Morgunblaðið - 23.09.2006, Side 2
2 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
laugardagur 23. 9. 2006
íþróttir mbl.isíþróttir
Frábær endasprettur hjá Heiðari Davíð í Svíþjóð >> 4
MEISTARI ÓLAFUR JÓ
„ÞAÐ ER AUÐVELT AÐ VERA ÞJÁLFARI ÞEGAR VEL GENGUR. ÉG
ER HINS VEGAR VANUR ÞVÍ AÐ SVARA ÞESSUM SNILLINGUM“ » 2
Sigurð Elvar Þórólfsson
mbl.is
rleiknum fyrir hádegi í gær fékk
puliðið 2½ vinning gegn 1½
ngi bandaríska liðsins. Það
a var uppi á teningnum eftir há-
í fjórmenningnum, Evrópa fékk
inning og Bandaríkin 1½.
rgio Garcia, frá Spáni, var mað-
ærdagsins en hann stóð uppi
sigurvegari í báðum leikjum sín-
Fyrst með landa sínum Jose
a Olazabal gegn David Toms og
t Wetterich. Eftir hádegi fagn-
Garcia sigri með Luke Donald
Tiger Woods og Jim Furyk.
g fékk frábæra félaga í báðum
unum og ég elska þessa keppni.
æti ekki lifað án hennar. Ryder-
nin fær mig til þess að leggja
harðar að mér og það er líka allt-
aman að vinna Tiger Woods,“
i Garcia en hann er að leika í
fjórðu keppni.
Ian Woosnam fyrirliði Evrópuliðs-
ins sagði að hann hefði sætt sig við
að vera einum vinningi yfir eftir
fyrsta keppnisdaginn. „Ég upplifði
frábæra stund með strákunum. Þeir
léku allir vel og ég er ánægður fyrir
þeirra hönd.“
Lehman er bjartsýnn
Tom Lehman fyrirliði bandaríska
liðsins sagði að staðan væri ágæt og
allt væri mögulegt í framhaldinu.
„Við höfðum ekki heppnina með okk-
ur á flötunum og það er alltaf sárt að
sjá ekki bolta detta ofaní holuna.
Strákarnir lögðu sig fram og sýndu
baráttuvilja. Það er mikið eftir af
þessari keppni,“ sagði Lehman.
Tiger Woods viðurkenndi að hann
hefði verið lengi í gang í fjórleiknum,
en hann og Jim Furyk sigruðu í
fyrsta leiknum gegn Paidraig Harr-
ington og Colin Montgomerie.
„Ég er feginn að þessi keppni er
loksins byrjuð eftir allt það sem hef-
ur verið á dagskrá utan vallar. Ég
var að slá fín högg eftir hádegið en
fyrir hádegi var ég lengi í gang,“
sagði Woods en hann hefur lýst því
yfir að það sé of mikið á dagskránni
hjá kylfingum utan vallar í aðdrag-
anda keppninnar.
Vaughn Taylor, David Toms,
Scott Verplank og Brett Wetterich
hvíldu í fjórmenningnum eftir há-
degi í bandaríska liðinu. Í Evrópulið-
inu hvíldu þeir Robert Karlsson,
Jose Maria Olazabal, Darren Clarke
og Paul Casey.
Garcia dró
vagninn
Reuters
Sigurgleði Sergio Garcia frá Spáni fagnar sigri hans og Luke Donald gegn Jim Furyk og Tiger Woods.
var heitt í kolunum í misjöfnu
i á fyrsta keppnisdegi Ryder-
ninnar í gær á K-klub á Ír-
i. Evrópuliðið, sem hefur titil
erja, landaði 5 vinningum gegn
ningum bandaríska liðsins.
íðarleg spenna var í leikjum
dagsins, þar sem að úrslit í 7
um af 8 réðust á 18. flöt en Evr-
er með 5 vinninga gegn 3 vinn-
m Bandaríkjamanna eftir
a keppnisdaginn en það getur
gerst í framhaldinu.
yder-lið Evrópu er með yfirhöndina
A Guðlaug Vigfúsdóttir,
kona frá Neskaupstað, var
gunum valin besti leik-
ur alþjóðlegs móts þar
landslið skipuð leikmönn-
7 ára og yngri mættust.
a er í fyrsta sinn sem ís-
kur leikmaður í unglinga-
i fær slíka viðurkenningu
ti erlendis.
ð voru bæði drengja- og
nalið á mótinu sem fram
sæti eftir
að það
lagði Fær-
eyinga, 3:1,
í leik um
bronsið. Er
það besti
árangur
sem lið
skipað
leikmönn-
um 17 ára
unnu fyrstu hrinuna, 25:12, en
stúlkurnar létu það ekki á sig
fá og unnu næstu þrjár hrinur.
Drengirnir léku um fimmta
sætið við Færeyinga og unnu
þann leik örugglega, 3:0.
Áður höfðu þeir tapað fyrir
Svíum og Dönum í riðlakeppn-
inni og síðan Norðmönnum í
krossspilinu. Stúlkurnar unnu
hins vegar Noreg, 3:1, og Fær-
eyinga í riðlakeppninni en töp
Jóna Guðlaug
Vigfúsdóttir.
óna Guðlaug valin best
alþjóðlegu blakmóti
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
VIKTOR Unnar Illugason,
knattspyrnumaður úr Breiða-
bliki, skrifaði í gær undir
tveggja og hálfs árs samning
við enska úrvalsdeildarliðið
Reading. Að sögn Ólafs Garð-
arssonar, umboðsmanns, er
samningurinn sem Viktor
gerði mjög góður en Viktor
liða um nokkurt skeið. Hann
var til reynslu hjá ensku lið-
unum Reading og Ipswich og
sömuleiðis hjá Feyenoord en
Steve Coppell, knattspyrnu-
stjóri Reading, hreifst mjög
af Viktori og bauð honum
samning. ,,Ég er mjög glaður
með samninginn og hlakka
mikið til. Ég var eiginlega bú-
inn að taka ákvörðun um að
fara til Ipswich en ákvað á
þar eru þrír Íslendingar og
eins að ég get klárað tímabilið
með Breiðabliki,“ sagði Vikt
or Unnar. Hann hefur spilað 9
leiki Blikanna í Landsbanka
deildinni í sumar og verður
með í dag þegar Breiðablik
tekur á móti Keflavík. Á
morgun heldur hann til Rúm
eníu með U-17 ára landsliðinu
sem þátt í undankeppni EM
en í byrjun nóvember fer ti
Viktor Unnar samdi við
Íslendingaliðið Reading
laugardagur
23. 9. 2006
börn
BÚ ÚTI Í SKÓGI
MARGVÍSLEGIR LEYNDARDÓMAR HEIÐMERKURINNAR
BRYNJA Á SÉR UPPÁHALDSSTAÐI MILLI GRENI- OG BIRKITRJÁA
„Ég er allavega mest með mér,“ segir Brynja glöð. » 3
Einu sinn var tröll sem bjó í
fjalli hjá mömmu sinni.
Einn dag leiddist litlu
tröllastelpunni á meðan
mamma hennar var í
burtu. Hana langaði að
fara út um miðjan dag og
þá fór hún út og varð að
steini. Þegar mamma
hennar kom heim þá sá
hún að litla tröllastelpan
hennar var horfin og loks-
ins fann hún hana og fór að
gráta.
Þá lifnaði hún við og
komst heim með mömmu
sinni.
Urður Helga Gísladóttir,
sjö ára, sendi þessa sögu.
Tröllasaga
Það glamrar í bollunum á meðan amma tekur lagið yfir uppvaskinu. Þessa litríku mynd sendi Steinrós Birta Kol-
beinsdóttir sem er átta ára og örugglega liðtæk í eldhúsinu hjá ömmu.
Amma vaskar upp
Margar frábærar sögur bárust Barna-blaðinu í örsögukeppninni. Gaman er aðsjá hvað margir krakkar kunna að skrifa
skemmtilegar og innihaldsríkar sögur. Vel getur
verið að einhverjir upprennandi rithöfundar
framtíðarinnar séu á meðal þessara snjöllu
penna.
Vinningshafar eru:
Urður Helga Gísladóttir,
7 ára, Tröllasaga.
Kristín Helga Tryggvadóttir,
11 ára, Hvað nú?
Hrafnhildur Magney Gunnarsdóttir, 12 ára,
Litla dádýrið Bambi.
Haukur Húni Árnason,
9 ára, Klifurkappinn.
Alexandra Rós Ottósdóttir,
12 ára, Geiri skólataska.
Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir,
5 ára, Prinsessurnar.
Karen Einarsdóttir, 11 ára,
Kisa litla.
Til hamingju með sögurnar ykkar. Þið munuð
fá send heim vegleg bókaverðlaun.
Sigurvegarar í
örsögukeppninni
Vindharpa Stelpur í Barnaskóla Hjallastefnunnar slá vindhörpuna og láta tónana flæða um Heiðmörk.
Hvað sagði núllið við áttuna?
Af hverju ertu með beltið svona strekkt?
Laugardagur 23. 9. 2006
81. árg.
lesbók
BARÁTTUKONAN BRÍET
BRÍET BJARNHÉÐINSDÓTTIR ÁTTI STÆRSTAN ÞÁTT Í AÐ HRINDA
AF STAÐ FYRSTU BYLGJU KVENRÉTTINDABARÁTTUNNAR
Kólumbus var fé- og valdagráðugur harðstjóri sem hikaði ekki við að limlesta menn » 10
Eftir Atla Heimi Sveinsson
hs@centrum.is
Þ
etta er síðbúin hugleið-
ing á 250. afmælisári
Mozarts, en hann
fæddist árið 1756.
Margt hefur verið
skrifað um hann á
þessu ári og misjafnt eins og geng-
ur.
Mozart hefur verið lýst sem brot-
hættri rókókó-dúkku. Líka sem goð-
umborinni himnasendingu sem rétt
hafi stigið fæti á þessa jörð, jafnan
verið misskilinn og lengst af staur-
blankur.
Eða sem glaðværum, saklausum
yrirmyndarunglingi, sem alltaf var
ákvæður, í góðu skapi og óend-
anlega fögur músík rann endalaust
g fyrirhafnarlaust upp úr honum.
Og nýlega er farið að tala um svall-
arann og spilafíkilinn Mozart. Og er
þá fátt upp talið.
Klökkvakennd og væmin skrif um
Mozart segja mér ekkert um tónlist
hans. Þau lýsa fyrst og fremst sálar-
ástandi skrifaranna, og það finnst
mér ekki áhugavert. En þessi músík
hefur löngum verið mér nokkur ráð-
gáta
Áhugi almennings á Mozart er
mikill. En beinist áhuginn að verk-
um hans eða rómantískri útleggingu
á einkalífi hans?
Flokka mætti hann sem einhvers
konar stjörnu eða seleb.
Leikritið Amadeus á eflaust sinn
þátt í því. Var það sýnt endur fyrir
öngu í Þjóðleikhúsinu (og nú stend-
ur til að taka það upp aftur í Borg-
arleikhúsinu); frábær sýning og upp
úr stóð snilldarleikur Sigurðar Sig-
urjónssonar og Róberts Arnfinns-
onar í hlutverkum Mozarts og Sali-
ris, öfundarmanns hans og
tarfsnautar.
Kvikmynd Formans, sem víða fór,
var á margan hátt góð og naut mik-
lla vinsælda.
Einnig má nefna kvikmyndina um
Elviru Madigan, en þar var hægi
þátturinn úr píanókonsertinum K.
67 í C-dúr notaður sem leiðsögulag.
En ekki veit ég hversu vinsæl tón-
ist Mozarts er.
Hann var löngum mikið spilaður
g aldrei meira en nú, burtséð frá
allri markaðssetningu.
Mozart samdi fáa slagara: staðl-
aðar, einfaldar tónhendingar, sem
við síendurtekningu líma sig inn í
eyrað. Einhvers staðar hef ég heyrt
eða lesið að Verdi minntist aðeins
einu sinni á Mozart í bréfum sínum:
segir að hann sé ekki melodista
heldur quartettista. Verdi á við að
hjá Mozart er ekki ein laglína
ríkjandi í efstu rödd með einföldum
hljómaundirleik, heldur séu fleiri
jafnréttháar raddir ríkjandi sam-
tímis og þær tali saman, alveg eins
og í kvartettum og annarri kamm-
ermúsík.
Goethe lýsti kammermúsík þann-
ig að hún væri eins og samræður
fjögurra einstaklinga á háu listrænu
og andlegu plani.
Ég hef reynt að finna út af hverju
og hvers vegna tónlist Mozarts höfð-
ar til mín. Spurningar hef ég nógar
en ekki svör við þeim öllum.
Ég reyni að hlusta á verkin með
opnum huga, lesa nóturnar og finna
út hvað það er sem þessi tónlist hef-
ur að segja mér og okkur – rúmum
tveim öldum eftir að hún heyrðist
fyrst.
Kannski er allt þetta rangt. Á
maður nokkuð að pæla í verkum
Mozarts – á ekki bara njóta þeirra?
Hefur tónlist hans undursam-
legan og óútskýranlegan eiginleika
til að höfða til marga kynslóða? Var
Mozart samtímamaður allra manna,
líkt og sagt hefur verið um Shaka-
speare eða var hann ofmetnasta séní
sögunnar? » 3
Var Mozart
ofmetnasta
séní sögunnar?
Mozart „Flokka mætti hann sem
einhvers konar stjörnu eða seleb.“
Eða hvers vegna höfða verk hans enn til okkar?
Reuters
Benedikt XVI. páfi Þörf er á víðtækara skynsemis- og trúarhugtaki til að
fram geti farið opin samræða á milli ólíkra menningarheima. » 6
Mírgorod eftir rússneska rithöfund-
innn Nikolaj Gogol er komin út í ís-
lenskri þýðingu Árna Bergmanns,
Áslaugar Agnarsdóttur og Þórarins
Kristjánssonar en þau þýddu úr
frummálinu. Hávallaútgáfan gefur
út en hún sendi frá sér Pétursborg-
arsögur Gogols árið 2004.
Mírgorod samanstendur af fjórum
sögum sem eiga það allar sameig-
inlegt að vísa til heimahaga skálds-
ins í Úkraínu. Sögurnar eru Land-
eigendur frá liðinni tíð, sem er
tregablandin lýsing á hjónum sem
eyða ævikvöldinu saman í friðsæld,
ást og öryggi á landareign sinni í
sveitinni, hetjusagan Taras Búlba,
sem dregur upp blóði drifna mynd af
styrjöldum Kósakka á sextándu öld,
Víj, sem er dulmögnuð hrollvekja
þar sem norn kemur fram hefndum
með aðstoð óvættar, og að síðustu
Sagan af því hvernig í brýnu sló milli
Ívans Ívanovitsj og Ívans Nikifor-
ovitsj sem er bráðfyndin lýsing á fá-
ránlegri deilu tveggja vina.
Nikolaj Gogol fæddist árið 1809 í
Poltava-héraði í Úkraínu og var eitt
af allra áhrifamestu skáldum Rúss-
lands á nítjándu öld. Fyrsta bók
hans, söguljóðið Hanz Küchelg-
arten, sem kom út árið 1829, fékk
slæma útreið hjá gagnrýnendum og
varð til þess að höfundurinn brenndi
upplagið. Þekktustu verk hans eru
meðal annars Mírgorod og svo
meistaraverkið Dauðar sálir sem
kom út árið 1842 en höfundurinn
brenndi reyndar annan og þriðja
hluta þess á báli og komu þeir því
aldrei fyrir sjónir lesenda.
Mírgorod eftir Gogol Sam-
anstendur af fjórum sögum.
Mírgo-
rod á
íslensku
Önnur bók rússneska
meistarans Gogols í
íslenskri þýðingu
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 36/42
Staksteinar 8 Bréf 42
Veður 8 Kirkjustarf 44/45
Viðskipti 16 Minningar 46/50
Erlent 18/20 Skák 50
Menning 22/23, 54/60 Myndasögur 60
Akureyri 24 Dagbók 61/65
Árborg 24 Staður og stund 62
Landið 25 Víkverji 64
Suðurnes 25 Velvakandi 64
Daglegt líf 26/33 Bíó 62/65
Forystugrein 34 Ljósvakamiðlar 66
* * *
Erlent
Lestarslys í Þýskalandi kostaði
að minnsta kosti 23 menn lífið í gær
og tíu til viðbótar slösuðust alvar-
lega. Slysið varð þegar hátækni-
hraðlest, knúin rafseglum, rakst á
þjónustuvagn á upphækkaðri lest-
arbraut. » 1
Leiðtogi Hamas, hreyfingar ísl-
amista úr röðum Palestínumanna,
kvaðst í gær vilja tíu ára vopnahlé
við Ísraela. Hann neitaði þó sem fyrr
að viðurkenna tilverurétt Ísraels-
ríkis. » 18
Bandaríkjastjórn hefur náð sam-
komulagi við áhrifamikla öld-
ungadeildarþingmenn úr röðum
repúblikana um umdeilt laga-
frumvarp um réttindi meintra
hryðjuverkamanna í fangelsi
Bandaríkjahers í Guantanamo á
Kúbu. »20
Innlent
Tuttugu starfsmönnum Nýju
fréttastofunnar, NFS, var sagt upp
störfum í gær, m.a. forstöðumanni
fréttastofunnar, Róberti Marshall. Í
framhaldi af því voru kynntar
áherslubreytingar sem miða að því
að efla fréttavefinn visir.is og aðra
fréttamiðlun. »4
Stéttarfélag íslenskra fé-
lagsráðgjafa mótmælir harðlega
ráðningu viðskiptafræðings í starf
sviðsstjóra velferðarsviðs Reykja-
víkurborgar. Formaður félagsins
segir margoft vera litið framhjá fé-
lagsráðgjöfum og fólk með aðra
menntun sett í þeirra störf. » 68
Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra segir þunga þróun
vera í þá átt að settar verði sameig-
inlegar reglur um flest svið refsirétt-
arins í Evrópu til að auðvelda við-
brögð við vaxandi alþjóðlegri
glæpastarfsemi. Þrýst er á ríki að
láta af öllum fyrirvörum sem taldir
eru tefja úrlausn mála. » 4
Viðskipti
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu
hækkaði um 2,4% milli júlí og ágúst
en greiningardeildir bankanna telja
engu að síður ólíklegt að hækkunin
sé til marks um að íbúðaverð muni
almennt taka að hækka á ný. » 16
SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ mun
eftir helgi kanna áhuga annarra
flugfélaga á að sinna áætlunarflugi
til og frá Vestmannaeyjum eftir að
flugfélagið Landsflug ehf. tilkynnti
að það myndi hætta áætlunarflugi á
leiðinni. Síðasta flugið verður á
morgun, sunnudag. Bæjarstjóri
Vestmannaeyja telur að málið verði
ekki leyst nema með aðkomu rík-
isvaldsins.
Landsflug tilkynnti ákvörðun
sína í gær. Að sögn Rúnars F.
Árnasonar, framkvæmdastjóra fé-
lagsins hefur flugleiðin ekki staðist
væntingar um arðsemi og því verið
ákveðið að hætta áætlunarflugi.
Kom ekki á óvart
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, sagði þessa
ákvörðun Landsflugs ekki koma sér
og bæjaryfirvöldum á óvart. „Þetta
er það sem við höfum haft hangandi
yfir okkur í alltof langan tíma,“
sagði hann í samtali við fréttaritara
Morgunblaðsins. „Sú þjónusta sem
hefur verið veitt á flugleiðinni er
langt frá því að vera í takt við þarf-
ir markaðarins. Þjónustan á þessari
leið gerir miklar kröfur til flug-
rekstraraðila og það er ekki á færi
smárra fyrirtækja að veita þá þjón-
ustu sem þarf við jafnstórt sveitar-
félag og hér er.“ Það væri ekki síð-
ur grátlegt að horfa upp á það að
helsta perla íslenskrar ferðaþjón-
ustu skyldi sitja uppi með það að
hér fækkaði ferðamönnum meðan
fjöldi ferðamanna á Íslandi ykist ár
frá ári. Elliði bætti við að Flugfélag
Íslands væri eina flugfélagið á Ís-
landi sem réði við svo stórt verk-
efni.
Elliði hefur nú þegar haft sam-
band við fulltrúa samgönguráðu-
neytisins vegna ákvörðunar Lands-
flugs og kveðst munu ræða við
forsætisráðherra og fjármálaráð-
herra um helgina vegna málsins.
Hann sagði alveg ljóst að krafa
bæjaryfirvalda í Eyjum væri útboð
á flugleiðinni. „Við höfum nú þegar
krafist þess og munum fylgja því
fast eftir. Það er von mín og trú að
ríkisstjórnin komi til með að leysa
þetta verkefni á fundi næstkomandi
þriðjudag. Samgöngur eru á for-
ræði ríkisins og það er ljóst að
þetta mál verður ekki leyst nema
með aðkomu þess,“ sagði Elliði.
Flugfélag Íslands hætti 2001
Flugfélag Íslands hætti áætlun-
arflugi til Vestmannaeyja í október
2001 eftir að hafa stundað áætl-
unarflug þangað í 50 ár. Íslandsflug
hélt áfram áætlunarflugi á flugleið-
inni og um tíma átti félagið í sam-
keppni við flugfélagið Jórvík.
Landsflug, arftaki Íslandsflugs, hef-
ur verið eitt á þessum markaði und-
anfarið. Um síðustu mánaðamót
sagði félagið upp 5 flugmönnum og
14 starfsmönnum í viðhaldsfyrir-
tæki sínu.
Bæjarstjóri vonast
eftir aðstoð ríkisins
Landsflug hættir áætlunarflugi til Vestmannaeyja
Í HNOTSKURN
» Herjólfur siglir til Vest-mannaeyja tvisvar á dag
og unnt er að fljúga milli
Heimaeyjar og Bakka-
flugvallar.
» Áætlunarflug til Vest-mannaeyja hefur ekki ver-
ið ríkisstyrkt.
» 1. desember 2005 bjuggu4.175 manns í Vest-
mannaeyjum.
Morgunblaðið/Ómar Garðarsson
Hættir Landsflug mun hætta áætlunarflugi frá og með mánudegi. Óvíst er hvort einhver tekur við.
Eftir Sigursvein Þórðarson
og Rúnar Pálmason
Í AÐDRAGANDA alþingiskosn-
inga verður formi þeirra greina,
sem lúta að prófkjörum flokkanna,
breytt. Er þetta gert til þess að
gera efnið aðgengilegra fyrir les-
endur og auka möguleika Morg-
unblaðsins á að koma greinunum á
framfæri.
Frambjóðendum býðst að skrifa
greinar í blaðið og verður lengd
greinanna miðuð við 3.000 tölvuslög
með bilum. Greinar sem skrifaðar
eru til stuðnings eða gegn ein-
stökum framboðum eða frambjóð-
endum verða eingöngu birtar á
mbl.is. Engin lengdarmörk eru á
þeim greinum er þar birtast. Þær
verða yfirfarnar af starfsmönnum
ritstjórnar Morgunblaðsins en rétt-
ritun er á ábyrgð höfunda.
Eingöngu verður tekið við grein-
um sem skilað er í gegnum vefsíðu
Morgunblaðsins, mbl.is. Smellt er á
reitinn „Senda inn efni“ á forsíðu
mbl.is. Þá er valinn reiturinn
„Kosningar“ og opnast þá stílsnið
sem hægt er að skrifa eða „líma“
greinarnar inn í. Þeir sem ekki hafa
sent greinar áður í gegnum þetta
stílsnið þurfa að skrá sig inn og fá
þá sent lykilorð í tölvupósti. Að því
fengnu er hægt að nota stílsniðið.
Einnig er hægt að senda myndir af
höfundum í gegnum stílsniðið.
Þar sem nokkrar greinar fram-
bjóðenda í prófkjörum bárust
blaðinu áður en þetta fyrirkomulag
er kynnt munu nokkrar greinar,
sem eru umfram fyrrgreind lengd-
armörk, birtast í blaðinu næstu
daga.
Nánari upplýsingar gefa Guðlaug
Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is, s.
569-1323 og Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is, s. 569-1224.
Breytt fyrirkomulag aðsendra
greina vegna prófkjöra
enski boltinn
LÆGRI
VEXTIR
LÆGRA
LÁNTÖKUGJALD
BARÁTTA Á ANFIELD
Henry lét hafa þetta eftir sér þeg-
ar ImpactArt var sett af stað, en
það er verkefni þar sem athyglinni
er beint að ungu fólki sem er al-
varlega veikt. „Það var krakki sem
spurði mig hvort ég hefði getað
hugsað mér að leika með einhverju
öðru félagi hérna í Englandi og ég
svaraði strax: Liverpool,“ sagði
Henry
„Í fyrsta lagi hefði ég mjög
gjarnan viljað leika með Steven
Gerrard og í annan stað þá líkar
mér vel við Liverpool og elska
stuðningsmenn félagsins. Það er
eitthvað við Anfield sem ég á erfitt
með að koma orðum að. Það er
mjög sérstakt að spila þar og alltaf
jafngaman að koma þangað. An-
field er frábær.“
Ólýsanleg tilfinning
„Það er ólýsanlegt að koma út
úr búningsherberginu á Anfield og
sjá The Kop, alla treflana, og
heyra fólkið syngja You’ll Never
Walk Alone. Bara það er nóg til
þess að ég hefði vel getað hugsað
mér að spila með Liverpool og það
er eina félagið á Englandi fyrir
utan Arsenal, sem ég gæti hugsað
mér að spila með,“ sagði Henry.
Fjölmiðlar fjölluðu nokkuð um
þetta í gær enda ekki á hverjum
degi sem snjall knattspyrnumaður
ber slíkt lof á önnur félög og
keppinauta. Fjölmiðlar flögguðu
því hins vegar ekki mikið sem
hann sagði í lok viðtalsins.
Ekki annað félag en Arsenal
„Auðvitað getur ekkert orðið af
þessum hugrenningum mínum því
ég elska Arsenal allt of mikið til að
af þessu geti orðið. Það er útilokað
að ég leiki með öðru félagi en Ars-
enal hér á Englandi,“ sagði Henry.
Lofsöngur Henry beinist fyrst
og fremst að Liverpool en varla
eru vinnuveitendur hans í Lund-
únum par kátir með hversu mikið
lof fyrirliði Arsenal ber á Liver-
pool sögu félagsins og leikvang
Reuters
Lofar mótherja Thierry Henry, fyrirliði Arsenal, fer fögrum orðum um Liverpool og leikvang og liðsins. Hér kyssir hann sinn gamla heimavöll, Highbury.
„Anfield er frábær“
FRANSKI landsliðsmaðurinn
Thierry Henry, sem leikur með
Arsenal, sagði í gær að hann elsk-
aði stuðningsmenn Liverpool. Um-
mæli hans komu nokkuð óvart, en
hann er í guðatölu hjá stuðnings-
mönnum Arsenal og það er ekki á
hverjum degi sem slíkir menn bera
þvílíkt lof á mótherja sína.
Í HNOTSKURN
»Henry, sem verður þrítug-ur í ágúst, hóf atvinnu-
mannsferil sinn undir stjórn
Arsene Wenger hjá franska
liðinu Mónakó.
»Þaðan fór hann til Juven-tus þar sem honum gekk
fremur illa og hann gekk til
liðs við Arsenal 3. ágúst 1999.
»Henry hefur leikið 347leiki fyrir félagið og gert
215 mörk í þeim.
Arsenal-maðurinn Thierry Henry lofar Liverpool og stuðningsmenn félagsins
og segir ólýsanlegt að ganga til leiks á leikvangi félagsins, Anfield
ANDY Johnson, framherji Everton,
hefur staðið sig best allra leik-
manna í ensku úrvalsdeildinni það
em af er samkvæmt útreikningum
Actim, sem heldur utan um frammi-
töðu allra leikmanna í deildinni og
reiknar út einkunnir þeirra fyrir
hina ýmsu þætti eftir hvern leik. Ív-
ar Ingimarsson, Reading, er eini Ís-
endingurinn sem kemst á topp 100-
istann en hann er í 42. sæti.
Andy Johnson, sem gekk til liðs
við Everton frá Crystal Palace í
umar, hefur skorað 5 mörk fyrir
Everton í úrvalsdeildinni í sex
fyrstu umferðunum og er marka-
hæstur ásamt Bobby Zamora, fram-
herja West Ham.
Tíu bestu leikmennirnir sam-
kvæmt útreikningum Actim eru
þessir, stig þeirra fylgja með:
Andy Johnson, Everton, 141
Bobby Zamora, West Ham, 112
Kanu, Portsmouth, 111
Didier Drogba, Chelsea, 109
Sean Davis, Portsmouth, 105
Ryan Giggs, Man. Utd., 102
Tim Cahill, Everton, 102
David James, Portsmouth, 98
Louis Saha, Man.Utd., 97
Lian Ridgewell, Aston Villa 94
Johnson
fremstur
í flokki
Sjóðheitur Andrew Johnson hefur leikið
inkar vel í upphafi leiktíðar á Englandi.
TVEIR leikir verða í beinni útsend-
ngu í dag frá enska boltanum, leik-
ur Liverpool og Tottenham klukk-
an 11.45 og síðan Reading og
Manchester United klukkan 16.15.
Ekki verður sýnt beint frá leikj-
unum sem hefjast klukkan 14 vegna
okaumferðarinnar í Lands-
bankadeild karla
Beint í dag
„SÉRLEGA MIKILVÆGT FYRIR NÝJAN FRAMHERJA
Í NÝJU LANDI AÐ SKORA FYRSTA MARKIГ
laugardagur 23. 9. 2006
íþróttir mbl.is
Mútumál í enskri knattspyrnu – enginn telur sig hafa rangt við » 4