Morgunblaðið - 21.09.2006, Síða 36
36 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞAÐ ER ástæða til að fagna öll-
um merkjum um að
umhverfismál verði á
dagskrá fleiri stjórn-
málaflokka en
Vinstrihreyfing-
arinnar – græns
framboðs í komandi
kosningum til Alþing-
is. Það er sannarlega
mál til komið að allir
stjórnmálaflokkar
vakni til vitundar um
mikilvægi þessa
málaflokkar og svari
þar með kalli sífellt
stækkandi hóps kjós-
enda, sem krefst þess
að flokkarnir axli
ábyrgð í umhverf-
ismálum. Ég hef tek-
ið undir með Sam-
fylkingu, sem kynnti
niðurstöðu stefnu-
mótunar sinnar í
náttúruvernd-
armálum í vikunni
sem leið, og ég hef
fagnað því að hægri-
sinnaðir stjórn-
málamenn geri nú til-
raunir til að finna
umhverfisstefnu stað
innan Sjálfstæðisflokksins. En
helst hefði ég kosið að slík stefna
og stefnubreytingar risti djúpt og
séu trúverðugar.
Trúverðugleiki
Ég hlustaði á þáttinn Í vikulok-
in sl. laugardag á Rás 1, þar sem
Dofri Hermannsson svaraði fyrir
stefnumótun Samfylkingarinnar í
náttúruverndarmálum. Sú fullyrð-
ing hans að enginn flokkur hafi
hingað til bent á verkfæri sem
nægt gætu til að skila árangri í
náttúruverndarmálum helgast
mögulega af vanþekkingu eða í
versta falli vísvitandi rangfærslu.
Auðvitað verður að skoða útspil
Samfylkingarinnar í því ljósi að
kosningar eru á næsta leiti og eðli
máls samkvæmt skerpa flokkarnir
á stefnu sinni í aðdraganda þeirra.
Öllum er ljós sá vandræðagang-
ur sem hingað til hefur einkennt
framgöngu Samfylkingarinnar í
málefnum er snerta náttúruvernd.
Ástæðan er ekki síst stuðningur
flokksins við stóriðjustefnu rík-
isstjórnarinnar og Kárahnjúka-
virkjun. Því þótt tveir þingmenn
Samfylkingarinnar hafi haft uppi
öndverð sjónarmið greiddi yf-
irgnæfandi meirihluti þingflokks-
ins atkvæði með Kárahnjúkavirkj-
un. Einnig lýsti formaður
flokksins því yfir í aðdraganda
Kárahnjúkavirkjunar að Samfylk-
ingin styddi framkvæmdirnar á
þeim forsendum sem ríkisstjórnin
lagði upp með. Þá hefur ekki farið
leynt að flokksmenn Samfylking-
arinnar hafa dregið vagninn í
áformum um álver á Húsavík og
Örlygur Hnefill Jónsson varaþing-
maður hefur þegar haft uppi há-
vær mótmæli gegn nýbakaðri
stefnu. Margir samfylkingarmenn
hafa líka lýst yfir stuðningi við
stækkun álveranna á Grund-
artanga og í Straumsvík og Sam-
fylkingin í Hafnarfirði með sinn
meirihluta í bæjarstjórn hefur
sjálfdæmi um hvort áformin um
meira en tvöföldun á framleiðslu
ALCAN nái fram að ganga.
Heildstæð stefna
Margir hafa orðið til að benda á
að nýkynnt náttúruverndarstefna
Samfylkingarinnar geti verið kom-
in til af ótta við að tapa fylgi yfir
til okkar Vinstri-grænna, sjá. t.d.
skorinorðan pistil Sigríðar Á. And-
ersen í Fréttablaðinu sl. sunnu-
dag. Kjósendur taka afstöðu í
þeim efnum en um áðurnefnda
fullyrðingu Dofra Hermannssonar
tel ég nauðsynlegt að hafa nokkur
orð.
Svonefnd rammaáætlun Sam-
fylkingarinnar um náttúruvernd
er öðru fremur óska-
listi. Hún tekur hvorki
mið af þeim lagaúr-
ræðum sem þegar eru
til staðar né tillögum
að rökstuddri Nátt-
úruverndaráætlun
sem Umhverfisstofnun
lagði fram á árinu
2003. Öll svæðin sem
Samfylkingin telur
upp á óskalistanum
hafa verið til umfjöll-
unar á vettvangi VG,
sem hluti af heild-
stæðri stefnu í nátt-
úruverndarmálum og
orkumálum, enda nán-
ast ógerningur að
skilja þar á milli. Sú
stefna gerir ráð fyrir
að við stöndum undir
þeim skuldbindingum
sem við höfum und-
irgengist á al-
þjóðavettvangi er
varða sjálfbæra þróun
og verndun líf-
fræðilegrar fjöl-
breytni. Í krafti sjálf-
bærrar orku- og
atvinnustefnu VG hef-
ur þingflokkurinn svo flutt þing-
mál sem gerir ráð fyrir að öll
áform um stóriðju verði stöðvuð
til ársins 2012.
Þannig höfum við ítrekað lagt
til að friðlandið í Þjórsárverum
verði stækkað, stofnun Vatnajök-
ulsþjóðgarðs verði hraðað og hann
nái frá strönd til strandar, taki til
alls áhrifasvæðis Vatnajökuls
ásamt Vonarskarði og Tungna-
fellsjökli og til alls vatnasviðs Jök-
ulsár á Fjöllum. Sjálfstætt þing-
mál um friðlýsingu Jökulsár á
Fjöllum höfum við flutt síðan 2003
og nú síðast með stuðningi þing-
manna úr öllum flokkum. Lands-
fundir VG hafa lagt til að Langi-
sjór verði friðlýstur og einnig
Brennisteinsfjöll. Þá tókum við
virkan þátt í átökunum um Græn-
dal, sem tímabundið var bjargað
úr klóm orkufyrirtækjanna og
einnig mótmæltum við því að
Orkuveita Reykjavíkur sækti um
rannsóknarleyfi í Kerling-
arfjöllum. VG í Skagafirði náði að
koma í veg fyrir virkjun jökulánna
í Skagafirði á síðasta kjörtímabili,
en Samfylkingin í Skagafirði stóð
hins vegar að því nýverið að biðja
um álver í Skagafjörð.
Kosningar í nánd
Af þessari upptalningu má ljóst
vera að ummæli Dofra Her-
mannssonar standast ekki skoðun
og bera vott um að umhverf-
isstefna Samfylkingarinnar sé til-
komin vegna kosninganna fram-
undan. Við það er ekkert að
athuga. Í aðdraganda kosninga er
eðlilegt að flokkarnir kíki í fata-
skápinn og verði sér úti um ný
spariföt ef þau gömlu eru ekki
lengur klæðileg. En það kemur
svo í hlut kjósenda að meta
hversu vel nýju fötin eru sniðin og
hönnuð og hvernig til hefur tekist
með þráðinn sem þau eru ofin úr.
Nýju fötin Sam-
fylkingarinnar
Kolbrún Halldórsdóttir fjallar
um umhverfismál og stefnu
Samfylkingar í þeim efnum
Kolbrún Halldórsdóttir
» Í aðdrag-anda kosn-
inga er eðlilegt
að flokkarnir
kíki í fataskáp-
inn og verði sér
úti um ný spari-
föt ef þau gömlu
eru ekki lengur
klæðileg.
Höfundur er þingmaður fyrir Vinstri-
hreyfinguna – grænt framboð.
Páll Jóhann Einarsson skrifar
um trú og vísindi.
Gunnar Jóhannesson skrifar
um trú og vísindi.
Guðjón Sveinsson: Rík þjóð
en fátæk í anda.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFNUN
virðist vera búin að taka upp
vinnubrögð Hafró hvað það varðar
að skýra gang náttúrunnar út frá
reiknilíkani.
Ég vil taka það
fram að ég hef mjög
miklar mætur á
mörgum sérfræð-
ingum Nátt-
úrufræðistofnunar og
þeirri vinnu sem þar
er unnin, og ekki síst
þess vegna er ég
mjög hissa á þeim að
ætla sér að taka upp
þessi líkön í ljósi
þeirrar óumdeilt
slæmu reynslu sem
hefur verið af reik-
nilíkönum Hafró.
Er þá skemmst að
minnast þess þegar mörg hundruð
þúsund tonn töpuðust út úr fiska-
talningu Hafró fyrir nokkru.
Það hefur komið fram að Nátt-
úrufræðistofnun vilji draga úr
veiðum á rjúpu vegna þess að
talningar sýna að rjúpnastofninn
hefur minnkað.
Ef niðurstöður talninga eru
skoðaðar kemur fram að mest
fækkun varð um 63% á svæði sem
hefur verið alfriðað um árabil, þ.e.
á Mosfellsheiði, á meðan það er
fjölgun á svæðum eins og Austur-
landi sem er veitt gífurlega mikið
á, t.d. er fjölgunin 58% í Jökuls-
árhlíð.
Það sem kemur einnig fram í
skýrslu Náttúrufræðistofnunar er
að fyrri talningar á rjúpnastofn-
inum hafa verið endurmetnar.
Stofnarnir hafa verið taldir of
stórir í fyrri mælingum og taldir
upp á nýtt með nýjum aðferðum.
Þetta er gamalt trix í þessum
fræðum þegar reiknimeistarar
lenda í vandræðum en það gerist
oftar en ekki að útreikningarnir
sýna allt aðra nið-
urstöðu en náttúran.
Þá eru gögnin barin
til hlýðni til þess að
þau passi inn í reikni-
líkanið en sjaldnast er
sett spurningarmerki
við reiknilíkanið
sjálft.
Hver man ekki eftir
því þegar stærð
þorskstofnsins var
endurmetin og búið til
nýtt hugtak, „aukinn
veiðanleiki“, til þess
að útskýra eitthvert
meint ofmat?
Þetta nýja mat á stærð á
gengnum stofni sýnir þó ótvírætt
hversu mikilli óvissu stofnmatið er
háð.
Það sem er gagnrýnisverðast
við skýrslu Náttúrufræðistofnunar
er að hún gerir ráð fyrir því að
náttúruleg afföll á veiðistofni séu
einhver fasti, þ.e. að alltaf sami
hundraðshluti af stofninum deyi af
öðrum völdum en veiðum.
Þessi fasti er reiknaður út frá
afföllum í stofninum á þeim árum
sem veiðibann gilti, árin 2003 og
2004.
Þeir taka það reyndar fram
sjálfir að fyrra árið reyndust af-
föllin vera 35% af veiðistofni sem
drapst af náttúrulegum orsökum
og án veiði, en 28% síðara árið.
Þegar breytileiki er svo mikill á
milli tveggja viðmiðunarára er
hrein vitleysa að taka meðaltal
þessara tveggja ára og nota sem
óbreytilegan fasta fyrir náttúruleg
afföll framtíðarinnar.
Vert er að hafa í huga að bæði
árin voru einhver hin bestu sumur
sem hér hafa komið í áratugi og
haustin voru einnig mild. Það er
eðlilegt að efast um að einstaklega
gott tíðarfar friðunaráranna sé
gott til þess að meta breytileikann
í náttúrulegum afföllum rjúpna.
Það er einnig eftirtektarvert að
ráðlögð veiði Náttúrufræðistofn-
unar sem reiknuð var 8,77 % af
stofnstærð er ekki langt frá því að
vera mismunur á milli viðmiðunar-
áranna sem notuð eru til þess að
búa til umræddan fasta fyrir nátt-
úruleg afföll.
Fastinn sem búinn var til er
31,498% sem myndi deyja af öðr-
um völdum en veiðum.
Með svona fasta og reikni-
leikfimi er í raun verið að skrifa
undir að tíðarfar skipti ekki máli
fyrir stærð rjúpnastofnsins og
hvað þá stærð stofna annarra af-
ræningja en mannsins.
Síðan er haldið áfram með
reikningana og sér gefin sú hæpna
fullyrðing að veiðin sé viðbót við
náttúruleg afföll. Það er gert á
mjög vafasömum forsendum.
Ef fallist er á að veiðin sé hrein
viðbót við önnur afföll er í raun
verið að afskrifa að aukinn þétt-
leiki geti takmarkað stærð rjúpn-
astofnsins.
Það getur ekki gengið upp.
Stærðfræðileg
rjúpnaráðgjöf
Sigurjón Þórðarson skrifar um
stærð rjúpnastofnsins
» Þetta nýja mat ástærð á gengnum
stofni sýnir þó ótvírætt
hversu mikilli óvissu
stofnmatið er háð.
Sigurjón
Þórðarson
Höfundur er þingmaður Frjálslynda
flokksins.
ÞINGFLOKKUR Samfylking-
arinnar kynnti í vikunni tillögur
sínar um að styrkja stöðu náttúru-
og umhverfisverndar á Íslandi.
Tillögurnar, sem bera yfirskrift-
ina: Fagra Ísland,
hafa nær undantekn-
ingalaust fengið afar
góðar viðtökur, m.a.
hjá náttúruvernd-
arsamtökum. Það er
nýmæli að litið skuli á
náttúru landsins í
heild sem friðlýsta
uns rannsóknir á við-
komandi svæði liggja
fyrir og mat hefur
verið lagt á svæðið
með tilliti til þeirra.
Á því mati byggist
síðan ákvörðun um
hvort svæðið verði
tekið t.d. til raforkuframleiðslu
eða hvort verðmæti þess er talið
meira ósnortið, sem kann að leiða
til annars konar nýtingar, t.d. í
þágu ferðaþjónustu.
Þrír verndarflokkar
Í tillögum þingflokksins er gert
ráð fyrir að náttúrusvæðum lands-
ins verði skipt í stórum dráttum í
þrjá meginflokka eftir vernd-
argildi svæða. Í fyrsta lagi eru
svæði þar sem talið er að vernd sé
nauðsynlegur nýtingarkostur. Slík
svæði verði friðuð með lögum.
Þennan flokk má kalla virka vernd
en slík svæði verður kappkostað
að nýta sem þjóðgarða og vernd-
arsvæði eftir því sem því verður
við komið. Annar flokkur nátt-
úrusvæða nýtur sérstakrar vernd-
ar, sem kalla mætti biðvernd. Það
eru svæði sem rannsaka þarf bet-
ur og/eða talið er að komi til
greina til annarrar nýtingar, að
heild eða hluta. Þriðji flokkurinn
nýtur lágmarksverndar núverandi
lagaramma en verða þau svæði
„opin“ fyrir ýmissi annarri nýt-
ingu en vernd-
arnotum.
Komum í veg fyrir
óbætanlegan skaða
Í tillögunum er lagt
til að tiltekin svæði
landsins verði vernd-
uð nú þegar. Ástæða
þess er sú að þegar
hefur verið sótt um
rannsóknarleyfi á
þessum svæðum til
undirbúnings virkjana
og í sumum tilfellum
um virkjanaleyfi.
Samfylkingin telur
því nauðsynlegt að tryggja vernd
þeirra uns þær upplýsingar liggja
fyrir sem hægt er að leggja til
grundvallar upplýstu mati á fram-
tíðarnýtingu. Því ýmsar fram-
kvæmdir verða ekki aftur teknar
og umrót í náttúrunni er stundum
óafturkræft um alla framtíð.
Faglegt mat og
upplýst ákvarðanataka
Samfylkingin í Skagafirði hefur
nálgast spurninguna um virkjun
Jökulsánna þar með sams konar
virðingu fyrir náttúrunni og birtist
í fyrrgreindum áherslum þing-
flokksins. Hún hefur samþykkt að
nýting vatnsfallanna verði skoðuð
út frá öllum sjónarmiðum og í
samhengi við alla nýtingarmögu-
leika og að fullt tillit verði tekið til
náttúrunnar. Samfylkingin í
Skagafirði vill ekki virkja Jökuls-
árnar með þeim hætti sem tillögur
hafa verið uppi um og breyta
þannig ásýnd þeirra en útilokar
hins vegar ekki að einhverjir þeir
kostir bjóðist í framtíðinni sem
ásættanlegir væru. Það gæti þá og
því aðeins gerst að a) orka þeirra
verði nýtt í héraðinu b) að Skag-
firðingum hafi gefist kostur á að
kjósa um málið og taka ákvörðun
um virkjun með beinum lýðræð-
islegum hætti. Þessi afstaða kem-
ur mjög vel heim og saman við
grundvallarhugsun þá sem býr í
tillögum þingflokksins.
Raunsæ afstaða
Samfylkingarinnar
Afstaða Samfylkingarinnar í
Skagafirði til virkjana jökulsánna í
Skagafirði hefur lengi verið skýr.
Hún er náttúrunni vinsamleg,
raunsæ og öfgalaus og það er ef
til vill þess vegna sem þingmaður
Vinstri grænna virðist hafa horn í
síðu hennar – ef marka má skrif í
Morgunblaðinu.
Fagra Ísland –
Fagri Skagafjörður
Anna Kristín Gunnarsdóttir
skrifar um stefnu Samfylking-
arinnar í umhverfismálum
» Það er grundvall-aratriði að náttúra
landsins í heild sé
vernduð uns rannsóknir
liggja fyrir og mat hefur
verið lagt á tiltekið
svæði með tilliti til
þeirra.
Anna Kristín
Gunnarsdóttir
Höfundur er þingmaður Samfylking-
arinnar í Norðvesturkjördæmi.