Morgunblaðið - 23.09.2006, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.09.2006, Blaðsíða 6
Skerðing frá fyrstu krónu Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is MESTAR líkur eru á að ríkið tapi ekki neinum tekjum ef ríkið tekur upp frítekjumark á at- vinnutekjur eldri borgara og öryrkja. Þetta full- yrðir Einar Árnason, hagfræðingur Félags eldri borgara, en í dag skerða tekjur þessa fólks bætur sem það fær frá Tryggingastofnun rík- isins. Núverandi kerfi almannatrygginga byggist á því að allar viðbótartekjur sem öryrkjar og elli- lífeyrisþegar fá skerða bætur. Skerðingarnar eru mjög víðtækar því sá sem vinnu sér inn 1.000 krónur situr eftir með um 350 krónur þeg- ar búið er að taka tillit til skerðingar bóta og skattgreiðslna. Skerðingin er frá fyrstu krónu sem lífeyrisþegar vinna sér inn. Fátæktargildra? Sumir hafa gengið svo langt að segja að þetta kerfi hneppi fólk í fátæktargildru. Bætur al- mannatrygginga eru ekki háar og þorri eldri borgara sem nú er að fara á lífeyri fær háar greiðslur úr lífeyrissjóðum. Vilji fólk reyna að bæta stöðu sína með því að fá sér vinnu eru bæt- urnar skertar. Fólki er því nær allar bjargir bannaðar. Þetta mál var ítarlega rætt í nefnd um bætt kjör eldri borgara sem Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari veitti forstöðu. Nefndin skil- aði tillögum í sumar og einn hluti þeirra er að frá og með 1. janúar árið 2009 verður frítekju- mark vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega 200 þúsund krónur á ári og frá 1. janúar 2010 verði frítekjumarkið hækkað í 300 þúsund á ári. 200 þúsund króna árstekjur þýða að fólk má vinna sér inn rúmlega 16 þúsund krónur á mán- uði án þess að bætur skerðist. Einar Árnason segist ekki skilja tregðu stjórnvalda til að stíga stærri skref í þessa átt. Það hafi valdið vonbrigðum að stjórnvöld skyldu ekki vera tilbúin að stíga þetta litla skref strax. Samkvæmt útreikningum Tryggingastofnun- ar kostar það stofnunina 142 milljónir á ári að veita 31 þúsund ellilífeyrisþegum 200 þúsund króna frítekjumark á ári. Þarna er byggt á því að enginn ellilífeyrisþegi breyti hegðan sinni með breyttu kerfi. „Það er ljóst að þegar þú ert kominn með svona kerfi þá ferðu frekar út á vinnumark- aðinn. Þegar þú veist að þú mátt afla þér tekna upp á 300 þúsund ferðu í starf sem kannski skil- ar þér 600 þúsundum í tekjur. Þar með ertu far- inn að greiða skatta og bætur skerðast líka. Rík- issjóður hagnast því á þessari breytingu. Þar að auki er þetta heilbrigðismál; að gefa fullfrísku fólki tækifæri til að vinna þó að það sé komið á lífeyri,“ segir Einar sem bendir á að fulltrúi Tryggingastofnunar hafi viðurkennt á fundi með Öryrkjabandalaginu nýverið að líklega myndi ríkissjóður ekki tapa neinu á þessari breytingu. Sigurbjörg Sigþórsdóttir, starfsmannastjóri Bakarameistarans, segir að í þeirri þenslu sem sé í þjóðfélaginu í dag geti það hjálpað mikið ef hægt sé að gefa öryrkjum og ellilífeyrisþegum færi á að afla sér tekna án þess að bætur skerð- ist. Fyrirtæki og stofnanir hafi undanfarin miss- eri átt í miklum erfiðleikum með að fá fólk. „Margir öryrkjar og ellilífeyrisþegar eru fólk með starfsorku og vilja gjarnan afla sér tekna, en kerfið leyfir því ekki að taka þátt í vinnu- markaðinum. Ef þessu væri breytt gæti það slegið á þenslu í þjóðfélaginu.“ Fréttaskýring | Rúmlega tvö ár eru í að öryrkjum og öldruðum verði gefið tækifæri til að vinna sér inn tekjur án þess að þær skerði bætur. Frítekjumarkið mið- ast við 200 þúsund kr. árstekjur. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Aldraðir Margir þeirra búa við góða heilsu og hafa áhuga á að vinna eftir að þeir fara á ellilífeyri. Í HNOTSKURN »Frá og með 1. janúar árið 2009 verðurfrítekjumark vegna atvinnutekna elli- lífeyrisþega 200 þúsund krónur á ári og frá 1. janúar 2010 verður frítekjumarkið 300 þúsund á ári. »Ellílífeyrisþegi sem vinnur sér inn1.000 krónur situr eftir með um 350 krónur þegar búið er að greiða skatta og taka tillit til skerðingar bóta. »Það myndi draga úr vinnuaflsskorti effleiri öryrkjar og eldri borgarar fengj- ust út á vinnumarkaðinn. 6 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Í TENGSLUM við Vísindavöku efndi Rann- sóknamiðstöð Íslands (RANNÍS) meðal annars til teiknisamkeppni 9 til 11 ára barna og voru veitt 10 verðlaun fyrir skemmtilegar myndir auk þess sem meira en 200 myndir voru sýndar. Vísindavaka – stefnumót við vísindamenn var haldin í Listasafni Reykjavíkur í gærkvöldi en dagurinn var tileinkaður vísindamönnum og hald- inn hátíðlegur í mörgum helstu borgum Evrópu. Vísindavaka í annað sinn Þetta er í annað sinn sem RANNÍS stendur fyrir Vísindavöku en markmiðið er að vekja áhuga almennings á vísindum og auka vitund um starf vísindamanna og mikilvægi þeirra. Börnum og unglingum var boðið að koma með innlegg í Vísindavökuna. Annars vegar var efnt til ljósmyndasamkeppni framhaldsskólanema á aldr- inum 16 til 23 ára og hins vegar teiknisam- keppnin. Teiknisamkeppni RANNÍS var í samstarfi við Barnablað Morgunblaðsins og Eddu útgáfu og var verkefnið „Vísindamaðurinn minn“ í þeim til- gangi að sjá hvernig börn sjá hinn íslenska vís- indamann fyrir sér. Fjölmargar teikningar bárust í samkeppnina og var vandi dómnefndar mikill en hana skipuðu Georg Guðni myndlistarmaður, Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir blaðamaður og Hjördís Hend- riksdóttir. Efnilegasti vísindamaðurinn Eftir Ásdísi Margréti Ólafsdóttur. Niðursokknasti vísindamaðurinn Eftir Snædísi Ingu Rúnarsdóttur. Morgunblaðið/Ásdís Frægasti vísindamaðurinn Eftir Bergljótu Sunnu Elíasdóttur í Reykjavík. Vísindamaðurinn í augum barnanna SILFURBERG er hvorki vernduð né friðlýst steintegund og sömu reglur gilda um silfurbergstöku og aðra efnistöku. Vegna fréttar um samning Þjóðleikhússins um kaup á 5 tonnum af silfurbergi hefur vakn- að sú spurning hvaða reglur gildi um silfurbergsnám. Að sögn Helga Jenssonar, fram- kvæmdastjóra hjá Umhverfis- stofnun, þarf viðkomandi sveitarfé- lag að gefa framkvæmdaleyfi ef efnistaka er ekki til eigin nota. Rekstraraðili viðkomandi efn- istökustaðar sækir þá um efnistök- una til sveitarfélagsins og það leit- ar eftir umsögn til Umhverfis- stofnunar. „Lagalega umhverfið gerir ekki greinarmun á hvort efni heitir sandur eða silfurberg heldur ein- göngu hvort efnistakan er inni á svæði sem er á svokallaðri nátt- úruminjaskrá. Þá er Umhverf- isstofnun umsagnaraðili. Ef þetta er innan friðlýsts svæðis er stofn- unin líka leyfisgjafi.“ Silfurberg hvorki verndað né friðlýst RAGNAR Halldórsson er einn þeirra sem segist ekki hafa treyst sér til að fara út á vinnumark- að eftir að hann fór á lífeyri. Kerfið sé þannig að það sé sáralítið sem sitji eftir í vasanum þegar upp er staðið. Þeir sem þurfi að treysta á bætur Tryggingastofnunar búi við það að allar við- bótartekjur skerði lífeyrisbæturnar. Hann hafi t.d. tekið út hluta af séreignarsjóði sínum, sam- tals 250 þúsund krónur, en tæplega 100 þúsund hafi strax farið í skatt og síðan hefði hann fengið bakreikning upp á 126 þúsund frá Tryggingastofnun í formi skertra bóta. Eftir standi því innan við 30 þúsund krónur. Af 250.000 stóð aðeins 30.000 eftir LÖGREGLAN í Reykjavík tók fimm ökumenn grunaða um að aka bifreið undir áhrifum áfengis aðfaranótt föstudags. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu þykir það ekki óeðlilega há tala, þrátt fyrir að um virkan dag sé að ræða, en það kom hins vegar á óvart að fjórir ökumannanna voru konur. Samkvæmt tölfræði lögregl- unnar er það nýlunda að svo margar konur séu teknar á einni nóttu miðað við karlmenn sem eru langoftast í miklum meirihluta þeirra sem setjast undir stýri eftir neyslu áfengis. Konur undir áhrifum við akstur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.