði tilkynnt þá ákvörðun sína að draga sig í hlé frá stjórnmálum eftir kosningar sem hann hafði boðað til í nóvember næstkomandi. Afskipti konungsins benda þó til að þetta vel skipulagða og friðsamlega valdarán eigi ekki eftir að hafa langvarandi afleiðingar í för með sér og búast má við að kosningar fari fram á næstu mánuðum. Ferðamenn í Bangkok fundu lítið sem ekkert fyrir atburðum vikunn- ar en fréttastöð breska ríkisút- varpsins, BBC, sagði frá því að barir skemmtanahverfanna væru enn fullir af vestrænum ferðalöngum sem kærðu sig kollótta um ástandið og héldu sínu striki. Valdaránið virðist þannig hafa heppnast merki- lega vel og slegið af andvana rík- isstjórn Thaksin Shinawatra. Stjórnarkreppan er þó aldeilis ekki yfirstaðin og trú alþjóðasamfélags- ins á styrk lýðræðis í Taílandi hefur tvímælalaust rýrnað. Taílendingar hafa verið að byggja upp síðastliðin fjórtán ár. Þrátt fyrir að Taíland sé lýðræð- isríki hefur konungur landsins, sem nú hefur setið að völdum í sextíu ár, alltaf haft mikil áhrif og notið al- mennrar virðingar sem trúarlegt sameiningartákn. Ýmsar herstjórn- ir hafa komið og farið í valdatíð hans en hann tók mismikinn þátt í þeim fjölmörgu byltingum sem áttu sér stað í Taílandi á seinni hluta tutt- ugustu aldar. Nú hefur komið í ljós að þeir hermenn, sem þátt tóku í valdaráninu fyrr í vikunni, báru gula borða til merkis um stuðning við konungsfjölskylduna og konungur- inn sjálfur hefur opinberlega lagt blessun sína yfir tímabundna her- stjórn sem talið er að muni starfa undir náinni leiðsögn hans. Herfor- ingjarnir fjórir, sem skipulögðu valdaránið, tilkynntu gerðir sínar og áætlanir í sjónvarpsávarpi sem þeir fluttu fyrir framan flennistórar myndir af konungshjónunum. Og CNN-fréttastöðin bandaríska sagði frá því að sjónvarpsstöðvar landsins væru farnar að senda út myndir af kónginum allan sólarhringinn í stað venjulegrar dagskrár. Í ljósi alls þessa munu vangaveltur um hlut- verk konungsins í uppreisninni halda áfram. Víst má þó telja að meirihluti þjóðarinnar komi til með að styðja hverja þá lausn sem hann kann að finna á núverandi stjórn- arkreppu. Þegar þetta er skrifað hefur her- foringinn Sonthi Boonyaratglin ver- eftir virta samfélagi, g Ta Maha ppilegt að frá munk- u almennt ni og því sig þegar að sama hafinn en r og hefur ðernislega dinga. En að sæta efði brotið eð því að s konung- líklegt að kjölfarið, um að falli u hefð sem steypt af stóli ðkjörna ráðamenn frá völdum íu, íbú- nir, ngkok. ar eru yðst í ng- fur nberar ds- r hann Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Algengt er að maður semlendir í vinnuslysi eigirétt á bótum frá aðminnsta kosti fimm aðil- um og það flækir málin enn frekar að bætur frá einum aðila geta orðið til þess að lækka bætur frá öðrum. „Þetta er stórt og mikið reiknings- dæmi og fyrir tjónþolann sjálfan er það nánast óyfirstíganleg hindrun að ætla að gera sér grein fyrir því hvort bæturnar hafi verið reiknaðar út með réttum hætti,“ segir dr. Guðmundur Sigurðsson, prófessor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík (HR), og einn fyrirlesara á ráð- stefnu um bótarétt vegna vinnu- slysa sem haldin verður í HR í dag. Ráðstefnan er haldin í tengslum við rannsókn sem Guðmundur og dr. Ragnhildur Helgadóttir, pró- fessor við HR, hafa unnið að í rúm- lega ár ásamt fleirum og ber heitið „Almannatryggingar: Hlutverk og samspil við önnur bótarúrræði“. Um 140 manns hafa skráð sig á ráð- stefnuna sem telst afar gott fyrir ráðstefnu af þessu tagi. 1.500 vinnuslys árið 2005 Árið 2005 var tilkynnt um ríflega 1.500 vinnuslys til Tryggingastofn- unar ríkisins og við þessa tölu má bæta fjölda þeirra sem missa vinnu- getu vegna sjúkdóma eða annarra áfalla. Að sögn Guðmundar hafa af- ar litlar rannsóknir farið fram á samspili almannatrygginga við aðr- ar bætur sem sé í sjálfu sér und- arlegt því almannatryggingakerfið velti gríðarlegum fjárhæðum á hverju ári. Guðmundur segir að kerfið sem ákvarði bætur vegna vinnuslysa sé stórt og flókið og fyrir þann sem lendir í slysi geti það verið sem völ- undarhús. Þó að bótaréttur tjón- þega sé óumdeildur geti það kostað mikla fyrirhöfn og hugsanlega tals- verð fjárútlát að sækja sér þær bætur sem viðkomandi á rétt á. Raunar lendi starfsmenn innan kerfisins einnig í vandræðum því s.s. almannatryggingar, sjúkrasjóð- ir stéttarfélaga og fleiri. Það flæki málin enn frekar að skaðabætur geta valdið því að greiðslur frá al- mannatryggingum skerðist. Hið sama eigi við um greiðslur frá sjúkrasjóðum og tryggingafélög- um, greiðslur frá þessum aðilum geta valdið því að aðrar bætur lækki. Það flækir málin síðan enn frekar að afleiðingar slysa séu metnar með mismunandi hætti eftir því hvaða aðili á í hlut, t.a.m. notar almannatryggingakerfið annan mælikvarða en lífeyrissjóðirnir og enn öðrum mælikvarða er beitt þeg- ar skaðabætur eru reiknaðar út. „Þetta leiðir til þess að matið er misjafnt milli kerfanna og það væri svo sem í lagi ef kerfin tengdust ekki neitt. En það gera þau hins vegar því það segir í skaðabótalög- um að ef menn eiga rétt á bótum frá lífeyrissjóði eða almannatrygging- um þá skuli þær bætur dragast frá skaðabótum eftir tilteknum reglum. En þá byrjar vandamálið. Hvernig ætlar þú að reikna út hvaða fjárhæð á að draga frá bótunum þegar mis- munandi kerfi beita mismunandi aðferðum?“ spyr Guðmundur. Vonandi færi ráðstefnan menn eitthvað nær svari við þeirri spurn- ingu og fleirum sem uppi eru varð- andi kerfið. kerfið hafi svo marga ranghala að þeir nái ekki að hafa yfirsýn yfir alla anga þess. Á ráðstefnunni í Háskól- anum í Reykjavík verða fyrirlesar- ar frá flestum þeim aðilum sem koma að greiðslu bóta en Guðmund- ur segir að markmiðið með því sé að menn líti á bótarétt í heild sinni. Að lokum verður fjallað um hvort kerf- ið sé óþarflega flókið, nokkuð sem margir telja að sé raunin. Flókið samspil bótakerfa Guðmundur bendir á að í laga- legri umræðu sé oft fjallað um hvort menn eigi rétt á skaðabótum en það gleymist hins vegar að fjöldi ann- arra aðila komi að þessum málum, Erfitt fyrir tjónþola að fá botn í bótakerfið Morgunblaðið/Júlíus Vinnuslys Tveir menn slösuðust í þessu slysi á Seltjarnarnesi árið 2001. Í HNOTSKURN » Vegna eins og samaslyssins kann því að þurfa að meta miska, lækn- isfræðilega örorku, fjárhags- lega örorku og orkutap. Bótaréttur tjónþola kallar því stundum á að hann sé margmetinn. » Ráðstefnan hefst í dagklukkan 12 og stendur til 15.30 í stofu 131 í Háskól- anum í Reykjavík, Ofanleiti 2. dreifa sælgæti til barna, þannig and- rúmsloft, svolítið stuð í bænum! Ég hef verið að spyrja fólk hvað því finnist og það eru eiginlega allir glaðir og sáttir við þetta. Það er enginn ótti en óvissa, ég get ekki útilokað að eitthvað gerist, þó að ég sé ekki með einhverjar áhyggjur. En ekki átti ég von á að að herinn tæki völdin. Nú eru ein- hverjar vangaveltur um að konung- urinn hafi staðið á bak við þetta en ég hef enga trú á því, hann átti eng- an annan kost. En ég sé ekki alveg að þeir séu búnir að bíta úr nálinni með þetta. Það verður að hafa í huga að Bang- kok er allt annað en sjálft Taíland. Thaksin er að vísu skíthæll og hefur keypt atkvæði en hann hefur þrátt fyrir allt unnið stórsigra í þrennum kosningum hér,“ sagði Viktor Sveinsson í Bangkok. m á næsta ári Reuters ngi landsins. Hann hefur ríkt í 60 ár og nýtur mikillar virðingar en hefur lítil völd. AP verði við aðalstöðvar landhersins, skammt frá stjórnarinnar, í höfuðborginni Bangkok í gær. Fyrirlestrar og umræðurá ráðstefnunni byggjastá lýsingu á ímynduðumaðstæðum Gísla Gísla- sonar, fertugs íbúa við Ofanleiti í Reykjavík. Þó að tilvikið sé ímyndað er það dæmigert fyrir mann sem lendir í þessari stöðu. Gísli er óvinnufær vegna alvar- legs vinnuslyss sem varð árið 2003 og ekki er fyrirsjáanlegt að það breytist í nánustu framtíð. Gísli er giftur og á þrjú börn, það elsta fætt 1992. Til að sækja sér þær bætur sem hann á rétt á tekur við löng ferð í gegnum völundarhús laga og reglugerða. Í kjölfar slyssins fékk Gísli greidd slysalaun frá vinnuveit- anda sínum. Að því loknu fékk hann greiddar tímabundnar bæt- ur úr sjúkrasjóði verkalýðsfélags auk dagpeninga og endurhæfing- arlífeyris frá Tryggingastofnun ríkisins. Gísli var metinn til 45% varanlegrar örorku (orkutaps) samkvæmt 29. gr. almannatrygg- ingalaga (ATL). Í kjölfarið fékk hann greiddar eingreiðsluör- orkubætur frá Tryggingastofnun ríkisins. Gísli var síðan metinn til 75% almennrar örorku á grund- velli 12. gr. ATL. Gísli fékk fullan örorkulífeyri frá lífeyrissjóði (nú Gildi) frá 15. júlí 2003 til 15. janúar 2006. Greitt var á grundvelli örorkumats þar  Læknisfræðileg örorka er 45%.  Varanleg örorka Gísla skv. 5. gr. skaðabótalaga er 70%. Matsgerðin var lögð til grund- vallar skaðabótauppgjöri. Þá var Gísli slysatryggður sem launþegi á grundvelli kjarasamnings og fékk hann greiddar bætur úr þeirri tryggingu. Við ákvörðun örorkubóta úr tryggingunni var 45% miskamatið lagt til grund- vallar. Bætur geta lækkað bætur Samkvæmt ofangreindu á Gísli rétt á bótum frá fimm ólíkum að- ilum; frá sjúkrasjóði, lífeyrissjóði, almannatryggingum, trygginga- félagi og loks á hann rétt á skaða- bótum. Hugsanlega á hann einnig rétt á bótum frá sveitarfélagi. Bætur úr einni átt geta síðan orð- ið til þess að lækka aðrar bætur og svo koll af kolli. Sé Gísli ekki sérfróður í bótarétti yrði hann væntanlega að ráða sér lögmann og þar sem hann á rétt á skaða- bótum yrði lögmannskostnaður greiddur, að sögn dr. Guðmundar Sigurðssonar. Að öðrum kosti yrði hann að standa straum af lögmannskostnaði sjálfur. Björn L. Bergsson hæstarétt- arlögmaður mun á ráðstefnunni fjalla um hvort kerfið sé óþarf- lega flókið. Gísla Gíslasyni myndi örugglega finnast það. sem orkutap Gísla til fyrri starfa var metið 100% til 15. janúar 2006. Þá liggur fyrir örorkumat frá lífeyrissjóði, dags. 30. janúar 2006, þar sem orkutap Gísla til al- mennra starfa er metið 100% frá 15. janúar 2006 til 30. júní 2007. Því er ljóst að áframhald verður á örorkulífeyrisgreiðslum frá lífeyr- issjóði. Gísli taldi vinnuveitanda sinn bera skaðabótaábyrgð á slysinu. Vinnuveitandinn var með ábyrgð- artryggingu fyrir atvinnurekstur hjá tryggingafélagi. Hinn 15. apríl 2005 féllust vinnuveitandinn og tryggingafélagið á skaðabótarétt Gísla. Urðu aðilar sammála um að fá einn lögmann og einn lækni til að meta afleiðingar slyssins sam- kvæmt reglum skaðabótalaga svo og læknisfræðilega örorku. Niðurstaða matsgerðarinnar var m.a. eftirfarandi:  Frá og með 20. febrúar 2004 telst heilsufar Gísla orðið stöð- ugt.  Tímabil tímabundins atvinnu- tjóns í skilningi 2. gr. skaða- bótalaga telst frá slysdegi til 20. febrúar 2004.  Gísli telst hafa verið veikur í skilningi 3. gr. skaðabótalaga frá slysdegi til 20. febrúar 2004, þar af rúmfastur í þrjá mánuði.  Varanlegur miski Gísla skv. 4. gr. skaðabótalaga er 45 stig. Gísli Gíslason þarf að rata um völundarhúsið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.