Morgunblaðið - 23.09.2006, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 23.09.2006, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 51 HAUSTMÓT Taflfélags Reykja- víkur 2006, sem um leið er meist- aramót TR, stendur yfir þessa dag- ana í Skákhöllinni í Faxafeni 12. Mótið er eitt af stóru, árlegu mót- unum í skáklífinu hér á landi og er hið 72. í röðinni, skv. opinberri skráningu. Trúlega hafa þó verið haldin Haustmót fyrir árið 1934, þótt ekki hafi varðveist úrslit í þeim mótum. Teflt er í 10 manna lok- uðum A- og B-flokkum, en í C-flokki tefla 25 keppendur 9 umferðir, eftir svissneska kerfinu. Tafldagar eru miðvikudagar, föstudagar og sunnu- dagar, og hefjast skákirnar kl. 19.30 á virkum dögum, en kl.14.00 á sunnudögum. Tímamörkin eru 1½ klst., með 30 sekúndna viðbót fyrir hvern leik. Þegar þetta er skrifað hafa verið tefldar tvær umferðir og margar skemmtilegar skákir hafa litið dagsins ljós. Við skulum skoða eina þeirra, þar sem Lenka Ptacni- kova kvennastórmeistari leggur stigahæsta mann mótsins, FIDE- meistarann Sigurbjörn Björnsson, að velli í fyrstu umferð. Hvítt: Sig- urbjörn Björnsson. Svart: Lenka Ptacnikova. Bogo-indversk vörn. 1.d4 Rf6 2.c4 e6 3.Rf3 Bb4+ 4.Bd2 c5 5.Bxb4 cxb4 6.g3 b6 7.Bg2 Bb7 8.Rbd2 0–0 9.Dc2 – óvenjulegur leikur. Þekkt er að leika 9.Rf1, eins og ein sterkasta skákkona heims, Alexandra Kostenjúk frá Rússlandi, lék gegn Lenku á ólympíuskák- mótinu á Mallorca 2004. Skákinni lauk með jafntefli, en næstu leikir voru 9.-- Ra6 10.Re3 Bd7 11.0–0 Hc8 12.Dd3 Bc6 13.Hac1 Be4 14.Dd2 Dd7 o.s.frv. 9…d6 10.0–0 Rbd7 11.a3 bxa3 12.Hxa3 a5 13.Rg5 Bxg2 14.Kxg2 h6 15.Rge4 Dc7 16.Dd3 d5 17.Rxf6+ Rxf6 18.Hc3 Db7 19.Df3 Ha7 20.Hfc1 Hd8 21.c5 bxc5 22.Hb3 Da8 23.Hxc5 a4 24.Hb4 a3 25.bxa3 Hxa3 26.Df4 Ha4 27.Hbb5? – afleikur í jafnri stöðu. Sjálfsagt var að drepa hrókinn. Sjá stöðumynd 1. 27…e5! 28.Df5 – eftir 28.Dxe5 Rd7 vinnur svartur skiptamun, hrók fyrir riddara. 28…Hxd4 29.Rf3 He4 30.Rxe5 – betra er að leika 30.Hc7 Hf8 31.Hbb7 Hxe2 32.Rxe5 Da4 33.Rxf7 De4+ 34.Dxe4 Rxe4 35.Rxh6+ Kh8 36.Rg4 Rxf2 37.Rxf2 Hfxf2+ 38.Kh3 Hxh2+ 39.Kg4 Hb2 og niðurstaðan verður jafntefli. 30…Hxe2 31.Hc7 d4+ 32.Kh3 – þ að er mikilvægt fyrir hvítan að tvö- falda hrókana sína sem fyrst á 7. reitaröð og hóta þannig að ráðast á peð svarts á f7 og í framhaldinu líka peðið á g7. Best er 32.Hbb7 Hb2 33.Rxf7 Hxb7 34.Rxh6+ Kh8 35.Rf7+ Kg8 36.Rh6+ Kh8 37.Rf7+, jafntefli með þráskák. 32…De4 33.Dxe4 Rxe4 34.Rxf7 Hf8 35.Re5 – eða 35.f4 Hxf7 36.Hb8+ Hf8 37.Hbb7–+ Hf5 38.Hxg7+ Kf8 39.Kg4 Rd6 40.Hbd7 Hf6 og svartur vinnur. Hann á manni meira og auk þess nær hann hrók hvíts á h7 fyrir riddarann í næstu leikjum. 35…Rxf2+ 36.Kh4 He4+ 37.g4 He3 og hvítur gefst upp, því að hann á enga skynsamlega vörn við hót- uninni 38.—Hh3+ mát. Vilhjálmur Pálmason sigraði á Sportklúbbsmóti Taflfélags Reykjavíkur og Landsbanka Íslands Úrslitakeppni í Sportklúbbsmóti TR og Landsbanka Íslands í hrað- skák fór fram í Landsbankanum, Austurstræti 11 í Reykjavík, 18. september sl. Vilhjálmur Pálmason bar sigur úr býtum í úrslitakeppn- inni, hlaut 6 vinninga úr 7 skákum. Sverrir Þorgeirsson var jafn honum að vinningum, en Vilhjálmur var úr- skurðaður sigurvegari skv. stigaút- reikningi. Við upphaf mótsins afhenti Árni Emilsson, útibússtjóri Austurstræt- is 11, Taflfélagi Reykjavíkur veg- lega gjöf, 50 töfl og skákklukkur. Gjöfin kemur sér vel fyrir TR og mun valda algjörri umbyltingu á starfi Taflfélagsins. Undankeppni Sportklúbbsmóts- ins var tefld sl. laugardag í húsa- kynnum Taflfélags Reykjavíkur. Þar tefldu 30 krakkar í opnu skák- móti. Svanberg Már Pálsson varð efstur í því móti. Átta efstu tefldu svo til úrslita mánudaginn 18. sept- ember kl. 14–16 í Landsbankanum. Hjörvar Steinn Grétarsson og Einar Sigurðsson unnu sér þátttökurétt í úrslitum, en gátu ekki teflt, svo að Daði Ómarsson og Aron Ellert Þor- steinsson komu í þeirra stað. Úrslitakeppnin fór þannig: 1. Vilhjálmur Pálmason 6 v. (18 stig) 2. Sverrir Þorgeirsson 6 v. (16 stig) 3. Matthías Pétursson 4,5 v. 4.–5. Svanberg Már Pálsson 4 v. 4.–5. Daði Ómarsson 4 v. 6. Aron Ellert Þorsteinsson 1,5 v. 7.–8. Friðrik Þjálfi Stefánsson 1 v. 7.–8. Páll Snædal Andrason 1 v. Allir sem komust í úrslitakeppn- ina fengu vegleg verðlaun frá Landsbankanum, auk þess sem bik- arar voru veittir fyrir þrjú efstu sætin. Úrslitakeppnin vakti eðlilega mikla athygli viðstaddra, ekki síst fjölmargra skákáhugamanna í hópi starfsmanna bankans, og var gaman að því að Skákstjórn var í höndum heiðursfélaga TR og starfsmanns Landsbankans til fjölda ára, Ólafs S. Ásgrímssonar. Sportklúbbsmótið er einungis byrjunin á víðtæku samstarfi Tafl- félags Reykjavíkur og Landsbank- ans um skák fyrir börn og unglinga, sem kynnt verður betur síðar. Íslandsmót í atskák 2006 og 80 ára afmælismót Taflfélags Vestmannaeyja Í dag verður haldin mikil skákhá- tíð í Höllinni í Vestmannaeyjum. Þar verða haldin tvö skákmót, ann- ars vegar Íslandsmótið í atskák 2006 og hins vegar 80 ára afmæl- ismót TV. Atskákmót Íslands hefst kl. 9.30. Mótið er öllum opið, en sjálft úr- slitaeinvígið mun þó fara fram síðar, því ætlunin er að sýna það beint úr sjónvarpssal. Mótið er með útsláttarfyrirkomu- lagi, tveggja skáka einvígi í hverri umferð og sigurvegarinn kemst áfram, eftir bráðabana ef með þarf. Afmælismót TV verður hraðskák- mót, að minnsta kosti 9 umferðir. Mótið er öllum opið, og með marg- víslegum verðlaunum. Það hefst kl. 15.30, en á þeim tíma er reiknað með að 16 manna úrslitum á atskák- mótinu verði lokið, þannig að þeir keppendur sem dottnir verða úr keppni þar geti verið með á afmæl- ismótinu. Magnus Carlsen, skákmeistari Noregs 2006 Hinn 15 ára gamli stórmeistari, Magnus Carlsen, vann fyrsta Nor- egsmeistaratitil sinn í fyrradag. Hann náði fram hefndum á þjálfara sínum, stórmeistaranum Simen Agdestein, sem vann í fyrra, eftir maraþoneinvígi þeirra. Báðar kappskákirnar urðu jafn- tefli, en Magnus vann báðar atskák- irnar, og þannig einvígið 3–1. Seinni atskákin var stutt og lag- góð: Hvítt: Magnus Carlsen Svart: Simen Agdestein Spænski leikurinn 1.e4 e5 2.Rf3 Rc6 3.Bb5 g6 4.c3 a6 5.Ba4 d6 6.d4 Bd7 7.dxe5 – Sjá stöðumynd 2. 7…b5? Nauðsynlegt var að drepa á e5, annaðhvort með peði eða riddara. 8.Bb3 dxe5 9.Dd5 Df6 10.Rxe5! Rxe5 11.Dxa8+ og hvítur vann auð- veldlega. Topalov og Kramnik tefla ein- vígi um heimsmeistaratitilinn Loksins er komið að því; einvígi á milli þeirra tveggja skákmeistara, sem kalla sig heimsmeistara, hefst í dag í Kalmykíu, litlu rússnesku lýð- veldi. Hinn 44 ára gamli forseti lýð- veldisins, Kirsan Ilyumzhinov, er líka forseti alþjóðaskáksambands- ins, svo að mótsstaðurinn þarf ekki að koma á óvart. Búlgarski stór- meistarinn Veselín Topalov er heimsmeistari alþjóðaskáksam- bandsins, FIDE, en Vladimir Kramnik, rússneskur stórmeistari, ber titil sem hann vann af Kasparov árið 2000. Tefldar verða 12 kappskákir, auk styttri skáka í bráðabana ef með þarf, og verðlaunapotturinn er ein milljón Bandaríkjadala. Sigurvegar- inn í einvíginu í Kalmykíu stendur einn uppi sem heimsmeistari í skák og verður einvígið örugglega bæði spennandi og skemmtilegt. Haustmót TR byrjað Bragi Kristjánsson SKÁK Taflfélag Reykjavíkur Haustmót TR Skákhöllinni, Faxafeni 12, 17. september – 4. október 2006 Frá vinstri: Matthías Pétursson, Sverrir Þorgeirsson, Vilhjálmur Pálma- son, Björgólfur Guðmundsson og Ólafur S. Ásgrímsson. Stöðumynd 1. Stöðumynd 2. FRÉTTIR STJÓRN Stéttarfélags íslenskra fé- lagsráðgjafa hefur sent frá sér eft- irfarandi ályktun um geðheilbrigð- ismál barna- og unglinga. „Stjórn Stéttarfélags íslenskra fé- lagsráðgjafa fagnar ákvörðun heil- brigðisráðherra um að stíga skref til framfara í geðheilbrigðismálum barna og unglinga. Stækkun Barna- og unglingageðdeildar (BUGL) er löngu tímabær og ánægjulegt að efla eigi grunnþjónustu við börn og fjölskyldur þeirra með aukinni með- ferðarþjónustu eins og gert var með stofnun meðferðarteymis í Graf- arvogi. Stjórn Stéttarfélags íslenskra fé- lagsráðgjafa vill minna á mikilvægi þverfaglegs samstarfs og nauðsyn þess að fjölga stöðum félagsráðgjafa innan heilsugæslunnar enda er sam- kvæmt lögum um heilbrigðisþjón- ustu (nr. 97/1990) félagsráðgjöf, þ.m.t. fjölskyldu- og foreldraráðgjöf, ein aðalgrein heilsuverndar. Stjórn Stéttarfélags íslenskra fé- lagsráðgjafa skorar á heilbrigð- isráðherra að nota heildarsýn við uppbyggingu geðheilbrigðisþjón- ustu við börn og unglinga og nýta sér þekkingu og reynslu af þverfag- legu samstarfi eins og þá sem hefur t.d. skilað góðum árangri á BUGL og heilsugæslunni í Grafarvogi.“ Segja stækkun BUGL tímabæra UPPSKERUHÁTÍÐ býflugna- bænda verður haldin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal í dag, laugardaginn 23. september, kl 14–16 í veitingatjaldi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Býflugna- bændur af sunnanverðu landinu koma með sýnishorn af uppskeru sumarsins og leyfa fólki að smakka. Egill Sigurgeirsson læknir og Tómas Óskar Guðjónsson líffræð- ingur kynna býflugnarækt hér- lendis. Býflugnabændur munu gefa gestum að smakka eigin fram- leiðslu af hunangi beint úr búinu á staðnum. Einnig verður takmarkað magn íslensks hunangs til sölu. Sýndar verða lifandi býflugur í sýn- ingarbúri og að auki gefst gestum tækifæri á að skoða og fræðast um býflugnabúið í garðinum. Kynnt verður efnið bývax og ýmis útbún- aður sýndur. Kvenfélagasamband Íslands sem gefur út tímaritið Húsfreyjuna verður með sultukynningu á sama tíma þar sem gestir geta fengið að smakka íslenskar berjasultur og fengið uppskriftir. Sultur verða seldar á staðnum. Býflugur og sultur í Laugardal Í TILEFNI Alþjóðlega hjartadags- ins efna Hjartaheill á höfuðborg- arsvæðinu og Neistinn, styrkt- arfélag hjartveikra barna, til hjartagöngu í Elliðaárdalnum sunnudaginn 24. september nk. kl. 14. Gengið verður frá gamla Raf- stöðvarhúsinu. Boðið verður upp á hressingu, kynningu á stafgöngu á vegum ÍSÍ og síðan upphitun fyrir gönguna. Þeir sem eiga göngustafi eru beðnir að hafa þá meðferðis. Allir sem hafa fengið hjarta- sjúkdóma, aðstandendur þeirra og aðrir sem áhuga hafa á léttri gönguferð í fögru umhverfi eru hvattir til að mæta. Subway styrkir Hjartaheill með því að láta sölu- andvirði heilsubáta og Topps frá Vífilfelli rennur til Hjartaheilla þennan dag. Hjartaganga í Elliðaárdalnum OPIÐ málþing verður haldið á Hótel Loftleiðum í dag, laugardaginn 23. september, kl. 13-16 undir yfirskrift- inni Heilabilun – Fjölskyldusjúk- dómur 21. aldar? Málþingið er hald- ið í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því að Alois Alzheimer greindi Alz- heimerssjúkdóminn fyrstur manna. Rannsóknasetur í barna- og fjöl- skyldurvernd RBF stendur að mál- þinginu en samstarfsaðilar eru RHLÖ (Rannsóknastofa HÍ og LSH í öldrunarfræðum), FAAS (Félag að- standenda Alzheimerssjúklinga), Velferðarsvið Reykjavíkurborgar, félagsmálaráðuneytið og heil- brigðis- og tryggingamálráðuneytið. Gestafyrirlesari er Christine Swane frá Danmörku en auk hennar flytja erindi: Hanna Lára Steinsson, félagsráðgjafi og forstöðumaður RBF, Helga Vala Helgadóttir, fjöl- miðlakona og dóttir/aðstandandi Alzheimerssjúklings og María Th. Jónsdóttir formaður FAAS og maki/ aðstandandi Alzheimerssjúklings. Einnig verður sýnt brot úr heim- ildamyndinni Hugarhvarf: lífið held- ur áfram með heilabilun. Málþingið er opið öllum, Alzheim- erssjúklingum, fagfólki, aðstand- endum og öllum þeim sem láta sig málefnið varða. Aðgangseyrir kr. 1500. Málþing um heilabilun SUNNUDAGINN 24. september klukkan 10 fer ferjan úr Sundahöfn til Viðeyjar með fólk til að njóta kyrrðardags. Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson dómkirkjuprestur leiðir dagskrána en hún samanstendur af útivist, notalegum matmálstímum og kyrrðarstundum í Viðeyjarkirkju og Viðeyjarstofu. Heimferð verður klukkan 18.30. Kostnaður við hádegismat, síð- degiskaffi, ferjutoll og dagskrá er 3.750 kr. Kyrrðardagur í Viðey UNILEVER og Hjartavernd taka höndum saman um vitundarvakn- ingu um hjartasjúkdóma og hlut- verk heilsusamlegs mataræðis. Sunnudagurinn 24. september er Alþjóðlegi hjartadagurinn 2006 og er þema dagsins í ár Hve ungt er þitt hjarta? Markmiðið er að hvetja fólk um allan heim til að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl sem tryggir hraust hjarta fyrir lífstíð. Árið 2003 gerðu Alþjóðahjarta- sambandið (World Heart Federa- tion) og Unilever með sér sam- komulag um samstarf til að efla vitund um hlutverk heilsusamlegs mataræðis og lífsstíls við að við- halda heilbrigðu hjarta og minnka hættuna á hjarta- og æðakvillum, jafnt meðal almennings sem heil- brigðisstarfsmanna. Alþjóðlegi hjartadagurinn á morgun RANGT var farið með afstöðu minni- hlutans í bæjarstjórn Reykjanes- bæjar við afgreiðslu tillögu um lækk- un leikskólagjalda í frétt í blaðinu í gær. Fulltrúar A-listans lögðu til enn meiri lækkun leikskólagjalda en ákveðin var. Eftir að tillaga þeirra þess efnis var felld samþykktu þeir tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um breytingar á gjaldskrá sem fólu í sér lækkun leikskólagjalda. Beðist er velvirðingar á mistök- unum. LEIÐRÉTT Studdu lækkun NÝTT húsnæði Flensborgarskóla í Hafnarfirði verður tekið í notk- un með formlegum hætti klukkan 13 í dag. Fyrsta skóflustungan að húsinu Hamri var tekin 4. apríl í fyrra og vígsluathöfnin fer fram í Ham- arssal, samkomusal hússins. Að henni lokinni verða hús skólans opin og til sýnis almenningi frá 14.30 til 16. Klukkan 16 hefjast svo hausttónleikar kórs Flens- borgarskóla undir stjórn Hrafn- hildar Blomsterberg. Tónleikarn- ir eru öllum opnir og aðgangur ókeypis. Flensborgarskóli vígir nýtt húsnæði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.