Morgunblaðið - 23.09.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 49
KIRKJUSTARF
Hjóna- og
sambúðarmessur
Á vorönn 2006 var boðið upp á nýtt
helgihald í Garðaprestakalli. Það
voru kvöldmessur síðasta sunnu-
dagskvöld í mánuði kl. 20 í Garða-
kirkju og Bessastaðakirkju til
skiptis. Þema helgihaldsins var
hjónaband og sambúð. Margir góð-
ir fyrirlesarar komu og þjónuðu í
messunum. Ómar Guðjónsson gít-
arleikari hélt utan um tónlistar-
málin og svo verður áfram í vetur.
Í október og nóvember munu
tvær kraftamiklar konur og sál-
fræðingar sjá um hjóna- og sam-
búðarráðgjöfina en þær heita Erla
Grétarsdóttir og Berglind Guð-
mundsdóttir, sem er nýkomin úr
doktorsnámi í Bandaríkjunum.
Fyrsta messa haustsins verður
haldin 24. september kl. 20 í Bessa-
staðakirkju. Prestahjónin Bjarni
Karlsson og Jóna Hrönn Bolladóttir
verða með ráðgjöfina en tónlistin
verður í þetta skipti í umsjá Gunn-
ars Gunnarssonar organista og
jazzista og með honum verða Gunn-
ar Hrafnsson sem spilar á kontra-
bassa og Anna Sigríður Helgadóttir
sem leiðir sönginn. Allt fólk er vel-
komið, óháð aldri og kynhneigð.
Sjá www.gardasokn.is.
Æskulýðsfélag
Selfosskirkju
FUNDUR verður haldinn í Æsku-
lýðsfélagi Selfosskirkju fimmtu-
daginn 28. september kl. 18. Fund-
urinn verður haldinn í lofti
safnaðarheimilis Selfosskirkju.
Fermingarbörnum og þaðan af
eldri unglingum er boðin þátttaka í
starfi félagsins. Innan vébanda þess
er margt sér til gamans gert, hlust-
að á létta músík, farið í leiki, fram-
kvæmdar vettvangsrannsóknir og
lagt upp í óvissuferðir. Rætt er um
lífið og tilveruna, líka út frá kristnu
sjónarmiði. Leiðtogar eru Eygló
Jóna Gunnarsdóttir djákni og Jó-
hanna Ýr Jóhannsdóttir guð-
fræðinemi.
Fundir verða framvegis haldnir í
safnaðarheimilinu á fimmtudögum
frá kl. 18–19.30. Sóknarprestur.
Fyrsta Tómasarmess-
an á þessu hausti
FYRSTA Tómasarmessan á þessu
hausti verður í Breiðholtskirkju í
Mjódd sunnudagskvöldið 24. sept-
ember kl. 20.
Tómasarmessan hefur unnið sér
fastan sess í kirkjulífi borgarinnar,
en slík messa hefur verið haldin í
Breiðholtskirkju í Mjódd síðasta
sunnudag í mánuði, frá hausti til
vors, síðustu níu árin og verður
sami háttur hafður á í vetur.
Framkvæmdaaðilar að þessu
messuhaldi eru Breiðholtskirkja,
Kristilega skólahreyfingin, Félag
guðfræðinema og hópur presta og
djákna.
Tómasarmessan einkennist af
fjölbreytilegum söng og tónlist,
mikil áhersla er lögð á fyrirbæn-
arþjónustu og sömuleiðis á virka
þátttöku leikmanna. Stór hópur
fólks tekur jafnan þátt í undirbún-
ingi og framkvæmd messunnar,
bæði leikmenn, djáknar og prestar.
Opið hús
í Hallgrímskirkju
FYRSTA „opna húsið“ í vetur verð-
ur miðvikudaginn 27. sept. en það
verður mánaðarlega með fjöl-
breyttri dagskrá. Opna húsið hefst
kl. 14. Fyrsti gestur okkar í vetur er
Ólafur Ólafsson fyrrum landlæknir.
Einnig verður söngur, kaffiveit-
ingar og spjall. Allir velkomnir.
Texti, trú og tilgangur
BIBLÍUNÁMSKEIÐ á vegum Leik-
mannaskóla Þjóðkirkjunnar og
Reykjavíkurprófastsdæmis eystra
hefst fimmtudaginn 28. sept. nk.
Kennari á námskeiðinu er dr. Sig-
urjón Árni Eyjólfsson héraðs-
prestur og stundakennari við guð-
fræðideild HÍ. Á námskeiðinu verða
m.a. lesnir textar úr Matteusarguð-
spjalli og Rómverjabréfinu. Í ljósi
þeirra verður síðan fjallað um sam-
skipti veraldlegs og andlegs valds,
trúar og stjórnmála. Á seinni hluta
námskeiðsins verða síðan lesnir
textar úr Galatabréfinu.
Námskeiðið fer fram í Breiðholts-
kirkju og hefst kl. 20. Kennt verður
í tíu skipti, tvo tíma í senn. Skráning
fer fram á vef Leikmannaskólans,
www.kirkjan.is/leikmannaskoli eða
í síma 535 1500.
Guðsþjónusta í Frír-
kirkjunni í Reykjavík
Almenn guðsþjónusta sunnudag kl.
14. Fermingarbörn taka virkan þátt
í guðsþjónustunni. Almennan safn-
aðarsöng leiða að venju þau Carl
Möller og Anna Sigga með dyggri
aðstoð Fríkirkjukórsins. Hjörtur
Magni Jóhannsson og Ása Björk
Ólafsdóttir Fríkirkjuprestar þjóna
fyrir altari. Allir eru velkomnir.
Nanda kirkjuvarða býður upp á
kaffi í anddyrinu eftir guðsþjón-
ustuna. Minnum á bænastundir í
safnaðarheimilinu á þriðjudögum
kl. 11.30 og kyrrðarstundir í með
altarisgöngu í kirkjunni á fimmtu-
dögum kl. 12–12.30.
Síðasti þriðjudagurinn
í mánuðinum í Áskirkju
SÍÐASTA þriðjudaginn í hverjum
mánuði kl. 13 verður boðið upp á
fyrirlestur um málefni líðandi
stundar eftir helgistundina og súp-
una. Sóknarpresturinn, sr. Sig-
urður Jónsson, verður með fyrsta
innlegg 26. september. Allir vel-
komnir.
Drengjakórinn syngur í
Hallgrímskirkju
MESSA og barnastarf verður á
sunnudag kl. 11 í Hallgrímskirkju.
Prestar og djákni safnaðarins þjóna
ásamt fermingarbörnum, sem taka
þátt í messunni með ritningarlestri,
lestri bæna o.fl. Drengjakór Reykja-
víkur í Hallgrímskirkju syngur í
messunni undir stjórn Friðriks S.
Kristinssonar.
Vetrarstarf Drengjakórsins er
nýhafið, en nú syngja um 45 drengir
í kórnum. Organisti verður Björn
Steinar Sólbergsson. Eftir messu
verður boðið upp á molasopa.
12 spora-starfið í Óháða
söfnuðinum
12 spora-starfið í Óháða söfnuðinum
hefst með kynningarfundi fimmtu-
daginn 28. september kl. 19.30. Við
tökum fagnandi á móti nýjum spor-
göngumönnum hvert haust. Spor-
göngumenn þurfa alls ekki að skil-
greina sig með neina ákveðna fíkn.
Sporin henta venjulegu fólki, sem
hugsanlega er ósátt við, af hverju
lífið gengur ekki alveg að óskum, og
hvað er hægt að gera við því. Eru
allir velkomnir fyrir forvitnis sakir
á þennan kynningarfund, sem og
næstu 3 fimmtudagskvöld. Eftir það
vinnum við í lokuðum hópum. Ein-
vala hópur leiðbeinenda hlakkar til
að hitta þig í kirkju Óháða safnaðar-
ins, Háteigsvegi 56.
Kolaportsmessa
Í Kaffi-Porti innst í Kolaportinu
verður Kolaportsmessa 24. sept-
ember kl 14. Hálftíma fyrr byrjar
Þorvaldur Halldórsson að spila
„gömlu“ góðu lögin sín sem gestir
taka gjarnan undir. Síðan eru
sungnir sálmar, bænir beðnar og að
sjálfsögðu prédikað.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir
helgihaldið, sr. Bjarni Karlsson pré-
dikar, Margrét Scheving og Unnur
Halldórsdóttir taka við bæn-
arefnum. Þá kemur nýr liðsmaður
til starfa sem er sr. Þorvaldur Víð-
isson frá Dómkirkjunni.
Menningarvaka
í Seljakirkju
FYRSTA menningarvakan fyrir
eldri borgara í Seljakirkju í vetur
verður haldin þriðjudagskvöldið
næsta 26. september kl. 18.
Sr. Bolli Pétur Bollason flytur er-
indi. Jóhanna Valsdóttir syngur við
undirleik Bjarts Loga Guðnasonar.
Léttur málsverður. Skráning í síma
kirkjunnar 567 0110. Allir velkomn-
ir.
Æðruleysismessa í Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði
FYRIR 2 árum bryddaði Fríkirkjan
í Hafnarfirði upp á þeirri nýbreytni
að halda æðruleysismessur. Það er
hópur áhugafólks um 12 spora-starf
og æðruleysismessur sem stendur á
bak við þetta helgihald ásamt prest-
um Fríkirkjunnar. Þetta áhugafólk
hefur kynnst reynslusporunum 12
sem liggja til grundvallar í starfi
AA-samtakanna svo og samtaka að-
standenda alkóhólista í Al–Anon og
öðrum samtökum svo sem NA og
OA sem vinna á sama grunni.
Á sunnudaginn kemur, 24. sept-
ember kl. 20, verður haldin næsta
æðruleysismessa í Fríkirkjunni. Þá
mun AA-maður greina frá reynslu
sinni og reynslusporin 12 verða les-
in og kynnt. Tónlistin verður af létt-
ara taginu í samræmi við þá gleði
sem auðkennir góðan bata og ann-
ast „Fríkirkjubandið“ hana. Að lok-
inni messu munu þau sem standa á
bak við þetta bjóða upp á kaffisopa í
safnaðarheimili Fríkirkjunnar.
Ensk messa
í Hallgrímskirkju
Á morgun, sunnudag, 24. september
nk., kl. 14 verður haldin ensk messa
í Hallgrímskirkju. Prestur verður
sr. Bjarni Þór Bjarnason. Organisti
verður Björn Steinar Sólbergsson.
Jónína Kristinsdóttir mun leiða al-
mennan safnaðarsöng. Fimmta árið
í röð er boðið upp á enska messu í
Hallgrímskirkju síðasta sunnudag
hvers mánaðar. Messukaffi.
Service in English
Service in English at the Church of
Hallgrímur (Hallgrímskirkja) 24th
of September, at 2 pm. Holy Comm-
union. The Sixteenth Sunday after
Pentecost. Celebrant and Preacher:
The Revd Bjarni Thor Bjarnson.
Organist: Björn Steinar Sólbergs-
son. Leading singer: Jónína Krist-
insdóttir. Refreshments after the
Service.
Innsetning í embætti
sóknarprests í Prests-
bakkakirkju á Síðu
MESSA verður í Prestsbakkakirkju
á Síðu sunnudaginn 24. september
nk. kl. 14. Prófastur Skafta-
fellsprófastsdæmis, séra Haraldur
M. Kristjánsson, setur séra Ingólf
Hartvigsson í embætti sókn-
arprests Kirkjubæjarklausturs-
prestakalls.
Séra Ingólfur predikar, en báðir
prestarnir þjóna fyrir altari. Alt-
arisganga. Organisti verður Brian
Røger Haroldsson. Báðir kirkju-
kórar prestakallsins syngja. Eftir
messuna er viðstöddum boðið að
þiggja kaffiveitingar á hótel
Kirkjubæjarklaustri.
Sóknarbörn í öllum sóknum
prestakallsins eru hvött til að fjöl-
menna og taka vel á móti nýjum
sóknarpresti.
Prófastur.
Kvikmyndasýning
í Landakoti
„Inside the Vatican “– „Í páfa-
garði“ (I. hluti). Páfagarður er ein
elsta stofnun í heiminum og mið-
stöð kirkjunnar fyrir u.þ.b. 1 millj-
arð kaþólskra. Tveggja þúsalda
gömul saga hans hefur verið mjög
viðburðarík.
Sir Peter Ustinov, áhugamaður
mikill á list og sögu, leiðir okkur í
stórkostlega ferð í gegnum sögu
páfagarðsins. Hann mætir mörgum
af þeim áhrifaríku sögulegu mönn-
um (sem eru settir á sviði af leik-
urum), eins og Konstantínusi mikla
eða Karli mikla keisara.
Myndinni er skipt í þrjá hluta og
tekur hver um sig ekki meira en
klukkustund. Að sýningunni lok-
inni gefst svigrúm fyrir spurningar
og athugasemdir.
Sýningin hefst mánudaginn 25.
september nk. kl. 20 í safn-
aðarheimili kaþólskra á Hávalla-
götu 16. Aðgangur er ókeypis og
eru allir áhugsamir velkomnir.
Mánudaginn 2. október, kl. 20:
Inside the Vatican – Í páfagarði (II.
hluti).
Morgunblaðið/Ómar
vaxtaauki!
10%
Fréttir
í tölvupósti