Morgunblaðið - 21.09.2006, Síða 48

Morgunblaðið - 21.09.2006, Síða 48
48 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ fólk Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn HEIMURINN ER STÓR OG ÞÚ ÁTT MIKIÐ ÓSÉÐ ER ÞAÐ? JÁ VÁ HVAÐ HANN ER STÓR HEYRÐU ÞETTA ER EKKI BARN, ÞETTA ER BARA HUNDUR Í BARNAFÖTUM GÚGÚ! RÓSA, VIÐ ERUM KOMIN HEIM! HVERNIG VAR KALVIN Í KVÖLD? SVONA SLÆMUR... OG ÉG VIL 500 kr. FYRIR FRAM FYRIR NÆSTA SKIPTI JÆJA, GJÖRÐU SVO VEL OG GÓÐA NÓTT HÚN ER NÚ EKKI ÓDÝR ÞESSI STELPA VILTU VERA HEIMA Á HVERJU KVÖLDI ÞANGAÐ TIL KALVIN VERÐUR 18? HELGA! ÉG ER KOMINN HEIM! HVAÐ ER Í MATINN Í KVÖLD?!? ÉG ER AÐ ELDA SVOLÍTIÐ TIL HEIÐURS MAGANUM ÞÍNUM! HVAÐ ER ÞAÐ? SVÍNA- VÖMB!! ÉG VILDI AÐ ÉG GÆTI FENGIÐ AÐ TALA VIÐ LASSÍ! ÞVÍ MIÐUR, LASSÍ ER MEÐ LEYNINÚMER SVO AÐ ÖFUGUGGAR GETI EKKI HRINGT Í HANA UM MIÐJA NÓTT... EÐA ÞAÐ SAGÐI AÐ MINNSTA KOSTI KONAN Í 118 FILIPE! HVAÐ HEFURÐU GERT VIÐ HÁRIÐ Á MÉR?!? ÉG BAÐ UM AÐ HAFA ÞAÐ AÐEINS DEKKRA, NÚNA LÍT ÉG ÚT EINS OG VOND NORN! EN ANNARS ER ÞAÐ FÍNT GOTT. LOF MÉR ÞÁ AÐ KLÁRA ÉG NÁÐI AÐ BJARGA STELPUNNI MEÐ ÞVÍ AÐ GRÍPA BITANN ÉG ER AUMUR EFTIR BAR- DAGANN VIÐ NASHYRNINGINN ÉG GET EKKI HALDIÐ HONUM Ídag, 21. september, er Alþjóð-legur Alzheimersdagur. Afþví tilefni mun Rann-sóknasetur í barna- og fjöl- skylduvend (RBF) standa fyrir mál- þingi á Hótel Loftleiðum næstkomandi laugardag, 23. sept- ember. Yfirskrift málþingsins er Heilabilun – Fjölskyldusjúkdómur 21. aldar? Hanna Lára Steinsson er for- stöðumaður RBF: „Í nóvember eru liðin 100 ár síðan Alzheimerssjúk- dómurinn var greindur í fyrsta sinn. Alzheimers er hrörnunarsjúkdómur í heila og eru einkenni hans m.a. skert minni og skerðing á getu til daglegra athafna,“ útskýrir Hanna Lára: „Talið er að á Íslandi séu um 3.000 manns með heilabilun og af þeim hópi þjást um 60% af Alzheim- erssjúkdómnum. Vegna hækkandi lífaldurs og stærri árganga aldraðra er talið að árið 2030 verði 5.500 manns hér á landi Alzheim- erssjúklingar“ Bakhjarlar málþingsins á laug- ardag eru félagsmálaráðuneytið, heilbrigðismálaráðuneytið, Velferð- arsvið Reykjavíkurborgar, Rann- sóknarstofa HÍ og LSH í öldr- unarfræðum og FAAS – Félag aðstandenda Alzheimersjúklinga: „Ánægjulegt er hve margir koma að málþinginu. Á laugardag verðum við með fjölbreytta dagskrá: Fyrst mun Christine Swane fjalla um þróun þjónustu við Alzheimerssjúklinga og aðstandendur þeirra í Danmörku,“ segir Hanna Lára: „Þvínæst mun ég fjalla um úrræði í nútíð og framtíð fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra, en á eftir erindi mínu verður sýnt brot úr nýrri fræðslumynd, Hugarhvörf, um Alzheimers þar sem Kristbjörg Kjeld og Alfreð Gíslason leika. Að því loknu mun Helga Vala Helgadóttir fjölmiðla- kona og dóttir Alzheimerssjúklings segja frá sinni persónulegu reynslu og að lokum ætlar María Th. Jóns- dóttir, formaður FAAS og maki Alz- heimerssjúklings fjalla um stöðu að- standenda.“ Í hléi verður kynnt bókin Í skugga Alzheimers: ástvinir segja frá sem Hanna Lára er höfundurinn að: „Bókin byggist á átta djúpviðtölum við aðstandendur Alzheim- erssjúklinga og er ætluð bæði fag- fólki og nemendum í heilbrigðisvís- indum, og ekki síður almenningi til fróðleiks. Bókinni er ætlað að auka skilning samfélagsins á sjúkdóm- inum, en algengt er að fólk hafi mikl- ar ranghugmyndir um Alzheimers.“ Rannsóknasetur í barna- og fjöl- skylduvernd starfar á vegum fé- lagsráðgjafarskorar Háskóla Ís- lands. Rannsóknasetrinu er ætlað að efla fjölskyldurannsóknir í fé- lagsráðgjöf og stendur fyrir ým- iskonar fræðslu og málþingum. Á heimasíðu rannsóknasetursins, www.rbf.is, má finna nánari upplýs- ingar um starfsemina. Þar má einnig finna nákvæmari dagskrá málþings laugardagsins. Frekari upplýsingar um Alzheimerssjúkdóminn m.a. finna á slóðinni www.alzheimer.is, upplýsingavef FAAS. Ráðstefnan á laugardag stendur frá 13 til 15.40. Aðgangur er öllum heimill og skráning óþörf, en þátt- tökugjald, kr. 1.500, greiðist við inn- ganginn. Heilsa | Málþing verður haldið á Hótel Loftleiðum á laugardag kl. 13 Alþjóðlegur Alzheim- ersdagur er í dag Hanna Lára Steinsson fædd- ist í Reykjavík 1964. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1984, B.A. prófi í upp- eldis- og mennt- unarfræðum frá Háskóla Íslands 1992, hlaut starfs- réttindi í félagsráðgjöf frá sama skóla 1994 og M.A. gráðu í uppeld- is- og menntunarfræðum 2002, einnig frá sama skóla. Hanna Lára leggur nú stund á doktorsnám í fé- lagsráðgjöf. Hún var félagsráðgjafi í rannsóknarstöðu við LSH Landa- koti 1997-2006 en hefur verið for- stöðumaður RBF frá mars 2006. Hanna Lára á tvo syni. Kvikmyndaleikstjórinn og hand-ritshöfundurinn hálsmikli George Lucas sýndi mikla gjafmildi á dögunum þegar hann gaf skól- anum sínum litlar 175 milljónir bandaríkjadala í styrk, jafngildi rösklega 12 milljarða króna. George Lucas útskrifaðist árið 1966 frá Há- skólanum í Suður-Kaliforníu (USC), þar sem áhugi hans á kvikmynda- gerð kviknaði fyrst fyrir alvöru. Peningagjöf leikstjórans vinsæla er sú stærsta í sögu háskólans, en fyrra metið átti milljarðamæring- urinn og útgáfujöfurinn Walter An- nenberg sem gaf skólanum 120 millj- ónir bandaríkjadala árið 1993. Af gjafafénu verður 75 milljónum bandaríkjadala varið til byggingar nýtísku kennsluhúsnæðis fyrir heimsfræga kvikmyndagerðardeild háskólans.    Söngbomban Beyonce hlaut flest-ar tilnefningar til MOBO- verðlaunanna. MOBO verðlaunin eru sérstaklega tileinkuð afrekum svartra tónlistarmanna, en Beyonce hlaut fjórar tilnefningar, m.a. fyrir besta lagið, „Deja Vu“. Hún var einnig tilnefnd fyrir besta tónlistar- myndbandið fyrir sama lag. Hin breska Corinne Bailey Rae kom fast á hæla þokkadísarinnar tónvísu með þrjár tilnefningar. Aðrir sem til- nefndir eru fyrir besta lagið eru Gnarls Barkley með lagið „Crazy“, Mary J. Blige með lagið „Be Witho- ut You“ og Ne-Yo með lagið „So Sick“ Verðlaunaafhendingin mun fara fram á miðvikudag. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.