Morgunblaðið - 23.09.2006, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 61
dægradvöl
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til
Costa del Sol í október. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4
dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu
tækifærið og tryggðu þér sumarauka á frábærum kjörum á
vinsælasta sumarleyfisstað Íslendinga.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Costa del Sol
5. eða 12. október
frá kr. 34.990
Allra síðustu sætin
Verð kr. 34.990
Netverð á mann, m.v. 2-4 saman í íbúð í viku
5. eða 12. okt. Aukavika kr. 10.000.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
1. d4 d5 2. c4 Rc6 3. Rc3 dxc4 4. d5 Re5
5. f4 Rg4 6. e4 e5 7. f5 h5 8. Rf3 Bc5 9.
Bxc4 Rf2 10. Db3 Rf6 11. Db5+ Rd7
12. Hf1 Rg4 13. Bg5 Be7 14. Bd2 0–0
15. Bb3 Rc5 16. De2 Rxb3 17. axb3 c6
18. 0–0–0 Dc7 19. Kb1 Hd8 20. h3 Rf6
21. Bg5 Rh7 22. Bxe7 Dxe7 23. g4 hxg4
24. hxg4 g5 25. Hh1 f6 26. Hh6 Hf8 27.
d6 Dd7 28. Dh2 Hf7 29. Hh1 b5 30.
Hg6+ Kf8
Staðan kom upp á Evrópumeistara-
móti stéttarfélaga sem lauk fyrir
skömmu í Liverpool. Stórmeistarinn
Luke McShane (2.614) hafði hvítt gegn
alþjóðlega meistaranum Gwain Jones
(2.416). 31. Rxe5! fxe5 32. Dxe5 Hg7
33. Hxh7! og svartur gafst upp enda
fokið í flest skjól eftir 33. … Hxh7 34.
Df6+ Df7 35. Dd8+ De8 36. Hg8+.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Meistaraverk.
Norður
♠K10984
♥K84
♦ÁD
♣876
Vestur Austur
♠G75 ♠65
♥DG9762 ♥–
♦G107 ♦9542
♣4 ♣KDG10953
Suður
♠ÁD2
♥Á1052
♦K863
♣Á2
Suður spilar 6♠ og fær út lauffjarka.
Spilið er frá Danmerkurmótinu í tví-
menningi, sem Erik Brok og Jörgen
Pabst unnu. Brok varð sagnhafi í spa-
ðaslemmu á þrílitinn í suður eftir upp-
lýsandi sagnir: Vestur vakti á „multi“
tveimur tíglum og norður kom inn á
tveimur hjörtum til að sýna spaðalit –
vörn sem margir Danir spila. Austur
meldaði þrjú lauf eðlilega og suður
stökk beint í sex spaða, sem austur
doblaði út á hjartaeyðuna. En vestur
hlýddi ekki og kom út með einspilið í
laufi. Til að gera langa sögu stutta, þá
drap Brok á laufás, tók spaðaás, spilaði
spaðatvisti að blindum og svínaði tí-
unni! Gaf svo slag á lauf. Nú var
slemman í húsi með því að trompa
þriðja lauf blinds með spaðadrottn-
ingu. Sannkallað meistaraverk, eins og
Ib Lundby segir réttilega í Dansk
Bridge.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 prettvís, 8 um
síðir, 9 moðreykur,
10 miður sín, 11 fiskar,
13 ákveð, 15 hárknippis,
18 frásögnin, 21 glöð,
22 rifja hey, 23 kjánar,
24 sjálfhælinn.
Lóðrétt | 2 gestagangur,
3 viðurkennir, 4 lengdar-
eining, 5 dysjar, 6 fjall,
7 klukkan, 12 umfram,
14 fáláta, 15 eldur,
16 kerling, 17 háð,
18 vísa, 19 borguðu,
20 líffæri.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 busla, 4 súlda, 7 kenna, 8 tukta, 9 rit, 11 róar,
13 hrun, 14 ógnar, 15 hofs, 17 æfur, 20 fró, 22 ískur,
23 lesti, 24 arður, 25 narti.
Lóðrétt: 1 búkur, 2 sunna, 3 afar, 4 sótt, 5 lýkur, 6 akarn,
10 iðnir, 12 rós, 13 hræ, 15 hníga, 16 fíkið, 18 fýsir,
19 reipi, 20 frír, 21 ólán.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
1 Sjálfur Tortímandinn, ArnoldSchwarzenegger, ríkisstjóri í
Kaliforníu, hefur nú ráðist til atlögu
gegn nýjum og mjög öflugum óvini.
Hver er hann?
2 Það er gamall kækur hjá hernumí Taílandi að ræna völdunum
öðru hverju. Hve oft hefur hann gert
það frá stríðslokum?
3 Steinbítshlýri eða bara hlýri erhinn besti matfiskur. Hvað
merkir orðið hlýri?
4 Á móti hvaða liði leikur kvennaliðBreiðabliks í 8 liða úrslitum
Evrópukeppninnar í knattspyrnu í
næsta mánuði?
5 Hvaða félög unnu Meistara-keppni HSÍ í handknattleik karla
og kvenna á dögunum?
Spurt er…
dagbok@mbl.is
Svör við spurningum gærdagsins:
1. 57 ferkm. 2. Bollywood. 3. Hugo
Chavez. 4. 14–16 millj. ára. 5. Gláma.
Rolling Stones eru enn og afturfarnir að rúlla yfir Bandaíkin.
Meira en 40.000 manns mættu á
fyrstu tónleika sveitarinnar í Fox-
borough, litlum bæ rétt utan við
Boston, á mið-
vikudaginn. Sto-
nes er nú langlíf-
asta og ein allra
vinsælasta sveit
rokksins og
meðlimir flestir
á sjötugsaldri.
Gárungarnir
segja að það að
mæta á tónleika
með Stones sé
aðallega til þess
að sjá hljóm-
sveitina, standandi á sviðinu, fremur
en að fólk sé að leita eftir sérstakri
tónlistarlegri upplifun. Hvert tón-
leikaferðalag gæti orðið það síðasta,
og um að gera að berja þessar goð-
sagnir augum áður en þeir snúa tám
upp í loft.
Þetta ár hefur reynst Stones mót-
drægt fyrir margar sakir. Keith
gamli Richards tók upp á því að
hrapa úr pálmarunna. Ron Wood fór
í meðferð í sumar, Jaggerinn fékk
sýkingu í raddböndin og trymbillinn,
hinn stóíski Charlie Watts, var
greindur með krabbamein í hálsi ár-
ið 2004.
Cameron Diaz hefur kært skæðan„paparazzi“-ljósmyndara fyrir
morðtilraun, en ljósmyndarinn á að
hafa reynt að
keyra hana niður
og unnusta henn-
ar, Justin Tim-
berlake. Diaz og
Timberlake voru
á heimleið frá vini
sínum er ljós-
myndarinn stökk
út úr runna og
reyndi að smella
mynd af parinu. Þau brugðust skjótt
við og eltu ljósmyndarann á röndum
þar til að hann hoppaði inn í bílinn
sinn og brunaði af stað, með þeim af-
leiðingum að Diaz þurfti að stökkva
til, svo hún yrði ekki undir bílnum.
Diaz hefur semsagt kært ljós-
myndarann fyrir árás á sig og Tim-
berlake með lífshættulegu vopni, í
þessu tilfelli bifreið.
Ljósmyndastofa kærða, X17, segir
að Diaz og Timberlake hafi þvert á
móti ráðist á ljósmyndara sem var að
taka myndir á opinberum vettvangi.
Þau hafi svo reynt að króa hann af,
þar sem hann reyndi að koma sér í
burtu, í þeim tilgangi að forða lífi og
limum. Ljósmyndarinn hyggst kæra
parið.
Paul Westerberg, fyrrum leiðtogineðanjarðarrokkaranna í Re-
placements, er að semja tónlist fyrir
barnaþætti. Þátturinn Open Season
verður frumsýndur 29. september
fyrir tilstilli Sony Pictures og í hon-
um koma fram sæt og krúttleg skóg-
ardýr. „Americana“ merkið Lost
Higway mun í kjölfarið gefa út plötu
með tónlist úr þáttunum og þar verða
átta lög eftir Westerberg. Replace-
ments er ein af ástkærustu neð-
anjarðarsveitum Bandaríkjanna, en
hún lagði upp laupana. Westerberg
náði að afla sér vina í kvikmynda-
bransanum er hann leiddi sveitina,
og þannig bað Cameron Crowe
(Jerry McGuire, Almost Famous,
Vanilla Sky) hann um semja lög fyrir
mynd sína Singles. Rokkarinn grín-
ast með að næsta verkefni hans verði
rómantísk gamanmynd.
Fólk folk@mbl.is