Morgunblaðið - 23.09.2006, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Eftir Sigurð Jónsson
Selfoss | Lögreglustjóranum á Sel-
fossi barst afar góð gjöf í vikunni.
Bóndi úr Ölfusinu sem ekki vildi láta
nafns síns getið færði honum hálfrar
milljónar króna framlag í sjóð til
söfnunar fyrir fíkniefnahundi. Frá
því fíkniefnahundurinn Fenrir
drapst fyrir nokkrum árum hefur
verið vaxandi þörf fyrir fíkniefna-
hund í Árnessýslu og á Suðurlandi
öllu.
„Við höfum verið að safna fyrir
fíkniefnahundi fyrir lögregluna hér í
Árnessýslu frá því í vor. Margir hafa
lagt okkur lið og Eyþór Arnalds hóf
söfnunina með því að leggja fram 50
þúsund krónur og svo fylgdu fleiri á
eftir,“ sagði Ólafur Helgi Kjart-
ansson, sýslumaður á Selfossi, sem
hefur lagt á það áherslu að embætti
hans hefði yfir slíkum hundi að ráða.
Unga fólkið leggur lið
„Sérstaka ánægju mína vakti þeg-
ar Menntaskólinn á Laugarvatni og
nemendafélagið Mímir lögðu fram
sömu fjárhæð og Nemendafélag
Fjölbrautaskólans á Selfossi tvöfald-
aði þessi framlög. Það er gott að vita
af því að unga fólkið vilji leggja okk-
ur lið í þessum efnum, enda er það
markhópur þeirra ósvífnu manna
sem selja og dreifa fíkniefnum,“
sagði Ólafur Helgi sem er mjög
ánægður með góð viðbrögð almenn-
ings við þeirri áherslu að fíkniefna-
hundur verði tiltækur á ný.
„Á þriðjudaginn barst svo hálf
milljón króna frá ónefndum bónda í
Ölfusinu, sem lét fylgja með að hann
væri áhugamaður um að efla barátt-
una gegn fíkniefnum og þá fyrst og
fremst að koma í veg fyrir að ungt
fólk legði á þessa braut. Hafi hann
og allir aðrir þökk fyrir sinn góða
hug og myndarleg framlög. Okkur
er nauðsyn að hafa hund í baráttunni
gegn fíkniefnum enda hefur hann
fælingarmátt og er gríðarlega gagn-
legur við leit að fíkniefnum. Jú, við
erum farnir að hugleiða að finna
heppilegan hund, enda vantar
herslumun á að markmiðið náist að
aftur verði fíkniefnahundur í lög-
reglunni á Selfossi,“ sagði Ólafur
Helgi Kjartansson sýslumaður sem
er vongóður um að það styttist í því
að nýr fíkniefnahundur komi á
svæðið.
Bóndi gaf hálfa milljón
kr. til kaupa á hundi
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Gjafir Mikill áhugi er á því að fá nýjan fíkniefnahund til lögreglunnar á
Selfossi. Myndin var tekin þegar Ragnar Gylfason og Elías Jón Jónsson úr
Nemendafélagi FSu afhentu Ólafi Helga Kjartanssyni framlag nemenda.
Styttist í að lögreglan á
Selfossi fái fíkniefna-
hund til starfa
Hveragerði | Bæjarstjórn Hvera-
gerðisbæjar hefur samþykkt að fela
bæjarstjóra að hefja nú þegar und-
irbúning að útboði á lokaálmu leik-
skólans Óskalands í Hveragerði,
með það fyrir augum að starfsemi
hefjist þar strax næsta haust. Í kjöl-
farið verði börnum frá átján mánaða
aldri boðin leikskólavist í bænum.
Tillaga þessa efnis var lögð fram
af fulltrúum meirihlutans á síðasta
fundi bæjarstjórnar og samþykkt.
Um leið voru samþykktar reglur
um greiðslur vegna leikskóladvalar
barna utan lögheimilissveitarfélags.
Í tillögu meirihlutans kemur fram að
með því sé komið til móts við þarfir
foreldra og forráðamanna sem tíma-
bundið þurfi að sækja leikskólavist-
un barna sinna út fyrir bæjarfélagið.
Slíkt geti til dæmis komið upp við
búferlaflutninga eða námsdvöl. Með
þessu sé sveigjanleiki aukinn í dag-
vistarmálum og komið til móts við
þarfir yngstu kynslóðarinnar.
Undirbúa
stækkun
Óskalands
Ölfus | Fagráð garðyrkjunnar hef-
ur þungar áhyggjur af þróun til-
raunamála á Reykjum í Ölfusi þar
sem áður var Garðyrkjuskóli rík-
isins. Kemur það fram í frétt á sud-
urland.is.
Í yfirlýsingu hvetur ráðið stjórn-
endur Landbúnaðarháskóla Íslands
og landbúnaðarráðuneytið til að
koma rannsóknum og tilraunum í
garðyrkju í viðunandi horf.
Jafnframt er skorað á sömu aðila
að skoða stöðu garðyrkjumenntun-
ar í landinu og byggja hana upp.
Hafa áhyggjur
af Reykjum
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Selfoss | Bæjarstjórn Árborgar efn-
ir til samkeppni um skipulag mið-
bæjar Selfoss. Keppnin er unnin í
samvinnu við Arkitektafélag Ís-
lands. Stefnt er að því að á Selfossi
verði miðbær með íbúðarbyggð, öfl-
ugri verslun og þjónustu á sem flest-
um sviðum sem geti þjónað öllu Suð-
urlandi, segir í frétt á vef sveitar-
félagsins.
Deilur urðu á síðasta ári um þá
vinnu sem þá var unnin að skipulagi
miðbæjar Selfoss. Núverandi bæjar-
stjórn tók ákvörðun um umrædda
samkeppni og var keppnislýsing
samþykkt á fundi bæjarráðs í vik-
unni.
Leitað að vænlegum höfundi
Fram kemur á vefnum að fyrst og
fremst sé verið að leita eftir höfundi
og tillögu að deiliskipulagi miðbæjar,
til nánari útfærslu. Rétt til þátttöku
hafa félagar í Arkitektafélagi Ís-
lands, nemendur í arkitektúr, þeir
sem rétt hafa til að gera aðalupp-
drætti fyrir byggingarnefnd og aðrir
þeir sem hafa rétt til skipulagsgerð-
ar hér á landi.
Keppnislýsing verður afhent end-
urgjaldslaust frá og með næstkom-
andi mánudegi á bæjarskrifstofu Ár-
borgar og á skrifstofu Arkitekta-
félags Íslands í Reykjavík. Einnig er
hægt að nálgast hana á heimasíðu
Árborgar. Tillögum skal skila til
trúnaðarmanns, á skrifstofu Arki-
tektafélags Íslands, eigi síðar en 1.
desember nk. Áætlað er að dóm-
nefnd ljúki störfum í janúar 2007.
Höfundur þeirrar tillögu sem hlýtur
fyrstu verðlaun verður ráðinn skipu-
lagsráðgjafi verkefnisins, ef viðun-
andi samkomulag næst.
Samkeppni
um miðbæ
Niðurstaða á að
liggja fyrir í janúar
EF sá ætti fund sem finnur hefðu
starfsmenn skíðasvæðisins í Hlíð-
arfjalli eignast forláta jeppabifreið á
fimmtudaginn. Þegar þeir mættu til
vinnu stóð þar stór jeppi fastur í
drullusvaði skammt frá skíðahót-
elinu en Guðmundur Guðmundsson,
svæðisstjóri í Hlíðarfjalli, segir al-
gengt, jafn að sumri sem vetri, að
jeppamenn leiki sér á svæðinu.
„Við sjáum oft að vetri til að
jeppamenn hafa komið hér um
kvöldið eða nóttina. Þeir fara í
troðnu brekkurnar og það tekur
okkur marga klukkutíma að laga
brekkurnar eftir þá með snjótroð-
aranum,“ sagði Guðmundur við
Morgunblaðið, en þetta er í fyrsta
skipti sem ökumenn hafa þurft að
skilja bíl eftir á svæðinu. „Þeir festa
sig yfirleitt ekki, en þessir strákar
höfðu verið að djöflast hér í fyrra-
kvöld og festu bílinn. Þeir náðu í
annan jeppa til þess að reyna að losa
þennan en hann var svo fastur að
þeir náðu honum ekki upp. Þetta er
nýgróið svæði – við sáðum í þetta í
vor eftir framkvæmdir vegna snjó-
framleiðslukerfisins og svæðið er því
mjög viðkvæmt. En þeir komu og
löguðu svæðið eftir sig áður en við
hjálpuðum þeim að draga bílinn upp
með troðaranum.“
Ljósmynd/Guðmundur Guðmundsson
Hjálpsamir Starfsmenn skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli þurftu að nota snjótroðara til þess að losa jeppann úr drullusvæðinu skammt neðan skíðahótelsins.
„Svæðið er mjög viðkvæmt“
Ljósmynd/Guðmundur Guðmundsson
Skemmdir Svæðið var illa farið en starfsmenn skíðasvæðisins létu öku-
menn bílsins laga til eftir ökuferðina, áður en þeir drógu bílinn upp.
» Í allt sumar hefur veriðunnið að því að ljúka upp-
setningu snjóframleiðslukerfis
og skíðasvæðið verður opnað
löngu fyrir jól.
» „Strákarnir sáu að sér oglöguðu hjólförin og eiga
bara gott skilið fyrir það,“
segir Guðmundur Guðmunds-
son, svæðisstjóri í Hlíðarfjalli.
» „Við sjáum oft að vetri tilað jeppamenn hafa komið
hér um kvöldið eða nóttina.
Þeir fara í troðnu brekkurnar
og það tekur okkur marga
klukkutíma að laga brekk-
urnar eftir þá með snjótroð-
aranum.“
Í HNOTSKURN
Sundfélagið Óð-
inn vekur athygli
á þörf fyrir 50
metra sundlaug á
Akureyri í til-
kynningu sem
formaður félags-
ins sendi frá sér í
gær. Þar segir að iðkendum hafi fjölg-
að ört síðustu sex árin. „Mikil
þrengsli eru nú þegar í æfingaaðstöðu
félagsins og fer það að koma niður á
þjálfun afreksfólks okkar. Fjársterkir
aðilar hafa sýnt því áhuga að byggja
50 metra sundlaug á svæði Sundlaug-
ar Akureyrar við Þingvallastræti 21.
Þessir aðilar eru tilbúnir til að hefja
framkvæmd sem fyrst. Nú þegar er
hafinn undirbúningur að stofnun
hlutafélags um verkefnið. Mjög mik-
ilvægt er fyrir sundfélagið að fá 50
metra yfirbyggða sundlaug fyrir æf-
ingar og keppni sem fyrst svo unnt sé
að halda úti þjálfun á afreksfólki.
Við hjá Sundfélaginu Óðni förum
þess á leit að bæjaryfirvöld gefi sér
tíma til að skoða þennan kost áður en
svæðinu er úthlutað til annarra nota,“
segir í tilkynningu frá Ástu Birgis-
dóttur, formanni Óðins.
Ásta vildi, í samtali við Morgun-
blaðið, ekki greina frá því hverjir
nefndir fjársterkir aðilar væru, „en
okkur finnst eðlilegt að skoða svæðið í
heild áður en byggt verður á því.“
Rétt er að geta þess að bæjaryf-
irvöld hafa til umfjöllunar beiðni eig-
anda Vaxtarræktarinnar um leyfi til
að reisa hús á hluta lóðarinnar norðan
við Íþróttahöllina sem tilheyrir sund-
laugarsvæðinu í dag, og um það var
raunar undirritaður rammasamning-
ur sl. vor.
50 metra
sundlaug
nauðsyn
♦♦♦