Morgunblaðið - 23.09.2006, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 31
eða skilja bílinn eftir þar. Það er
ekki nema svona tíu mínútna gang-
ur.“
Það sem þau hjónin sækjast eftir
með því að vera í bústaðnum er
fyrst og fremst kyrrðin. „Þetta er
mjög notalegur staður og það er
mjög afslappandi að vera hérna úti
í náttúrunni, gott að koma hingað
og fara að keyra skít í hjólbörum
og moka holur,“ segir Sölvi kíminn.
Góður handlangari
Þegar gerðar voru undirstöður
að húsinu létu Sölvi og Magnea
gera margar holur allt í kring.
„Með það fyrir augum að það væri
þægilegra að moka ofan í holur
heldur en upp úr þeim,“ segir Sölvi
og hlær við, „ef við vildum ekki
hafa pallinn svona stóran, en nið-
urstaðan varð sú að við notuðum
allar holurnar.“
Pallurinn er gríðarstór og fal-
legur. „Hann er mikill þrifnaðar-
auki og gefur betra skjól.“
Veðursæld er þó nokkur þó að
suðaustanáttin geti látið finna fyrir
sér. „Svo eftir því sem trén hækka
eykst skjólið,“ segir Sölvi.
Þó að þau hjónin hafi unnið
mörg handtökin á svæðinu hafa
þau látið vinna talsvert fyrir sig.
„Ég er góður handlangari,“ segir
Sölvi og hlær, „og er hlynntur sér-
hæfingu.“
Gufubaðið sem bættist við hjá
þeim í sumar var góð viðbót við
það sem komið var. Í framtíðinni
vonast þau til að hitaveita verði
lögð að húsinu og þar með gæti
draumurinn um pottinn ræst. „Við,
landeigendur hér, höfum barist fyr-
ir því að fá hitaveitu hingað. Það
gengur hægt en kemur vonandi.
Auðvitað dreymir okkur um að fá
almennilegan heitan pott því það er
sérstaklega notalegt að vera í heit-
um potti úti í sveit á veturna, þar
sem er engin ljósmengun, og horfa
á stjörnurnar, nú eða láta snjóa í
andlitið á sér.“
sia@mbl.is
Stolt húsbóndans Sölvi er hreykinn af eldiviðarhlaðanum
sem hann hefur dundað sér við með nákvæmnina í fyrirrúmi.
Smáatriði Það eru oft smáatriðin sem gera útslagið í heildarmyndinni. Gömul
straujárn og enn eldri straujárn geta verið flott hilluskraut.
Upp í loft Sölvi kom með vogina frá Sýrlandi.
Þar fann hann hana á fornsölu.
Gufa Í sumar bættu Sölvi og Magnea gufubaði við bústaðinn.
ÞEGAR blaðamaður gekk
inn um dyrnar í bústað
þeirra Sölva og Magneu
tók á móti honum ljúf-
fengur ilmur, sem kom til
af því að Sölvi var að
kynda undir sólberjum.
Ekki var hægt að sleppa
honum við að segja frá að-
ferðinni og hlutföllunum
sem fer hér á eftir:
Sólberin (gildir líka um
rifs) eru þvegin og sett í
pott og nauðsynlegt er að
hafa talsvert af stilkum,
grænjöxlum og grænu
laufi með, því að í þeim er
hleypirinn. Einn dl af
vatni er settur móti ca. kg
af berjum og soðið í stund-
arfjórðung við vægan hita
og hrært í annað slagið.
Þá er hellt úr pottinum í
sigti sem er klætt með
grisju og safinn pressaður í annan pott. Þetta verður hreinn og fínn safi sem
síðan er blandaður hrásykri í hlutföllunum einn á móti einum, suðan látin
koma upp þannig að sykurinn bráðni og myndast þá stundum smáskán ofan á
sem fleytt er af, en síðan er vökvanum ausið í krukkur þar sem hann stinnist.
Þetta verður undurgott hlaup. Gott er að setja hratið aftur í pott, hella á það
vatni þannig að fljóti yfir og láta sjóða í um það bil klukkustund, sigta síðan
gegnum grisju og blanda hrásykri saman við vökvann í hlutföllunum þrír á
móti fjórum og hræra saman við uns bráðnar, en sjóða ekki. Þetta er fjarska
góð hrásaft og með ís eða grjónagraut. Og vitaskuld alveg fjarska holl!
Sólber Sölvi gefur uppskrift og aðferð að
ljúffengu sólberjahlaupi sem hann gerir oft.
Sólberin
Opið: Opið virka daga frá kl. 11-18,
laugardaga 11-15
Síðumúla 3, sími 553 7355
Haust 2006
Glæsilegur kvenfatnaður